Dagblaðið Vísir - DV - 10.06.1986, Blaðsíða 18

Dagblaðið Vísir - DV - 10.06.1986, Blaðsíða 18
18 DV. ÞRIÐJUDAGUR 10. JÚNÍ 1986. Iþróttir Iþróttir Iþróttir Iþróttir Hafnfirðingurinn Eggert Bogason varpaði kúlu fyrir nokkru 18,21 metra á móti í Tennessee í USA. Það er hans langbesti árangur og fjórði besti ár- angur íslendings i greininni frá upphafi. Vésteinn Hafsteinsson keppti einnig á mótinu og varpaði 17,31 m. Vésteinn í fjórða sæti - á háskólamótinu í USA Vésteinn Hafsteinsson varð í fjórða sæti í kringlukasti á bandarísku há- skólameistaramóti í Indianapolis um helgina. Kastaði 59.08 metra en sigur- vegarinn kastaði 60.48 m. Nokkur vonbrigði því reiknað hafði verið með sigri Vésteins í kringlukastmu. Eggert Bogason varð í 14. sæti með 56,94 m og gefur sá árangur vel til kynna hve keppnin var jöfn. íris Grönfeldt. sem sigrað hefur á þessu móti tvö síðustu árin i spjót- kasti, varð nú að láta sér fimmta sætið nægja. Hún kastaði 56.10 m. íslands- met hennar er 59,12 m eða svipað og sigurvegarinn náði í keppninni. Ragn- heiður Ólafsdóttir varð þriðja í 3000 m hlaupi á 9:12,93 mín. og Helga Hall- dórsdóttir hljóp 400 m grindahlaup á 59,20 sek. Komst ekki í úrslit. Xáð: tíunda besta tímanum. ÓU hsím Jl íþróttaskór BMX, stærðir 27-28, litir blár og rauður. Verð aðeins kr. 990 Rover, leður, stærðir 24-38. Verð kr. 980-1.080. Björn Borg, leður, stærðir 3‘A-IO'A. Verð kr. 1.920. ® nSTUflD ® SPORTVÖRUVERSLUN Háaleitisbraut 68 Austurver Simi 8-42-40 W*. „Förum strax heim - til einskis að bíða“ - sagði þjátfari Ungverja eftir tap gegn Frökkum „Við ætlum ekki að vera hér til loka riðlakeppninnar. Förum strax heim, til einskis að bíða,“ sagði þjálfari ung- verska HM-liðsins, Gyorgy Mezey, eftir tapleikinn gegn Evrópumeistu- rum Frakklands í Leon í gær í C-riðli, 3-0. Hann eins og aðrir Ungveijar er búinn að gefa upp alla von um að Ungveijaland komist í 2. umferð keppninnar þó liðið sé með tvö stig. Markataian er svo hroðaleg, 2-9, i leikjunum þremur. Mikil vonbrigði fyrir Ungverja sem sigruðu mjög ör- ugglega í erfiðum Evrópuriðli undan- keppninnar og voru af mörgum taldir hafa mikla möguleika á að koma á óvart í Mexíkó. En reyndin varð önn- ur. Ungveijar voru greinilega illa undirbúnir gagnvart þunna loftmu og hitanum í Mexikó. Afar slakir og hefðu hæglega getað tapað með mun meiri mun gegn Frökkum. „Það var ekki allt fullkomið hjá okkur í þessum leik. Við misnotuðum allt of mörg tækifæri - ég sé eftir því að við skoruðum ekki fleiri mörk. Einkum í fyrri hálfleiknum, þegar allt of mikið hik var milli sóknar og vam- ar,“ sagði Henri’ Michel, landsliðs- þjálfari Frakka, eftir leikinn. Hann sagði einnig að hann hefði orðið fyrir vonbrigðum með Michel Platini, knattspjmumann Evrópu, í leiknum. „Ef maður hefur í huga hæfni hafts þá var þetta ekki nógu gott hjá hon- um. Hann verður að gera meira fyrir okkur.“ Það var þó greinilegt strax frá upp- hafi að nær allir leikmenn franska liðsins tóku mjög létt á málum. Lögðu sig ekki fram eins og þeir gátu og geta. Ótrúlegt kæruleysi á köflum. Virtust ekki hafa trú á því að geta sigrað Ungverja með 7-8 mörkum til þess að ná efsta sætinu í riðlinum. Fjögur mörk vantaði þegar upp var staðið og úrslitin lágu fyrir frá leik Sovétríkjanna og Kanada. Frakkland í öðru sæti í riðlinum og nú bendir flest til þess að í 2. umferð leiki Frakk- ar við Ítalíu í Mexíkó borg 17.júní. Evrópumeistaramir gegn heimsmeist- urunum það er bókstaflega ekki sanngjamt þegar keppnin er ekki komin lengra. Annað þessara landa hlýtur þá að falla út. Útsláttarfyrir- komulag í 2. umferðinni. En það kann að vera að frönsku leikmennimir hafi verið með annað í huga. Hugsanlegt er að efsta hðið í ríðlinum leiki við þriðja lið í F riðli. England gæti ef til vill náð þvf sæti og Frakkar vilja helst ekki leika gegn Englendingum. Stíll enskra hentar þeim illa. Þama er sennilega skýringin á að Frakkar léku ekki á fullu í gær. Léttur sigur Frakkar höfðu umtalsverða yfir- burði gegn Ungverjum í l/.-on í gær en leikurinn var þó ekki mikið augna- yndi því þeir frönsku sýndu ekki hvað þeir geta. Oft alls konar smádúll sem ekki gekk upp. En þegar leið á leikinn fékk Frakkland tækifæri til að skora sand af mörkum. Ungverjar hefðu einnig getað skorað nokkur. Það var ekki fyrr en á 30. mín. að fyrsta mark- ió var skorað. Franski bakvörðurinn William Ayaehe gaf fallega fyrir mark Ungverja frá hægri kanti. Miðherjinn Platini leikur framhjá Ungverjanum Josef Kardos í gær en átti ekki nógu góðan leik að mati franska landsliðs- þjáHarans. Simamynd Reuter Yannick Stopyra skallaði glæsilega í mark þrumuskalli. Á næstu þremur mínútum hefðu Frakkar átt að skora tvívegis. Fyrst Patrick Battiston, síðan Luis Ferandez þogar hann komst einn frir að márkinu og skaut framhjá. Ungverjar hristu aðeins af sér slonið í hyrjun síðari hálfleiks. Laszlo Dajka átti hörkuskot í þverslá marks Frakka. Knötturinn hrökk niður á marklínu og bjargað var í hom. Þar munaði aðeins millimetrum hjá Ungverjum en um mark var alls ekki að ra:ða. Þá átti Jozsof Varga fast skot á markið en Joel Bats varði vel. En síðan var mátturinn úr Ungverjum. Frakkar náðu undirtökunum á ný. Stopyra komst frír að marki Ungverja. Peter Disztl varði mjög vel skot hans. Þarna áttu Frakkar að skora annar leik- maður dauðafrír innan vítateigs en Stopyra var eigingjam. Það var til þess að skömmu síðar var hann tekinn út af. Áður hafði Michel þó skipt hin- um miðherjanum, Papin, út af’ lýrir Roeheteau. Annað mark sitt skoruðu Frakkar á 63. mín. og það kom eftir glæsilegan samleik Tigana og Rocheteau. Ung- verski markvörðurinn átti ekki möguleika á að verja frábært skot 'l'igana. Jcan Marc Fcrreri kom inn fyrir Stopyra á 72. mín. og litlu mun- aði að hann skoraði eflir nokkrar sekúndur. Disztl varði fast skot hans frá vítateignum. Þriðja mark Frakka skoraði Rocheteau ;i 85. mín. eftir snjalla sendingu Platinis. Þurl’ti að- oins að ýta knettinum í markið sem hann og gerði snyrtilega. Ungverjar halda nú heim, sem fyrst að siign, en það gæli þó dregist nokkra daga hjá jieim að fá flugferð fr;i Mex- íkó. Frakkar halda hins vegar áfram og ef að líkum laitur ma:La þeir ítölum í 2.umforð. Franska liðið í ga:r var þannig skipað: llaks, Ayache, Battist- on, Bossis, Amaros, Fernandez, 'l’igana, Giresse, Platini, Stopyra (Ferreri) og Pa|)in (Rocheteau). l/>- kashiðan í riðlinum. Sovétríkin........3 2 1 0 9 1 5 Frakkland........3 2 1 0 5 1 5 Ungvorjaland.....3 10 2 2 9 2 Kanada...........3 0 0 3 0 5 0 hsím Einar keppir í Gautaborg - á fímmtudag - einnig Oddur Sigurðsson Spjótkastarinn kunni, Einar Vil- hjáímsson, hefur æft vel hér heima að undanfömu og kastað spjótinu langt yfir 70 metrana án þess að leggja að sér. Hann er á forum til Svíþjóðar og mun taka þar þátt í stórmóti í Gauta- borg á fimmtudag. Þar ver<* margir af þekktustu frjálsiþróttamönnum Evrópu. Oddur Sigurðsson, 400 m hlauparinn snjalli, dvelur nú í Svíþjóð og keppir einnig á mótinu. Hann verður i Sviþjóð í sumar og mun kcppa fyrir félag i Hálsingborg. Það kemur þó ekki í vcg fyrir að hann geti kcppt með KR i bik- arkeppninni i sumar. Sigurður Einarsson, scm varð annar í spjótkasti á bandaríska háskólamót- inu í Indiunapolis um helgina, er kominn heim. Hann kastaði 76,14 m á mótinu þrátt fyrir lasleika. Hann er enn háifiasinn en hefur þó hug á að taka þátt í mótinu í Gautahorg á fimmtudag með þeim Einnri og Oddi ef hann hrcssist. ÓU/hsím.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.