Dagblaðið Vísir - DV - 07.06.1986, Blaðsíða 15

Dagblaðið Vísir - DV - 07.06.1986, Blaðsíða 15
DV. LAUGARDAGUR 7. JÚNÍ 1986. Umsjóru jóhannes Reykdal 59 • BILAR Reynsluakstur VW Golf Syncro: Rásfastur og með góða afldreifingu milli öxla Markaður fyrir íjórhjóladnfna bíla stækkar stöðugt. Þetta á bæði við um hina eiginlegu torfærubíla jafnt sem fólksbíla með fjórhjóladrifí á einn eða annan hátt. Flestir þessara bíla hafa skiptanlegt drif á þann hátt að annaðhvort er bíllinn með fram- eða afturdrifi og drif sett á öll fjögur hjólin þegar þess er þörf. Þýsku bílaframleiðendurnir eru ekki á sömu línu hvað þetta varðar. Þeir vilja sídrif á öll fjögur hjól, ann- aðhvort þar sem drifið er stöðugt á öllum fjórum hjólum eða þar sem sídrifið kemur sjálfskipt inn. Þetta er að vísu dýrari lausn en fyrri og einfaldari lausnir. Nýjasti bíllinn á markaði hér sem hefur þessa „sjálf- skiptu" lausn er VW Golf Syncro. Hann er búinn seigjutengsli sem stýrir afldreifingunni á milli fram- og afturhjóla á mjúkan og einfaldan hátt. Seigjutengslið eða vökvakúplingin er mjög sveigjanlegt í vinnslu. í venjulegum akstri er um 95% af afl- inu á framhjólunum. Um leið og afldreifingin breytist, framhjólin fara að spóla eða átakið breytist þá færist aflið yfir á afturhjólin. Þetta gerist með undraverðum hraða. Ef ekið er yfir hálkublett í inngjöf þá mun aflið færast yfir á afturhjólin á sekúndu- broti. Slík aflfærsla frá 18% upp í 80% gerist á 0,2 sekúndum og svo liðlega að ökumaðurinn merkir það varla. Gagnstætt öðrum bílum með fjór- hjóladrifi þá er Syncro með fríhjól- ingu á afturöxlinum. Þetta þýðir að ef stigið er á hemlana eða vélin látin draga úr ferðinni þá losnar um átak- ið á afturöxulinn. Þetta er gert til að hægt sé að nota ABS eða bremsur með læsivörn. Þetta þýðir jafnframt að Golf Syncro er mjög hlutlaus í akstri. Flestir fjórhjóladrifnir bílar eiga til að yfirstýra, eða leita út í beygju, vegna aflsins á afturöxulinn. Hér hins vegar sér fríhjólingin um að aflið á afturhjólin minnkar sé ekið í beygju og slakað á bensíngjöf- inni og þarmeð ýta afturhjólin ekki bílnum inn í beygjuna. Vegna þess hve VW Golf Syncro er miklu dýrari en margir sambæri- legir bílar er greinilegt að verksmiðj- urnar eru að stíla á sérhæfðan markað, kaupendur sem vilja bíl með sportlega eiginleika þótt aðeins sé boðið upp á 1,8 lítra 90 hestafla vél nú í byrjun. Fyrir okkar aðstæður er sú vél fyllilega nógu kraftmikil. I heild má segja að í búnaði minni Syncro nokkuð á Golf GTI, gírkass- inn er sportlegur, fjöðrun er öflugri bæði að framan og aftan og högg- deyfar sömuleiðis. Vegna afturdrifs- ins er komin ný gerð af afturfjöðrun en síst verri en áður var. Hemlakerf- ið er einnig öflugara en í venjulega Golfinum. Sjálf innréttingin er svip- uð og í standardbílnum, en vegna afturdrifsins er farangursrýmið minna en áður og er nú aðeins 230 lítrar. Hægt er að leggja fram hluta aftursætisbaksins og ef allt sætið er lagt fram fæst samtals farangursrými upp á 1030 lítra. Syncro er um það bil 170 kílóum þyngri en venjulegur Golf CL með 90 hestafla vél. 100 af þessum auka- * kílóum liggja í fjórhjóladrifinu, 40 í aukinni hljóðdeyfingu og afgangur- inn er aukabúnaður. Viðbragðið er örlítið seigara en í venjulega bílnum, 11,3 sek. frá 0 í 100 í stað 10,8 sek. Bensíneyðsla er 12% meiri eða að jafnaði 8,1 1 á 100 km. Með sínum 615 þúsund krónum er Syncro nokkuð dýrari en þeir bílar sem helst mætti líkja honum við hér á landi fjórhjóladrifsbílunum frá Su- baru og Toyota, en samt er hér á ferðinni bíll með allt aðra eiginleika og búinn drifbúnaði sem eðlis síns vegna verður alltaf dýrari. Ótrúlega rásfastur Áður hefur verið fjallað um venju- lega Golfinn í reynsluakstri hér í blaðinu svo ekki þarf að fjölyrða svo mjög um kosti hans og galla almennt en frekar það sem Syncro hefur til viðbótar. Fyrir ári átti ég þess kost að reynsluaka VW „rúgbrauði" með syncro. Sá bíll sýndi nær makalausa eiginleika í akstri við erfiðar aðstæð- ur í hálku og snjó. Hann er með fasttengt vökvatengsli og hagar sér nokkuð öðruvísi en Golf Syncro. í reynsluakstrinum var nær ógerlegt að fá Golfinn til að „skrensa“ nema á mikilli lausamöl. Hann var svo ótrúlega rásfastur að undrun sætti. Vélaraflið er fyllilega nægilegt og sérstaklega nýtist þriðji gírinn vel því hann má nota allt frá hægalulli upp í mesta hraðakstur. Fimmti gír- inn sem er yfirgír nýtist einnig vei í langkeyrslu og hefur mikla sveigju. Það verður að undirstrika að Golf Volkswagen Golf Syncro — fjórhjóladrifsbíll þar sem vökvatengsli, fyllt silikon, stýrir átakinu á milli fram- og aftur- hjóla. í þeirri útfærslu eins og billinn sem reynsluekið var er hann búinn vindkljuf að framan úr mjúku efni sem lætur undan rekist hann á ójöfnur. Vindkljúfurinn er aðeins 13 sentímetra frá jörðu og of lágur fyrir okkar aðstæð- ur og þvælist örugglega fyrir i akstri i snjó. Syncro er EKKI torfærubíll. Fjór- hjóladrifið er fyrst og fremst til að auka akstursöryggi við slæmar að- stæður, hálku og bleytu, og gerir það vel. Aksturshæfni bílsins er með ágæt- um. Það er sama hvort tekið er af stað á föstu undirlagi eða möl, bíllinn spólar nær ekki, heldur fer léttilega af stað. Veggrip er eins og fyrr sagði frábært og þarf mikið til að ofbjóða honum en að sjálfsögðu þarf að var- ast lausamöl líkt og á öðrum bílum. Fjöðrunin hefur batnað við það að bíllinn er þyngri, sérstaklega í akstri á þjóðvegum. en hann er fullstífur i inn anbæj arakstri. Stjórntæki og mælar eru til fyrirmyndar og aðgengileg. Innréttingar og sæti eru likt og í öðrum þýskum bilum i háum gæðaflokki. Farangursrýmið hefur minnkað nokkuð vegna afturdrifsins, en frágangur allur á farangursrýminu er til fyrirmyndar. Niðurstaða Golf Syncro er lipur og stöðugur ferðabíll fyrir fjóra fullorðna. Pláss er ágætt, en mætti að vísu vera rýmra að framan. Útsýni til hliða að aftan er fullþröngt vegna stórra pósta aft- ast. Mikið þarf til að raska rásfestu en undirstrika þarf að þetta er fólks- bíll með sídrifi vegna aukins aksturs- öryggis en ekki til torfæruaksturs. Frágangur allur og búnaður er góður og ber þýsku handverki gott vitni. Miðað við keppinauta á markaðinum er hann fulldýr, en býður í staðinn upp á betri aksturseiginleika. í útliti er nær enginn munur frá venjulega Golfinum. Hér sjást vel breiðir póstarnir aftast sem loka nokkuð fyrir útsýni til hliðanna að aftan. Þessi skýringarmynd sýnir vei afldreifinguna á milli fram- og afturhjólanna i akstri. Á efstu myndinni er ekið upp halla. Þá er meginaflið á afturhjólun- um. í miðið er ekið á sléttu og þá er aðalaflið á framhjólunum og neðst sést að þegar ekið er niður brekku færist enn meira afl á framhjólin til að halda á móti. VW GOLF SYNCRO: Lengd: 3985 mm. Breidd: 1680 mm. Hæð: 1415 mm. Þyngd: 1070 kg. Sporvídd f/a: 1429/1438 mm. Öxlamillibil: 2475 mm. Vél: 4 strokka vatnskæld, þverstæð, 1781 rúmsm. 90 hestöfl við 5200 sn. á mín. Þjöppun 10:1. Stýri: Tannstöng með hjálparafli. Gírkassi: Fimm gíra. Drif: Fjórhjóladrif með seigjutengsli. Fjöðrun: Gormar að framan og aftan með innbyggðum höggdeyfum. Hemlar: Diskar á öllum hjólum. Hjól: 175SR13. Eyðsla: 90 km meðalhraða: 6,2 1 á 100 km. Innanbæjar 9,9 1 á 100 km. Verð 22. maí: 615.000 kr.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.