Dagblaðið Vísir - DV - 19.09.1986, Síða 2
!—
2
ílSHMÍITHH5! ftr H'SO'í
FÖSTUDAGUR 19. SEPTEMBER 1986.
Fréttir
Uppspretta Whíte Top bjórsins var á Akureyri:
Tveir menn handteknir
- og öflug bjórverksmiðja gerð upptæk
Jón G. Hauksscn, DV, Akureyri;
Tveir Akureyringar, rúmlega tvítugir
að aldri, voru handteknir að heimilum
sinum í fyrrinótt vegna bruggunar á
„White Top“ bjómum, ólöglega bjóm-
um, sem gengið hefur kaupum og
sölum á Akureyri og í Reykjavík að
undanfómu. Eftir handtöku mann-
anna gerði lögreglan á Akureyri
heimatilbúna bmggverksmiðju á Ak-
ureyri upptæka. „White Top“ bjórinn
var því framleiddur á Akureyri eftir
allt saman.
Yfirheyrslur yfir mönnunum tveim
stóðu yfir hjá rannsóknarlögreglunni
á Akureyri í allan gærdag. Frétt DV
í fyrradag leiddi meðal annars til
handtöku mannanna tveggja.
„White Top“ bjórinn hefur verið
seldur á 2500 krónur kassinn.
Kúnstugt mál
Allt er málið hið kúnstugasta. Fyrir
tæpum tveim mánuðum kom maður
til prentara eins á Akureyri og bað
hann um að prenta innkaupamiða,
„White Top“, sem áttu að límast á
bjórkassa. Maðurinn sagði að kunn-
ingi sinn, búsettur erlendis, væri með
umboð fyrir „White Top“ og sæi með-
al annars um sölu á bjómum í sendi-
ráðin á íslandi.
Prentarinn á Akureyri prentaði
12000 miða af „White Top“ og 12000
miða af „Baron Beer“ Mikið lá á að
fá miðana. En þegar prentaranum var
greitt fyrir prentunina var það gert
með gúmmítékkum, tveim innstæðu-
lausum ávísunum. Hefur prentaranum
nú tekist að innheimta 12000 krónur
af þeim 50-60.000 sem það kostaði að
prenta miðana og standa nú yfir mála-
ferli vegna þessa.
Tveir menn sitja nú í haldi vegna
bruggunar á „White Top“-bjómum.
„Agætisbjór
„Þetta var ágætisbjór, þrælsterkur
og maður kippti af einni flösku," sagði
viðmælandi DV á Akureyri sem fengið
hafði sér „White Top.“ Annar, sem
drakk flösku af bjómum í Reykjavík,
var ekki eins hrifinn því í hans flösku
var tómt grugg, ódrekkandi að sjálf-
sögðu.
En nú er saga „White Top“ bjórsins
á enda, bmggverksmiðjan hefur verið
gerð upptæk. „Hvíti toppurinn" átti
eftir allt saman rætur sínar að rekja
til Akureyrar.
Grámávur á flugi yfír Reykjavík:
Ræðst á bamaheimili og
truflar knattspyrnuleiki
„Hann byrjaði á þvi að glefsa í böm-
in sem að sjálfeögðu urðu hrædd. Um
þverbak keyrði þó þegar hann settist
ofan á höfuðið á einu þeirra. Þá
hringdum við í lögregluna," sagði Elín
Mjöll, forstöðukona bamaheimilisins
Ægisborg við Ægisíðu, en þar fengu
böm og fóstrur óvænta heimsókn í
fyrradag. Stór grámávur lenti í garðin-
um hjá þeim og neitaði að fara fyrr
en einkennisklæddir lögregluþjónar
vom mættir á staðinn: „Það var eins
og hann yrði hræddur við einkennis-
búningana. Hann tók lítið mark á
okkur þegar við vorum að reyna að
flæma hann á brott. Um tíma vom
bömin komin upp að vegg á meðan
fuglinn spókaði sig í garðinum eins
og hann væri heima hjá sér. Við von-
um bara að hann láti ekki sjá sig
aftur,“ sagði Elín Mjöll.
Grámávurinn hóf sig á loft frá
Guðný Þóra Guðmundsdóttir, 4 ára,
á Ægisborg. Mávurinn settist á höfuð-
ið á henni.
DV-mynd S.
bamaheimilinu er lögregluna bar að
garði og flaug niður að sjó við Ægisíð-
una. Hvarf hann þar sjónum manna.
I hádeginu í gær birtist hann svo
aftur í Laugardalnum þar sem knatt-
spymuliðið Lunch United var við
æfingar. Urðu menn hans fyrst varir
er hann flaug tvo hringi umhverfis
völlinn áður en hann áræddi að lenda.
Sótti hann mjög að leikmönnum eins
og í ætisleit og hafði sig ekki á brott
fyrr en honum var nær því sparkað
af velli. Fengu menn frið úr því.
Grámávur þessi er greinilega merkt-
ur á hægra fæti og lítt mannfælinn.
Hann getur þó sýnt af sér grimmd,
eins og fóstrumar í Ægisborg komust
að raun um. Samkvæmt heimildum
DV hefur lögreglan auga með fugli
þessum og hyggst skjóta hann við
fyrsta tækifæri.
-EIR
DV-mynd GVA.
Gunnar G. Schram ásamt öðrum tormönnum samtaka háskólamanna á
Norðurlöndum fyrir framan Uppsalaháskóla. Talið frá vinstri: E. Stengaardi
frá Danmörku, R. Lethinen frá Finnlandi, J. Ullenhag frá Svíþjóð, Gunnar
og H. Skuggedal frá Noregi.
Sanvtök háskólamanna á Norðuriöndum:
Gunnar fbrmaður
Gunnar G. Schram, formaður
BHM, hefur verið kjörinn formaður
samtaka háskólamanna á Norður-
löndum en í þeim eru um 800 þúsund
félagar. Fór kjörið fram á ársfundi
samtakanna í Uppsölum í Svíþjóð í
byrjun þessa mánaðar.
Á ráðsfundinum var rætt um sam-
eiginleg hagsmunamál háskóla-
manna á Norðurlöndum og sérstök
áhersla lögð á þrjú atriði:
Að menntun yrði að vera arðbær
bæði fyrir einstaklinga og þjóðfélag-
ið og því yrði að bæta kjör háskóla-
menntaðra manna og auka
kaupmátt launa þeirra. Að breyta
þyrfti námslánakerfinu á Norðurl-
öndum þannig að skuldabyrðin
léttist og fleiri veldu háskólanám.
Að auknu fé yrði varið til háskólar-
annsókna og starfeaðstaða þeirra er
þær vinna bætt. -EIR