Dagblaðið Vísir - DV - 10.06.1986, Page 28
28
DV. ÞRIÐJUDAGUR 10. JÚNl 1986.
Kristinn Einarsson kaupmaður lést
31. maí sl. Hann fæddist 6. desember
1896 á Grímslæk í Ölfusi. Foreldrar
hans voru Einar Eyjólfsson og Guð-
rún Jónsdóttir. Kristinn lauk prófi
frá Verslunarskóla Islands árið 1916.
Hann rak búsáhalda- og leikfanga-
verslunina K. Einarsson og Bjöms-
son áratugum saman. Eftirlifandi
eiginkona hans er Ella Marie Ein-
arsson. Þeim hjónum varð íjöggura
barna auðið. Útför Kristins verður
gerð frá Fríkirkjunni í Reykjavík í
dag kl. 15.
Sigríður Ólafsdóttir frá Gesthúsum
lést 14. maí sl. Hún fæddist á Álfta-
nesi 26. febrúar 1895, dóttir hjónanna
Guðfinnu Jónsdóttur og og Ólafs
Bjarnasonar. Sigríður giftist Jens P.
Hallgrímssyni en hann lést árið 1979.
Þeim hjónum varð fjögurra barna
auðið. Útför Sigríðar verður gerð frá
Fossvogskirkju í dag kl. 13.30.
Ásta Kristjánsdóttir, Eskihlíð 14a,
er látin.
Gíslína Magnúsdóttir frá Hnjóti lést
8. júní.
Guðborg. Sigurgeirsdóttir, Reynimel
32, andaðist þann 7. júní í Landa-
kotsspítala.
Karítas Ósk Bjarnadóttir lést af slys-
förum 4. júní.
Þóra Thorlacius, Hjarðarhaga 40,
lést í Landspítalanum aðfaranótt 9.
júní.
Jón Grétar Guðmundsson, Gnoðar-
vogi 70, verður jarðsunginn frá
Langholtskirkju, miðvikudaginn 11.
júní kl. 15.
Útför Jóns Ólafssonar frá Mýrar-
húsum, Akranesi, verður frá Foss-
vogskapellu í dag, þriðjudaginn 10.
júní, kl. 15.
Guðbjörg Árnadóttir frá Kolsholti,
Litlagerði 14, verður jarðsungin frá
Bústaðakirkju miðvikudaginn 11.
júní kl. 13.30.
Útför Ólafs Bergsteinssonar, Árgils-
stöðum, fer fram frá Breiðabólsstað-
arkirkju í Fljótshlíð fimmtudaginn
12. júní kl. 14.
Guðrún Kristjánsdóttir frá ísafirði,
lést 8. júní að Elliheimilinu Gmnd.
Páll Þorláksson rafverktaki lést 27.
maí sl. Hann fæddist 6. september
1934. Foreldrar hans voru hjónin
Kristjana Ömólfsdóttir og Þorlákur
Jónsson. Páll lauk prófi í rafvirkjun
frá Iðnskóla íslands árið 1952 og
stofnaði ungur sitt eigið fyrirtæki
sem hann vann við alla tíð síðan.
Eftirlifandi eiginkona hans er Ást-
hildur Pétursdóttir. Þeim hjónum
varð tveggja barna auðið. Útför Páls
verður gerð frá Dómkirkjunni í dag
kl. 13.30.
REYKJAVÍK Gnoðarvog,
Ljósheima, Suðurlandsbraut.
Hlunnavog, GARÐABÆR
Njörvasund, Brúarflöt, Markarflöt,
Sigluvog, Sunnuflöt.
AFGREH3SLA
Þverholti 11 - Sími 27022
Menning
Menning
Menning
Arrau - öðlingurinn
við slaghörpuna
Listahátíö i Reykjavik
Tónleikar Claudio Arrau í Háskólabíói 9.
júni.
Efnisskrá: Ludwig van Beethoven: Píanó-
sónata í D-dúr op.10 nr.3; Píanósónata i
C-dúr op.53; Pianósónata í Es-dúr op.81;
Píanósónata i f-moll op.57.
Tónleikar Claudio Arrau em lík-
lega það tónlistaratriði á Listahátíð
sem hvað flestir hafa beðið með
mestri eftirvæntingu. Hann er í hópi
þeirra pianóöldunga sem orðið hafa
að þjóðsagnapersónum í lifanda lífi.
Það er annars makalaust hvað pían-
istar virðast endast vel. Arrau er
eins og kunnugt er langt frá því að
vera neitt einsdæmi um píanista sem
leika sem aldrei íyrr þegar þeir em
komnir langt fram yfir þann aldur
sem markar.eftirlaunaskeiðið. Sam-
Listahátíð í dag:
Myndlistarsýningar:
Picasso „Exposition inatt-
endue“, Kjarvalsstaðir.
Karl Kvaran: Yfirlitssýning,
Listasafri íslands.
Reykjavík í myndlist, Kjar-
valsstaðir.
Klúbbur Listahátíðar:
Hljómsveit Grétars Örvarsson-
ar. Söngatriði. Leynigestur
Ingimar Eydal
kvæmt ríkjandi reglum í okkar
þjóðfélagi ætti hann að hafa verið
ellistyrkþegi í ein sextán ár. En vit-
anlega skiptir aldur listamanns engu
máli, heldur leikur hans þegar fram
fyrir áheyrenduma kemur.
Tónlist
Eyjólfur Melsted
Að veita áheyrandanum inn-
sæi í verkið sem heild
Claudio Arrau fangaði hugi áheyr-
enda sinna þegar á fyrsta tóni. Öll
mótun hendinganna er einstök hjá
þessum „gentleman" píanósins.
Hann gefur h verj um tóni færi á að
hljóma til fulls og í hægu köflunum
finnst manni sem döggin drjúpi af
tónunum líktpg af blómum vallarins
í morgunsól. I allra hröðustu hlaup-
um er snerpan kannski ekki alveg
sem fyrr, en gáfur Arraus gera meira
en að vega á móti því. Hvemig hann
byggir upp spennuna, vaxandi frá
fyrsta tóni til hins síðasta, er hreint
makalaust. Hann fær áheyrendur
sína til að heyra, og sjá, verkin sem
hann leikur í heild sinni. Einstakir
tónar missa gildi sitt sem slíkir og
áheyrandanum veitist innsæi í verk-
ið sem heild. Slíkt er aðeins á færi
hinna mestu. Þegar þannig er leikið
verka hlutir eins og tækni og hennar
systur líkastar útkjálkafraukum á
jaðri tónlistarheimsins.
Með frið í sálinni
Já, mikill meistari er Arrau. Mér
hlotnaðist sú náð að heyra Svjat-
oslav Richter spila Waldsteinsónöt-
una um daginn. Hann lék við ólíkt
magnaðri spennu áheyrenda en
Arrau lék hér. Ekki treysti ég mér
þó til að gera upp á milli. Þessir jöfr-
ar píanósins em sem betur fer svo
ólíkir og óendanlega snjallir, hvor á
sinn hátt.
Ekki virtist blessaður öðlingurinn
alveg dús við uppröðun prógramm-
nefhdarinnar á efhisskránni og hélt
ekki sömu röð og tilkynnt var á pró-
grammbleðlinum sem útbýtt var á
vegum Listahátíðar. Það skipti svo
sem engu máli. Mönnum má vera
rétt sama hvort þeirra kemur á rrnd-
an, Waldstein eða Appassionata,
þegar slíkum snilldartökum er beitt.
Arrau sá alltént til þess að þeir sem
á hann hlýddu- gengu út í sumar-
regnið með frið í sálinni.
EM
Tilkynningar
Upplýsingamiðstöð fyrir
ferðamenn á Akureyri
Ferðamálafélag Akureyrar mun í
sumar reka upplýsingamiðstöð fyrir
ferðamenn, fimmta sumarið 1 röð.
Undanfarin tvö sumur var upplýs-
ingamiðstöðin til húsa í Turninum
við göngugötuna en hann hefur nú
verið tekinn til annarra nota. í sum-
ar verður upplýsingamiðstöðin til
húsa í Ánni, húsi Lionsklúbbsins
Hængs, sem stendur við Skipagötu
gegnt Pósthúsinu. Upplýsingamið-
stöðin verður opin frá miðjum júní
til ágústloka. í fyrravor gaf Ferða-
málafélagið út glæsilegan, mynd-
skreyttan Akureyrarbækling með
korti af Akureyri. Þessi bæklingur
kemur út í byrjun júní, nú með nýju
og skýrara korti. Ferðamálafélagið
hvetur alla sem bjóða fram einhvers
konar þjónustu að senda upplýsingar
til félagsins eða hafa samband við
starfsmenn upplýsingamiðstöðvar-
innar í síma 96-25128 eftir miðjan
júní.
Sýning á sjúkravörum
Haldin verður í Hjúkrunarskóla Is-
lands, Eiríksgötu 34, helgina 13.-15.
júní nk. sýning á sjúkravörum. Á
sýningunni sýna 15 fyrirtæki vörur
sínar. Sýningin er til styrktar náms-
ferð síðasta útskriftarhóps skólans,
hún er opin sem hér segir: Föstudag-
inn 13. júní kl. 17-21, laugardaginn
14. júní kl. 13-21, sunnudaginn 15.
júní kl. 13-21. Allir eru boðnir vel-
komnir og er aðgangur ókeypis.
Landssamtök málfreyja á ís-
landi, ITC,
héldu fyrsta árlega landsþing sitt
dagana 6., 7. og 8. júní sl. í Hótel
Stykkishólmi. Heiðursgestur lands-
þingsins var Muriel Bryant, fram-
kvæmdastjóri International
Training in Communication. Forseti
Landssamtaka málfreyja á íslandi er
Erla Guðmundsdóttir úr málfreyju-
deildinni Vörðunni í Keflavík.
Landssamtök málfreyja á Islandi
samanstanda af 22 málfreyjudeildum
sem skiptast í þrjú ráð. 1 hverju ráði
eru 7-8 deildir. Umsjónarfreyja
landsþingsins er Björg Stefánsdóttir
úr málfreyjudeildinni Melkorku í
Reykjavík.
Ferðir Brúðubílsins
Þessa viku verður Brúðubíllinn á
ferð sem hér segir: Þriðjudag 10. júní:
kl. 14 Tungusel, kl. 15 Fífusel. Mið-
vikudag 11. júní: kl. 10 Hringbraut,
kl. 14 Suðurhólar, kl. 15 Vesturberg.
Fimmtudag 12. júní: kl. 10 Rauða-
lækur, k!. 11 Gullteigur, kl. 14
Dalaland. Föstudag 13. júní: kl. 10
Stakkahlíð, kl. 11 Hvassaleiti, kl. 14
Tunguvegur.
Ferðalög
Útivistarferðir
Miðvikudagur 11. júní,
kl. 20 Esjuhlíðar (kvöld) Gengið um
Þverfellið og leitað „gulls“ við Mó-
gilsá. Verð 300 kr., frítt f. börn m.
fullorðnum. Brottför úr Grófinni
(bílastæðinu v. Vesturgötu 2) og
BSÍ, bensínsölu ", mín. síðar.
Trimmdagar á Jónsmessu:
Reykjavíkurganga Útivistar verður
sunnudaginn 22. júní, Brottför úr
Grófinni kl. 10.30 og frá Skógræktar-
stöðinni Fossvogi kl. 13. Kl. 14
verður gengið frá Elliðaárstöð upp í
Elliðaárdal. Nánar auglýst um helg-
ina. Sjáumst.
„Frmnsóknarflokkurinn virðist
dottinn út. Hanti setti það sem al-
gert skilyrði að Steían Ömar
Jónsson yrði áfram bæjarstjóri.
Við í Alþýðuflokknum, Alþýðu-
bandalaginu og hjá Kvennalistan-
um viljum auglýsa. Nú höíúm við
þegar haldið þrjá fundi með Sjálf-
stæðisflokknum og þær viðræður
ganga vel,“ sagði Steingrímur Ing-
varsson, bæjarfúlltrúi Alþýðu-
flokksins á Selfossi.
„Það er nánast handavinna eftir
við frágang málefhasamnings Al-
þýðuflokksins og Alþýðubanda-
lagsins. Ég sé ekki að neitt sé í
veginum,“ sagði Guðmundur
Oddsson, bæjarfulltrúi Alþýðu-
flokksins í Kópavogi, í morgun.
Alþýðubandalagið og listi
óháðra eru í þann veginn að ganga
frá myndun meirihlufa á Reyðar-
firði, að sögn hreppsnefndarmanns
óháðra, Sigfúsar Guðlaugssonar.
Núverandi sveitarstjóra, Herði
Hafskipsmálið:
Helgi laus
Helga Magnússyni, einum mann-
anna í Hafskipsmálinu, hefúr verið
sleppt úr haldi og sitja nú tveir þeirra
eftir, Björgólfúr og Ragnar.
Hallvarður Einvarðsson, rannsókn-
arlögreglustjóri ríkisins, sagði í
samtali við D V í morgun að ekki hefði
enn verið tekin ákvörðun um hvort
gæsluvarðhald yfir þessum tveimur
yrði framlengt en gæsluvarðhald
þeirra rennur út á morgun, 11. júní.
Ákvörðun um framlenginu verður tek-
in í dag eða á morgun.
Sjálfstæðisflokkur og Framsókn-
arflokkur voru í meirihluta sfðasta
kjörtimabil með fjóra og þrjá fúll-
trúa. Sjálfstæðisflokkurinn tapaði
manni í kosningunum til Kvenna-
lista. Annað breyttist ekki milii
Usta. Ef af þessu nýja samstarfi
verður hefúr Sjálfstæðisflokkurinn
þrjú sæti og hinir þrír flokkamir
eitt sæti hver. I bæjarstjóm em
níu sæti alls.
A-flokkamir hafa ákveðið að
Kristján Guðmundsson verði
áfram bæjarstjóri.
Þessir flokkar hafa þrjú sæti
hvor og sex fúlltrúa af ellefú í
bæjarstjóm.
Þórhallssyni, yerður boðið að
gegna starfi sínu áfram.
Aðstandendur listanna reikna
með að geta gengið frá samkomu-
lagi í dag sem lagt verður fyrir
félagsfúndi. ás.
-FRI
Kúvending á Selfossi
- út af bæjarstjorastólnum
HERB
A-flokkamir saman í Kópavogi
- Kristján afram bæjarstjóri
-HERB
Reyðarfjörður:
Alþýðubandalag og óháðir í sljóm