Dagblaðið Vísir - DV - 21.11.1986, Qupperneq 17
FÖSTUDAGUR 21. NÓVEMBER 1986.
17
FJöimiðlarisi á
upptýsingaöid
Reuters-
ftéttasjtofan
BjornThoroddsen
gitarteikari
nafnVíkunnar
Lifandi iík
frarohaíd&sagan
Róttæknin
Aunundur
Stefansson
forsetiASÍ
iVikuviðtalimi
Hómerskviða
Lesendur
HRINGIÐ
r
I
SÍMA
27022
MILLI
KLUKKAN
13 OG 15
EÐA SKRFIÐ
„Gott er að hvaladráp annarra fer fram djúpt i hafi!“
Jóiadagatal í
handavinnu-
þættinum.
ER BLAÐIÐ FYRIR ALLA
Það er mun-
ur að vera
ráðherra
á íslandi
Guðmundur Sigurðsson skrifar:
Um fátt er nú meira skrifað en Haf-
skips-hneykslið sem enginn virðist
bera ábyrgð á. Það er víst kallað slys.
Ekki var á þetta bætandi, sú dæma-
lausa veisla hinna ágætu manna, sem
áttu að sjá um að auramir sem bæði
ég og þú gáfum færu til hungraðra og
klæðlausra bama, en fóm svona í hitt
og þetta í staðinn fyrir að komast til
skila í sveltandi Afríku. Kirkjunnar
menn brosa en við bítum á jaxlinn og
heitum því að láta ekki gabba okkur
aftur. Mál til komið að fólk fari að
gá að sér þegar komið er með aura-
bauka á heimilin eða sendir gíróseðlar
í pósti, með geislabaug.
Breskur ráðherra mátti segja af sér
vegna þess að hann hafði gaukað aur-
um að vændiskonu. Danskur ráðherra
var látinn fjúka en hann laumaði
hálfri rauðvínsflösku í frakkavasann
eftir opinbera veislu. íslenskir ráð-
herrar þurfa ekki að óttast þessa hluti,
þeir þurfa aldrei að segja af sér, flokk-
urinn sér um það og svo samtrygging-
in. Já, það er munur að vera ráðherra
á íslandi og komast upp með nánast
hvað sem er. Fólkið getur ekkert gert
og flokkurinn stendur sko með sínum
mönnum, heldur vemdarhendi yfir
sukki og fláræði og fólkið gleymir
þessu í næstu kosningum. Já, það er
gott að vera íslendingur, að minnsta
kosti íslenskur athafnamaður eða
pólitíkus.
Nú er ljós afraksturinn af vísinda-
veiðunum svokölluðu, á máli þeirra
er vilja fóma miklum hagsmunum fyr-
ir lítið. Þar gildir Miklagarðskenning-
in „mikið fyrir lítið“. Það er erfitt að
átta sig á því hver fer með rétt og
hver fer með rangt í þessu leiðinda
hvalamáli en eitt er víst að við höfum
orðið fyrir miklum álitshnekki. Blóð-
bað við fjöruna í Færeyjum er eignað
okkur Islendingum og bandaríska
þjóðin fyllist hryllingi. Er einhver
undrandi á því? Aðrar eins aðfarir og
það, er þar kom fram, er til þess eins
að vekja viðbjóð á þessum frummönn-
um sem sveifla sveðjum og öskra í
blóði lituðum sjó þar sem vamarlaus
dýrin berjast um og reyna að halda
lífi. Gott er að hvaladráp annarra fer
fram djúpt í hafi. Ættum við íslending-
ar ekki að skoða hug okkar vel í þessu
máli sem og öðrum. Við verðum stund-
um að láta undan almenningsáliti
heimsins, almenningsálitið stóð með
okkur í þorskastríðinu en nú erum við
berir að hlutum sem við getum illa
varið fyrir hinu grimma áliti um-
heimsins.
„Róttæknin
í blóðinu"
REUTER - fjölmiðlarisi á upp-
lýsingaöld.
Ein af stærstu fréttastofnunum
heims er Reutersfréttastofan. It-
arleg grein um þetta risafyrir-
tæki.
segir Ásmundur Stefánsson, forseti
ASÍ, í Vikuviðtalinu. Ásmundur
ræðir m.a. um verkalýðsbaráttuna,
kjarasamningana, forval Alþýðu-
bandalagsins sem er á næsta leiti,
samskipti hans við Svavar Gestsson
og nýtt stjórnarmynstur.
Einelti - Ofbeldi.
Að börn séu lögð I einelti af
skólafélögum er vandamál sem
kemur upp í öllum skólum í
meira eða mi.nna mæli.
Hvað er það sem veldur því að
sum börn frekar en önnur verða
fórnarlömb þessa miskunnar-
lausa leiks?
- *
Trója. Sögusvið Hómerskviða.
Þetta er aðeins brot af fjölbreyttu efni nýju
VIKUNNAR.