Dagblaðið Vísir - DV - 19.09.1986, Síða 36
FRÉTTASKOTIÐ fiO oc oc II afir þú ábendingu eða 0 vitneskju um frétt - hringdu þá í síma 62-25-25 Fyrir hvert fréttaskot, sem birtist eða er notað í DV, greiðast 1.500 krónur. Fyrir besta fréttaskotið í
¥■ HV hverri viku greiðast 4.500 krónur. Fullrar nafnleyndar er gætt. Frjálst,óháð dagblað
Ritstjórn - Augiýsingar - Áskrift - Dreifing: Sími 27022 Við tökum við fréttaskotum
allan sólarhringinn. FÖSTUDAGUR 19. SEPTEMBER 1986.
Flugvirkjar:
Bannað að
vinna lyrir
Amarflug
„Við festum upp auglýsingu í gær á
vinnustöðum flugvirkja þar sem
mönnum er bent á að þeim sé óheim-
ilt að starfa fyrir Amarflug frá og með
næstu mánaðamótum ef ekki hafi ver-
ið gert upp við núverandi starfsmenn,
laun, lögboðin fií og larmatengd
gjöld,“ sagði Oddur Ármann Pálsson,
formaður Flugvirkjafélagsins, í sam-
tali við DV.
Öllum flugvirkjum Amarflugs var
sagt upp störfum fyrir skömmu og
hafa þeir ekki verið endurráðnir. Upp-
sagnarírestur þeirra rennur út um
mánaðamótin.
„Þetta er vamaraðgerð hjá okkur
til að knýja á um endurráðningu
mannanna og jafnframt að gera
stjómendum Amarflugs ljóst að verði
flugvirkjamir ekki endurráðnir geti
reynst erfitt að fá nýja menn í þeirra
stað eftir næstu mánaðamót," sagði
Oddur Ármann.
Rúmlega 20 flugvirkjar og flugvél-
stjórar starfa hjá Arnarflugi. -EIR
Banaslys á
loðnumiðunum
Banaslys \ arð á loðnumiðunum í
fyrrinótt er skipverji á loðnuskipinu
Þórði Jónssyni EA frá Akureyri féll
útbyrðis. Atburðurinn átti sér stað er
skipverjar vom að undirbúa að kasta
út nótinni. Leit að manninum bar ekki
árangur. _FRI
Gæsluvarðhald
og geðrannsókn
Sakadómur Reykjavikur hefur úr-
skurðað að maður sá er handtekinn
var, gmnaður um að vera valdur að
dauða stúlkunnar, sem fannst látin i
Hátúni, skuli sæta gæsluvarðhaldi til
19. nóvember nk. og jafhframt gert að
sæta geðrannsókn.
Formlegar yfirheyrslur yfir mannin-
um hefjast í dag en maðurinn var
handtekinn á miðvikudag. -FRI
TRÉSMIÐJA
ÞORVALDAR ÓLAFSSONAR HF.,
IÐAVÖLLUM 6, KEFLAVIK.
SÍMAR: 92-4700-92-3320.
LOKI
Mávurinn virðist hafa
komist í einn White
Top!
„Mikill skellur,
nú hrynur allt“
Tryggingastofnun hefur ákveðið að
hætta að samþykkja talkennslu-
beiðnir og er nú engin talkennsla á
vegum hins opinbera greidd af stofn-
uninni, til dæmis er engin talkennsla
á dagvistun bama og í einkaskólan-
um Tjáning og hreyfing en tal-
kennslu er haldið uppi grunnskólum
eins og áður.
„Þetta er mikill skellur fyrir okkur
og nú hrynur okkar starf niður,“
sagði Svanhildur Svavarsdóttir tal-
kennari í samtali við DV en hún
rekur skólann Tjáning og hreyfing
og hefúr haft 26 nemendur. „Annaö- hinsvegar ekki enn skilað greinar-
hvort verðum við að hætta starfsem- gerð.
inni eða foreldrar að borga sjálfir Tryggingastofaun hefúr hingað til
fynr hana.“ greitt fyrir alla talkennslu en sam-
Svanhildur sagði að sú ákvörðun kvæmt nýju lögunum á félagsmála-
tryggingayfirlæknis að synja ráðuneytið nú að greiða fyrir
greiðslu á talkennslubeiðnunum greiningarstig talkennslunar og
væri sér óskiljanleg. Samkvæmt lög- menntamálaráðuneytið að greiða
um ætti þessi umsjón þessarar fyrir meðferðarstigið. Trygginga-
starfeemi að flytjast frá heilbrigðis- stofnun tók fyrir greiðslur sl. þriðju-
ráðuneytinu yfir í menntamálaráðu- dag. Ekki hefúr náðst samband við
neytið og nú væri starfandi nefnd til tryggingayfirlækni þar sem hann er
að ræða skiptinguna á kennslunni erlendis.
milli ráðuneytanna. Sú nefiid hefði _FRI
Ríkisútvarpið
mætir sam-
keppninni
Talsverðra breytinga er að vænta á
Ríkisútvarpinu vegna harðnandi sam-
keppni. Mun það vera aðalumræðu-
efni á útvarpsráðsfundi sem hófet
skömmu fyrir hádegi.
Ymsar tillögur munu vera bomar
þar upp, meðal annars að rás 2 út-
varpi allan sólarhringinn og að
daglega verði í sjónvarpinu samfelld
dagskrá frá klukkan 18, að fimmtu-
dögum undanskildum. Áður hefur
verið ákveðið að byija vetrardagskrá
sjónvarps alla daga klukþan 18 með
bamaefni.
Að sögn Markúsar Amar Antons-
sonar útvarpsstjóra kemur ekki til
greina að sjónvarpa á fimmtudögum,
enginn fjárhagslegur grundvöllur sé
fyrir því. Aðspurður hvort breytinga
væri að vænta á tímasetningu frétta-
tíma sjónvarps sagði hann að það
væri fréttastofunnar að segja til um
það. Væri verið að velta ýmsum mögu-
leikum fyrir sér í því sambandi en allt
myndi þetta skýrast fljótlega.
-KÞ
Logreglan fann uppsprettu White Top bjórsins á Akureyri:
Oflug bruggverksmiðja innsigluð
Rannsóknarlögreglumaður virðir fyrir sér „White Top“ bjórflösku, en sá bjór var bruggaður í hinn: stórvirku
bruggverksmiðju sem innsigluð var á Akureyri í gær. DV-mynd JGH
Jón G. Haukssan, DV, Akureyii
Lögreglan innsiglaði í gær afkast-
amikla bmggverksmiðju á Akureyri.
Þar hafði „White Top“ bjórinn um-
ræddi verið bruggaður. Tveir
Akureyringar, rúmlega tvítugir, em
nú í gæsluvarðhaldi vegna málsins
Bmggverksmiðjan var til húsa í
bakhúsi að Óseyri 6 á Akureyri, í
húsnæði heildsölu sem annar bmgg-
aranna rak. Báðir vom bruggaramir
handteknir á staðnum í fyrrinótt og
bmggverksmiðjan svo innsigluð í
gær, engin smáverksmiðja sem
mennimir höfðu komið sér upp.
Þeir vom með tvo 1000 lítra geij-
unartanka, auk þess fimm 200 lítra
plastkúta og 21.000 einnota bjór-
flöskur, tómar, sem keyptar vom í
Danmörku. Þá vom í bmggverk-
smiðjunni öflug eimingartæki og
höfðu mennimir selt landa í ein-
hvem tíma. Þá fundust 400 kg af
sykri og prentvél til að prenta
„White Top“ miðana í framtíðinni.
I einum kassanum fann lögreglan
„Glenfich" og „ Major Brandy“
bragðefni sem notuð vom í „White
Top“ bjórinn. Einnig fannst mikið
magn af grænum töppum sem bendir
til þess að „Green Top“ hafi verið á
leiðinni.
Veðrið á morgun:
Smáskúrir við
norðaustur-
ströndina
Á morgun verður norðvestlæg átt
á landinu. f fyrramálið verður rign-
ing suðaustanlands en síðan léttir
þar til. Við norðausturströndina
verða smáskúrir. Hiti verður á bilinu
7-12 stig.
Smygl í
Amarfelli
Tollgæslan á Akureyri fann í nótt
töluvert smygl um borð í Amarfellinu
í Akureyrarhöfn en þar er verið að
losa fóður úr skipinu. Alls fundust um
borð 30 kassar af bjór, 170 kg af skinku
og 19 flöskur af sterku áfengi.
Að sögn Ævars Hjartarsonar toll-
varðar hafa 7 skipverjar á skipinu
viðurkennt að eiga smyglvaminginn.
Amarfell kom fyrir viku úr Evr-
ópuferð og var skipið tollafgreitt í
Reykjavík en Akureyri er fyrsta við-
komuhöfnin á ferð skipsins um landið.
-FRI
i