Dagblaðið Vísir - DV - 19.09.1986, Síða 33
FÖSTUDAGUR 19. SEPTEMBER 1986.
45
Þó að hreppstjórinn og oddvitinn
hafi ekki mætt í Laugardalshöll um
síðustu helgi á tónleikana sem þar voru
var síður en svo hörgull á fólki sem
vildi í nefið hjá Stuðmönnum.
Fjölmargar hljómsveitir komu íram
á tónleikum þessum sem hafði verið
gefið heitið: „Fjöregg i Höllinni". Tón-
leikamir voru hinir fjörugustu og
nokkrar hljómsveitir spiluðu, gestimir
vom heldur betur í stuði og tóku
hressilega undir enda bmgðu söngvar-
amir á það ráð oftar en einu sinni að
fá aðstoð við sönginn. Mesta fjörið var
þó þegar hinir norðlensku Skriðjöklar
komu fram með hófagangi og látum.
Birtust þeir íklæddir forkunnarfógrum
nærfötum og höfðu greinilega ekkert
að fela. Brokkuðu þeir fram og aftur
um sviðið með miklum látum og vom
heldur betur í stuði enda kunnu krakk-
amir svo sannarlega að meta þá.
Hneggjuðu allir í kór Skriðjöklum til
hæfis.
Stuðmenn, stórgrúppa landsins,
mættu á staðinn íklæddir búningum
skurðlækna. Léku þeir af fingrum fram
Egill Ólafsson býður mönnum I nefið og upp fóru fjölmargar fúsar hendur. DV-myndir BG
með natni læknisins og gættu þess að
gestimir væm með á nótunum. I laginu
„Fugl dagsins" lífguðu Stuðmenn upp
á fjarveru hreppstjórans og oddvitans
með því að bjóða vormönnum og kon-
um Islands í nefið. Vom menn æstir í
neftóbakið og segiði svo að það sé bara
fyrir gamla karla. Síðan snem menn
sér í hring og hnermðu!
Hinir norðlensku Skriðjöklar héldu uppi stuðinu með hófaslætti, hér fá þeir að-
stoð við hneggið.
AndlitstOfærsla
Andlitstilfærslan, til vinstri
er Joan Collins með hárgreiðslu
Lindu og til hægri er Linda
Evans með hár Joan. Fyrir neð-
an em þær stöllur eins og þær
eiga að sér.
Eitt af einkennum Dynasty
stjömunnar Lindu Evans er hið
glæsilega gullna hár hennar
sem sumir hafa kallað „vöm-
merki fegurðar Lindu Evans“.
Meðleikari hennar í Dynasty,
Joan Collins, er einnig vel
þekkt fyrir hár sitt.
Fáir gætu hugsað sér leik-
konumar öðmvísi en þær em
einmitt nú.
Einhverjir uppfinningasamir
menn í henni Ameríku hafa þó
dundað við það sér til skemmt-
unar að skipta á hárgreiðslu
leikkvennanna.
Hér gefúr að líta árangurinn
af starfi þeirra. Joan Collins
með hárgreiðslu Lindu og öfugt.
Þeim leist hvomgri vel á en
hvað finnst þér?
Ólyginn
sagði . . .
Cliff Richard
er orðinn mikill stuðningsmaður
bílbeltanotkunar og notar hvert
tækifæri sem gefst til að hvetja
fólk til að nota beltin. Ástæðan
er sú að poppsöngvarinn slapp
nýlega með skrekkinn þegar bif-
reið hans lenti í feikihörðum
árekstri rétt fyrir utan Lundúna-
borg. Billinn, sem var glæsikerra,
breyttist á svipstundu i brotajárn
en Cliff slapp með marbletti og
skrámur. „Hefði ég ekki notað
bílbelti væri ég nú lamaður fyrir
lífstið eða þá í versta falli dáinn.
Ég þakka guði fyrir að hafa nennt
I þetta skipti að setja á mig bel-
tið,” segir popparinn síungi og
er greinilega mikið niðri fyrir.
Kannski að við megum eiga von
á plötu til styrktar samtökum fyrir
bílbeltanotkun frá Cliff næst?
Jack Nicholson
er leikari sem getur allt að margra
áliti og á ekki í vandræðum með
að koma sér inn í erfið hlutverk.
Nú er hann að leika í kvikmynd-
inni The Witches of Eastwick og
I henni leikur hann þann vonda
sjálfan. Kunnugir segja að Nic-
holson hafi náð persónuleikanum
sem handritið er byggt upp á en
eigi erfitt með að ná göngulag-
inu. Til að bæta það hefur verið
ráðinn frægur danskennari sem á
að kenna honum að labba að
hætti Lúsífers. Flest kunna nú
þeir I henni Ameríku.
John James
Dynasty leikari og eitt af mestu
sjarmabuffum Ameríku, varð ný-
lega raunveruleg hetja. John
hjálpaði til við að bjarga þeim
eina sem eftir lifði af skipi sem
sökk. Leikarinn var ásamt vini sín-
um á báti úti fyrir ströndum
Kaliforníu og var í þann mund
að snúa við vegna þess hve veð-
rið var orðið vont. Þá kom hann
skyndilega auga á bát sem velk,-
ist um í sjónum heldur illa á sig
kominn. John reyndi sjálfur að
komast að bátnum en gat það
ekki vegna veðurs. Hafði hann
þá þegar látið strandgáesluna vita
og bjargaði hún 9 ára stúlku úr
bátnum. Björgun hennar var talin
á sínum tíma hreint kraftaverk og
varð fréttaefni I Bandaríkjunum
en enginn gróf upp hver hefði
fyrst komið auga á bátinn fyrr en
Sviðsljós