Dagblaðið Vísir - DV - 19.09.1986, Blaðsíða 5
FÖSTUDAGUR 19. SEPTEMBER 1986.
5
r»v Fréttir
Jón Helgason landbúnaðarráðherra:
„Ekki áhyggjuefni44
- hvort hluti niðuvgreiðslnanna fer í vasa kaupmanna
Wallen-
berg er
löglegur
- hefði getað keypt hótel
„Það er ekki almenn regla að
útlendingar megi ekki eiga meiri-
hluta hlutaijár í íslenskum fyrir-
tækjum. Það fer allt eftir því hvaða
atvinnurekstur á í hlut,“ sagði
Hjörtur Torfason hrl. aðspurður
um 60 prósent eignaraðild sænska
aukýfingsins P. Wallenberg i Silf-
urbergi hf. er stolhað var fyrir
skömmu.
„Silfúrberg ætlar ekki að fara
að stunda atvinnurekstur heldur
íjárfesta í fyrirtækjum. Það er ekk-
ert í lögum sem mælir gegn því að
útlendingar geti átt meirihluta í
slíkum fyrirtækjum ef meirihluti
stjómarmanna hefur fasta búsetu
hér á landi. Því skilyrði er full-
nægt varðandi Silfúrberg.“
Hjörtur sagði að Silfúrberg hf.
væri að sjálfeögðu háð íslenskum
lögum en hins vegar gæti það ekki
eignast fasteignir hér á landi nema
með leyfi dómsmálaráðherra. Þá
gat hann þess til gamans að ekk-
ert væri því til fyrirstöðu að
útlendingar eignuðust meirihluta
í hótelum og veitingahúsum á Is-
landi því samkvæmt lögum um
veitingahús væri það skilyrði eitt
að ábyrgðarmenn fyrirtækjanna
væm búsettir hér á landi: „Ég
túlka það þannig að þar sé átt við
þá sem bera ábyrgð á stjómun en
ekki skuldum,“ sagði Hjörtur
Torfason.
-EIR
Starfsfólk Flugfsiða:
Kaupir
sumarhús úr
þrotabúi
Hafskips
Starfsmannafélag Flugleiða hef-
ur fest kaup á sumarhúsi af Starfe-
mannafélagi Hafekips og fór
greiðslan til þrotabús Hafekips þar
sem fyrirtækið var á sinum tíma
eigandi hússins.
Starfemannafélag Flugleiða
greiddi 1,8 milljón krónur fyrir
húsið sem liggur í um 20 km ’fjar-
lægð norður af Hellu.
-FRI
Hafskipsmálið:
Þónokkuð
grevtt af
skuldabréfunum
„Það hefúr þónokkuð verið
greitt af þessum skuldabréfúm og
eitthvað kemur inn á hverjum
degi,“ sagði Axel Kristjánsson,
lögfiæðingur Útvegsbankans, í
samtali við DV en um síðustu
mánaðamót kom fyrsti gjalddagi á
þau skuldabréf sem gefin vom út
í framhaldi af síðustu hluta-
fjáraukningu Hafekips h£
Skuldabréfin vom til fimm ára
með einum gjalddaga á ári. Nokkr-
ir aðilar gerðu á sínum tíma kröfú
í þrotabúið vegna skuldabréfa-
kaupanna, vildu fá þeim rift, en
því var hafnað.
Axel Kristjánsson sagðist ekki
hafa heildarsýn yfir hve mikið
hefði verið greitt af bréfúnum í
bankanum til þessa og aðspurður
um aðgerðir bankans, ef bréfin
yrðu ekki greidd, sagði hann að
um slíkt yrði haft samráð við skipt-
aráðendur því bréfin væm eign
þrotabúsins. Hann átti ekki von á
að línur í þvi sambandi skýrðust
fyrr en undir áramótin.
-FRI
„Ég trúi ekki öðm en að í flestum
tilvikum komi þessar niðurgreiðslur
neytendunum til góða. Það er það
hörð samkeppni milli verslana að
þama er einmitt tækifæri til að auka
sinn hlut í versluninni með því að
bjóða ódýrt kjöt. Svo ég hef engar
áhyggjur af þessu, enda þýðir það
ekki,“ sagði Jón Helgason landbúnað-
arráðherra í samtali við DV.
í DV í gær var haft eftir Gunnari
Guðbjartssyni, ffamkvæmdastjóra
Framleiðsluráðs, að útilokað væri að
fylgjast með þvi hvort kaupmenn
hækkuðu niðurgreidda dilkakjötið, nú
eftir útsöluna, og seldu dýrara verði.
Þannig gæti hluti 85 milljón króna
niðurgreiðslnanna komið í hlut kaup-
manna sjálífa en ekki neytendanna,
eins og til stóð.
„Það er alveg ljóst að kaupmenn
hafa í hendi sér á hvaða verði þeir
■selja niðursneitt dilkakjöt, enda er um
frjálsa verðlagningu að ræða. Ég hef
bara ekki trú á því að þeir hækki
gamla kjötið. Nú er að koma í verslan-
ir nýtt kjöt sem mun meiri eftirspum
er eftir en því gamla og neytendur
hljóta að sjá hvort þeir em að kaupa
nýtt kjöt eða gamalt. Það er ómögu-
legt að merkja hvem skrokk, hvort
um útsöluskrokk er að ræða eða
ekki,“ sagði Jón Helgason.
-KÞ
Steypan rennur og 50 ára gamall draumur skautamanna á Akureyri er að verða að veruleika. DV-mynd JGH
Vélfvyst
skauta-
svell á
Akureyri
Jón G. Haukssan, DV, Akureyri:
Gamall draumur skautamanna á
Akure>TÍ er að verða að veruleika
nú þegar nokkrir mánuðir em í að
Skautafélag Akurevrar verði 50 ára.
Hafist var handa við að steypa plöt-
una undir svellið í fyiradag en það
er á svæði skautafélagsins á Krók-
eyrinni. Til stendur síðar að byggja
vfir svellið. Aætlaður kostnaður við
framkvæmdirnar er um 10 milljónir.
Þar af kostar fiystivélin ein um 4
milljónir.
ENSKIR
FRUARSKOR
breiðir, mjúkir og þægilegir.
Póstsendum.
5
Skóbúðin,
Snorrabraut
38,
sími 14190.
Skobuð
IN
ÍJpur$T
Borgartúni 23, sími 29350