Dagblaðið Vísir - DV - 19.09.1986, Side 3
FÖSTUDAGUR 19. SEPTEMBER 1986.
3
Fréttir
Deilt um lottó
á ársþingi ÍSÍ
Allsnarpar deilur urðu á ISÍ-þingi
um síðustu helgi vegna ákvörðunar
stjómarinnar um að koma á fót svo-
kölluðu lottói hérlendis eða talnaget-
raunum, eins og það hefur verið kallað
á íslensku.
Eins og kunnugt er af fréttum DV
hefur verið tekin ákvörðun um það
að talnagetraunir fari af stað í nóv-
ember og hafa verið gerðir samningar
við Bandaríkjamenn um kaupleigu á
öllum tækjum sem til þess þarf.
Að sögn Þórðar Þorkelssonar, sem
er í stjóm Islenskrar getspár, en svo
nefnist fyrirtæki það er sér um fram-
kvæmd talnagetraunanna, urðu
margir þingfulltrúanna til að deila
harkalega á fyrirtækið. Einkum óttast
menn að þetta kunni að leiða til mik-
ils samdráttar hjá íslenskum getraun-
um.
„Hins vegar er það orðið staðreynd
að talnagetraununum verður komið á
fót og menn gerðu sér fullkomlega
grein fyrir því, enda fór svo að lokum
að samþykkt var samhljóða svohljóð-
andi ályktun: „ÍSÍ-þing 86 fagnar því
að senn muni hefjast lottórekstur hér
á landi. Jafnframt býður íþróttaþing
samstarfsaðila sína velkomna til
starfa“,“ sagði Þórður Þorkelsson.
-KÞ
Blindur maður með bók.
Ný prentvél
Blindrabókasafn íslands er að taka
í notkun nýja blindraletursprentvél
sem er lokaáfangi í framleiðslukerfi
fyrir blindraletursútgáfu sem hannað
er fyrir safnið af Hilmari Skarphéðins-
syni verkfræðingi. Kerfið er þannig
sniðið að hæglega má færa texta á
ýmsum tölvutækum formum til
vinnslu innan þess. Þannig má prenta
texta á blindraletri sem upphaflega
hefur verið settur í prentsmiðju fyrir
hefðbundna bókaútgáfu. Þarf þá ekki
fyrir blinda
að vélrita textann vegna blindralet-
ursútgáfunnar en það sparar að sjálf-
sögðu gífurlegan tíma í vinnslu. Þá
auðveldar kerfið samvinnu blindra og
sjáandi starfsmanna bókasafnsins þar
sem auðvelt er að flytja texta á milli
blindraleturs og svartleturs.
Nýja prentvélin er mjög afkastamik-
il og hefur þann meginkost að prenta
báðum megin á pappírinn. Skiptir það
miklu í rúmfreku blindraletursprenti.
-EIR
I
?
I
Það ertilvalið að koma í JL Byggingavörur við Hringbraut eða Stórhöfða.
Þiggja góð ráð frá sérfræðingum um allt mögulegt sem lýtur að
husbyggingum, breytingum og viðhaldi húseigna.
Við höfum ætíð heitt kaffi á könnunni.
Laugardaginn 20. september verður kynningu háttað sem hér segir:
Komið, skoðið, fræðist
JL Byggingavörur v/Hringbraut,
Laugardaginn 20. september kl. 1 Qt1 6.
GÓLFTEPPIOG TEPPALÖGN.
GÓLFDÚKAR OG DÚKALÖGN.
Um ýmis konar ef ni og aðferðir.
Sérfræðingar á staðnum.
JL Byggingavörur, Stórhöfða.
Laugardaginn 20. septemberkl. 10-16.
SET SNJÓBRÆÐSLURÖR
OG PLASTFITTINGS
Sérfræðingar á staðnum.
- KYNNINGARAFSLÁTTUR -
BYGGINGAVORUR
2 góðar byggingavömverslanir.
Austast og vestast í borginni
Stórhöfða, sími 671100- v/Hringbraut, sími 28600
tórfallegt sófasett á hagstæðu
Skoðið það um helgina
SIÐUMULA 30 SIMI68-68-22
TM-HUSGOGN
HjjsgO,