Dagblaðið Vísir - DV - 21.11.1986, Blaðsíða 5
FÖSTUDAGUR 21. NÓVEMBER 1986.
5
Fréttir
Þessi mynd var tekin á fundi listamannanna og fulltrua borgarverkfræðings
en á myndinni eru frá vinstri: Steinunn Þórarinsdóttir, Sverrir Ólafsson,
Rurí og í dyrunum stendur Hjörleifur B. Kvaran.
DV-mynd BG
Dæmt í athyglisverðu prófmáli fýrir borgardómi:
Húseigandi ber
ábyvgð á leigj-
Flóðið á KorpúKsstöðum:
Beðið eftir skýrslu RLR
anda sínum
Fulltrúar myndlistarmannanna,
sem áttu þau listaverk sem skemmdust
í heitavatnsflóðinu á Korpúifsstöðum
um helgina, áttu í gærmorgun fúnd
með fulltrúa borgarverkfræðingsem-
bættisins, en Hjörleifur B. Kvaran
skrifstofustjóri sat fundinn fyrir hönd
borgarverkfræðings.
Sagði Hjörleifur að á fúndinum hefði
listamönnunum verið gerð grein fyrir
stöðu mála en nú væri beðið eftir
skýrslu frá Rannsóknarlögreglu ríkis-
ins um málið, en rannsóknarlögreglan
kannaði aðstæður á vettvangi á
mánudag. Sagði Hjörleifur að þegar
Mál það sem upp er komið hjá
sjúkrahúsinu í Keflavík og snýst um
falsaðar nótur frá þvottahúsi því sem
annaðist þá þjónustu fyrir sjúkrahúsið
er nú komið í rannsókn hjá bæjarfó-
getanum i Keflavík. Stjóm sjúkra-
hússins hefur þar lagt fram beiðni um
opinbera rannsókn.
Ólafur Bjömsson, formaður stjórnar
sjúkrahússins, sagði í samtali við DV
að þeir hefðu gert það sem væri þeim
rétt og skylt að gera en hann vildi að
skýrsla RLR lægi fyrir kæmi til skoð-
unar hvort bótaskylda væri fyrir hendi
en til þess að slíkt kæmi til greina
yrði að finnast sök í málinu.
I gær sagði Helgi Daníelsson að enn
væri ekkert um þetta mál að segja
annað en það að það væri í rannsókn.
Samkvæmt upplýsingum sem DV
hefur aflað sér benda líkur til þess að
rannsókn RLR leiði í ljós að frágangi
á Korpúlfsstöðum hefði verið ábóta-
vant og að sök finnist í málinu enda
þótt óljóst sé enn hver eigi.
-ój
öðm leyti ekki tjá sig um málið.
Eins og kunnugt er af frétt DV af
þessu máli fyrr í mánuðinum er talið
að fjármálamisferli þetta skipti millj-
ónum króna en um var að ræða að
þvottahúsið lét sjúkrahúsið borga allt
að fimmfalt meira. fyrir þjónustu sína
en eðlilegt getur talist og hefur þetta
verið gert lengi eða allt fá árinu 1983
samkvæmt heimildum DV.
-FRI
Fyrir Borgardómi Revkjavíkur
hefúr verið dæmt í athyglisverðu
prófmáli þar sem komist er að þeirri
niðurstöðu að húseigandi í fjölbýlis-
húsi beri ábyrgð á gjörðum leigjanda
síns ef af þeim leiðir tjón fyrir aðra
íbúa húsins.
Forsaga þessa máls er að eldur
varð laus í íbúð á 2. hæð hússins að
Hverfisgötu 34 í Reykjavík sem er
fjölbýiishús. Urðu miklar skemmdir
á nærliggjandi fbúðum og innan-
stokksmunum í þeim af völdum
vatns, sóts og reyks.
Stefhandi í málinu er eigandi íbúð-
ar á 3. hæð hússins. íbúðin skemmd-
ist töluvert. Hann fékk fasteignar-
tjónið bætt úr tryggingum en innbú
og fatnaður var ótryggt. Stefndu eru
annars vegar leigjandi íbúðarinnar
og hins vegar eigandi hennar. Full-
sannað er að leigjandinn kveikti í
íbúðinni með því að henda logandi
sígarettustubb í ruslafotu þar og
hlaut hann fjögurra mánaða fangels-
isdóm fyrir það í sakadómi Reykja-
víkur 20. desember í fyrra.
Stefnandi gerði þá kröfu fýrir
borgardómi að honum yrðu dæmdar
593.100 krónur í skaðabætur sem
sundurliðast í tjón á innbúi, vinnu
við hreinsun íhúðarinnar, afnota-
missi og leiguútgjöld auk miskabóta.
Af hálfu leigjandans var í upphafi
sótt þing í þessu máli en þingsókn
féll niður án þess að lögvamir kæmu
fram. Húseigandinn sem stefnt var
gerði þær kröfur að hún vrði alfarið
sýknuð af öllum kröfum og til vara
að kröfur stefnanda vrðu stórlega
lækkaðar og aðeins teknar til greina
að óverulegu leyti.
Forsendur
Eins og fram kemur i dómnum
snýst þetta mál um túlkun á ákvæð-
um 2. mgr. 12. gr. laga nr. 59/1976
um fjölbýlishús. í þeirri grein kemur
fram að íbúðareigandi sé ábyrgur
gagnvart sameigendum sínum á þvi
tjóni sem sameigendur verði fyrir
vegna óhapps í íbúð hans, svo sem
vegna bilunar í tækjum eða leiðslum
j forsendum dónisins segir m.a.:
„Orlausn máls þessa að þvi er
stefndu Svövu varðar veltur á þvi,
hvemig skýra ber hugtakið ,.óhapp“
í 2.mgr.. og þá einkanlega, hvort
framangreindur refsiverður verkn-
aður stefrida Rúnars teljist óhapp i
skilningi lagaákvæðisins."
Dómarinn Þorgeir Örlygsson
borgardómari kemst svo að þeirri
íúðurstöðu ,í dómi sínum að telja
verði eins og sakarefni er varið að
lögrök leiði ekki til þeirrar niður-
stöðu að undanskilja beri fi-á gildis-
sviði reglunnar það atferli stefnda
Rúnars sem olli tjóni stefhanda.
Siðan segir i forsendunum: „Því
verður. svo sem hér hagar til, að
telja hinn refsiverða verknað stefnda
Rúnars óhapp í skilningi 2. mgr. 12.
gr. og ber stefhda Svava því sem eig-
andi þeirrar íbúðar...ábyrgð á
gmndvelli títtnefncLs ákvæðis gagn-
vart stefnanda á tjóni hans af
völdum óhappsins.“
Dómsorð
í dómsorði segir að stefhdu beri
að greiða stefrianda alls 412.000
krónur auk vaxta og einnig beri
þeim að greiða málskostnað hans.
80.000 krónur. Ennfremur er í dóms-
orði staðfest löghald á eign stefndu
Svövu að Hverafold 126 í Reykjavík
til ttyggingar dómkröfu þessa máls.
-FRI
Sjukrahúsið í Keflavík:
Málið í rannsókn hjá fógeta
500 framhaldsskólanemar í
Um síðustu helgi voru afhent verð-
laun í fyrri umferð stærðfræðikeppni
framhaldsskólanema. Er þetta í þriðja
skipti sem haldin er slík keppni á veg-
um íslenska stærðfræðafélagsins og
Félags raungreinakennara í fram-
haldsskólum.
Að sögn Reynis Axelssonar, stærð-
fræðikennara við Háskóla íslands og
formanns dómnefndar, er keppnin að-
allega haldin til þess að auka áhuga
á greininni. Þeim sem fara í stærð-
fræði við háskólann fækkar óðum og
er nú skortur á stærðfræðingum. Að-
alástæðuna álítur hann vera þá
ímyndun nemenda, að því er hann
segir, að greinin bjóði ekki upp á neitt
nema kennslu eftir nám.
Ungt fólk er praktískt og telur að
kennsla borgi sig ekki. Staðreyndin
er hins vegar sú að nóg er að gera
fyrir stærðfræðinga í alls konar stjóm-
unarstörfum hjá fyrirtækjum. Fæstir
peirra sem útskrifast fara í kennslu,
segir Reynir.
- Ég held að krakkamir hafi afskap-
lega gaman af þessu og þeir segja að
þetta sé miklu skemmtilegra en stærð-
fræði í skólunum.
Þátttaka í keppninni var mjög mikil
og tóku yfir 500 nemendur þátt í fyrri
hlutanum. Fer keppnin ffarn í tveimur
hlutum, neðra stig er fyrir tvö fyrstu
námsárin í framhaldsskólum og efra
stig er fyrir tvö efstu námsárin. Tutt-
ugu efstu á hvom stigi fá verðlauna-
skjal. Af neðra stigi taka síðan 5 efstu
þátt í lokakeppni en 20 efstu af því
efra.
Lokakeppnin verður haldin í mars
og gert er ráð fyrir að fjórir efstu taki
síðan þátt í alþjóðlegri ólympíukeppni
sem haldin verður á Kúbu næsta sum-
ar. í mars verður einnig haldin norræn
ólympíukeppni á hverju Norðurland-
anna fyrir sig og má líta á hana sem
nokkurs konar forkeppni fyrir þá al-
þjóðlegu.
Þeir er komust í úrslit af neðra stigi
vom eftirtaldir nemendur: 1. Guðbjöm
F. Jónsson, MA, 2. Agni Ásgeirsson,
MR, 3. Halldór Ámason, MR, 4. Bragi
R. Jónsson, Fjölbrautaskólanum
Breiðholti, 5. Haukur K. Bragason,
Verslunai-skóla íslands.
í tuttugu efstu sætum á efra stigi
keppninnar vom éftirtaldir nemendur
sení allir komast í úrslit: 1. Geir Agn-
arsson, MR, 2. Sverrir Ö. Þorvaldsson,
MR, 3. Matthías Magnússon, MR, 4.
Kristján M. Arason, MR, 5. Guðmund-
ur Birgisson, MS, 6. Einar K. Friðriks-
son, MH, 7. Pétur L. Jónsson, MR, 8.
Davíð Aðalsteinsson, MK, 9. Sveinn
Valfells, MR, 10. Ömólfur E. Rögn-
valdsson, MH, 11. Tryggvi'Egilsson,
MA, 12. Björn Þorsteinsson, MH, 13.
Ari K. Jónsson, MR, 14. Jón H. Elías-
son, MK, 15. Árni Loftsson, MH, 16.
Guðmundur Magnússon, MA, 17.
Magnús R. Guðmundsson, MR, 18.
Páll Eyjólfsson, MR, 19. Gunnar
Hansson, MH, 20. Kjartan Guðmunds-
son, MR.
-IBS
stærðfræðikeppni
Geir Agnarsson, nemandi i Menntaskólanum í Reykjavik, varð í l.sæti á
efra stigi í fyrri hluta stærðfræðikeppni framhaldsskólanema. Hann er hér
með verðiaunaskjal þvi staðfestu. Á myndinni má og sjá aðra keppendur.
DV-mynd BG
HLJSA
SMIOJAN
S'IÐARVOGI 3—5,104 REYKJAVÍK - SlMI 687700
PIPULAGNINGA*
VÖRUR
Er komið að pípulögninni í þínu húsi? Þarftu
að leggja nýlagnir eða endurnýja hluta af
gömlu? Við getum hjálpað. Komdu með teikn-
ingarnar að lögninni og við gerum þér tilboð.
Rör og tengi, blöndunartæki og baðsett, það
fæst allt hjá okkur.
HÚSASMIÐJAN — fær allt til að renna.
ORKIN/SlA