Dagblaðið Vísir - DV - 09.07.1986, Blaðsíða 9
MIÐVIKUDAGUR 9. JÚLÍ 1986.
9
Útlönd
Hreinsað til eftir
KalHomíuskjálfta
Vinnusveitir unnu að því að hreinsa
mannhæðarháa hnullunga af hrað-
brautum, laga rafinagnslínur og negla
fyrir glugga í gærkvöldi eftir kröftug-
an jarðskjálfta sem varð í Palm
Springs í Kalifomíu í gær.
Jarðskjálftafræðingar, lögregla og
slökkviliðsmenn sögðu að þeim væri
óskiljanlegt að jarðskjálftinn, sem
mældist 6 stig á Richterskvarða, skyldi
valda svo litlu tjóni og engum alvar-
legum meiðslum.
Margir minni skjálftar komu i kjöl-
farið og sögðu sérfræðingar að líklegt
væri að þeir héldu áfram í nokkra
daga.
En Kalifomíubúar, sem em orðnir
nokkuð vanir hörðum jarðskjálftum,
kipptu sér ekkert upp við þennan
skjálfta og héldu áfram við dagleg
störf sín eins og ekkert hefði gerst.
Risastórir hnullungar féllu úr hæð-
unum við ströndina og lentu aðallega
á hraðbrautunum og um 100.000
manns misstu rafinagnið um tíma
vegna skemmda á rafmagnslínum.
Einungis brotnuðu rúður í örfáum
búðargluggum í Palm Spring og í einni
verslun, sem sérhæfir sig í fínasta
postulíni, brotnaði rúðan en ekki kom
svo mikið sem spmnga í útstillinguna.
Jarðskjálftans varð vart á svæðinu
frá Los Angeles í vestri til Arizona í
austri og fiá landamærum Mexíkó í
suðri til Santa Barbara í norðri.
Hess lagður á
hersjúkrahús
Rudolf Hess, fyrrum staðgengill
Adolfs Hitler, er afplánað hefúr lífstíð-
ardóm í fangelsi bandamanna frá því
í síðari heimsstyrjöld, var lagður inn
á breskt hersjúkrahús í Vestur-Berlín
í gær.
Læknar, er umgengist hafa Hess að
undanfornu, segja hann þjást af þung-
lyndi auk þess sem gífurlegir hitar í
Þýskalandi að undanfömu hafa haft
slæm áhrif á heilsufar hans.
Hess var dæmdur sekur um stríðs-
glæpi í lok síðari heimsstyijaldar og
hefúr síðustu 40 ár dvalið í Spandau
fangelsinu í Vestur-Berlín, er verið
hefur undir umsjón fjórveldanna frá
stríðslokum.
Rudolf Hess, staðgengill Adolfs Hitler,
sem orðinn er 92 óra, hefur verið
lagður inn á breskt hersjúkrahús i
Vestur-Berlín til skoðunar.
Dauðadómur lyrir
eiturlyfjadreífíngu
Dómstóll í Malaysíu hefur dæmt
tæplega sjötuga konu til dauða fyrir
aðild að eiturlyfjadreifingu í landinu.
Verjendur konunnar hafa farið fram
á náðun skjólstæðings síns og vitnuðu
í því sambandi til aldurs hennar og
lélegrar heilsu.
Stjómvöld í Malaysíu hafa hert til
muna öll viðurlög við brotum á eitur-
lyfjalöggjöf landsins og er hér um að
ræða annan dauðadóminn í landinu
sem kveðinn er upp vegna eiturlyfja-
dreifingar á tveim dögum.
í fyrradag voru tveir Ástralíumenn
á þrítugsaldri hengdir í fangelsi í höf-
uðborginni Kuala Lumpur fyrir meint
eiturlyfjasmygl árið 1983.
Stjómvöld í Malaysíu segjast stað-
ráðin í því að bijóta niður alla eitur-
lyflasölu í landinu og segja að slíkt
sé óffamkvæmanlegt nema að halda
uppi strangri eiturlyfjalöggjöf í
landinu.
Maxi speglarnir kosta aðeins 1250 kr., fjórir í pakka
með festingum. Hver spegill er 39,6 x 60 cm og hægt
að hengja þá upp á ýmsa vegu.
MAXI
húsgagnahöllin
BÍLDSHÖFÐA 20-112 REYKJAVÍK - 91 -681199 og 681410
Subur-Brónei
K í nahaf
í a
Bonneo
ndónes í a
MARSHAL
JEPPADEKK
30 x 9,5 x 15 Verð kr. 7124-
31 x 10,5 x 15 Verð kr. 7721-
33 x 12,5 x 15 Verð kr. 7970-
700 x 15 Verð kr. 5440-
750 x 16 Verð. kr. 6369-
Okkar verð er.
Já, þú veist.
GiÞorstei
yohnsoni
irsteinsson
Ihf. ÁRMÚLI 1 105 REYKJAVÍK
Símar - 687377 685533,
Yfirvöld í Malaysiu segjast staöráðin i þvi aö brjóta niður allt eiturtyfjaböl i
landinu og hafa hert refsingar til muna.