Dagblaðið Vísir - DV - 21.11.1986, Blaðsíða 8
8
FÖSTUDAGUR 21. NÓVEMBER 1986.
hársnyrtivörur frá
Hárgreiðslustofa
Grétu Sigurðar,
Aðalg. 2, Stykkishólmi.
DEEZOL
dísilhvati
MIXIGO
bensinhvatí.
Ódýr vöm gegn vetri. Minnkar við-
hald og sparar peninga. Hreinsar
vél og eykur vélarafl. Oregur úr
mengun.
Fæst hjá:
ESSO
stöðvunum á Akureyri.
Kaldsólun hf.
Dugguvogi 2 Sími: 84111
Hringið og Pantið Tíma.
UÚönd
Samstarfsmaður Reagans og ritstjóri US News and Worid Report:
„Það er eitthvað
að í Hvíta húsinu“
Segir Bandarikjaforseta ekki hafa verið sjátfum sér líkan undanfama tvo mánuði
HaDdór Valdimarssan, DV, Dallas:
Skoðanakannanir í Bandaríkjun-
um í gær sýna að áttatíu og tvö
prósent Bandaríkjamanna telja að
rangt hafi verið að selja írönum
vopn, jafnvel þó slíkt gæti aukið
möguleika á því að Bandaríkjamenn
sem eru í gíslingu í Miðausturlönd-
um fáist látnir lausir.
Meira en helmingur bandarísku
þjóðarinnar telur jafnframt að að-
gerðir Reagans forseta hafi í raun
verið bein skipti á vopnum og gíslum
þótt forsetinn tilkynni að engin
tengsl hafi verið á milli þessara
tveggja atburða.
Viðbrögð fjölmiðla í Bandaríkjun-
um við tilsvörum Bandaríkjaforseta
á fréttamannafundi hans á miðviku-
dagskvöldið voru svipuð viðbrögð-
um almennings.
Skortur á trausti
Af forystugreinum og öðrum skrifum
í dagblöðum í gær mátti greinilega
ráða að fréttamenn trúa forsetanum
ekki lengur.
Mörg dagblöð fullyrða í forystu-
greinum sínum í dag og í gær að
bandaríska ríkisstjómin njóti ekki
lengur trausts, hvorki innanlands
né utan og forsetinn hafi á miðviku-
dagskvöld reynt án árangurs að
endurbyggja traust sitt og ríkis-
stjómarinnar en hafi þess í stað
verið ímynd áttavillts og þrjósks
leiðtoga ríkisstjómar er ekki ætti sér
samhangandi stefnu í utanríkismál-
um lengur.
Segja má að reiði bandarísku þjóð-
arinnar endurspeglist í orðum eins
leiðarahöfundar þar sem hann segir:
„Khomeini vissi af þessu og þeir sem
braska með vopna á svarta markað-
inum vissu af þessu en bandaríska
þingið og bandaríska þjóðin fengu
ekkert að vita.“
Gagnrýni þingmanna bandaríska
þingsins á Reagan vegna franmáls-
ins færðist heldur í aukana í gær.
Demókratinn Sam Nunn sagði í
sjónvarpsviðtali í gær að hann skildi
ekki hvers vegna Reagan gæti ekki
einfaldlega viðurkennt að honum
hefðu orðið á mistök og svo haldið
áfram eðlilegri stjóm landsins.
Ein af bitmstu athugasemdum
dagsins kom hins vegar frá Richard
Luger þingmanni sem sagðist telja
líklegt að forsetinn hreinlega skildi
ekki lög þau sem lúta að skyldum
hans til að skýra þingleiðtogum frá
þeim aðgerum er hann hyggst grípa
til.
í gærkvöldi var rætt í sjónvarpi
við David Gergen, ritstjóra tímarits-
ins US News and World Report, en
hann var á árabilinu 1981 til 1983
meðal nánustu samstarfsmanna Re-
agans.
Reagan að missa tökin?
Gergen kvað frammistöðu forsetans
á fféttamannafundinum á miðviku-
dag hafa komið sér verulega á óvart
því forsetinn hefði þar ekki virst trúa
því sjálfur sem hann var að halda
fram.
Gergen sagðist óttast að Reagan
væri að missa tökin á stjóm landsins
og ef til vill ættu Bandaríkjamenn
að búa sig undir meira þrátefli í þeim
efrium næstu tvö árin en búist hefði
verið við fram að þessu.
„Það er eitthvað að í Hvíta hús-
inu, ég veit ekki hvað, en það er
eitthvað að,“ sagði Gergen sem telur
Reagan forseta ekki hafa verið sjálf-
um sér líkan síðustu tvo mánuði.
Þess ber svo að geta að í frétta-
skýringarþætti í bandaríska sjón-
varpinu í gærkvöld kom ffarn einn
þingmaður, repúblikaninn Ted Ste-
vens frá Alaska, er lýsti yfir stuðn-
ingi við Reagan í máli þessu og sagði
forsetanum ekki hafa orðið á nein
mistök. Verður ekki annað sagt en
að rödd hans hafi verið hálf ein-
manaleg-í öllu gagnrýniflóðinu.
Holmer sakar stjómmálamenn
um afskiptasemi af Palme-rannsókn
Árangursleysi lögreglunnar farið að fara í taugar sænskra stjórnmálamanna
Gunrúaiigur A. Jónsson, DV, Lundi:
„Ég held að betur færi á því að Hans
Holmer einbeitti sér að rannsókn
Palme-morðsins í stað þess að skrifa
greinar í blöð og veita bandarískum
tímaritum viðtöl," sagði Lars Tobyson,
varaformaður sænska íhaldsflokksins
í gær.
Hann var einn af stjómmálamönn-
um er komu ffam á sænska sjónvarp-
inu í gærkvöldi og gagnrýndu Hans
Holmer lögreglustjóra.
Tilefnið var að Holmer, er stjómar
leitinni að morðingja Olofs Palme,
hafði skrifað langa grein í dagblaðið
Expressen í gær þar sem hann meðal
annars sakaði stjómmálamenn um
afskiptasemi af rannsókninni.
„Ef okkur tekst ekki að leysa morð-
ið, þá getur það enginn annar heldur,
hvorki lögfræðinefndir né stjómmála-
menn fá þar nokkru breytt“ skrifaði
Holmer meðal annars.
Greinilegt er að árangursleysi lög-
reglunnar er farið að fara í taugamar
í mörgum. Einn þingmanna, er sænska
sjónvaipið ræddi við í gærkvöldi, sagði
að augljóst væri að Holmer þyrfti
meiri svefn og dagblöð em tekin að
skrifa um gífurlegan kostnað morð-
rannsóknarinnar og að rannsóknin
hafi meðal annars óbeint leitt til þess
að meira sé nú af eiturlyfjum og fíkni-
efnum í umferð í Stokkhólmi en
nokkru sinni áður vegna þess að lög-
reglan hafi ekki haft mannafla til að
sinna slíkum málum. Rannsókn
Palme-morðsins hafi verið látin ganga
fyrir öllu öðm.
Ingvar Carlsson forsætisráðherra
sagði í gærkvöldi að ásakanir Holmers
um óþarfa afskiptasemi stjómmála-
manna ættu ekki við rök að styðjast.
Holmer hefur áður kvartað undan því
er hann sagði vera gagnrýni forsætis-
ráðherrans.
Þrátt fyrir að vissa örvæntingu megi
lesa úr út hinni löngu blaðagrein
Holmers í Expressen í gær, segist hann
þó enn trúa því að hann muni að lok-
um hafa hendur í hári morðingjans.
„Stundum finnst mér freistandi að
taka blaðið frá munninum og skýra
frá því á hverju bjartsýni mín byggist.
En ég mun halda aftur af mér enn um
hríð,“ skrifar Holmer.
Hans Holmer, lögreglustjóri í Stokk-
hólmi, gagnrýndi afskipti stjórn-
málamanna af rannsókn Palme-
morðsins í grein í Expressen í gær.
Jólagjafahandbók DV
VERSLANIR!
Hin sívinsæla og myndarlega
j ólagj afahandbólc
kemur út 4. desember nk. Þeir auglýsendur, sem áhuga hafa á aö auglýsa
JÓLAGJAFAHANDBÓKINNI, vinsamlegast hafi samband við
auglýsingadeild
Þverholti 11, eða í síma 27022,
kl. 9-17 virka daga
í síðasta lagi föstudaginn 21. nóv.