Dagblaðið Vísir - DV - 10.06.1986, Qupperneq 5
DV. ÞRIÐJUDAGUR 10. JÚNÍ 1986.
5
Fréttir Fréttir Fréttir Fréttir
Stóriaxar með
glæsiþotu
Kaupsýslumenn voru það ekki sem
glæsiþota Þotuflugs h£, TF-JET, flutti
síðastliðinn fostudag. Farmurinn var
nýslátraður lax á leið á Bandaríkja-
markað.
Koma þurfti 4,5 tonnum af laxi frá
Færeyjum vestur um haf á skjótan
hátt. Þota Þotuflugs var fengin til að
flytja farminn í þremur ferðum frá
Færeyjum til Keflavíkurflugvallar.
Þar tók Flugleiðaþota við laxinum
verðmæta og flutti hann ferskan til
New York-borgar.
-KMU
Laxinn fluttur úr TF-JET á Keflavikurflugvelii á föstudag.
DV-mynd Heiðar Baldursson
T SORPHAUGAR-
GÆSLA- VÉLAVIIMNA:
Hafnarfjarðarbær leitar tilboða í gæslu, efnisflutning
og vélavinnu á sorphaugum við Hamranes. Útboðs-
gögn eru afhent á skrifstofu bæjarverkfræðings,
Strandgötu 6, gegn 2000 kr. skilatryggingu. Tilboð
verða opnuð á sama stað mánudaginn 16. júní kl.
14.00.
Bæjarverkfræðinnur.
KÖFUNARNAMSKEIÐ
Nú gefst einstakt tækifæri til að kynnast
undraheimi undirdjúpanna og læra froskköfun.
Námskeið verða haldin í Farfuglaheimilinu Reykjanesi. Þau eru í
10 daga hvert og standa öllum opin. Hverju námskeiði lýkur með
prófi sem miðast við tveggja stjörnu alþóðleg réttindi til sportköfun-
ar. Næsta námskeið hefst 28. júní 1986.
Allar nánari upplýsingar veittar hjá
Bandalagi íslenskra farfugla,
\ sími (91) 10490.
NÝR 5000 KRÓNA
PENINGASEÐILL
Á grundvelli laga um gjaldmiðil íslands nr. 22 frá 23. apríl 1968 mun Seðlabanki íslands
gefa út og setja í umferð hinn 10. júní n.k. fimm þúsund króna peningaseðil af svofelldri gerð:
Stærð: 155 x 70 mm
10510
F 00000000
SAMKVÆMT LÖGUM NR.10
29.MARS 1961
..
SEÐLABANKI
ÍSLANDS
FRAMHLIÐ Litir: dökkblár og fjöllita
Á spássíu (upptalning efnis ofan frá og niður):
Upphæð í tölustöfum
Númer seðilsins með bókstafnum F fyrir framan,
svart
Vatnsmerki ber mynd Jóns Sigurðssonar forseta
Tilvísun í lög Seðlabanka íslands
Undirskrift tveggja bankastjóra í senn
Útgefandi Seðlabanki íslands
Á myndfleti (upptalning frá vinstri):
Borðar og mynstur unnin út frá altarisklæði
úr Laufáskirkju
Blindramerki, 3 lóðrétt upphleypt strik
Mynd af Ragnheiði Jónsdóttur biskupsfrú
(1646-1715)
Oryggisþráður þvert í gegnum seðilinn
Mynd af Gísla Þorlákssyni Hólabiskupi ásamt
fyrri konum hans, Gróu Þorleifsdóttur og
Ingibjörgu Benediktsdóttur
Upphæð í bókstöfum, leturgerð af altarisklæði úr
Laufáskirkju
Númer, prentað í svörtu, neðst til hægri
Upphæð í tölustöfum, lóðrétt, efst til hægri
BAKHLIÐ Aðallitir: dökkblár og grænn
Á myndfleti (upptalning frá vinstri):
Borðar og mynstur sama og á framhlið
Upphæð i tölustöfum neðst til vinstri
Mynd af tveimur stúlkum við skoðun hannyrða
Mynd af Ragnheiði Jónsdóttur, sitjandi í stól
Á spássíu (upptalning ofan frá): g
co
ci
Upphæð í tölustöfum ~
Vatnsmerki *
Fangamark Ragnheiðar (Ións Dóttur)
SEÐLABANKI ÍSLANDS