Dagblaðið Vísir - DV - 19.09.1986, Qupperneq 14

Dagblaðið Vísir - DV - 19.09.1986, Qupperneq 14
14 FÖSTUDAGUR 19. SEPTEMBER 1986. Frjálst.óháð dagblaö Útgáfufélag: FRJALS FJÖLMIÐLUN HF. Stjórnarformaður og útgáfustjóri: SVEINN R. EYJÖLFSSON Framkvæmdastjóri og útgáfustjóri: HÖRÐUR EINARSSON Ritstjórar: JONAS KRISTJANSSON og ELLERT B. SCHRAM Aðstoðarritstjórar: HAUKUR HELGASON og ELlAS SNÆLAND JÓNSSON Fréttastjórar: JÓNAS HARALDSSON og ÓSKAR MAGNÚSSON Auglýsingastjórar: PALL STEFÁNSSON og INGÓLFUR P. STEINSSON Ritstjórn, skrifstofur, auglýsingar, smáauglýsingar, blaðaafgreiðsla, áskrift, ÞVERHOLTI 11, SiMI 27022 Setning, umbrot, mynda- og plötugerð: HILMIR HF„ ÞVERHOLTI 11 Prentun: ÁRVAKUR HF. - Áskriftarverð á mánuði 500 kr. Verð í lausasölu virka daga 50 kr. - Helgarblað 60 kr. Verkfallsréttur Samningur tollvarða og fjármálaráðuneytisins skipt- ir miklu. Hann bíður nú afgreiðslu tollvarða, sem munu vera um eitt hundrað. Forsvarsmenn tollvarðanna sömdu um verulegar kauphækkanir til sinna manna, nokkuð líkt því, sem lögreglumenn fengu í sumar. Gegn þessu var samið um, að tollverðir afsöluðu sér verk- fallsrétti. Lögreglumenn fóru eins að. Þeir höfðu dregizt mjög aftur úr í launum. Verkfallsrétt höfðu lögreglumenn ekki haft í reynd. Því sömdu forráðamenn lögreglu- mannafélagsins um afsal verkfallsréttar, sem verið hafði til á pappírnum, gegn verulegri kauphækkun. Launa- hækkanir þeirra verða framvegis miðaðar við launa- hækkanir nokkurra annarra hópa. Stjórn Bandalags starfsmanna ríkis og bæja snerist hart gegn samningi lögreglumanna og reyndi að fá hann felldan. Það mistókst. Almennir lögreglumenn sam- þykktu samninginn. Það var enda þeirra hagur. Enn vitum við ekki, hvort tollverðir samþykkja sinn samning. En slíkt væri þeirra hagur. Það er í sjálfu sér rétt, að löggæzlustéttirnar hérlend- is hafi ekki verkfallsrétt. Eitt meginatriði stjórnar hvers þjóðfélags er að sjálf- sögðu gæzla laga og réttar. Tollverðir hafa tvímælalaust rétt til að afsala sér verkfallsrétti í kjarasamningum sínum. Tal BSRB-forys- tunnar um, að slíkt standist ekki gagnvart landslögum, er rangt. Þegar litið er til þess verkfallsréttar, sem tollverðir hafa haft, sést, að hann hefur verið mjög takmarkaður. í síðasta verkfalli BSRB þýddi verkfallsréttur tollvarða til dæmis gagnvart flugfarþegum mestmegnis aðeins, að slakað var á gæzlu. Auðvitað má ekki lýðast, að verkfall leiði til dæmis til þess, að eiturlyf eigi greiðari aðgang inn í landið. Því er óhætt að mæla með því frá þjóðhagslegu sjón- armiði, að löggæzlustéttir hafi ekki verkfallsrétt. Afstaða samningamanna tollvarða byggist meðal annars á því, hversu illa tókst til í hinu síðasta stóra BSRB-verkfalli, 1984. Verkfallið var rekið af hörku. Niðurstaðan varð veru- legar kauphækkanir, sem gengu yfír allt landið. Það var stundarávinningur einn. Þjóðarbúið gat ekki staðið undir þessum hækkunum, sízt útflutningsatvinnuveg- irnir. Gengisfelling fylgdi og síðan óðaverðbólga. Þegar upp var staðið, höfðu félagar í BSRB tapað á verkfall- inu. Það var ekki vegna illvilja ríkisstjórnar, hvaða ríkisstjórn sem er hefði gert hið sama. Af þessu lærðu menn í BSRB. BSRB er illa statt um þessar mundir. En það er ekki vegna þeirra kjarasamninga, sem fj ármálaráðherra hef- ur gert. BSRB hefur lengi verið að veikjast og sundrast. Verkfallið 1984 var meðal annars gert til að halda ein- ingu í samtökunum. Ekki verður horft framhjá þeirri hættu, að hópupp- sagnir taki við af verkföllum í vaxandi mæli sem vopn í kjarabaráttu. Nefna má, að lögreglumenn höfðu í sumar almennt sagt upp störfum. Vara verður við slíkri beitingu hópuppsagna. Ein meginhættan við þá aðferð er, að tekjuháir hópar geti bezt nýtt hana og aukið tekjumuninn í þjóðfélaginu. Haukur Helgason. „íslenskir tannlæknar eru góðir fagmenn. Þeir eiga og hafa fengið vel greitt fyrir sína vinnu, ef til vill best af öllum stéttum þessa lands.“ Tannlæknar, tekjur og tiyggingar Á dögum Krúsjefs höfðu Sovét- menn lítið fram að færa á móti styrkri og vinsælli stjóm Kennedys annað en mergjaðan orðaflaum og illa hegðan. Aðspurður hvort ekki væri rétt að svara í sömu mynt sagði Kennedy að síst skorti fukyrði í enskri tungu, spumingin væri auð- vitað miklu heldur hvort það væri vænlegasta leiðin til að bæta sam- búðina milli stórveldanna eins og heimsbyggðin vonaðist til. Þessi htla saga kom i huga mér er ég las grein Ólafs G. Karlssonar tannlæknis um deilu Trygginga- sto&iunar ríkisins og Tannlæknafé- lags fslands í Morgunblaðinu þ. 12. september sl. Það er leitt til þess að vita að svo skynsamur maður skuli þurfa að verja svo erfiðan málstað með svo vondri grein. Jafnvel að hnökuryrðum slepptum er saga deil- unnar rakin á þann hátt að athuga- semda er þörf. Nú eru tæp sex ár frá því að Trygg- ingastofnun ríkisins sagði upp meingölluðum samningi við Tann- læknafélag fslands. Reikningsskil skv. þeim samningi vom þess eðlis að vart var hægt að sjá hvað fram hafði farið milli tannlæknis og sjúkl- ings. Þótt reikningseyðublöð TR séu ekki fúllkomin enn þann dag í dag, þá em þau hátíð miðað við hið eldra form, sem tannlæknar kvörtuðu þó aldrei undan. Allir viðskiptavinir tannlækna, jafnt TR sem aðrir, eiga kröfu á því að gerð sé grein fyrir því á reikningi fyrir hvað sé verið að borga. Vonandi standa tannlæknar sig betur gagnvart almennum við- skiptavinum i þeim efhum. Ný gjaldskrá Fljótlega eftir uppsögn samnings- ins var farið að huga að gerð nýrrar gjaldskrár en það verk hefur tekið lengri tíma en nokkum gat órað fyr- ir. Þegar einstakir gjaldskrárliðir höfðu hins vegar verið metnir til fjár nú í sumar kom í ljós að þeir vom flestir hveijir mun hærri en gengur og gerist á Norðurlöndunum. Al- menningur á Norðurlöndunum hefur hærra kaup til að mæta lægri tannlæknareikningum þar. Hér á landi er þetta öfugt. Samninganefhd TR þótti þetta næg ástæða til að fresta gerð nýs gjald- skrársamnings og komast rækilega til botns í þessu máli. Þvi var boðið upp á bráðabirgðasamkomulag með- an sameiginleg rannsókn færi fram. í meginatriðum fól tilboð TR í sér taxtahækkun fyrir tannlækna upp á 23,47% vegna hækkana á kostnað- KjaUariiin Sigurjónsson hagfræðingur, deildarstjóri í heilbrigðis- og tryggingaráðuneytinu argmnni, en á móti kæmi lækkun sérfræðiálags úr 40% í 20%, en það mun ekki óalgeng álagsstærð á Norðurlöndunum. Þar að auki er 20% sérfræðiálag mun meira virði nú, þegar verðbólgan er komin und- ir 10%, heldur en 40% vom við gerð gamla samningsins 1975 þegar þjóð- in bjó alla jafha við 50rí50% verð- bólgu. Tannlæknar höfnuðu tilboð- um TR Þetta var heildartilboð, sem tann- læknar gátu hafnað eða tekið. Þeir ákváðu að pilla rúsínumar úr og skila kökunni. Tilboðinu var því hafriað. Mestu olli þar um að sér- fræðingar vildu ekki una við skertan hlut enda þótt 40% álag þeirra á veglega hækkaðan taxta væri komið gjörsamlega út úr kortinu miðað við efhahagsþróun og önnur fagleg sjón- armið. Tannlæknar báðu nú um end- umýjað tilboð um hækkun á kostn- aðargrunni en vildu lítið hreyfa við. sérfræðingum. Nú var af hálfu TR lögð á það áhersla að hér væri um bráðabirgðasamkomulag að ræða meðan beðið væri eftir niðurstöðum af samanburði norrænna taxta. Það skal tekið fram að tannlæknar fá allar hækkanir sem verða á launum tíu efstu launaflokka BHM. Tilboðið um 23,47% hækkun taxta var því fyrir utan það. Þar sem þessi hækk- un átti að koma á kostnaðargrunn var tannlæknum nú boðið upp á lækkun á opinberum innflutnings- gjöldum af vörum til tannlækninga sem þessu næmi. Þetta hefði þýtt verulega lækkun tannlækniskostn- aðar fyrir allan almenning. Viðkom- andi heildsölur hefðu misst einhvem spón úr sínum aski, en þær em flest- ar í eigu tannlækna. Þessu tilboði var hafiiað. Nú var orðið ljóst að tannlæknar vom ekki til viðræðu um annað en ýtrustu kröfur og það kom síðan í ljós er þeir gáfu út sína eigin gjald- skrá þar sem stefnt er að öllum þeim hækkunum sem þeir höfðu farið fram á. Rausnarlegt boð ráðherra Heilbrigðisráðherra átti nú þann einn kost að gefa út sérstaka gjald- skrá. Þar var 40% sérfrseðiálag látið óskert en taxtahækkun skv. hefð- bundnum útreikningi var ákveðin 5,5% til 30. nóvember nk., eða skem- ur ef niðurstaða væri fengin fyrr i þessum samningum. Miðað við það sem á undan var gengið var þetta rausnarlega boðið af ráðherra, enda meiningin að liðka til. Öll hnjóðs- yrði í hennar garð em því ómakleg, svo ekki sé meira sagt. En þvi miður hafa tannlæknar ekki enn sýnt af sér þann þroska, sem nauðsynlegur er til samningsgerðar. Ólafur G. Karlsson harmar í lok greinar sinnar að þessi mál bitni verst á þeim er síst skyldi og segir það von forráðamanna TFÍ að trygg- ingaþegar hafi sem minnst óþægindi af þessu. Tannlæknar vita mætavel hvemig á að haga reikningsgerð til að sjúklingar fái reikninga sína end- urgreidda hjá TR og sjúkrasamlög- um. Þrátt fyrir það em mikil brögð að því að sjúklingar séu sendir með rangt útfyllta reikninga í sjúkrasam- lögin af tannlæknum, sem neita þeim síðan um leiðréttingu, þannig að sjúklingar ná ekki rétti sínum gagn- vart tryggingunum. Það er áreiðan- lega eitthvert fúkyrði til á íslensku sem skýrir þennan mun á orðum og athöfhum. íslenskir tannlæknar em góðir fagmenn. Þeir eiga og hafa fengið vel greitt fyrir sína vinnu, ef til vill best af öllum stéttum þessa lands. Það gildir hins vegar einnig fyrir þá sem aðra í þessu þjóðfélagi að það em takmörk fyrir því hvað gott þyk- ir. Jón Sæmundur Siguijónsson. „Allir viðskiptavinir tannlækna, jafnt TR sem aðrir, eiga kröfu á því að gerð sé grein fyrir því á reikningi fyrir hvað sé verið að borga.“

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.