Dagblaðið Vísir - DV - 19.09.1986, Page 32
44
FÖSTUDAGUR 19. SEPTEMBER 1986.
Sviðsljós
Ólyginn
sagði . . .
Farrah Fawcett
sat að snæðingi með sínum ást-
kæra unnusta, Ryan O'Neal,
þegar svo óheppilega vildi til að
rækja hrökk af diski hennar undir
borðið. Hún veitti þessu litla eftir-
tekt og hélt áfram að borða.
Farrah hafði farið úr skónum á
meðan hún var að matast og
þeir lágu undir borðinu og þegar
Farrah fór að hugsa sér til hreyf-
ings uppgötvaði hún hvert
rækjan hafði farið. Hún fór að
skellihlæja þegar hún varð vör
við rækjuna og Ryan greip rækj-
una og hélt henni að gestum á
næstu borðum og sagði glað-
hlakkalega háum rómi: „Er
nokkur sjálfboðaliði hérna inni
sem er reiðubúinn að borða rækju
beint upp úr skónum hjá
Förruh?" Honum til mikillar furðu
sagði einhver já. Ryan var ekki á
því og át rækjuna sjálfur.
í
Agnetha Föltskog
fyrrum Abba söngkona er laus
og liðug á nýjan leik. Agnetha
hætti ekkert að syngja eftir að
Abba lagði upp laupana en held-
ur dró úr velgengninni. Ástarmál
hennar hafa verið alveg jafnmikið
til umræðu og plöturnar og hafa
vist verið hin fjörugustu. Nú ný-
lega var hún í mjög umtöluðu
sambandi við plötuforstjórann
Benny Hedlund en það stóð bara
í hálft ár. Aðalorsökin fyrir að upp
úrslitnaði voru langir vinnudagar
og mikil ferðalög hjá kærastan-
um. Agnetha segist þvi geta
einbeitt sér meira að tónlistinni
nú - að minnsta kosti á meðan
hún er á lausu.
Bill Cosby
er hamingjusamur maður og seg-
ist alltaf hafa elskað konuna sína
og sú ást vaxi sífellt með árunum.
„Camille er yndisleg að sjá en
hún ér enn fallegri innra með sér
og það er hið mikilvægasta," seg-
ir Cosby sjálfur. Hann segist
jafnframt alltaf vera hann sjálfur
í þáttunum um fyrirmyndarföður
og reyni aldrei að breyta sér í ein-
hverja aðra persónu. Segist hann
hafa þá trú að bók sú sem hann
hefur í smíðum um barnauppeldi
geti hjálpað mörgum manninum
að öðlast meira samband við
börnin sín.
Konunglegt sjokk:
Fyrrum einkaþjónn Kalla
með eyðni
Karl Bretaprins á heldur erfitt um
þessar mundir eftir að hafa fengið
þær fréttir að fyrrum einkaþjónn
hans hafi farið í eyðnimeðferð. Karli
er virkilega brugðið og Díana er
ævareið og segist sjá eftir því að
hafa ekki látið reka hann fyrr.
Einkaþjónninn heitir Stephen
Barry og var hægri hönd Karls og
fylgdi honum eins og skuggi í næst-
um 12 ár. Barry gætti fataskáps
prinsins, lét renna í baðið fyrir hann,
burstaði skóna, valdi föt morgun-
dagsins og þar fram eftir götunum.
Sú hugsun að framtíðarkonungur
Englands hafi eytt svo löngum tíma
í nánd við eyðnisjúkling hefur víst
látið meðlimum kóngafjölskyldunn-
ar renna kalt vatn milli skinns og
hörunds. Og það er ekki nóg með að
ríkisarfinn hafi verið í nálægð Barr-
y’s, Díana prinsessa umgekkst hann
líka næsta daglega frá því að hún
giftist Karli í júlí 1981 og uns hann
hvarf frá höllinni í apríl 1982 og síð-
ustu 6 mánuðina var hún ólétt.
Haldinn sjúkdómnum
í höllinni
„Díana og Karl eru bæði óttaslegin
um að nærvera Barry’s geti á ein-
hvern hátt skaðað heilbrigði fjöl-
skyldunnar. Eyðni er ógurlegur
sjúkdómur sem lítið er vitað um fyr-
ir utan það að hann er bráðdrep-
andi,“ segir vinur Díönu.
Vel getur verið möguleiki á að
Barry hafi óafvitað gengið með veir-
una í sér á meðan hann vann enn í
höllinni því einkenni sjúkdómsins
þurfa ekki að koma í ljós fyrr en 7
árum eftir að maðurinn sýkist.
Díana talar víst um Barry sem óféti
og svikara vegna þess að hann gaf
það í skyn við Karl að hann myndi
aldrei skrifa um árin sem hann átti
með hinni konunglegu fjölskyldu en
þrátt fyrir þetta reit hann tvær „Segi
það satt“ bækur um einmitt það efni.
Karl er alveg miður sín yfir þessu
öllu saman og að sögn kunningja-
fólks hans og Díönu lét hann þau
orð falla að þau virtust aldrei geta
losnað við þennan mann. Hann hefði
verið eins og plága frá því að hann
hætti að vinna í höllinni.
Vill ekkert segja
Þrálátur orðrómur hefur verið á
kreiki í marga mánuði um að Barry
hafi eyðnisjúkdóminn. Fyrr á þessu
ári sagði hann við breskt blað: „Ég
hef ekki sjúkdóminn, en veiran sem
veldur honum er í mér.“ Félagi hans
hefur þó sagt að Barry hafi farið til
læknis eftir að hafa uppgötvað að
hann væri sífellt að léttast - rann-
sóknir læknisins hefðu sýnt að Barry
gengi með eyðni.
{júlí fór hann í tveggja vikna með-
ferð á heilsuhæli John Hunter í
London en það heilsuhæli er víð-
frægt og tekur einungis á móti
fómarlömbum eyðni og annarra
kynsjúkdóma. „Stephan Barry hefur
Barry er orðinn grár og gugginn en
á innfelldu myndinni sést hann eins
og hann átti að sér.
verið flokkaður sem eyðnisjúklingur
og hann var hjá okkur í meðferð sem
slíkir sjúklingar fá,“ sagði starfs-
maður sjúkrahússins.
Þegar blaðamenn fóru að heim-
sækja Barry vildi hann hvorki játa
þessu né neita. Hann leit vægast sagt
illa út að sögn blaðamannanna. Var
grár og gugginn og óstöðugur á fót-
unum. Hann hallaði sér upp að
dyrastafnum og talaði lágri og
veiklulegri röddu. „Ég var á sjúkra-
húsinu í meðferð vegna hálssýkingar
og smávægilegra blóðerfiðleika,"
sagði Barry en Dr. Charles Farthing,
læknir sjúkrahússins, sagði hins
vegar um málefni Barry’s: „í hans
tilfelli er algerlega um að ræða smit-
andi kynsjúkdóm ...... og á þessu
sjúkrahúsi höfum við kynnst um 140
eyðnitilfellum."
Vinirnir forðast hann
Spjótin standa að Barry úr fleiri
Sem einkaþjónn haföi Barry mikiö
samneyti við Karl og f jöiskyldu hans.
Hann ber hér kápu ríkisarfans á
veiðum.
áttum. Fyrrum kunningi hans sagði
um hann: „Það vita allir að Barry
hefur eyðni. Það er að minnsta kosti
ekkert leyndarmál i hommaheimin-
um. Fyrrum vinir hans forðast hann
eins og pláguna. Hann hefur misst
að minnsta kosti 30 kíló og vegur
nú vart meir en 45-50 kíló.“
En þær sterku líkur sem benda ein-
dregið til þess að Barry hafi eyðni
hafa valdið fjaðrafoki í höllinni, allt
frá konungsfjölskyldunnni til þjón-
anna. Meðal þjónustuliðsins eru
fjölmargir hommar og fólk sem þekk-
ir til í Buckinghamhöll segir að þetta
leiði sennilega til þess að kynhverfir
verði látnir segja upp og verði Díana
prinsessa í fararbroddi þeirra að-
gerða.
En þó Karl ríkisarfi sé mjög pirrað-
ur yfir þessur.. fréttum þá vorkennir
hann þrátt fyrir allt Barry og sagði
að svo illra örlaga myndi hann ekki
einu sinni geta óskað sínum versta
óvini.
Sveit Vestmannaeyja sigraöi i karlaflokknum. Vanir sjómenn, Eyjamenn, frá
vinstri: Lárus Einarsson, Arnþór Sigurösson, öm Andrésson og Bogi Sig-
urðsson.
Sveit Akureyrar sigraði i kvennaflokknum. Miklar aflaklær, frá vinstri: Helga
Sigfúsdóttir, Sólveig Erlendsdóttir, Svandís Gunnarsdóttir og Sigrún Harðar-
dóttir.
Akureyrarmótiö í sjóstangaveiöi:
Eyjamaðuiinn Om varð maður mótsins
Jón G. Hauksson, DV, Akureyri:
Vestmannaeyingurinn Öm Andr-
ésson sigraði í sjóstangaveiðimóti
Akureyrar, fyrsta stigamóti á ný-
byrjuðu íslandsmóti sjóstangaveiði-
manna. Örn hlaut 18 stig eða sama
stigafjölda og íslandsmeistarinn
Matthías Einarsson, Akureyri, vann
titilinn á í júlí síðastliðinn. Allar lík-
ur eru því á að titillinn fari til Eyja
næsta sumar.
Þáttakendur í Akureyrarmótinu í
sjóstangaveiði voru 62 talsins, hvað-
anæva af landinu og þar af 10 konur.
Veitt var dagana 5.-6. september frá
7 á morgnanna og fram á miðjan
dag. Að lokinni sjómennsku skund-
aði liðið í allsherjarveislu í Alþýðu-
húsinu á Akureyri. Teygað var úr
bikurum og teygt úr sér á dansgólf-
inu. Veislustjóri var Páll A. Pálsson,
ljósmyndari og formaður sjóstanga-
veiðifélags Akureyrar.
Sigrún Haröardóttir, Akureyri, skaut öörum konum
ref fyrir rass og varð nokkuö örugglega aflahæsta
konan á mótinu. Ekkert hik á þeim bænum.
Eyjamaöurinn örn Andrésson, maður mótsins og
kominn með aöra höndina á íslandsmeistarabik-
arinn eftir Akureyrarmótið. Örn var aflahæsti ein-
staklingurinn á mótinu, veiddi flesta fiska og
jafnframt flestar tegundir.
Vestmannaeyingurinn Björgvin Sigurjónsson
veiddi stærsta fisk mótsins, þorsk sem vó 4,18
kiló, og í verðlaun fékk hann styttuna: „Hann var
svona stór“.
DV-myndir JGH