Dagblaðið Vísir - DV - 07.06.1986, Qupperneq 20
Aðalsteinn Bergdal i sólinni.
(Mynd-PK)
Mörður í sólinni
Leikhús er eflaust einhver diram-
asti vinnustaður sera ura getur. Að
minnsta kosti á dagsbirtan sjaldan
greiða leið inn í sal og upp á svið.
Lýsingin sem notuð er í hinum
ýmsu leiksýningum er oftast frem-
ur dauf- og þegar leikararnir koma
af sviðinu seint um kvöld, detta út
á stræti borgarinnar eins og per-
sónur úr skáldverki, þá bregður
þeim stundum í brún þegar þeir
stíga út í svalt vetrarveður í
Reykjavfk. Kannski léku þeir síð-
ast persónu úr verki eftir 0 Neill
og vissu ekki betur en að þeir væru
staddir á heitu borgarstræti í Am-
eríku eða í brennheitu Grikklandi
að leika í verki eftir Sófókles...
„Það er satt,“ sagði Aðalsteinn
Bergdal sem við stóðum að þvi að
laumast út í maísólina um daginn:
„Maður er eiginlega eins og kálfur
á vori, þyrstir í birtu eftir myrkrið
í leikhúsinu. Maður fer inn í
myrkrið í myrkri á morgnana og
ekki út aftur fyrr en aftur er orðið
myrkt að kvöldi. Þetta er gluggala-
us tilvera."
Upp með teppið, Sólmundur!
- En hvað gera leikarar á sumrin
þegar sólin skín - varla eru þeir
lokaðir inni í myrkri fram á haust?
„Nei - en við erum að æfa núna
og í sumar ætla ég að leika með
nokkrum stórstjörnum suður í
Hafnarfj arðarhrauni."
- Eitt í einu, annars fer allt f
þvælu. Hvað er verið að æfa núna?
„Það heitir „Upp með teppið,
Sólmundur!" - samantekt Guð-
rúnar Ásmundsdóttur, gerð í tilefni
af 90 ára afmæli Leikfélags Reykja-
víkur. Það verður þann 11. janúar
næstkomandi. Og h'ka í tilefni af
200 ára afmæli Reykjavikur. Þarna
birtast ýmsir þekktir úr sögunni,
frumkvöðlar leiklistarinnar á ís-
landi, menn eins og Indriði Einars-
son, Stefanía, Einar Kvaran og
fleiri. Iðnaðarmannafélagið í
Reykjavík auðvitað. Þetta eru
svona sögubrot - og svo leikin at-
riði úr gömlum leiksýningum í
Iðnó. Það má t.d. nefna óperettu
sem heitir „Rósenborgarbræður“
eftir J.L. Heiberg. Og „Einu sinni
var...“.“
Tíu milljón króna græjurnar
Aðalsteinn Bergdal mátti ekki
vera að því að sóla sig lengi þarna
í Iðnódyrunum - hann var á leið
vestur í Hagaskóla þar sem hann
og fleiri leikarar eru að æfa pró-
gramm í tilefni af 200 ára afmæli
Reykjavíkur.
„Við leikum á móti segulbandi.
Þetta eru þessar frægu 10 milljón
króna græjur. Við verðum að hafa
raddirnar á segulbandi til þess að
textinn heyrist jafnvel alls staðar.
Svo tölum við oní þetta auðvitað á
sviðinu líka. En þetta er nýtt fyrir
mann - og skrýtið."
Kjartan Ragnarsson stjómar
Reykjavíkurdagskránni sem Aðal-
steinn Bergdal og félagar leika á
móti sjálfum sér á segulbandi.
„Þetta verður flutt á Arnarhóli á
nýju sviði. Það verður áreiðanlega
skemmtilegt."
- En hvað fleira - þú nefndir eitt-
hvað í sambandi við Hafnarfjarðar-
hraun?
Mörður við Kaldársel
„Já. Ég ætla nefnilega að leika
utandyra í sumar. Við verðum með
útileikhús suður í hrauninu, nærri
barnaheimilinu þarna sem KFUM
og K reka við Kaldá sem Hafn-
firðingar fá vatnið úr. Heitir það
ekki Kaldársel?"
- Hárrétt.
„Þar er leikhús svo að segja frá
náttúrunnar hendi. Við ætlum að
leika Mörð Valgarðsson (leikrit
eftir Jóhann Sigurjónsson) þarna.
Helgi Skúlason og Helga Bach-
mann hafa stytt verkið - þannig
að við getum leikið þarna klukku-
tíma sýningu."
En hvers vegna við Kaldársel
- hefði ekki verið skemmtilegra að
hafa sýninguna á Þingvöllum?
„Það stóð til í upphafi. En Þing-
vallanefnd sagði nei.“
- Hvers vegna?
„Nefndin taldi víst að leiksýning
myndi trufla friðinn í þjóðgarðin-
um.“
- Trufla fólkið í sumarbústöðun-
um sem hún leyfði byggingu á á
sínum tíma?
„Já, ætli það ekki. Við ætluðum
að vera uppi í Hvannagjá og það
er náttúrlega ótækt að vera með
leiksýningu þar. Maður sér það
núna. Það hefði kannski komið
þangað fólk að skemmta sér. Það
má náttúrlega ekki.“
- Svo þið fóruð suður að Kaldár-
seli?
„Já, og við erum bara fegin því.
Það eru þarna bollar sem eru svo
haganlega gerðir frá náttúrunnar
hendi að það er eins og þeir hafi
beðið eftir okkur þessi tíu þúsund
ár sem þeir hafa verið til - eða er
það kannski ekki svo langur tími?“
- Nei, ætli það. En það er samt
langur tími síðan hraunið kringum
Hafnarfjörð rann. - Leikur þú
Mörð?
„Já. Og svo eru þarna menn eins
og Rúrik Haraldsson, Erlingur
Gíslason, Jakob Þór og Valdimar
Flygenring og Þröstur Gunnarsson
og fleiri, samtals tíu manns.“
- Hvað heitir leikhúsið?
„Það heitir „Söguleikhúsið". Við
ætlum að leggja rauðan dregil frá
Keflavíkurveginum og út allt
hraun niður í bollann þar sem leik-
ið verður."
- Eruð þið eitthvað lasin? Rauð-
an dregil?
„Já. Það er ekkert mál. Þessi
dregill er þegar kominn á veginn
að hluta. Rauðamöl auðvitað. Við
bætum svo bara við þar sem á vant-
ar. Og rétt að taka það fram að
bæjarstjórnin í Hafnarfirði hefur
tekið þessu stórvel. Og við von-
umst til að áhorfendur geri það
líka.“
- Áhorfendur? Verða það ekki
mest útlendingar?
„Nei, hvers vegna heldurðu það?
Auðvitað koma þeir líka en ég held
að íslendingar ættu ekki síður að
hafa gaman af að fara í útileikhús,
sjá Mörðinn í náttúrunni - eða
þannig sko,“
-GG