Dagblaðið Vísir - DV - 25.10.1986, Side 11
LAUGARDAGUR 25. OKTÓBER 1986.
55
!n enginn þorir að tala um.
DV-myndir Kristján Ari
Söngvarinn og leikarinn Divine utan sviðs: „Ég er ekki klæðskiptingur. Ég het engan áhuga á að klæðast kven-
mannsfötum. Ég er satt að segja mjög ánægður með að vera karlmaður."
Ef ég þyrfti að gera upp á milli þá
myndi ég velja kvikmyndirnar. En
sem betur fer þarf ég ekki að velja á
milli, ég get gert hvort tveggja.“
Fékk bara kvenhlutverk
- í nýjustu mynd þinni, „Trouble in
Mind“, leikur þú karlmann. Þýðir
það að þú sért hættur við kvengerv-
in?
„Nei. Ég vil gjarnan leika bæði
kynin. Hins vegar var ég búinn að
leita eftir karlmannshlutverki til að
leika í mörg ár. Ég sagði aldrei að
ég vildi bara leika konur. Fólk bara
gerði ráð fyrir því.
Ég hef leikið kvenmenn af því það
Divine er ekki bara ruddaleg i tali,
allar hreyfingar hennar eru grófar
og klúrar.
En ég er karlmaður svo ég get það.
Fyrst ég sem karlmaður get leikið
konu þá hlýt ég að geta leikið karl-
mann líka. Og loksins trúði. mér
einhver og ég fékk þetta hlutverk.
Það hefur gengið mjög vel og ég hef
fengið góða gagnrýni. Ég er mjög
glaður yfir þessu og vonast eftir að
fá fleiri tækifæri til að leika karl-
mann. Ég vil leika alls konar hlut-
verk.“
Anægður með að vera karl-
maður
- í fjölmiðlum ert þú mjög oft stimpl-
aður klæðskiptingur eða kvenper-
sónugervingur Hefur þér ekki gengið
illa að losna við þessar stimplanir?
„Jú. Og þetta særir mig mjög. Ég
er leikari. Divine er leikpersóna, til-
Eg er ekki viss um að við værum
vinir. Hún er kannski ágæt í smá-
skömmtum, en alls ekki lengi í einu. '
Ef maður umgengist svona persónu
dags daglega yrði mað^r áreiðanlega
brjálaður.
En það er mjög gaman að tulka
hana á sviði, því hún er svo ólík
mér. Ég er frekar rólegur og feiminn,
en hún er algjör andstæða þess.
Þetta er bara leikur, ég vinn fyrir
mér með þessu. Hins vegar er ég svo
heppinn að ég hef virkilega gaman
af starfi mínu. Það eru ekki allir svo
heppnir. Það eru ekki nema fimm ár
síðan að ég fór að græða pening á
þessu, en ég hef leikið í tuttugu ár.
Þannig að í fimmtán ár var ég í þessu
bara af því að ég hafði gaman af.
Það er það mikilvægasta," sagði
leikarinn og söngvarinn Divine.
-VAJ
og klur
að síður hafa plöturnar mínar selst
mjög vel, ég get ekki þrætt fyrir það,
þó ég skilji ekki af hverju.
Fólk segir mér að það hafi mjög
gaman af því að hlusta á mig syngja.
Mér finnst það ótrúlegt en það hlýtur
að vera satt fyrst plötumar seljast.“
- Hvort finnst þér skemmtilegra, að
leika í kvikmyndum eða syngja?
„Það er varla hægt að bera þetta
saman, þetta er svo ólíkt. Én á
skemmtunum er ég líka að leika, því
ég er ekki þessi kona.
Hins vegar elska ég kvikmyndir.
Það er eitthvað alveg sérstakt við
kvikmyndir, maður gleymir öllu öðru
þegar maður horfir á góða mynd.
Kvikmyndir eru líka varanlegar,
söngskemmtun hins vegar varir að-
eins eitt kvöld. Næst verður hún allt
öðruvísi.
vom þau hlutverk sem ég fékk og
sem mér var borgað fyrir að leika.
Þegar maður er leikari og vantar
vinnu þá tekur maður því sem manni
er rétt. Ég er leikari. Ég get leikið
konu eða karl eða belju eða tré eða
hvað sem er. Mér er sama.
Málið er að ég varð frægur fyrir
kvenhlutverkin og þá ályktað fólk
sem svo að ég gæti ekki annað og
mér voru ekki boðin öðruvísi hlut-
verk. Þetta var ekki spuming um
val, ég varð að leika konur.
Loks bauð Alan Rudolph mér karl-
mannshlutverk í myndinnni
„Trouble in Mind“ þar sem ég leik á
móti Kris Kristoffersson og ég varð
himinlifandi. Því eins og áður sagði
þá var ég búinn að biðja um það í
átta ár að fá að leika karlmann en
svarið var að ég gæti það ekki.
búningur. Klæðskiptingur er karl-
maður sem gengur í kvenmanns-
fötum. Eins og þú sérð þá er ég ekki
í kjól. Ég hef engan áhuga á að ganga
til fara eins og kona eða mála mig
dags daglega. Fjandinn hafi það, það
er allt of mikil fyrirhöfn. Ég er mjög
ánægður með að vera karlmaður.
Hins vegar hef ég alltaf þurft að
berjast við þessar stimplanir. Ég hef
reynt að segja fólki að ég sé leikari
að vinna mitt mitt starf, en það held-
ur því samt fram að ég sé klæðskipt-
ingur. En ég er það ekki og þetta fer
óskaplega í taugamar á mér.
Ég er ekkert líkur þessari kven-
persónu. Ef svo væri þá sæti ég
sjálfsagt í fangelsi eða lokaður inni
á geðsjúkrahúsi. Ég er ekki einu
sinni viss um að mér líkaði Divine
ef hún væri raunveruleg persóna.