Dagblaðið Vísir - DV - 10.06.1986, Síða 6
6
DV. ÞRIÐJUDAGUR 10. JÚNl 1986.
Peningamarkaður
Viðskipti Viðskipti Viðskipti
Innlán með sérkjörum
Alþýðubankinn: Stjörnureikningar eru
fyrir 15 ára og yngri og 65 ára og eldri. Inn-
stæður þeirra yngri eru bundnar þar til þeir
verða fullra 16 ára. 65-69 ára geta losað inn-
stæður sínar með 9 mánaða fyrirvara, 70-74
ára með 6 mánaða fyrirvara og 75 ára og eldri
með 3ja mánaða fyrirvara. Reikningamir eru
verðtryggðir og með 8% vöxtum.
f*r*ggja stjörnu reikningar eru með hvert
innlegg bundið í tvö ár, verðtryggt og með
9% nafnvöxtum.
Lífeyrisbók er fyrir þá sem fá lífeyri frá
lífeyrissjóðum eða almannatryggingum. Inn-
stæður eru óbundnar og ó\ erðtryggðar.
Nafnvextir eru 15% og ársávöxtun 15%.
Sérbók. Við fyrsta innlegg eru nafnvextir
10‘X, en 2% bætast við eftir hverja þrjá mán-
uði án úttektar upp í 16%. Arsávöxtun á
óhreyfðri innstæðu er 13,64% á fyrsta ári.
Búnaðarbankinn: Sparibók með sér-
vöxtum, Gullbókin, er óbundin með 13%
nafnvöxtum og 13,4‘X, ársávöxtun á óhreyfðri
innstæðu eða ávöxtun 3ja mánaða verð-
trvggðs reiknings reynist hún betri. Af hverri
úttekt dragast 0,75'X> í svonefnda vaxtaleið-
réttingu.
18 mánaða reikningur er með innstæðu
bundna í 18 mánuði á 14,5% nafnvöxtum og
15% ársávöxtun, eða ávöxtun 6 mánaða verð-
tryggðs reiknings reynist hún betri.
Iðnaðarbankinn: Bónusreikningar eru
annaðhvort með 10,5% nafnvöxtum og 10,8%
ársávöxtun eða verðtryggðir og með 3% vöxt-
um. Hærri ávöxtunin gildir hvern mánuð. A
hreyfðum innstæðum gildir verðtrygging auk
1% vaxta í úttektarmánuðinum. Taka má út
tvisvar á hverju 6 mánaða tímabili án þess
að vaxtakjör skerðist. Vextir eru færðir 30.06.
og 31.12.
Landsbankinn: Kjörbók er óbundin með
13% nafnvöxtum og 13,4% ársávöxtun eða
ávöxtun 6 mánaða verðtryggðs reiknings
reynist hún betri. Af hverri úttekt dragast
0.7% í svonefnda vaxtaleiðréttingu.
100 ára afmælisreikningur er verðtryggð-
ur og bundinn til 15 mánaða. Vextir eru 7,25%
og breytast ekki á meðan reikningurinn verð-
ur í gildi.
Samvinnubankinn: Hávaxtareikningur
hefur stighækkandi vexti á hvert innlegg,
fvrst 8%. eftir 2 mánuði 8,25%, 3 mánuði 8,
50%. 4 mánuði 9%, 5 mánuði 9.5% og eftir 6
mánuði 12%. eftir 12 mánuði 12,5% og eftir
18 mánuði 13%. Sé ávöxtun betri á 3ja eða 6
mánaða verðtryggðum reikningum gildir hún
um hávaxtareikninginn.
18 og 24 mánaða reikningar eru bundnir
og verðtrvggðir og gefa 7.5 og 8% vexti.
Útvegsbankinn: Ábót ber annaðhvort
hæstu ávöxtun óverðtryggðra reikninga í
bankanum. nú 13%. eða ávöxtun 3ja mánaða
verðtrvggðs reiknings með 1% nafnvöxtum
sé hún betri. Samanburður er gerður mánað-
arlega en vextir færðir í árslok. Sé tekið út
af reikningnum gilda almennir sparisjóðs-
vextir. 8%. þann mánuð.
Verslunarbankinn: Kaskóreikningur er
óbundinii. Þá ársfjórðunga sem innstæða er
óhreyfð eða aðeins hefur verið tekið út einu
sinni eru reiknaðir hæstu vextir spariíjár-
reikninga í bankanum. Nú er ársávöxtun
annaðhvort 13.1'%, eða eins og á verðtrvggðum
6 mánaða reikningum með 3% nafnvöxtum.
Af úttekinni upphæð reiknast almennir spari-
sjóðsvextir. 8.5%. og eins á alla innstæðuna
innan þess ársfjórðungs þegar tekið hefur
verið út oftar en einu sinni. Innlegg fær strax
hæstu ávöxtun sé það óhrevft næsta heila
ársfjórðung. Vextir færast fjórum sinnum á
ári og leggjast við höfuðstól. Þeir eru alltaf
lausir til útborgunar.
Sparisjóðir: Trompreikningur er verð-
trvggður og með ávöxtun 6 mánaða reikninga
með 3°.0 nafnvöxtum. Sé reikningur orðinn
3ja mánaða er gerður samanburður á ávöxtun
með svokölluðum trompvöxtum. 12,5%, með
13'%, ársávoxtun. Miðað er við lægstu inn-
stæðu í hverjum ársfjórðungi. Reynist
trompvextir gefa betri ávöxtun er þeim mun
hætt á vaxtareikninginn. Hreyfðar innstæður
innan mánaðar bera trompvexti sé innstæðan
eldri en 3ja mánaða. annars almenna spari-
sjóðsvexti. 8%. Vextir færast misserislega.
12 mánaða reikningur hjá Sparisjóði vél-
stjóra er með innstæðu bundna í 12 mánuði.
óverðtryggða en á 15.5'%, nafnvöxtum. Þeir
eru færðir einu sinni á ári og ársávöxtun er
því einnig 15,5%.
18 mánaða reikningar. Nokkrir stærri
sparisjóðanna eru með innstæðu bundna
óverðtryggða í 18 mánuði en á 14,5% nafn-
vöxtum og 15,2% ársávöxtun.
Spariskírteini
Spariskírteini Ríkissjóðs íslands eru seld í
Seðlabankanum, viðskiptabönkum, sparisjóð-
um, hjá verðbréfasölum og í pósthúsum.
Nýjustu skírteinin eru að nafnverði 5, 10 og
100 þúsund krónur, nema vaxtamiðabréf sem
eru 50 þúsund að nafnverði.
Þau eru: Hefðbundin, til mest 14 ára. Með
þriggja ára binditíma eru ársvextir 7%, fjög-
urra ára 8,5% og sex ára 9%. Verðbætur,
vextir og vaxtavextir greiðast með höfuðstól
við innlausn. Með vaxtamiðum, til mest 14
ára, innleysanleg eftir fjögiu' ár. Ársávöxtun
er 8,16% á verðbættan höfuðstól hverju sinni
og vextir greiðast út 10.01. og 10.07. ár hvert.
Við innlausn greiðast verðbætur með höfuð-
stól. Gengistryggð skírteini eru til fimm ára.
Þau eru bundin safngjaldeyrinum SDR (til-
tekin samsetning af dollar, pundi, yeni, þýsku
marki og frönskum franka). Vextir eru 8,5%.
Höfuðstóll, vextir og vaxtavextir greiðast í
einu lagi við innlausn.
Almenn verðbréf
Fasteignatryggð verðbréf eru til sölu hjá
verðbréfasölum. Þau eru almennt tryggð með
veði undir 60% af brunabótamati fasteign-
anna. Bréfin eru ýmist verðtryggð eða
óverðtryggð og með mismunandi nafnvöxtum.
Þau eru seld með afföllum og ársávöxtun er
almennt 12 16% umfram verðtryggingu.
Húsnæðislán
Nýbyggingarlán frá Byggingarsjóði ríkis-
ins, F-lán, nema á 1. ársfjórðungi 1986: Til
einstaklinga 782 þúsundum króna, 2-4 manna
fjölskyldna 994 þúsundum, 5 manna og fleiri
1.161 þúsundum, 7 manna og fleiri (í sértilvik-
um) 1.341 þúsundum. Lánin eru til 31 árs.
Lán til kaupa á eldri íbúðum, G-lán, nema
á 1. ársfjórðungi 1986: Til kaupa í fyrsta sinn
er hámark 391 þúsund krónur til einstakl-
ings, annars mest 195 þúsund. 2 4 manna
fjölskylda fær mest 497 þúsund til fyrstu
kaupa, annars mest 248 þúsund. 5 manna fjöl-
skylda eða stærri fær mest 580 þúsundir til
fyrstu kaupa, annars mest 290 þúsund. Láns-
tími er 21 ár.
Húsnæðislánin eru verðtryggð með láns-
kjaravísitölu og með 3,5% nafnvöxtum.
Fyrstu tvö árin er ekki greitt af höfuðstól,
aðeins vextir og verðbætur.
Útlán lífeyrissjóða
Um 90 lífeyrissjóðir eru í landinu. Hver
sjóðurákveður sjóðfélögum lánsrétt, lánsupp-
hæðir, vexti og lánstíma. Stysti tími að
lánsrétti er 30 60 mánuðir. Sumir sjóðir bjóða
aukinn lánsrétt eftir lengra starf og áunnin
stig. Lán eru á bilinu 150 1000 þúsund eftir
sjóðum, starfstíma og stigum. Lánin eru verð-
tryggð og með 5% vöxtum. Lánstími er 15 42
ár.
Biðtími eftir lánum er mjög breytilegur.
Hægt er að færa lánsrétt við flutning milli
sjóða eða safna lánsrétti frá fyrri sjóðum.
Nafnvextir, ársávöxtun
Nafnvextir eru vextir í heilt ár og reiknað-
ir í einu lagi yfir þann tíma. Séu vextir
reiknaðir og lagðir við höfuðstól oftar á ári
verða til vaxtavextir og ársávöxtunin verður
þá hærri en nafnvextirnir.
Ef 1000 krónur liggja inni í 12 mánuði á
10% nafnvöxtum verður innstæðan í lok tíma-
bilsins 1100 krónur. Ársávöxtunin verður því
10'%,. Sé innstæðan óverðtryggð í verðbólgu
dregur úr raunávöxtun sem því nemur og hún
getur jafnvel orðið neikvæð.
Liggi 1000 krónumar inni í 6 + 6 mánuði á
10% nafnvöxtum reiknast fyrst 5% vextir eft-
ir 6 mánuði. Þá verður upphæðin 1050 krónur
og ofan á þá upphæð leggjast 5% vextir seinni
6 mánuðina. Á endanum verður innstæðan
því 1.102,50 og ársávöxtunin 10,25%.
Dráttarvextir
Dráttarvextir eru frá 01.04.1986 2,25% á
mánuði eða 27% á ári.
Vísitölur
Lánskjaravísitala í iúní 1986 er 1448 stig
en var 1432 stig í maí og 1425 stig og í apríl.
Miðað er við grunninn 100 í júní 1979.
Byggingarvísitala á 2. ársfjórðungi 1986
er 265 stig á grunninum 100 frá 1983 en 3924
stig á grunni 100 frá 1975.
Húsaleiguvísitala hækkaði um 5% 01.04.
en um 10% næst þar áður, frá 01.01. Þessi
vísitala mælir aðeins hækkun húsaleigu þar
sem við hana er miðað sérstaklega í samning-
um leigusala og leigjenda.
VEXTIR BANKA 0G SPARISJÓÐA (%) 01. -10.06. 1986
INNLÁN MEÐ SÉRKJÖRUM SJA sérlista llll i! J! i! í! líiiifii
INNLÁN ÚVERÐTRYGGÐ
SPARISJÓDSBÆKUR Dbundin innstæða 9.0 9.0 8.0 8.5 8.0 9.0 8.5 8.5 83' 8.0
SPARIREIKNINGAR 3ja mán. uppsögn 10.0 10.25 10.0 9.0 8.5 10.0 8.5 9.0 10.0 9.0
6 mán. uppsogn 12.5 12.9 12.5 9.5 11.0 10.0 10.0 12.5 10,0
12 mán.uppsoan 14.0 14.9 14.0 11.0 12.6 12.0
SPARNAÐUR - LANSRÉTTURSparað 3-6 min. 13.0 13.0 8.5 10.0 8.0 9.0 10.0 9.0
Sp. 6mán. ogm. 13.0 13.0 9.0 11.0 10.0 10.0
TÉKKAREIKNINGAR Avisanartikningar 6.0 6.0 2.5 3.0 4.0 4.0 3.0 3.0 3.0
Hlaupareikningar 4.0 3.0 2.5 3.0 4.0 4.0 3.0 3.0 3.0
INNLÁN verðtryggð
SPARIREIKNINGAR 3ja mán. uppsogn 1.0 1.0 1.0 1.0 1.0 1.0 1.0 1.0 1.0
6 mán. uppsogn 3.5 3.0 2.5 2.5 3.5 2.5 3.0 3.0 3.0
INNLÁN gengistryggð
GJALDEYRISREIKNINGAR Bandarikjadollarar 7.0 7.5 6.0 6.0 6.0 6.5 6.25 7.0 6.25
Sterlingspund 11.5 11.5 9.5 9.0 9.0 10.0 10.0 11.5 9.5
Vestur-þýsk mörk 4.0 4.0 3.5 3.5 3.5 3.5 3.5 3.5 3.5
Danskar krónur 7.5 7.5 7.0 7.0 6.0 7.5 7.0 7.0 7.0
ÚTLÁN ÚVEROTRYGGÐ
ALMÉNNIRViXLAR (forvextir) 15,25 15.25 15.25 15.25 15.25 15.25 15.25 15.25 15.25
VIÐSKIPTAViXLAR 3) (forvextir) kge 19,5 Lse 19.5 kge kge kge
ALMENN SKULDABRÉF 2) 15.5 15.5 15.5 15.5 15.5 15.5 15.5 15.5 15.5
VIÐSKIPTASKULDABRÉF3) kge 20,0 kgB 20,0 kge kgn kge kge
HLAUPAREIKNINGAR YFIRDRÁTTUR 9.0 9.0 9.0 9.0 7.0 9.0 9.0 9.0 9.0
ÚTLÁN VERÐTRYGGÐ
SKULOABRÉF Að 21 /2 ári 4.0 4.0 4.0 4.0 4.0 4.0 4/0 4.0 4.0
Lengrien2 1/2 ár 5.0 5.0 5.0 5.0 5.0 5.0 5.0 5.0 5.0
ÚTLÁN TIL FRAMLEIÐSLU
sjAneðanmAlsd
1) Lán til framleiðslu á innanlandsmarkað eru á 15,0% vöxtum. Vegna útflutn-
ings, í SDR 8%, í Bandaríkjadoilurum 8,5%, í sterlingspundum 11,75%, í vestur-
þýskum mörkum 6,25%. 2)Vaxtaálag á skuldabréf til uppgjörs vanskilalána er
2%, bæði á verðtryggð og óverðtryggð lán. 3)Við kaup á viðskiptavíxlum og
viðskiptaskuldabréfum, á þriðja aðila, er miðað við sérstakt kaupgengi, kge, hjá
þeim bönkum sem þannig er merkt við, einnig hjá flestum stærstu sparisjóðunum.
Fráfarandi formaður Stéttarsambands bænda:
Mesta vandamálið er
léleg sala kindakjöts
„Samdráttur í sölu kindakjöts á inn-
lendum markaði er að mínum dómi
stærsta vandamál hins almenna land-
búnaðar nú,“ sagði Ingi Tryggvason,
formaður Stéttarsambands bænda, í
skýrslu er hann flutti á aðalfundi
Stéttarsambandsins sem nú stendur
yfir að Hvanneyri í Borgarfirði.
Framleiðsla kindakjöts varð 12.215
tonn á árinu 1985 á móti 12.240 tonnum
á árinu 1984. Verðlagsárið 1984/85
seldust innanlands 9.405 tonn af
kindakjöti á móti 10.027 tonnum næsta
verðlagsár á undan.
Birgðir kindakjöts l.apríl síðastlið-
inn voru 6.820 tonn sem er 545 tonnum
meira en á sama tíma í íyrra. Útsalan
á kindakjötinu í haust jók söluna síð-
ustu mánuði ársins 1985 en síðan hefur
salan dregist verulega saman. Á fyrstu
3 mánuðum þessa árs varð salan 1.189
tonn en var 1.980 tonn á sama tíma í
fyrra.
Of dýrt og of feitt
I umræddri skýrslu formanns segir
að þeir sem selji fyrir okkur kindakjö-
tið kvarti undan því að það sé of dýrt
miðað við aðrar matvörur og sömu-
leiðis sé það of feitt fyrir smekk manna
nú. Þá segir að stjóm Stéttasambands-
ins hafi lagt á það mikla áherslu að
ný reglugerð um breytt kjötmat miðað
við fitumagn verði staðfest hið allra
fyrsta og að bændum verði kynnt efhi
hennar í sumar svo unnt verði að taka
tillit til ákvæða hennar um meðferð
sláturfjár í haust.
Um verðlækkanir á kindakjöti segir
að hlutfall niðurgreiðslna í verði
kindakjöts hafi farið lækkandi á und-
anfomum árum en hafi undanfama
mánuði hækkað nokkuð á ný.
Niðurgreiðsla 40,78 krónur á
kíló
Fyrir l.mars síðastliðinn var niður-
greiðsla á hvert kíló l.fl. lambakjöts
19,25 krónur. Hinn l.mars hækkaði
niðurgreiðslan í 30,48 krónur fyrir
hvert kíló og l.maí síðastliðinn i 40,78
krónur á hvert kíló.
Verðlækkun á kindakjötinu er þó
ekki fyrirhuguð á næstunni en reynt
verður að auka sölu á kindakjöti með
nýju markaðsátaki í sölu kindakjöts
undir heitinu „íslenskt fjallalamb".
Alls verður 4 milljónum varið í sumar
til þessa átaks eða auglýsingaherferð-
ar sem miðar að því að undirstrika
þá sérstöðu íslenska lambakjötsins að
vera hrein og ómenguð villibráð.
Einnig mun sveit sérfræðinga á vegum
markaðsnefndar landbúnaðarins
heimsækja verslanir um allt land í
sumar og gefa og þiggja góð ráð varð-
andi meðhöndlun og framleiðslu
kindakjöts.
Minnkandi mjólkurneysla
En samdráttur varð einnig í sölu
mjólkur og mjólkurvara, eins og kem-
ur fram í umræddri skýrslu formanns.
Á hvem mann minnkaði mjólkur-
neysla um 3,4 lítra árið 1985 frá árinu
1984, smjömeysla minnkaði um 1/2
kíló og skymeysla um 0,3 kíló milli
ára. Ostaneysla jókst um 0,1 kíló og
er það minnsta aukning í mörg ár.
Samkvæmt útreikningum nam heild-
ameysla mjólkur 96,2 milljónum lítra.
Framleiðsla mjólkur jókst hins veg-
ar á árinu 1985, nam alls 115,9 milljón-
um lítra, sem er um 7,4 milljón lítra
aukning frá árinu 1984.
-KB
Yfnkokkurinn á Holti
eldar nú á Hvammstanga
Jón G. Haukssan, DV, Akureyii
Einn færasti kokkur landsins, Ingv-
ar H. Jakobsson, hætti sem yfirkokkur
á Hótel Holti í apríl og flutti í heima-
hagana, á Hvammstanga, þar sem
hann rekur nú hótel og veitingasölu.
Vertshúsið heitir staðurinn.
„Mér leið alla tíð ákaflega vel á
Holti og þar lærði ég kúnstina. En ég
er frá Hvammstanga og heimahagam-
ir kalla nú alltaf á mann. Því ákvað
ég að breyta aðeins til, flytja hingað
og fást við þetta spennandi verkefni,"
sagði Ingvar við DV. Hann var yfir-
matsveinn á Hótel Holti frá 1981.
Ingvar á Vertshúsið með þremur
öðrum einstaklingum, Hvammstanga-
lu-eppi og kaupfélaginu á staðnum.
Þetta er einingahús frá Siglufirði sem
reist var á nokkrum dögum í desember.
I Vertshúsinu em sex 2ja manna
herbergi með baði. Veitingasalurinn
er fyrir 56. Þá er fundasalur í húsa-
kynnunum. „Hér verður opið frá 8.00
H. Jakobsson, yfirkokkur a Hótel Holti frá 1981, yfirgaf yfirkokkinn i am
og hélt i heimahagana á Hvammstanga, i Vertshúsið. DV-mynd JG
til 23.30 í sumar. Matseðillinn er ekki
mjög stór en síbreytilegur og við þjón-
um til borðs.
.Við bættum léttum og ódýrum ferða-
mannaréttum, eins og hamborgurum,
við á matseðilinn þar sem svo mikið
var spurt um slíka rétti. Eigum við
bara ekki að segja að þar með sé þetta
vistlegasti hamborgarastaður lands-
ins,“ sagði Ingvar H. Jakobsson.