Dagblaðið Vísir - DV - 10.06.1986, Blaðsíða 14

Dagblaðið Vísir - DV - 10.06.1986, Blaðsíða 14
14 DV. ÞRIÐJUDAGUR 10. JÚNI' 1986. Spurningin Hlustar þú á leikrit í út- varpinu? Jón Garðarsson verslunarmaður: Já, þegar ég hef tíma til. Ég hef mesta ánægju af framhaldsleikritum. Guðlaugur Guðmundsson, á eftir- launum: Nei, aldrei. Ég hef ekki nokkum einasta áhuga á leikritum í útvarpinu. Lesendur Lesendur Lesendur Lesendur Beðið eftir strætó Ó.G., farþegi, skrifar: þegar maður fer með stætisvagninum undanfömu séð miklar framkvæmdir göng og ég veit ekki hvað. Égheftekið eftir því að vömbílamir, sem aka burtu moldinni, skilja oft eftir sig moldarslóða út um allt. Þetta er mjög óhreinlegt og gæti kannski bara vald- ið slysum. Mér finnst að hreinsibíllinn eigi að fara þama um á hverri einustu nóttu og þrífa þetta upp. Svo er líka annað. Eg hef oft séð fólk henda drasli út um bílgluggann hjá sér í stað þess að setja það í sér- stakan ruslapoka inni í bílnum. Þetta er líka óþrifaaður sem ætti ekki að sjást á afinæli borgarinnar. En það er líka margt vel gert. Um daginn hljóp kona með eitt bam á eftir vagninum (haíði verið dálítið sein fyrir, greyið) og bflstjórinn lét sér ekki muna um að stoppa og leyfa henni að komast inn. Mér fannst þetta drengilega gert hjá honum því það em ekki allir bíl- stjórar sem hefðu gert svona. Maður getur átt það til að koma of seint út á stoppistöð og þá er gott til þess að vita að bílstjórinn hinkri eftir manni. Þetta var svona það helsta sem mér datt í hug meðan ég beið eftir strætó um daginn. Það er svo margt sem flýg- ur í gegnum huga manns í morgunsá- „Það er margt sem manni dettur í hug þegar maður fer með strætisvagninum í vinnuna." rið, sérstaklega á sumrin. Það er margt sem manni dettur í hug í vinnuna á morgnana. Nú hef ég að alls staðar við Miklubrautina, jarð- Ásmundur Jóhannsson húsateikn- ari: Já, ég hlusta yfirleitt á þau leikrit sem em á dagskrá hverju sinni. Katrín Smári húsmóðir: Já, það geri ég svo sannarlega. Ég er mest hrifin af dramatískum leikritum. Sigrún Haraldsdóttir tölvari: Já, það kemur fyrir. Ég hef gaman af flestum leikritum sem flutt em i útvarpinu. Ester Elíasdóttir skrifstofúmaður: Nei. Ég hlusta lítið á útvarp og horfi þeim mun minna á sjónvarp. Ég les bækur. Miðbærinn - Hjarta borgarinnar Reykvíkingur skrifar: Það er aldeilis framtakssemi í borg- arbúum þessi síðustu ár. Allstaðar er verið að byggja og ný hverfi nánast spretta upp á fáum árum. En ekki er öll þróun jafhæskileg. Ég er til dæmis mjög smeykur um að þessi nýi miðbær sem verið er að byggja eigi eftir að eyðileggja þá stemmningu sem ríkir í höfuðborginni. Þessi stóri steinkum- baldi hefur ekki þá hlýju og þann yl sem gamli bærinn hefur. Miðbærinn okkar er hjarta borgar- innar. Það er leitt til þess að vita að allt líf eigi eftir að færast þaðan og hann eigi eftir að standa einn og yfir- gefinn. Þetta er aukinheldur mjög óæskileg þróun fyrir þá verslunareig- endur sem eiga búðir við Laugaveg- inn. Búðimar í nýja miðbænum eiga eftir að taka frá þeim ómæld viðskipti og þá er hætt við að heyrist harma- kvein í bænum. Því er ég að minnast á þetta núna vegna þess að mér finnst að við íslendingar eigum að hugsa okkur um áður en við hlaupum til og hermum eftir erlendum stórþjóðum á öllum sviðum. Miðbærinn okkar er hjarta borgarinnar. Við eigum að halda honum gangandi. Reykvíkingur óttast um hjarta Reykjavíkur, miðbæinn. Sigurður Magnússon hefur meiri áhuga á aö sjá útsendingar frá frjálsíþrótta móti í Stuttgart en frá HM. Fótbotti og frjálsar íþróttir Sigurður Magnússcn skrifar: Um þessar mundir fer fram heims- meistarakeppni í knattspymu í Mexíkó. Sjónvarpið gerir þessari keppni óvenjugóð skil og sýnir m.a. tugi leikja beint. Það er ekkert nema gott um þetta að segja þó að íslenskir íþróttamenn komi hér ekki við sögu. Hér er um gott sjónvarpsefni að ræða sem fjöldi fólks hefur mikla ánægju af að fylgjast með. Síðustu daga ágústmánaðar fer fram í Stuttgart í Vestur-Þýskalandi Ev- rópumeistaramót í frjálsum íþróttum. Mikil íslensk þátttaka verður í þessu móti, a.m.k. einn tugur íþróttamanna. Það ánægjulega er að nokkrir íslensku þátttakendanna eiga möguleika á að komast í fremstu röð, jafnvel á verð- launapall. Enn hefur ekkert heyrst um beinar útsendingar frá þessu stórmóti. Það er gaman að geta þess að á þessu ári eru 40 ár liðin síðan íslendingurinn Gunnar Huseby stóð á verðlaunapalli í Osló og veitti viðtöku gullverðlaun- um fyrir kúluvarp. Þá komst ísland á landakort þjóðanna. Með fúllri virðingu fyrir knattspym- unni í Mexíkó þá hef ég miklu meiri áhuga á að sjá beinar útsendingar frá Stuttgart þar sem íslendingar eru meðal þátttakenda heldur en frá Mex- íkó. Það verður gaman að vita hvort sjónvarpið sýnir jafrimikið frá mótinu í Stuttgart og það gerir frá Mexíkó. Hringið í síma 27022 milli kl. 13 og 15 eða skrifið. Áfram Sveinn Helga Jóhannsdóttir, Grensásvegi 60, skrifar: Mig langar að lýsa yfir ánægju minná með nýútkomna plötu Sveins Haukssonar. Þama er á ferðinni fersk og skemmtileg mús- flc, Öðmvísi en sú sem daglega glymur á manni. Sérstaklega vil ég vekja athygli á laginu Adam og Eva. Þar fer saman góður texti og lag. Kærar þakkir, Sveinn Hauksson, fyrir framlagið. Haltu áfram á sömu braut. Kosningar og bílpróf Boigari skrifar: Ég vil bytja á að segja: Mikið skelfing er gott að þetta kosninga- fargan er afstaðið. Allur þessi leiðindaáróður var að gera út af við mann. Kosningabaráttan minnti mig helst á „sjóbisness". Mig langar einnig að minnast á bflprófsaldurinn. Ég mælist til þess að hann verði hækkaður upp í 20 ár. Þessir krakkar em stórhættu- legir, bæði sjálfum sér og öðrum, i umferðinni.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.