Dagblaðið Vísir - DV - 19.09.1986, Síða 26

Dagblaðið Vísir - DV - 19.09.1986, Síða 26
38 FOSTUDAGUR 19. SEPTEMBER 1986. Menning Skemmtilegt starf verður aldrei þreytandi Rætt við Martein Hunger Friðriksson Marteinn Hunger Friöriksson við nýja orgelið. DV-mynd Óskar Öm í nýlegu hirðisbréfi biskups er það hugleitt hvort lófatak í kirkjum sé velsæmi. Lengi deildu menn líka um hvemig tónverk samin Guði til dýrðar mættu vera, og hafa tónskáld öðm hverju verið að reka sig á kreddur i því efrii. Þær hljóta þó endanlega að vera fyrir bí eftir að hin frjálslynda kaþólska kirkja lýsti því yfir að senni- lega væri Lúkasarpassía Pendereckis Guði þóknanleg. Þá er Guð farinn að leyfa ómstríður og kannski bráðum hávaða eins og lófatak. Ekki veit ég hvað forkólfar kirkju- tónlistar láta sig þetta miklu varða. Þeirra er að fást við tónlistina sjálfa, að halda ákallinu lifandi; en til að það sé lifandi þarf tónlistin ef til vill einn- ig að vera í endursköpun. Marteinn Hunger Friðriksson virðist þeirrar skoðunar. Ný tónverk hafa undanfarið verið liður á efhisskrá Dómkórsins í Reykjavík og nú spvrst út að væntan- leg sé hljómplata kórsins með íslenskri kirkjutónlist. Marteinn er í sjöunda himni á kirkjuloftinu og við tökum tal saman. Dómkórinn er engin ný bóla, Mar- teinn? „Nei, hann hefur lengi sett svip sinn á tónlistarlíf hérlendis. Til em ágætar upptökur sem Páll Isólfsson gerði með kómum. Á síðari árum höfum við þó reynt að taka meiri þátt í almennu tónlistar- lífi og höldum sjálfstæða tónleika. Við höfum sinnt meira nýrri kirkjutónlist og höfum árlega látið semja fyrir okk- ur verk af því tagi. Kórmeðlimir hafa áhuga á nýrri tónlist. Kórinn þarf þó jafnframt að sinna hefðbundnu hlutverki sínu, messu- söngnum. Til að þetta sé hægt höfum við skipt söngfólkinu í hlutverk, þann- ig að kórinn vinnur í tveimur hópum. Þannig verður ekki of mikið álag á fólk og árangurinn því betri. Nú em um fjörutíu manns sem undirbúa tón- leikahaldið, en mismargir í messu- kómum, svona tveir tugir.“ Fylgir því einhver sérstaða að vera dómkór? „Kannski helst að þvi leyti að í Dómkirkjunni fara fram ýmsar merk- isathafnir á vegum ríkisins. Tónlistar- flutningur er þá mjög mikilvægur og hlutur tónlistar gjaman stór í athöfh- inni. Dómkórinn mun alltaf hafa sínar hefðir. Það er gaman að syngja við forsetainnsetningu eða Alþingissetn- ingu eða að syngja í fólkið hita þegar það flýr inn úr rigningunni 17. júní. Efhisskráin er auðvitað nánast ein- göngu kirkjuleg tónlist. Það slæðast þó oftast nokkur íslensk þjóðlög með. Það er gott að syngja sig saman í þeim, þau em góð á ferðalögum og falla í góðan jarðveg í ágætu félagslífi kórfé- laga.“ Ferðast kórinn? „Það telst kannski ekki mikið enn sem komið er. Sumarið 1985 fór hluti kórsins til Danmerkur og Svíþjóðar en annar hluti til Færeyja. Það er áhugi fyrir meiri ferðalögum og að lik- indum verður farið eitthvað næsta sumar. Þetta árið fórum við hins vegar ekki því fjármagn og tími fór í að undirbúa plötuútgáfuna. Nú er upp- tökum lokið.“ Á platan sér eitthvert tilefhi? „Nei, ekkert. Við vildum bara ekki að þessi nýju verk sem við vorum búin að æfa upp gleymdust, og fannst að þau mættu heyrast oftar. Þetta verður eins konar sýnishom af þeirri fallegu kirkjutónlist sem ísland á. Þama verða verk sem samin hafa verið fyrir okkur; Gloria eftir Hjálmar Tónlist Atli Ingólfsson Ragnarsson og Áminning eftir Þorkel Sigurbjömsson. Eldri íslensk sálmalög fylgja auðvitað með. Ég leik Tokkötu Jóns Nordals, sem hann samdi i tilefni af vígslu nýja orgelsins í Dómkirkj- unni, og Chaconne eftir Pál ísólfsson. Það líkist engu öðm að syngja verk sem em samin fyrir kórinn. Að vinna þau þannig, nýfædd, veldur því að við þau myndast sérlega sterk og persónu- leg tengsl. Sinn þátt í þessu eiga átökin við æfingamar, að æfa verkin fyrir tilsettan tíma, og síðan spennan að vita undirtektir áheyrenda. Þetta er nánara samband en við gömul verk þótt auðvitað séu þau líka spennandi viðfangsefrii." Já, þú spilar á nýja orgelið á plöt- unni? „Einmitt, vígt 1. desember í fyrra með Tokkötunni sem ég nefndi áðan. Hljóðfærið er óvenjulega gott og er metið á litlar sjö og hálfa milljón króna. Mér verður stundum hugsað til þess að það em fáir tónlistarmenn sem fá jafhdýrt hljóðfæri til varðveislu og meðferðar. Við gerum okkur vonir um að þetta verði til að auka áhugann á orgeltón- list og hvetja mætti fólk til að láta ekki orgeltónleika í Dómkirkjunni fram hjá sér fara. Það er fyrirhafnar- innar virði að heyra í þessu stórkost- lega hljóðfæri.“ Hvað er svo i deiglunni? „Framundan em tónlistardagar Dómkirkjunnar 4. til 9. nóvember. Þar heldur orgeltónleika Þjóðverjinn Rolf Schönstedt. Annar ágætur gestur verður norska tónskáldið Knut Nystedt sem samið hefur verk fyrir kórinn. Frumflutningi þess mun hann stjóma sjálfur á tónleikum kórsins. Messukórinn okkar syngur svo há- tíðamessu. Um svipað leyti kemur platan út.“ Þú ert störfum hlaðinn? „Það er að mörgu að hyggja í kór- starfi sem þessu. Tónleikar þurfa langan undirbúning, maður hefur varla slegið af á hausttónleikum þegar byrja þarf að velja verk að syngja í utanlandsferð sumarsins. Svo er mað- ur að raddprófa, hringja út söngfólk, kannski til að koma fram næsta dag, eða maður gramsar eftir forspili við næstu jarðarför. Ég er að leita fjár- stuðnings við plötuna og ýmislegt fleira fellur til. Þrátt fyrir þetta reyndi ég að vera góður kennari í Tónlistar- skólanum í Reykjavík og þar bíða önnur mál að fást við.“ Þú ert líka orgelleikari? „Ég get ekki montað mig að hafa verið iðinn sem konsertorganisti, en þó hef ég haldið mína tónleika hér og erlendis; ég hef alltaf gert eitthvað. Til dæmis fer ég til V-Þýskalands í byrjun október og held tónleika í Hamm. Það er óneitanlega nokkurt stríð milli orgelleikarans og kórstjórans í mér. Nýja orgelið hjálpar orgelleikar- anum nú svolítið. Það er allt í lagi.“ Svo brosti Marteinn. „Jú, maður hefur nóg að gera. Allir hafa nóg að gera. Ef maður er í starfi sem maður hefur gaman af finnur maður ekki fyr- ir þessu. Sá sem gerir það sem honum finnst skemmtilegt verður hvorki þreyttur né gamall." Hvað segirðu um lófatak í kirkjum? „Ég er hreint ekkert á móti því. Sjálf Biblían segir okkur að klappað hafi verið hér áður fyrr. Menn mega sýna lof og þakklæti fyrir góðan flutning tónlistar þótt hún sé leikin í kirkju. Ég er reyndar þeirrar skoðunar að jafnvel mætti klappa eftir góða prédik- un í messu, því ekki það?“ Marteinn vill halda kirkjunni og tónlist hennar lifandi. Engar kreddur. Þetta þykir honum skemmtilegt. Skyldi hann nokkuð eldast? Atli Ingólfsson. Snillingar með bamahljóðfæri Tónleikar Miinchner Xylophoniker í Lang- holtskirkju 13. september. Á efnisskrá verk eflir Georg Philipp Tele- mann, John Playford, Michaei Prátorius, Johann Sebasáan Bach, Johann Christoph Bach, Louis Blaude Daquin, Franz Schu- bert, Claude Debussy, Scott Joplin og þjóðlög. Öðru hverju rekur hingað út til okk- ar óvenjulega músíkhópa. Yfirleitt eru hér á ferð annaðhvort nógu snjallir listamenn til að hafa eitthvað til brunns að bera, og því fengur að komu þeirra hingað, eða þá hreinir loddarar sem halda að þeir komist upp með að kalla sig listamenn hér eins og í þeim útkjálkasveitum stóru landanna, beggja vegna hafsins, sem þeir eru vanir að troða upp í. Vandinn er sá að sjaldnast veit maður fyrir fram hvort um er að ræða. Rétt þykir að taka fram strax að umræddur hópur fyllir fyrri flokkinn. í stað þess að vaxa upp úr barnahljóðfærunum Það var stjómandi flokksins, Bar- bara Klose, sem valdi honum nafn. Hún er kirkjutónlistarmaður og hafði unnið að músíkölsku bamastarfi undir merkjum Carls Orös og hans nóta. En í stað þess að vaxa upp frá þeim hljóðfærum sem brúkuð em á þeim vettvangi hélt hún og hennar liðsmenn áfram að spila á „bamahljóðfærin" og rækta með sér það sem nefiia má þeg- ar best lætur hreinan virtúósaleik á þessi einföldu og tíðum vanmetnu hljóðfæri. Ofnotkun málmsins Eins og nafh flokksins bendir til leika þau á tréspil en einnig málmspil og gítar. Þó ber mest á málmspilinu vegna þess að því er gjaman fengin leiðandi rödd í hendur. Pilturinn sem sló málmspilið, eða metallofóninn, er slyngur spilari. Mér fannst hann þó iðulega of harðslægur og held ég að heyrð Langholtskirkju hafi sist dregið úr þeim áhrifum. Því varð leikur hans of áberandi og skemmdi á tíðum þann undurmjúka og fallega samhljóm sem fram kom í vönduðu samspili á tréspil- in, eða xylofónana sjálfa. Góð þekking á viðfangsefnum og hljóðfærum 011 verkin, sem flutt vom á þessum tónleikum, utan einn dans frá Guate- mala, vom í útsetningum stjóman- dans, Barböru Klose. Bám útsetning- amar vitni góðri þekkingu, bæði á hljóðfærum og viðfangsefnum, að því undanskildu hve mikið var upp á málmspilinu byggt og heíði ég fyrir minn smekk víða kosið að notast við tréð eitt. Sérstaklega fannst mér svo Tónlist Eyjóifur Melsted í verkum Telemanns og Johanns Se- bastians Bachs og þá ekki síst í fúgunni, sem hlýtur að hafa verið eftir annaðhvort Johann Christophinn Bach, bróður meistarans, eða föður- bróður, en í efhisskrá stóð bara Joh. Christ. Bach. Varla hefur hún verið eftir Johann Christian, son meistarans sem hataði fúgur. Síst minnkar gildið Og svo teygði efhisskráin sig allt til Scotts Joplin, þar sem málmspilið fékk sín vel að njóta og þar hefði mátt fjölga þeim. Dansar úr Rómönsku Ameríku vom svo skemmtileg lokaat- riði dagskrárinnar. Barbara Klosa og liðsmenn hennar sýndu okkur hér að óþarfi er að telja sig vaxinn upp úr því að brúka bamahljóðfærin þótt maður telji sig fullorðinn. Séu hug- myndaauðgi og fæmi fyrir hendi má spila hvað sem er á þau og fá til að hljóma vel og spennandi. Síst finnst manni gildi þeirra sem frumhljóðfæra músíkþreifinga bamsins minnka við að heyra svo snilldarvel á þau leikið. EM Miinchner Xytophoniker.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.