Dagblaðið Vísir - DV - 25.10.1986, Side 7
LAUGARDAGUR 25. OKTÓBER 1986.
51
Kirkian í Sammatti.
Húsið sem Lönnrot fæddist i hefur verið gert að safni og er varðveitt sem næst í sinni upprunalegu mynd.
pressujárn skraddarans, sem er 7 kg
.á þyngd. Hilla á veggnum hefur að
geyma: Þrjá trédiska og tréfat, sem
eru smíði fyrrnefnds „Mustapáa
Matti“, og fiskitrog, smíðað af
skraddaranum sjálfum. En það sem
augun dveljast lengst við er vagga
skáldsins, sem mörg önnur börn
hvíldu í, og fylgdi ættinni. Er þá
upptalið það sem varðveizt hefur frá
tíð skraddarans í Paikkari. En
frændur hans og velunnarar bættu
mörgum munum við, svo sem vegg-
klukkum og bekkjum.
Maður, sem komizt hafði yfir kant-
elu Elíasar Lönnrots frá Kajanaár-
unum, gaf safninu hana ásamt mynd
af skáldinu. Sængurföt öll á safninu
eru gefin af Miinu Lönnrot, dóttur
Henriks. Spunarokkur stendur á
gólfi. Er hann talinn yngri en svo
að móðir Elíasar hafi spunnið á
hann.
Ýmsir munir eru komnir á safnið
frá búskaparárum Henriks og Stínu
Lísu, konu hans, eins og kaffikvörn,
kaffikanna, kaffibolh, rjómakrukka
og sykurskál. Ennfremur stór pottur,
vatnssár og viðarhögg. Á eldhúshillu
kennir margra grasa, þar eru þrír
steindiskar og glerdiskur og þeytari,
smjörbytta, brauðkarfa, kúmenker
úr næfrum og trésleif. I slíðri á vegg
er viðaröxi.
Ur aðalsafni er gengið inn í her-
bergi það er Henrik byggði við.
Einnig þar er geymt sitt af hverju.
Ýmsir munir sem safninu hafa verið
gefnir. Eins og rúm Elíasar Lönn-
rots, sem hann hvíldi í á Helsingfors-
og Lammiárunum, borð og tveir stól-
ar.
I sérstakri hillu eru allar þær bæk-
ur sem skáldið gaf út. Úti í horni er
fatakista Stínu Lísu. Meðal þess sem
er að finna í henni er kirkjuhúfa
móður skáldsins og sjal, ofið af
henni. - Ýmsa muni er að sjá úr eign
Eliasar Lönnrots, eins og ritföng
hans, handritahillu, blekhorn og
rakspegil. Ennfremur næframal, sem
hann bar á langferðum sínum og
hann notaði sem pappírskörfu eftir
að ferðum hans lauk. Þá má sjá
ferðasleða hans og ferðatösku úr
svellþykku leðri. Á vegg hanga tveir
doktorshattar, en Lönnrot var sæmd-
ur doktorsnafnbótum í læknisfræði
og þjóðlegum fræðum.
Þó að hér hafi ekki verið svo mikið
að sjá, eins og ekki heldur var að
vænta, er það engu að síður ánægju-
legt að hafa fengið nokkra innsýn í
þann heim sem Elías Lönnrot lifði
og hrærðist í sem barn, heim fátækt-
ar, sem var þess þó umkominn að
skapa mikilmenni er síðar bar út
hróður ættlahds síns um víðan heim.
Lágt var risið á kotbýlinu hans en
hátt reis hann sjálfur og ber fátækri
alþýðu fyrri tíma í Finnlandi fagurt
og ævarandi vitni.
Safnið er allmikið sótt að sumar-
lagi af innlendum og erlendum
ferðamönnum.
1 grennd við Paikkari er Lammi-
bær. Hann er friðaður og þar lifði
Elías Lönnrot síðustu æviár sín.
Utan við bjálkakofann á hólnum
er stytta af Elíasi Lönnrot sitjandi í
fullri líkamsstærð. Hún var sett þar
upp af áhugamönnum alllöngu eftir
að hann hafði safnazt til feðra sinna.
Skammt frá kofanum er kirkja
þeirra Sammattibúa, falleg timbur-
kirkja og vel við haldið, frá miðri
seytjándu öld. En á staðnum höfðu
tvær kirkjur áður staðið.
Elías Lönnrot kemur nokkuð við
sögu þessarar kirkju enda var hann
maður trúaður og kirkjurækinn. í
kirkjugarðinum er vandaður minnis-
varði um hann, konu hana og Teklu
dóttur þeirra, sem þau misstu á ung-
um aldri. Varðinn er blómum skrýdd-
ur. - Kirkjan var útkirkja eða
annexía allt til 1951. Messur voru
því stopular en til þess að guðsþjón-
usta félli ekki niður steig Lönnrot
oft í stólinn, predikaði og þótti söfn-
uði gott á hann að hlýða en sem
áður gat flutti hann til heimahaga
jafnskjótt og hann lét af embættis-
störfum. Ekki settist hann þó að í
Paikkari enda þá enginn mannabú-
staður. Á kórgafli Sammattikirkju
er snotur altaristafla sem Lönnrot
gaf kirkjunni 1879 til minningar um
dóttur sína.
Uegar talað er um kirkju og af-
skipti Elíasar Lönnrots af kirkjumál-
um skal þvi ekki gleymt að hann var
aðalhöfundur finnskrar sálmabókar
er var í gildi í full sextíu ár eða allt
til 1942 og á hann þar flesta sálm-
ana. Hafa nokkrir þeirra verið þýddir
á sænska tungu.
Það má segja að ekki hafi verið
neitt meiri háttar að sjá í þessari
stuttu ferð. En allt að einu var hún
þess virði að fara hana. Finnst mér
sem færzt hafi ég nær Elíasi Lönnrot
með því að fá hugmynd um og virða
fyrir mér fátæklegt bernskuheimili
hans og fagurt umhverfi þess skógi
klætt við Valksjó.
S.G.
TIL SÖLU
Scout II árg. 1979,8 cyl., beinskipt-
ur, 4ra gíra, ekinn 98.000 km.
Verö kr. 380.000,-
Peugeot 804 station ðrg. 1982,
hvitur, ekinn 122.000 km. Verð kr.
320.000,-
BRAUTARHOLTI 33 - SÍMI: 6212 40
KJÖTMIÐSTÖÐIW Laugalæk 2, s. 686511
VERIÐ VELKOMIN í BESTA KJÖTVERÐIÐ.
3 kg kjúklingar
2 kg beikonsneiðar
2 kg nautahakk
2 kg beikonbúðíngur
2 kg paprikupylsa
3 kg lambagrillkótelettur
2 kg kindabjúgu
3 kg saltkjöt
2 kg folaldasteikur
21 kg
25% álagningarafsláttur
K 4.700,-
VINNUEFTIRLIT RlKISINS
Bildshöfða 16 • Pósthólf 10120 ■ 130 Reykjavik ■ Sími
672500
LAUSAR STÖÐUR
Lausar eru til umsóknar neöangreindar stöður við
Vinnueftiriit ríkisins:
DEILDARVERKFRÆÐINGUR
(Efnaverkfræðingur)
Starfið er m.a. fólgið í því að fjalla um öryggisþætti
vegna geymslu, flutnings og notkunar eiturefna og
hættulegra efna á vinnustöðum og áætlanir um ný
iðnfyrirtæki á sviði stóriðju og efnaiðnaðar m.t.t. ör-
yggis og hollustuhátta á vinnustöðum. Gert er ráð
fyrir að viðkomandi fái sérstaka starfsþjálfun á vegum
stofnunarinnar.
Laun skv. kjarasamningi ríkisstarfsmanna. Nánari
upplýsingar um stöðurnar eru veittar i síma 67 25 00.
Upplýsingar um aldur, menntun og fyrri störf skilist
til Vinnueftirlits ríkisins, Bíldshöfða 16, fyrir 24. nóv-
emþer nk.
UMDÆMISEFTIRLITSMAÐUR
Á NORÐURLANDI VESTRA
með aðsetur á Sauðárkróki
Starfið felst í eftirliti með aðþúnaði, hollustuháttum
og öryggi á vinnustöðum samkvæmt lögum nr.
46/1980 ásamt fræðslustarfsemi.
Umsækjendur skulu hafa staðgóða tæknimenntun,
t.d. tæknifræðimenntun, ásamt starfsreynslu. Önnur
menntun kemur þó til greina.
TÆKNIFRÆÐINGUR
Starfið er m.a. fólgið í mælingum á hávaða, lýsingu
og titringi á vinnustöðum og aðstoð við mengunar-
mælingar. Einnig að leiðbeina um hávaðavarnir og
önnur skyld tæknileg málefni. Gert er ráð fyrir að
viðkomandi fái sérstaka starfsþjálfun á vegum stofn-
unarinnar.
Laun skv. kjarasamningi ríkisstarfsmanna. Nánari
upplýsingar um stöðurnar eru veittar í síma 67 25 00.
Umsóknir með upplýsingum um aldur, menntun og
fyrri störf skilist til Vinnueftirlits ríkisins, Bíldshöfða
16, fyrir 24. nóvember nk.