Dagblaðið Vísir - DV - 25.10.1986, Blaðsíða 4
48 LAUGARDAGUR 25. OKTÓBER 1986.
Neil Kinnock:
BJört von
Verka-
manna-
flokks-
ins breska
Það er sagt að menn gleymi því
ekki hvernig aðrir líta út við fyrstu
sýn. Þeir sem eru í sviðsljósinu búa
sig því gjarnan undir slíkar stundir
og þegar spurull fréttamaður kemur
til að rekja garnirnar úr stjóm-
málamanni þá fer ekki hjá því að
framkoma hans og útlit festist í
minni.
Þennan morgun, er veðrið var í
verra lagi, var leiðtogi stjórnarand-
stöðu hennar hátignar að fást við
eitthvað í horni skrifstofu sinnar og
sönglaði á meðan Heavenly Shades
are Falling ljúfri tenórröddu. „It’s
twilight time..Neil Kinnock, björt
framtíðarvon Verkamannaflokksins,
var að taka í sundur álpípu sína en
hann fylgdist vel með er ég lét segul-
bandstækið mitt á kaffiborðið hans.
„Eru þetta Disque Bleue?“
Hann kom beint að efninu. „Eru
þetta Disque BIeue?“ sagði hann.
„Mér líkar vel við Disque Bleue.“
Svo lagði hann frá sér pípuna og
kveikti í einum af vindlingunum
mínum. Augnabliki síðar fór hann
að brosa og sagði: „Forboðnir ávext-
ir“ með svo velskum hreim að
ákveðnari hefði hann vart mátt vera.
Ég las yfir spumingarnar mínar og
sagði nokkrar setningar óstyrkri
röddu til að leggja áherslu á getu
mína til að halda uppi eðlilegum
samræðum við slíkar aðstæður.
Hann beið eftir að ég þagnaði en
sagði svo: „Slökktu á þessu leiðinda-
tæki.“ Þá stóð hann á fætur, gekk
að veggnum, hugsaði sig um í nokkr-
ar sekúndur en settist síðan fyrir
framan skrifborðið og sagði: „Allt í
lagi.“
Stjórnmálamaður er...
„Stjómmálamaður er rass sem allir
hafa setið á nema ærlegur maður.“
Hann leiðrétti mig. „Ég man,“
sagði hann, „að þessi ódauðlegu orð
vom rituð af Bandaríkjamanni árið
1944. Og þau em enn í fullu gildi í
dag, 42 árum síðar. Fólk tekur stjóm-
mál alltaf alvarlega. Það tekur
stjómmálamenn hins vegar ekki al-
varlega. Og þannig á það einmitt að
vera.“ Og hann er einmitt maðurinn
sem á að vita hvað hann er að tala
um í þessu sambandi því það var
hann sem datt á rassinn í Blackpool
fyrir framan allar sjónvarpsvélamar.
Hann tók því hins vegar þannig að
það er varla við því að búast að neinn
reyni að gera grín að honum framar.
Þeir ættu að minnsta kosti ekki að
verða margir.
Að vera sósíalisti
Það er ekki auðvelt að vera sósíal-
isti á þessum tímum þegar kapítal-
isminn er í svona miklum framgangi.
Og stundum er eins og menn vilji
gleyma því hvað hann snýst um í
raun og vem. Að biðja leiðtoga
Verkamannaflokksins að skýrgreina
sósíalisma er því eins og að biðja
Margaret Hilda sjálfa að kenna sér
að reka matvöruverslun. Manni
finnst maður vera kominn óþægilega
nærri kjama málsins.
Herra Kinnock lét sér hins vegar
ekki bregða það minnsta. „Það er
allt í lagi að spyrja um það,“ sagði
hann. „Eg á krakka og er alltaf að
reyna að sannfæra þá.“ Og hann orð-
aði það einhvem vegin þannig að það
var eins og ég væri að heyra þetta í
fyrsta sinn. „Fyrir mig þýðir það,“