Dagblaðið Vísir - DV - 10.06.1986, Page 3
DV. ÞRIÐJUDAGUR 10. JÚNÍ 1986.
3
Steingrímur
heimsækir
Carisson
Ákveðið hefur verið að Steingrímur
Hermannsson forsætisráðherra fari í
opinbera heimsókn til Svíþjóðar og
verði þar 6. og 7. október. Hann verð-
ur þar í boði starfsbróður síns, Ingvars
Carlsson. HERB
hlaut
Bæjarfógeti
15
mánaða fangelsisdóm
Sakadómur Vestmannaeyja hefur
dæmt í máli bæjarfógetans í Vest-
mannaeyjum og aðalbókarans við
sama embætti, þeirra Kristjáns Torfa-
sonar og Ólafs Jónssonar. Voru þeir
hvor um sig dæmdir í fimm mánaða
fangelsi en reising höfö skilorðsbundin
að því er þrjá mánuði varðar.
Enníremur voru Kristján og Ólafur
dæmdir til að greiða allan sakarkostn-
að, þar með talin saksóknaralaun til
ríkissjóðs, 100.000 kr. og málsvamar-
laun til veijenda sinna, 100.000 kr. til
hvors. Við ákvörðun refsingar var
m.a. höfð hliðsjón af því að ákærðu
höfðu aldrei áður sætt refsingu.
Lán og innistæðulausir tékkar
í ákæruskjali ríkissaksóknara, dag-
settu 30. ágúst í fyrra, var báðum gefið
að sök brot í opinberu starfi og að
hafa...„hvor um sig og báðir saman
misnotað embættis- og starfcaðstöðu
sína við bæjarfógetaembættið ýmist
sjálfum sér eða öðrum til ávinnings
og fyrirgreiðslu og þá jafnframt með
gerðum sínum hallað rétti hins opin-
bera og rýrt að sama skapi hlut þess
í sjóðum embættisins frá því sem ann-
ars heföi verið.“
Ákæran skiptist í tvo kafla. í fyrsta
kafla var ákærðu gefið að sök að hafa
lánað sjálfum sér og öðrum úr sjóðum
embættisins og rangfært bókhald þess
í því sambandi. Hvað Kristján varðaði
var hér um að ræða rúmar 171.000 kr.
en hvað Ólaf varðaði rúmar 432.000
kr. Dómurinn taldi ákærðu sanna að
sök hvað þetta varðaði.
í öðrum kafla var ákærðu báðum
gefið að sök að hafa geymt í sjóði
embættisins, um óhæfilega langan
tíma, 11 innistæðulausa tékka árið
1983, samtals að upphæð rúmar
883.800 kr. sem notaðir höfðu verið til
greiðslu á opinberum gjöldum til bæj-
arfógetaembættisins og jafnframt að
hafa vanrækt að framvísa þeim svo
að viðhaldið væri tékkarétti. Dómur-
inn sakfelldi Kristján fyrir geymislu
tékkanna en sýknaði Ölaf þar sem
Kristján bæri einn ábyrgð á því sem
forstöðumaður embættisins. Hinsveg-
ar sakfelldi dómurinn Ólaf fyrir ýmis
afskipti af tékkunum og rangfærslur
í bókhaldi í því sambandi.
Ólögmæt afskipti af banka-
innleggi
I ákæruskjalinu var hinum ákærðu
gefið að sök að hafa haft ólögmæt af-
skipti af bankainnleggi með tékkum
að upphæð rúmar 2.168.000 kr. sem
ríkisendurskoðandi hafði útbúið við
sjóðtalningu 18. mai 1983.
Sök ákærðu vegna bankainnleggs-
ins þótti gegn neitun þeirra hinsvegar
ekki nægilega sönnuð og voru þeir
sýknaðir af þeim þætti ákærunnar.
Loks var ákærðu gefið að sök að
hafa heimilað afhendingar á vöru-
sendingum án lögboðinnar tollmeð-
ferðar og greiðslu aðflutningsgjalda
til ríkissjóðs á árunum 1982 og 1983,
Kristján í fimm tilvikum og ólafur í
þremur.
Dómurinn taldi sök Kristjáns ekki
sannaða gegn neitun hans að því er
varðar 2 afhendingar. Hann var hins-
vegar sakfelldur fyrir að hafa bæði
heimilað sjálfur og látið heimila af-
hendingar á 3 vörusendingum án
lögboðinnar meðferðar. Ólafúr var
einnig sakfelldur fyrir að hafa heimil-
að afhendingu á 3 vörusendingum.
Af hálfu ákæruvaldsins sótti málið
Bragi Steinarsson vararíkissaksókn-
ari en verjendur Kristjáns og Ólafe
voru þeir Benedikt Blöndal hrl. og
Sveinn Snorrason hrl.
Dóminn kváðu upp Gunnlaugur Bri-
em yfirsakadómari sem dómsformað-
ur, Ásgeir Pétursson bæjarfógeti og
Haraldur Henrysson sakadómari en
þeir voru skipaðir umboðsdómarar í
málinu. -FRI
Þ/ÓNUSTAIÞACU
atvihhuUfs
Víðtæk og traust þjónusta
við málmiðnaðinn. Stál og málmar
fyrir byggingariðnaðinn.
Sérþjálfaðir sölumenn leiðbeina um
val á efni, vélum og tækjum.
SINPRA M STAL HF
BORGARTUNI31, SlMAR 27222 & 21684
ÖFLUG ÞJÓNUSTA VEGNA SÉRVERKEFNA.
Fréttir Fréttir Fréttir ' Fréttir
ARGUS/SlA