Dagblaðið Vísir - DV - 10.06.1986, Page 27
DV. ÞRIÐJUDAGUR 10. JÚNÍ 1986.
27
Sandkorn Sandkorn
Arnar sýnir á sér nýja hlið og
sprellar um landið.
Farandi
Við sögðum á dögunum
frá því að Diddú væri geng-
in til liðs við Sumargleðina.
Hún kemur í stað grínarans
góðkunna, Ómars Ragn-
arssonar.
En nú hefurSumargleðin
fengið hörkusamkeppni.
Þeir félagar Eggert Þor-
leifsson, Karl Agúst Úlfs-
son og Arnar Jónsson
leikarar ætla nefnilega að
leggja landið undir sig í
sumar. Fara þeir um með
fríðu föruneyti og flytja
sprell og gamanmál. Þeir
félagar hafa að undanförnu
dvalið í æfingabúðum á
Borg i Grimsnesi. Og eftir
því sem við komumst næst
eru þeir þegar lagðir af
stað.
Veiðiklúbbur
Skeljungs
Starfsmenn oliufélagsins
Skeljungs gera ýmislegt
fleira en að afgreiða bensín
og olíur. Nú höfum við til
dæmis heyrt að þeir hafi
stofnað veiðiklúbb. Mark-
mið hans verður ekki það
að veiða viðskiptavini eins
og einhver gæti haldið. Nei,
starfsmennirnir ætla að
skella sér i lax- og silungs-
veiðar þegar gefur. Einnig
verða fluguhnýtingar á
dagskránni og annað dútl
sem viðkemur íþrótt þess-
ari. Þá mun vera á verk-
efnaskránni í sumar að
renna fyrir sjóbirting í Leir-
ársveit. Við segjum bara:
góða veiði!
Rýmilegur
kostnaður
Eftirfarandi er lítil lexía í
því hvernig rúlla má kostn-
aði á smáhlut upp án
mikillar fyrirhafnar:
Maður einn á Vopnafirði
hringdi í fyrirtæki í Reykja-
vík og pantaði tiltekinn
hlut. Bjóst maðurinn við að
sendingin kæmi í pósti. Þá
hefði sendingarkostnaður-
inn orðið 150 krónur.
En fyrirtækið hefur
greinilega viljað gera sitt
besta til að létta buddu
Vopnfirðingsins. Böggull-
inn var því sendur með
flugi. Fyrst var hann send-
ur með bíl út á völl. Það
kostaði 183 krónur. Flug-
gjaldið sjálft var svo 163
krónur. Loks hlóðst ofan á
þetta 82 krónur i svonefnt
kröfugjald. Heildarkostn-
aður var því orðinn 428
krónur.
En það gráthlægilega við
þetta allt saman var það að
innihald pakkans, sem
svona mikið var haft við í
flutningnum, kostaði litlar
15 krónur. Kaupandinn
fékk því sannarlega lítið
fyrir mikið í það skiptið.
Aldeilis
ómögulegt
Þrír vinir höfðu ráðið sig
í vinnu hjá vatnsveitunni.
Einn þeirra stóð niðri í
skurði og mokaði eins og
vitlaus maður. Hinir tveir
stóðu á skurðbarminum og
héldu skóflunum hátt yfir
höfði sér.
„Hvern fjárann haldið þið
að þið séuð að gera?“ galaði
verkstjórinn til þeirra.
„Við erum Ijósastaurar,“
svöruðu þeir.
„Þið eruð hérmeð rekn-
ir!“ öskraði verkstjórinn.
Þá skreiddist sá þriðji upp
úr skurðinum og bjóst
einnig til brottfarar.
„ Nei, ég átti ekki við
þig,“ sagði verkstjórinn þá.
„Þú ert sá eini með viti
hérna. Haltu bara áfram að
moka.“
„Ertu galinn, maður,
heldurðu að ég geti bara
mokað í kolniðamyrkri.
Vill losna við
Höskuld?
í síðasta tölublaði sjó-
mannablaðsins Víkings er
athyglisvert viðtal við
Höskuld Skarphéðinsson,
skipherra Landhelgisgæsl-
unnar. Þar rekur hann
meðal annars risnumálið
svokallaða þar sem hann
var sóttur til saka fyrir
framlagningu nokkurra
reikninga vegna áfengis-
kaupa. Höskuldur var sem
kunnugt er sýknaður.
Engu að síður er hann enn
„ úti í kuldanum" hjá Gæsl-
unni. Virðist svo sem ekki
sé alltof kært með honum
og stjórnendum Gæslunnar
ef marka má ummæli hans
Höskuldur Skarphéðinsson.
í framangreindu viðtali.
Þar er Höskuldur meðal
annars spuröur að þvi
hvers vegna risnumálið
hefði verið sótt gegn hon-
um af svo mikilli hörku sem
raun bar vitni:
„ Ja, ég fæ ekki betur séð
en að forstjóri Gæslunnar
hafi haft svona mikla þörf
fyrir að losna við mig. Sem
formaður Skipstjórafélags-
ins hafði ég náttúrlega deilt
við hann í kjarasamning-
unum og ég hafði jafnframt
gagnrýnt margt í stjórnun
Gæslunnar. Eg er þeirrar
skoðunar að margar
ákvarðanir nýja forstjór-
ans séu afar neikvæðar
fyrir öryggisgæslu LGH,
miðað við það er gerðist er
Pétur Sigurðsson var for-
stjóri."
Umsjón:
Jóhanna S. Sigþórsdóttir
Kvikmyndir Kvikmyndir
Bflaklandur/Háskólabíó:
Gamanmynd?
Car Trouble
Framleiðandi: Howard Malin og Gregory
J. De Santis
Leikstjóri: David Green
Handrit A.J. Tipping og James Whaley
Leikendur: Julie Walters og lan Charleson
Mér skilst að einhverjum Bretum
finnist þessi mynd fyndin og vissu-
lega má finna í henni eitt eða tvö
brosleg atriði en þau halda henni
engan veginn á floti sem gaman-
mynd.
Tveir ágætir leikarar, Walters og
Charleson, eiga alla mína samúð þar
sem þeir berjast vonlausri baráttu
við langdregið og leiðinlegt handrit
þessarar myndar og þegar loksins
kemur svoldið líf í handritið er það
gert þannig að myndin breytist í
hálfgerðan þriller sem ruglar áhorf-
andann.
Walters og Charleson leika
Spong-hjónin, nokkuð léttgeggjað
par, á mjög miðstéttarlegan hátt.
Þau hafa verið gift í níu ár en eru
bamslaiis þar sem hann neitar að
eignast böm á kjamorkuöld. Þama
spilar kannski einnig inn í dæmið
að kynlífið er kirfilega bundið við
laugardagskvöld. Hann dreymir um
að skipta á gamla Citroen braggan-
um sínum og Jagúar. Hana dreymir
um að skipta á eiginmanninum og
latnesku buffi. Bæði framkvæma
drauma sína á sinn hátt. Hann nær
í Jagúarinn en hún í sölumann þess
bíls.
Eins og segir í upphafi er myndin
langdregin framan af enda alveg
óþarfi að eyða hálftíma af filmu í að
fjalla um ein bílakaup en bílakaupin
leiða svo áhorfandann að kjama
málsins sem er óleyfileg ökuferð frú-
arinnar og sölumannsins á Jagúam-
um. Ökuferðin endar með þeim
ósköpum að kalla verður til slökkvi-
liðið með stóm klippumar til að taka
bflinn í tvennt þar sem elskendurnir
em “föst“ inni í honum. Það er al-
veg óprenthæft að útskýra "föst“
nánar.
Herra Spong hyggur á hefndir þar
sem hann elskaði bílinn mun heitar
en frúna og þegar hér er komið sögu
breytir myndin alveg um hrynjandi.
verður að hálfgerðum þriller.
Julie Waltere og lan Charleson
eiga oft á tíðum í erfiðleikum með
persónusköpun Spong-hjónanna
enda leikstjóm David Green reikul
á köflum. Stöku sinnum hittir þetta
þó í mark en þau skipti eru teljandi
á fingrum annarrar handar.
Friðrik Indriðason
Frábær
★★★ Góö
★★ Miðlungs
★ Léleg
0 Afleit
Tilkynning til
söluskattsgreiðenda
Athygli söluskattsgreiðenda skal vakin á því að gjald-
dagi söluskatts fyrir maímánuð er 15. júní. Ber þá að
skila skattinum til innheimtumanna ríkissjóðs ásamt
söluskattsskýrslu í þríriti.
Fjármálaráðuneytið
Ólafsvíkurkaupstaður:
BÆJARSTJÓRI
Lausertil umsóknarstaða þæjarstjóra Ólafsvíkurkaup-
staðar. Umsóknir er greini frá aldri, menntun og
starfsreynslu berist þæjarskrifstofu Ólafsvíkur eigi síð-
ar en 20. júní nk.
Bæjarstjóri Ólafsvíkur.
Staða bæjarstjóra
á Eskifirði
er laus til umsóknar. Umsóknum með upplýsingum
um menntun og fyrri störf skal skila á skrifstofu þæjar-
stjóra fyrir 20. júní. Upplýsingar um starfið gefur
Bæjarstjórinn á Eskifirði.
6 vikaa sumarnámskeið hefst mið-
vikudag lS.júní. Liðkið og styrkið
líkamann. Haldið líkamsþunganum í
skefjum - með heilbrigði í huga.
Pantaðu tíma
Reyndir leiðbeinendur.
Saunaböð - ljósaböð
YOGASTÖÐIN HBISUBÓT
Hátun 6a sími 27710 og 18606
Nauðungaruppboð
sem auglýst var í 82., 89. og 97. tölublaði Lögbirtingablaðsins 1985 á eign-
inni Ásbúð 10, Garðakaupstað, þingl. eign Einars Kristjánssonar, fer fram
eftir kröfu Iðnlánasjóðs á eigninni sjálfri föstudaginn 13. júní 1986 ki. 14.45.
____________________Bæjarfógetinn í Garðakaupstað.
Nauðungaruppboð
sem auglýst var í 85.. 88. og 93. tölublaði Lögbirtingablaðsins 1983 á eign-
inni Ásbúð 43, Garðakaupstað, tal. eign Ævars Lúðvíkssonar, fer fram eftir
kröfu Gjaldheimtunnar í Garðakaupstað, Gjaldheimtunnar í Hafnarfirði, Veð-
deildar Landsbanka íslands og Gjaldheimtunnar i Reykjavík á eigninni sjálfri
föstudaginn 13. júní 1986 ki. 15.00.
__________Bæjarfógetinn í Garðakaupstað.
Nauðungaruppboð
sem auglýst var i 82., 89. og 97. tölublaði Lögbirtingablaðsins 1985 á eign-
inni Krókamýri 38, Garðakaupstað, þingl. eign Jóhönnu Ó. Halldórsdóttur,
fer fram eftir kröfu Gjaldheimtunnar í Reykjavík, Veðdeildar Landsbanka Ís-
lands, Jóns G. Briem hdl., Ásgeirs Thoroddsen hdl. og Gjaldheimtunnar í
Garðakaupstað á eigninni sjálfri föstudaginn 13. júní 1986 kl. 15.30.
___________Bæjarfógetinn i Garðakaupstað.