Dagblaðið Vísir - DV - 19.09.1986, Qupperneq 27
FÖSTUDAGUR 19. SEPTEMBER 1986.
39
Merming
íkaros
á
Króknum
Geirlaugur Magnússon.
Áleiðis áveöurs.
Sauðárkróki 1986, 40 bls.
Bók þessi er einkar smekkleg, eins
og við var að búast af forlaginu, sem
er Norðanniður. Þetta er sjöunda
bók Geirlaugs en hin fyrsta birtist
1974 og sýndi hann þá þegar örugg
tök. Hér eru tæp þijátíu ljóð, þar
af þrjú þýdd eftir Nicanor Parra. Og
alltaf styrkist skáldið. Góð var Þritíð
í íyrra, og hér eru hrífandi ljóð. Ég
er mishrifinn af þeim en það hlýtur
nú að teljast eðlilegt. Lítum á tvö
góð.
flug
Mér er sagt að aðdráttaraflið haldi
okkur við
jörðina
hversvegna
eflaust í fúllnægju þess
tilgángslausa strits
mér er ekki um fugla
sjálfselskir eiginhreiðursdútlarar
og svanasaungurinn
tilfinníngalaust garg
sem og annar skáldskapur
líkt á komið
okkur íkarosi
treystum blint
því sem leysist upp
í sólskini
Þetta ljóð byggist á skýrum and-
stæðum: hinn jarðbundni annars
vegar, en hins vegar þeir sem fljúga.
Engin leið er að finna fullnægju í
því að vera bundinn við jörðina, en
talandinn horfir með andúð (og öf-
und?) á hina fljúgandi, sjálfumgleði
þeirra gerir þá öðrum einskis nýta.
Þannig er litið á það að skáldskapur
sé tilgangur í sjálfum sér því flugið
táknar skáldskapinn eins og svana-
söngur hefúr lengi gert.
En svo fer hinn jarðbundni að
fljúga og skáldið sýnir okkur hvem-
ig það muni fara með því að vitna
til goðsögunnar um íkaros. Hann
var fanginn með Dædalosi föður sín-
um í völundarhúsi Mínosar á Krít.
Dædalos gerði þeim vængi, festi
fjaðrir saman með vaxi og flugu þeir
burt. En íkaros fór ekki að viðvömn
föður síns heldur flaug of nærri sólu
svo vaxið bráðnaði og hann steyptist
í hafið. Að þessu lýtur síðasta erind-
ið, sem mér virðist líka tákna
skáldskap, því þar nálgast hið jarð-
neska það himneska, en hlýtur þó
einmitt að farast, nálgist það um of.
Ef skáldið verður of háfleygt, mætti
kannski segja, og leggur þá ljóðið
sjálft mér orð á munn, sem ég vona
að þyki ekki útúrsnúningur.
Byggingin er skýr og áhrifamikil
eins og svo oft hjá Geirlaugi. Orðav-
al í 1. og 2. erindi sýnir að talandi
ljóðsins er heldur fúll, tvinnar nýst-
árleg skammaryrði svo sem „eigin-
hreiðursdútlarar", sér ekki tilgang í
grundvallarlögmálum tilvemnnar í
1. erindi. í 2. erindi lýsir hann frati
á loftsins öfl og í þriðja lýsir hann
blindu trúnaðartrausti sínu á það
sem hverfúlast mun vera! Ljóðið er
skemmtilega þmngið ýmiss konar
merkingu sem erfitt er að njörva
niður svo ótvírætt sé. Mér sýnist
ljóðið „spreingíng" einnig sprottið
af sögunni um fkaros.
Geirlaugur Magnússon.
Annað ljóð lengra er ekki síðra:
leiði
bardzo smutno bez ciebie
máð letur stirðnaðra tilfinnínga
málið órætt
smáletri fjarlægða málfræði
gleymskunnar
eldíngarvaramir klofnir
sumt letur geymist best í ösku
án upphafsstafa
tryggð dökka pennans
takmarkalaus
spyr aldrei tilefni áritana áheita
bez ciebie
á miðju torginu minnismerki
torginu umluktu gráum
súrkálsilmandi húsum
borgin mannlaus minníngalaus
hlaðin áletrunum merkjum hvitum
borðum
veggspjöldum
að gleymi sér
smutno bez ciebie
niðrað fljótinu stigi hruninn
rústir upplýstar á aðra hönd
reimt eftir gángstígunum
en aldrei milli runna eftir rigníngu
gegnum rúðumar glittir í kertaljós
óvært
bardzo smutno bez cibie
Bókmenntir
Örn Ólafsson
Hér vekur fyrst athygli að ljóðið
skuli hefjast og ljúka á sömu setn-
ingu á pólsku en inni á milli eru
teknir upp hlutar úr henni svo hún
myndar viðlag. Og þessi setning varð
að vera á máli sem flestum lesendum
ljóðsins mun óskiljanlegt því í fram-
haldi er talað um hana eins og máð
letur á legsteini eða minnisvarða -
sem gerður er úr stirðnuðum tilfinn-
ingum. Þetta er flott líking og vel
útfærð i framhaldinu sem útmálar
fjarlægð minninganna og gefur í
skyn slys eða eyðileggingu, því hvað
hefur getað klofið eldingarvara ann-
að en of sterk elding. Eyðilegging
er annað stef endurtekið í ljóðinu
og magnar enn tilfinningu söknuðar
og eyðileika. Andstæða þess hve
minningamar mást er penninn, sem
er persónugerður en þó jafriframt
andstæða manna í órofa tryggð
sinni. í þessum langa inngangskafla
sýnist mér vitnað í Davið: „Sumir
geyma í öskunni/öll sín bestu ljóð“
og e.t.v. líka í Stein Steinarr: „I dul
þína risti/mín dökkbrýnda gleði/
sinn ókunna upphafsstaf*. Slíkar
vísanir em til að magna tilfinning-
una sem hér er sýnd, fyrir fjarlægð
milli fólks, og fyrir þráiini að brjót-
ast í gegnum þessa miklu fjarlægð.
Mér finnst myndimar tvær í síðari
hluta ljóðsins, sem hvor er innrömm-
uð pólskum orðum, miðla einnig vel
þessari tilfinningu. Því í þeim er
reimt, engin mannvera, en hvar-
vetna ummerki manna. Sú fyrri er
hlaðin hvers kyns boðum, en við
fáum ekkert að vita hvað á þeim
stendur, þau virðast bara vera til
þess að borging gleymist. Þannig er
allt letur í ljóðinu að mást, gegn
sviplausu minnismerki stendur
gleymska. í andstæðu við þessa
borða og spjöld, sem eiga að tala til
samtímans, er grámi húsanna og
gömul, staðin matarlyktin. Seinni
myndin sýnir fyrst og fremst rústir,
og svo þetta kertaljós. Táknar það
von eða einsemd? Það er liður í ljóð-
inu að hér er spuming en ekki svar.
Sjálf hreyfingin frá fyrri mynd til
seinni miðlar tilfinningum talan-
dans, þetta endar í eyðilegum
rústum. Þetta ljóð er listavel gert.
Ég skil vel að skáldið setji fyrr-
nefnda setningu hér á frummálinu,
þannig miðlar hún þeim andblæ, sem
færi forgörðum í þýðingu. En miðlar
hverjum? Ég þurfti að hringja í mál-
aséní, og fékk þá að vita að bardzo
þýddi afar, smutno dapurlegt, og bez
ciebie án þín. Það hefði nú ekki
spillt svip bókarinnar að marki að
láta þessa þýðingu fylgja, en ljóðið
verður áhrifameira við skilning á
þessari málsgrein. Og er þá komið
að því eina sem ég lái Geirlaugi,
hann hugsar ekki alltaf nógu vel um
skilning lesandans. Aska með upp-
hafsstaf er víst titill frægrar pólskrar
skáldsögu um Pólland, sem alltaf er
að rísa upp úr öskunni, en hvemig
eiga íslenskir ljóðalesendur að vita
það? Skáldinu eru nöfnin á bls. 27
sjálfsagt þmngin merkingu, en
hvemig eiga lesendur að ná henni í:
og farandsaungvarar
bemard de bom er dáði stríð
°g
pére vidal ástarær úlfúr
í elli sinni
En þetta em lítils háttar aðfinnslur
hjá öllu hinu sem er hrífandi.
KO&£A - snjóbræðslurör
KOBHA-PLAST HF.
Sigtún 3-105 Reykjavík. Sími 91-28900.
SÖLUMAÐUR
Sölumann/konu vantar við heildverslun. Tilboð
sendist á auglýsingadeild DV, Þverholti 11, merkt
„Sölumaður 1870".
KENNARAR - KENNARAR
Héraðsskólann í Reykjanesi vantar kennara nú þegar.
Aðalkennslugreinar íslenska og eðlisfræði. Mikil
vinna, mjög góð vinnuaðstaða og gott og ódýrt hús-
næði.
Upplýsingar hjá Skarphéðni Ólafssyni í símum
94-4841 og 94-4840.
Héraðsskólinn í Reykjanesi.
Nauðungaruppboð
annað og siðasta á fasteigninni Logafold 5, þingl. eigandi Skúli Jóhannes-
son, fer fram á eigninni sjálfri mánudaginn 22. sept. 1986 kl. 16.00.
Uppboðsbeiðendur eru Klemens Eggertsson hdl„ Iðnaðarbanki íslands hf„
Vilhjálmur H. Vilhjálmsson hdl„ Sigurður H. Guðjónsson hdl„ Ólafur Gústafs-
son hrl„ Ólafur Axelsson hrl. og Olafur Thoroddsen.
___________________Borgarfógetaembættið i Reykjavik.
Nauðungaruppboð
á fasteigninni Eirhöfða 17, þingl. eigandi Vélaleiga Helga Jónssonar, fer fram
á eigninni sjálfri mánudaginn 22. sept. 1986 kl. 15.45. Uppboðsbeiðendur
eru Sigríður Jósefsdóttir hdl. og Ásgeir Thoroddsen hdl.
Borgarfógetaembættið i Reykjavík,
Nauðungaruppboð
annað og síðasta á fasteigninni Hraunbæ 12, 1.t.v„ þingl. eigandi Hallgrím-
ur Kristjánsson, fer fram á eigninni sjálfri mánudaginn 22. sept. 1986 kl.
14.30. Uppboðsbeiðendur eru Helgi ý. Jónsson hrl„ Veðdeild Landsbanka
islands og Hákon H. Kristjónsson hdl.
Borgarfógetaembættið í Reykjavik.
Nauðungaruppboð
á fasteigninni Vagnhöfða 23, grunnhæð, þingl. eigandi Benedikt Eyjólfsson,
fer fram á eigninni sjálfri mánudaginn 22. sept. 1986 kl. 16.30. Uppboðs-
beiðandi er Gjaldheimtan í Reykjavík.
______________________Borgarfógetaembættið í Reykjavik.
Nauðungaruppboð
á fasteigninni Glæsibæ 6, þingl. eigandi Magnús Andrésson, fer fram á eign-
inni sjálfri mánudaginn 22. sept. 1986 kl. 15.00. Uppboðsbeiðandi er
Gjaldheimtan í Reykjavík.
______________________Borgarfógetaembættið i Reykjavik.
Nauðungaruppboð
annað og síðasta á fasteigninni Rauðási 3, tal. eigandi Haraldur Gislason,
fer fram á eigninni sjálfri mánudaginn 22. sept. 1986 kl. 14.00. Uppboðs-
beiðandi er Gjaldheimtan í Reykjavík.
______________________Borgarfógetaembættið í Reykjavik.
Nauðungaruppboð
annað og siðasta á fasteigninni Jöldugróf 13, þingl. eigandi Tómas Sigurp-
álsson, fer fram á eigninni sjálfri mánudaginn 22. sept. 1986 kl. 13.30.
Uppboðsbeiðandi er Gjaldheimtan i Reykjavík.
______________________Borgarfógetaembættið i Reykjavik.
Nauðungaruppboð
annað og siðasta, á fasteigninni Brautarási 9, þingl. eigandi Svavar A. Sig-
urðsson, fer fram á eigninni sjálfri mánudaginn 22. sept. 1986 kl. 13.45.
Uppboðsbeiðendur eru Gjaldheimtan í Reykjavík, Guðjón Ármann Jónsson
hdl. og Ólafur Gústafsson hrl.
Borgarfógetaembættið í Reykjavík.
Nauðungaruppboð
á fasteigninni Búlandi 10, þingl. eigandi Óðinn Geirsson, fer fram á eigninni
sjálfri mánudaginn 22. sept. 1986 kl. 11.00. Uppboðsbeiðandi er Gjald-
heimtan í Reykjavík.
________________ Borgarfógetaembættið í Reykjavtk.