Dagblaðið Vísir - DV - 07.06.1986, Síða 19
DV. LAUGARDAGUR 7. JÚNÍ 1986.
63
Vélmenni eru
ekki aðeins
gagnleg í bíla-
iðnaði heldur
hafa þau mal-
að kvikmynda-
iðnaðinum
gull og
skemmt áhorf-
endum í ófáum
kvikmyndum
Um leið og tækninni fleygir fram
verða vélmenni hvers konar æ full-
komnari og í iðnaði eru þau notuð
til ótrúlegustu starfa. Kvikmynda-
iðnaðurinn hefur fyrir löngu tekið
róbótana í sína þjónustu og þar
koma þeir að góðu gagni ekki síður
en í bifreiðaverksmiðjum, stáliðju-
verum og hjá sölumönnum sem
vilja laða til sín viðskiptavini með
snjöllu talandi vélmenni. Mörgum
stendur ógn af vaxandi þroska ró-
bótanna og það er einmitt tilfinning
sem margir kvikmyndaframleið-
endur hafa fært sér í nyt.
í Metropolis Fritz Lang er lýst
algerlega vélvæddu samfélagi og
helsta vélmennið í myndinni reyn-
ist kvenkyns. Birgitta Helm fer
með hlutverk þessarar stálkonu og
nefna má aðra leikkonu, Patriciu
Roc, sem fræg varð í hlutverki vél-
konunnar í The Perfect Woman.
Allt frá því að þögla myndin Metro-
polis var framleidd hafa vélmenni
verið fastir gestir á hvíta tjaldinu.
Raunar virðast lítil takmörk fyrir
því hvað menn geta fundið upp af
ómennskum eða hálfmennskum
skepnum til brúks í kvikmyndum;
vampírur, geimverur, uppvakning-
ar og alls konar kynleg sníkjudýr
ganga ljósum logum.
Vélmennin fullorðnast
Á bernskuárum vélmennanna í
Hollywood voru handrit kvik-
myndanna oft ekki upp á marga
fiska. Á sjötta áratugnum voru til
dæmis gerðar afspyrnu fíflalegar
kvikmyndir með vélmennum í að-
alhlutverkum og nægir þar að
nefna E1 Robot Humano, Robot vs.
the Aztec Mummy og Robot Monst-
er. Með þessum myndum er ekki
hægt að mæla nema fyrir þá sem
höfðu gaman af því slappasta sem
Hafnarbíó heitið hafði upp á að
bjóða.
Robbi róbót, sem var bæði hús-
freyja og bryti í kvikmyndunum
Forbidden Planet og Invisible Boy,
var einna fyrstur vélmenna til að
ná verulegum vinsældum í kvik-
myndum. Á eftir honum komu
ýmsir vinalegir starfsbræður hans
í myndunum Undersea Kingdom,
Kronos og The Day the Earth Stood
Still. Margir ættu líka að muna
eftir Huey, Dewey og Louie sem
eru ekki frændur Andrésar andar
heldur vélmenni sem vöppuðu
kringum Bruce Dern í gróðrarstöð
úti í geimnum í kvikmyndinni Si-
lent Running, en hún var sýnd í
íslenska sjónvarpinu fyrir nokkr-
tim árum.
Glæpahneigð gervimanna
í kvikmyndinni THX 1138 reynd-
ist róbót afspyrnu vel sem vörður
laganna, en frændi hans í Demon
Seed hafði á hinn bóginn glæpavél-
menniseðli og nauðgaði Julie
Christie. Kirk Douglas og Farah
Fawcett áttu líka í vandræðum
með vélmennið Hector í Saturn 3.
C3P0 og R2D2 í Star Wars minntu
hins vegar einna mest á Gög og
Gokke, annar eins og lítill blikk-
andi ísskápur á hjólum en hinn
betur heppnaður í útliti en verr
hvað hugbúnað snerti.
I kvikmyndinni Westworld, sem
sjónvarpið sýndi nýlega, gengu vél-
mennin af göflunum, og allra
verstur var Yul Brynner sem lék
byssuglatt vélmenni með kolflækt-
ar leiðslur í hausnum. Hann var
brenndur til ösku í Westworld en
reistur við í framhaldsmyndinni
Futureworld sem þótti heldur slak-
ari en sú fyrri. 1 nýlegri kvikmynd,
Runaway, eru vélmenni á hverju
Cynthia Rhodes fagnar þvi að hafa fundiö brotthlaupið vélmenni. (Til
vinstri). Eitt af vélmennunum úr The Black Hole.
heimili, rétt eins og ryksugur og
þvottavélar nú á dögum, en sjóða
ekki bara þvottinn eða sprengja
öryggi þegar þau klikkast.
Nýjasta undrið
Kvikmyndir með vélmenni í stór-
um og smáum hlutverkum eru
orðnar fjölmargar og öllum hefur
verið ætlað að stytta áhorfendum
stundir. Nú er á leiðinni enn ein
kvikmyndin með vélmenni sem að-
al örlagavaldinn. Myndin heitir
Short Circuit, John Badham leik-
stýrir og auk vélmennisins Númer
fimm fara Ally Sheedy og Steve
Guttenberg með stór hlutverk.
Númer fimm hefur enn ekki fengið
að prýða síður blaða; hann er leyni-
vopn myndarinnar, en því er heitið
að hann sé einna fullkomnastur
þeirra róbóta sem komið hafa fyrir
auga kvikmyndavéíarinnar hingað
til. Númer fimm er samkvæmt
söguþræði Short Circuit hluti af,
mjög fullkomnu vamarkerfi hers-
ins, en í þrumuveðri verður í
honum skammhlaup og hann snýst
allur á band með ást og friði. Bad-
ham leikstýrði áður Blue Thunder
og sýndi þar að honum lætur vel
að stjórna alls konar maskínum í
hraðri atburðarás. Númer fimm
hefur hins vegar allt annan boð-
skap að færa og nú er bara að bíða
spenntur eftir að fá að líta augum
þennan nýjasta fulltrúa vélmann-
anna og friðarpostula frá Hollywo-
od. -SKJ
Vélmennin
koma
Yul Brynner horfir stjörfum vélmennisaugum yfir glasið i Westworld.
Vélmenni gerir tilraunir með Julie Christie í Demon Seed.
Birgitta Helm iklæddist gervi vélkonunnar í Metropilis.