Dagblaðið Vísir - DV - 19.09.1986, Qupperneq 4

Dagblaðið Vísir - DV - 19.09.1986, Qupperneq 4
4 FÖSTUDAGUR 19. SEPTEMBER 1986. Fréttir_______________________dv Kaffibrennslan átti ekki að fá að vita um avisos - segir vitni í kaffibaunamálinu - spjótsn beinast að Hjalta í forstofu dómsalarins: Jón Finnsson, verjandi Erlends, vitnið Sigurður Gils Björgvinsson, í miðið, og vitnið Þröst- ur Sigurðsson, fyrrverandi framkvæmdastjóri Kaffibrennslunnar, til hægri, ræða saman. Fyrir aftan þá, vinstra megin, brosir blaðamaður Timans, Eysteinn Sigurðsson. DV-mynd GVA Framburður vitnis í kaffibaunamál- inu í Sakadómi Reykjavíkur í gær styður þá skoðun ákæruvaldsins að Kaffibrennsla Akureyrar hafi vísvit- andi verið leynd miklum afsláttum af kaffibaunum. Sigurður Gils Björgvinsson, sem var aðstoðarframkvæmdastjóri innflutn- ingsdeildar SÍS, sagði í yfirheyrslu að ákærði, Sigurður Ámi Sigurðsson, deildarstjóri fóðurvömdeildar, sem annaðist kaffiinnflutninginn, hefði sagt sér á árinu 1980 að Kaffibrennslan vissi ekki um tilvist avisos-greiðsln- anna og að Kaffibrennslan ætti ekki að fá að vita um avisos-greiðslumar. Ekki mundi vitnið hvort það hefði komið fram í þessu sambandi hvaðan þessi ákvörðun væri. Ágreiningur um réttarstöðu Sigurðar Gils Yfirheyrslan yfir Sigurði Gils taíðist í gærmorgun vegna ágreinings um hvaða réttarstöðu hann skyldi hafa, hvort hann skyldi hafa réttarstöðu vitnis eða gmnaðs manns. Var gert hlé um tíma á réttarhaldinu meðan dómarar ræddu málið. Niðurstaða þeirra varð sú að Sigurður Gils skyldi yfirheyrður sem vitni. Sigurður Gils er ekki ákærður í málinu. Yfirmaður hans, Hjalti Páls- son framkvæmdastjóri, og undirmaður hans, Amór Valgeirsson, deildarstjóri fóðurvömdeildar, em hins vegar báðir ákærðir. Amór hefur borið að Sigurður Gils hafi haft umsjón með skilum á avisos og tekið ákvarðanir um kaffiviðskipt- in. Vegna framburðar Amórs hefur sú spuming vaknað hvort tilefni sé til útgáfu ákæm á hendur Sigurði Gils. Reiðubúinn að bera vitni án aðstoðar lögfræðings Eftir að dómsforseti hafði gert Sig- urði Gils grein fyrir mismun á réttar- stöðu vitnis, gmnaðs manns og ákærðs, svo og upplýst hann um að hann gæti óskað eftir hléi til að ráða sér lögfræðing, lýsti Sigurður Gils því yfir að hann væri reiðubúinn að bera vitni í málinu. Sigurður Gils sagði að hann hefði fyrst kynnst kaffiinnflutningsmálum innflutningsdeildarinnar í nóvember eða desember árið 1981 þegar ákveðið hefði verið að Sigurður Ámi Sigurðs- son færi til London. Hjalti Pálsson hefði þá falið honum að setja sig inn í kaffiinnflutninginn og ýmis önnur mál hjá Sigurði Áma með það í huga að hann setti síðar eftirmann Sigurðar Ama inn í þessi störf. Minnti Sigurð Gils að ákærði, Sig- urður Ámi, hefði skrifað fyrir hann lýsingu á því hvemig kaffiinnflutn- ingsviðskiptin gengju fyrir sig. Jafn- framt þessu hefðu þeir nafriamir farið saman yfir stöðu allra kaffisendinga á árinu 1980 og afhent Hjalta Pálssyni afrit af skriflegri stöðu. Undrandi á háum fjárhæðum Sagði Sigurður Gils að honum hefði komið á óvart, þegar niðurstaða lá: fyrir, hversu háar fjárhæöir væri um að ræða í sambandi við avisos. Minntist hann engra sérstakra við- bragða af hálfu ákærða, Hjalta, þegar hann var búinn að fá í hendur yfirlitið yfir avisos-greiðslumar. Kvaðst hann hafa fengið að vita hjá Sigurði Áma hvemig hægt væri að nýta áunna avisosa. Kvaðst hann hins vegar ekki hafa vitað að yfir hverja sendingu væru gerðar tvær faktúrur né hafa séð þessi skjöl. Sagði vitnið að Sigurður Ámi hefði sagt sér að NAF, Norræna samvinnu- sambandið, sæi um að halda utan um endurgreiðslumar, það er avisosinn, og sæi um að fyrirtækið notaði avisos til greiðslu á nýjum kaffikaupum. „Það var Hjalti Pálsson“ Kvaðst Sigurður Gils engin afskipti hafa haft af daglegri framkvæmd vegna kaffiviðskiptanna en ákærði, Arnór, hefði leitað til sín, meðal ann- ars með kaffitilboð. í réttinum var rifjað upp símtal sem Sigurður Gils átti við framkvæmda- stjóra Kaffibrennslimnar snemma á árinu 1981 þar sem tilkynnt var um ákvörðim um að endurgreiða Kaffi- brennslunni avisos að fjárhæð 57 dollara á hvem 50 kílóa kaffibauna- sekk. Var hann spurður hver hefði tekið þessa ákvörðun um endur- greiðslu og hver hefði falið honum að tilkynna Kaffibrennslunni um hana. „Það var Hjalti Pálsson," svaraði Sigurður Gils. Staðfesti hann að í bréfi, sem Amór Valgeirsson hefði sent Kaffibrennsl- unni í framhaldi af símtalinu, væri rétt eftir sér haft og að hann hefði séð frumrit bréfsins. Saksóknari heldur því fram að með þessu bréfi hafi Kaffibrennslan verið blekkt og látin halda að um fulla end- urgreiðslu hefði verið að ræða. Saksóknari spurði hvort vitnið hefði litið á kaffiinnkaupin sem beina sölu til Kaffibrennslunnar eða umboðssölu. Kvaðst Sigurður Gils hafa litið á þau sem beina sölu. Lengra komst yfirheyrslan yfir hon- um ekki. Var henni frestað. Ljóst er að síðasta svar hans um að viðskiptin hefðu ekki verið umboðssala kallar á margar spumingar enda um lykilatriði að ræða. Guðmundur Skaftason hæstaréttar- dómari mætti einnig fyrir réttinn sem vitni í gær. Guðmundur tengist málinu á þann hátt að hann var í fjögurra manna nefnd sem á síðari hluta ársins 1981 fjallaði Um skiptingu avisos- greiðslnanna. Hann var þá sjálfetætt starfandi lögfræðingur og endurskoð- andi. Valur bað Guðmund um að vera fulltrúi Kaffibrennslunnar Guðmundur sagði að Valur Am- þórsson hefði, sem stjómarformaður Kaffibrennslunnar, haft samband við sig og farið þess á leit að hann tæki þátt í þvi sem fulltrúi Kaffibrennsl- unnar að leysa úr ágreiningi milli Kaffibrennslunnar og SÍS um hvemig skipta skyldi svonefndum avisos. Taldi Guðmundur að þetta hefði verið seint um sumarið 1981 eða um haustið það ár. Virtist honum sem Valur hefði þá verið nýbúinn að fá vitneskju um avisosinn. Taldi Guðmundur að tekið hefði verið til við að fara ofan í málið í október eða nóvember 1981. Með hon- um hefðu starfað Geir Magnússon, Geir Geirsson og Snorri Egilsson. Hittust þeir í nokkur skipti og settu sig inn í málið. Hann sagði að ekkert hefði komið fram um skjalalega meðferð í sam- bandi við innflutninginn þegar hann ræddi við Val Amþórsson fyrst. Minntist hann þess ekki að hafa rætt við aðra en Val frá Kaffibrennslunni um framangreind mál. Tók Guðmundur fram að hann hefði aldrei verið kjörinn endurskoðandi hjá Kaffibrennslunni né ráðinn sem slíkur. Samkomulag náðist ekki Hann sagði að aldrei hefði náðst samkomulag um skiptingu avisos og ekkert skriflegt hefði verið gert um störf nefndarinnar. Sagði hann að skýring forráða- manna Kaffibrennslunnar á því hvers vegna þeim bæri avisosinn hefði verið sú að um umboðsviðskipti hefði verið að ræða. Fulltrúar innflutningsdeildar SÍS hefðu hins vegar meðal annars talið að vegna þátttöku SfS í NAF hefði avisosinn fengist og því bæri SÍS að njóta hans að hluta. Guðmundur sagði að litið hefði verið á umrætt mál sem viðskiptamál og hefði hvorugur aðili gert ýtmstu kröf- ur um allan avisosinn. Hefði Kaffi- brennslan talið að SÍS bæri eðlileg og sanngjöm umboðslaun vegna við- skiptanna. Hefði það verið meginatriði nefridarinnar að komast að niðurstöðu um þetta atriði. Ekki hefði af hálfu Kaffibrennslunn- ar verið litið svo á að beita bæri ýtrasta lagalegum rétti Kaffibrennsl- unnar heldur bæri að miða að sann- gjamri og eðlilegri lausn miðað við aðstæður. Kvaðst vitnið aldrei hafa heyrt nefiidar tvöfaldar faktúrur í viðræðum nefhdarmanna. Fram kom að störfum nefhdarinnar lauk í desember 1981. Mundi vitnið ekki eftir neinum afskiptum sínum af málinu eftir þann tíma. Taldi það að ekkert samkomulag hefði verið komið á þegar það hætti afskiptum sínum af málinu. -KMU Ungur íslendingur lék með Manchester United - og skoraðí annað af tveim mörkum gegn Norwich íslenskur piltur, Rúnar Guð- mundsson, 19 ára, lék á dögunum með úrvalsliði Manchester United gegn Norwich. Skoraði Rúnar annað tveggja marka United sem veinn leikinn, 2-0. Það var hinn góðkunni sóknar- prestur, sr. Róbert Jack á Tjöm á Vatnsnesi, sem fór með Rúnar utan og kom honum á framfæri við Man- chester United. Rúnar er sóknarbam sr. Róberts og bað presturinn góðvin sinn, Matt Busby, forseta Manchest- er United, að koma Rúnari í leik hjá liðinu. Það gekk, eins og fyrr sagði, og skoraði Rúnar hið fyrra af tveim mörkum liðsins. Eftir á sögðu þjálf- arar unglingaliðsins að það hefði verið fallegt mark sem sveitapiltur- inn íslenski skoraði en eðlilega vantaði hann æfingu miðað við sam- herja sína í Manchester United en þeir em allir atvinnuknattspymu- menn sem leika níu mánuði á ári. Matt Busby, forseti Manchester United.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.