Dagblaðið Vísir - DV - 19.09.1986, Side 12
FOSTUDAGUR 19. SEPTEMBER 1986.
Neytendur
Haustlaukamir era ávísun
upp á litadýrð vorsins
Nú er timinn til þess að setja niður
haustlaukana, en það nefiiast þeir
blómlaukar sem settir eru niður í jörð
á haustin, róta sig yfir veturinn og
gleðja okkur svo með blómskrúði
næsta vor og langt fram á sumar. Við
leituðum til Hafsteins Hafliðasonar
garðyrkjumanns sem gaf okkur góð
ráð varðandi haustlaukana og gróður-
setningu þeirra.
Eftir því sem laukurinn er stærri því
stærra verður blómið. Hægt er að velja
milli íjölmargra tegunda og afbrigða
túlípananna en þeir eru flokkaðir í sex
flokka. Það fer eftir því hve þeir
blómstra snemma. Fyrst blómstra þeir
sem eru lágvaxnastir og síðan koll af
kolli þar til síðast að þeir sem kallað-
ir eru Darvinblendingar blómstra, en
þeir eru á ferðinni um 17. júní, eins
konar þjóðhátíðartúlipanar hjá okkur.
Túlípanar eru yfirleitt einærir, en þó
má búast við að þeir blómstri aftur,
einkum ef laukamir em stórir og góð-
ir.
Til em smávaxnar tegundir af túlíp-
önum og páskaliljum sem henta afar
vom bæði einn litur og sömuleiðis
hægt að fá mismunandi liti saman.
Páskaliljumar em alltaf aðeins dýr-
ari, 30 gríðarstórir páskaliljulaukar
vom til á 585 kr. eða á 19,50 kr. hver
laukur.
Laukblóm fallegri í hnapp
Laukblóm á að gróðursetja í hnapp
en ekki í röðum. Þá em túlípanamir
eins og þvottur á snúm, sagði Haf-
steinn Hafliðason. Grafið niður svona
15-20 cm holu og raðið sjö til tíu
stykkjum þar í og hyljið með mold.
Munið að mjói endinn á að snúa upp
og hæfilegt að hafa um „spönn“ á
milli laukanna. Ekki sakar að láta
svona eina matskeið af garðáburði i
holuna og síðan hylja með einhverju
„rusli“ úr garðinum til að verja lauk-
ana fyrir holklaka.
Það er í lagi að gróðursetja lauka í
beðum uppi við húsið. Þá koma þeir
fyrr upp en geta orðið fyrir hnjaski
því snemma vors getur orðið mjög
hvasst undir húsveggnum. Það er ág-
ætt að gróðursetja laukblómin í beði
Þessi kassi er vinsæll hjá fólki sem fer í sunnudagsheimsóknir (995 kr.). I honum eru laukjurtir sem passa á eins fer-
metra blómabeð, sem blómstrar þá frá því snemma um vorið og fram á mitt sumar.
Fritillarian eða keisarakrónan er ákaflega skemmtilegt blóm. Fyrir utan að passa vel í
hvaða garð sem er hentar laukurinn ágætlega sem músafæla í sumarbústaði. Sumarbú-
staöaeigendur kaupa svona lauka (kostar 216 kr.) og láta þá liggja ógróðursetta í sumar-
húsinu. Það heldur músum alveg í burtu.
Því stærri laukar þeim mun stærri blóm, segir Hafsteinn og sýnir okkur stóra túlípanalauka.
Toíus Albus Grandiflora
Jólalaukarnir bráðum í pott
Það fer að verða tímabært að setja
jólalaukana niður til þess að hafa
blómstrandi túlípana og hyacintur í
svartasta skammdeginu. Hafsteinn
sýndi okkur laukblóm sem heitir tass-
etta, sem hann mælti alveg sérstaklega
með. Þær eru fimm saman í pakka og
kosta írá 187 kr. upp í 207 kr. pakk-
inn. Tilvalið er að setja tassettumar
niður með hálfsmánaðar millibili. Það
tekur þær um átta vikur að blómstra.
Þannig er hægt að eiga blómstrandi
stofublóm fram í janúar.
Tassettur verða mjög háar þannig
að nauðsynlegt er að binda þær upp.
Einnig er hægt að láta þær beint í
uppháan glervasa, sem heldur þá við
stilkana og blómin standa upp úr vas-
anum. Tassettur eru látnar standa í
stofuglugga en hyacintur og túlípanar
verða að vera á dimmum og köldum
stað þar til um mánaðamótin nóvemb-
er/desember. Það verður að vökva
reglulega. Laukamir em svo teknir
inn í birtuna þegar spírumar hafa náð
5-8 cm hæð og farið er að sjást í
blómspíruna.
-A.BJ.
vel í steinhæðir og koma ár eftir ár.
Páskaliljumar em líka fjölærar. Gott
er að taka laukana upp á fimm ára
fresti og skipta þeim, annars geta þeir
verið á sínum stað ár eftir ár, án þess
að hreyfa þá.
Á markaðinum er ótrúlegur fjöldi
afbrigða og lita í pokum. Þeir em á
mismunandi verði en algengt verð fyr-
ir 10 stk. er um og yfir 200 kr. Þá
vom til í Blómavali stórpakkningar
bæði túlípana og páskalilja. 50 stk. af
túlípönum kostuðu 399 kr. eða aðeins
tæpar 8 kr. stykkið. í pakkningunni
úti í garðinum þannig að blómin sjáist
vel úr gluggum hússins.
Afar fallegt er að setja lauka niður
í grasflötina en þá má ekki slá fyrr
en laukamir em búnir að blómstra.
Það em aðallega vetrargosar, krókus-
ar og stjömuliljur sem gróðursettar
• em í grasflötina. Þessa litlu lauka er
einnig skemmtilegt að gróðursetja
villt í sumarbústaðalöndum og skóg-
arreitum. Þeir íjölga sér ár frá ári og
em margærir. Sagt er að fátt skili sér
jafnvel í garðrækt og ræktun smálau-
kanna.