Dagblaðið Vísir - DV - 09.07.1986, Blaðsíða 5
MIÐVIKUDAGUR 9. JÚLÍ 1986.
5
Stjómmál
Stjórnvöld gáfu fyrirheit
um ákveðið gengi dollarans
- segir Friðrik Pálsson
I umræðum um bága stöðu íisk-
vinnslunnar um þessar mundir hafa
forsvarsmenn í greininni talað um
að stjómvöldum bæri að bæta fisk-
vinnslunni það tap sem hún hefur
orðið fyrir vegna gengislækkunar
dollarans síðan kjarasamningar
voru gerðir í febrúar.
„Þegar þjóðarsáttin var gerð
byggðist hún á því dollarinn yrði
42,30 miðað við kaupgengi. Allar
áætlanir sem lagðar vom til grund-
vallar í kjarasamningunum byggðu
á því gengi dollarans. Síðan fer doll-
arinn á fleygiferð niður og það er
ljóst að stjómvöld hafa ekki treyst
sér til þess að standa við það fyrir-
heit að gengi dollarans héldist í 42,30
krónum, sem í reynd var forsenda
þess að forsvarsmenn treystu sér til
að skrifa undir kjarasamninginn í
vetur,“ sagði Friðrik Pálsson, for-
stjóri Sölumiðstöðvar hraðfrystihús-
anna, er hann var spurður að því
hvort stjómvöld hefðu lofað fisk-
vinnslunni ákveðnu gengi dollarans
í kjarasamningunum.
„Við getum ekki unað við það
lengur að dollarinn verði undir 42,30
krónum. Við viljum fa okkar hlut
bættan. Það hefur verið staðið við
þessa kjarasamninga gagnvart öðr-
um aðilum. Nú er komið að okkur,“
sagði Friðrik.
-KB
Sleipnismenn
óánægðir með
gerðardóminn
Gerðardómur í kjaradeilu Bifreiða-
stjórafélagsins Sleipnis og Félags
sérleyfishafa er nú fallinn. Niðurstaða
dómsins er meðal annars sú að bif-
reiðastjórar skuli fá tveggja launa-
flokka hækkun frá því sem áður var.
Fyrsta hækkunin komi þegar til fram-
kvæmda og sú síðari 1. október. í
dómnum kveður ennfremur á um
greiðslu fæðispeninga til bifreiðastjóra
sem vinna fjarri heimilum sínum.
Ekki munu Sleipnismenn alls kostar
ánægðir með þennan úrskurð gerðar-
dómsins. Telja þeir að þá skorti enn
30% upp á að ná launum bifreiða-
stjóra á steypubílum. En dómurinn
gildir sem samningur milli deiluaðila
til áramóta. Þá fellur hann úr gildi
án uppsagnar.
-ÞJV
Bág örlög
fjölda
fiystihúsa
Fiskvinnslufyrirtæki á suðvest-
urhomi landsins hafa átt við
veruleg rekstrarvandamál að
stríða á undanfömum tveimur
árum. Sum hafa hreinlega hætt
starfsemi, nokkur orðið gjaldþrota
eða verið seld og/eða sameinuð
öðrum.
íshús ITafnarfjarðar var selt
Sjólastöðinni fyrir u.þ.b. tveimur
árum. ísstöðin í Garði var lýst
gjaldþrota í fyrra. Rekstri Hrað-
frystihúss Ólafs Lárussonar í
Keflavik var hætt fyrir ca 2 árum.
Heimir hf. í Keflavík var lýst gjald-
þrota í fyrra og einnig hraðfrysti-
hús Eyrarbakka. ísbjöminn var
sameinaður Bæjarútgerð Reykja-
víkur vegna rekstrarerfiðleika.
Bæjarútgerð Hafnaríjarðar var
seld. Fiystihús Grindavíkur var
selt og Hraðfrystihús Sjöstjöm-
unnar hf. í Keflavík var líka selt
nýlega. Hjá Hraðfrystistöð
Reykjavíkur er nú búið að segja
upp flestum starfsmönnum.
Þörf á 85 milljónum í hlutafé
Ástandið hjá Hraðfrystihúsi
Keflavíkur er nú mjög slæmt. Það
er í hópi verst stöddu fiskvinnslu-
fyrirtækja á landinu, skuldimar
em yfir 300 milljónir, en vonast
er til að hægt verði að bjarga fyrir-
tækinu, þannig að það hljóti ekki
sömu örlög og fyrrgreind fyrirtæki
í þessum landshluta.
„Það er ljóst að við fáum ekki
aðstoð frá Byggðastofnun og við-
skiptabönkum nema að til komi
aukning hlutafjár. Hlutafé þyrfti
að vera 100 milljónir en er núna
15 milljónir," sagði Helgi Jóna-
tansson, framkvæmdastjóri Hrað-
frystihúss Keflavíkur.
„Við höfum átt viðræður við
bæjarstjóm Keflavikur um að
bærinn komi til aðstoðar og gerist
hluthafi í fyrirtækinu. Einnig er
ætlunin að eigendur fyrirtækisins,
Kaupfélag Suðumesja og Sam-
bandið, auki sitt hlutafé. Endanleg
niðurstaða er ekki fengin en ég er
bjartsýnn á að það takist að bjarga
fyrirtækinu. Hugmyndin er sú að
bærinn eignist þriðjung af hlutafé
fyrirtækisins," sagði Helgi.
Kjarasamningarnir
Að sögn Helga er aðalorsök
rekstrarvandans uppsafnaðar
skuldir, erfið lán og tap á útgerð-
inni. „í sínum útreikningum um
stöðu fiskvinnslunnar gerir Þjóð-
hagsstofnun ekki ráð fyrir upp-
söfhuðum skuldum liðinna ára.
Eigið fé fiskvinnslufyrirtækjanna
hefur brunnið upp á verðbólgubál-
inu.
Staðan er miklu verri en gert var
ráð fyrir þegar gengið var til sam-
komulags um kjarasamningana.
Þá var gengið út frá því að gengi
dollarans yrði 42,30 krónur en ekki
41 króna eins og er í dag. Þessi
tekjurýmun ásamt auknum til-
kostnaði veldur vandanum í dag.“
-KB
cg SAMSUNG
TÍJWMMIMA
TAKN
ORBYLGJUOFN
með snúningsdiski
r—
A VERÐI
SEM SLÆR ALLT ÚTÍ
Kr. 10.900
stgr.
3.000 út — eftirstöðvar á sex mánuðum!
íslenskur leiðarvísir
Mámskeið innifalið í verði
L
Laugavegl 63 — Síml 62 20 25