Dagblaðið Vísir - DV - 05.12.1986, Blaðsíða 2

Dagblaðið Vísir - DV - 05.12.1986, Blaðsíða 2
2 FÖSTUDAGUR 5. DESEMBER 1986. Fréttir Bamaspítali Hríngsins lamaður vegna skorts á starfsfólki: Börnin send heim á kvöldin og um helgar „Það sem mér finnst mjög alvar- legt við þetta er að böm, sem þurfa stærri aðgerðir, em ennþá á biðlista. Það er ekki plóss íyrir stærri aðgerð- ir, aðrar en bráðatilfelli." Þetta sagði Sólfríður Guðmunds- dóttir, hjúkrunarframkvæmdastjóri á Bamaspítala Hringsins, bama- deild Landspítaians, er DV ræddi við hana um breyttan rekstur vegna skorts á hjúkrunarfræðingum. Legudeild á efri hæð Bamaspítal- ans, með 26 sjúkrarúmum, þar sem böm gátu áður legið allan sólar- hringinn, var breytt í september í svokallaða dagdeild, með 8 rúmum, og fimmdagadeild, með 12 rúmum. Ástæðan er sú að ekki tekst að fá nægilegan íjölda hjúkrunarfræðinga til að manna vaktir allan sólarhring- inn. Af þrettán stöðum hjúkrunar- fræðinga, sem heimild er fyrir, em aðeins átta setnar. Bömin em þess vegna send heim á kvöldin og um helgar. Bömin fara heim af dagdeildinni klukkan hálf- fjögur síðdegis og koma aftur næsta morgun klukkan hálfátta. Fimm- dagadeildin er lokuð um helgar. Þær stærri aðgerðir sem bíða em einkum nýmaaðgerðir og beinaað- gerðir. „Öll bráðatilfelli em afgreidd á neðri hæðinni," sagði Sólfríður. Neðri hæðin, með 27 sjúkrarúm- um, er íúllmönnuð þrettán hjúk- mnarfræðingum. „Við reynum alltaf að tryggja ör- yggi bamsins. Ef læknir telur að hætta sé á ferðum leggur hann bam- ið inn sem bráðatilfelli. En það er alveg óskaplega mikið álag á hjúkrunarfólki á neðri hæð- inni. Það er bara tímaspursmál hvenær fólk segir hingað og ekki lengra. Við gerðum þessa breytingu í sept- ember til þriggja mánaða, til 19. desember. Efri hæðin verður lokuð yfir jól og áramót. Við erum reyna að vinna að því hörðum höndum að geta opnað efri hæðina sem legu- deild eftir áramót. Ég er í því alla daga að reyna að hringja í hjúkmna- rfræðinga. Við höfum misst margt gott fólk, sem við vorum búin að þjálfa, en það lætur ekki bjóða sér svona mikið álag fyrir svo lítil laun. En ég er samt bjartsýn á að það takist að opna efri hæðina aftur sem legudeild um miðjan janúar," sagði Sólfríður. -KMU Skúli hættir hjáVon Skúli Thoroddsen, framkvæmda- stjóri Líknarfélagsins Vonar, hefúr sagt upp störfúm. Samkvæmt heimildum DV má rekja uppsögn- ina til ágreinings sem risið hefur vegna yfirtöku sjúkrastöðvarinnar Vonar á líknarfélaginu. „Ég vil ekki ræða þesi mál í íjöl- miðlum en ég hef ýmsar ástæður fyrir uppsögn minni,“ sagði Skúli í samtali við DV. Hann var þá nýkominn frá Færeyjum þar sem hann var viðstaddur opnun fyrstu afvötnunarstöðvarinnar í Færeyj- vun. Nefhist hún Velbastað og er rekin af félagsskap er nefhist Heil- brigði. Skúli Thoroddsen hefúr verið framkvæmdastjóri hjá Von frá ár- inu 1984. -EIR Jólin nálgast nú óðfluga og jólatré eru að koma á markaðinn, bæði innlend og erlend. Þessi tré, sem komu í gær, eru höggvin í Haukadal en verið er að afferma bílinn á starfssvæði landgræðslunnar í Fossvogi. DV mynd S Hver gengur þarna niður Ingólfsstræti svona kampakátur? Jú, þaö er enginn annar en Kristján stórsöngvari Jóhannsson með nýju hljómplöt- una sína. Hún kom út í gær og inniheldur margar af helstu perlum íslenskra söngbókmennta, með undirspili Konunglegu sinfóniunnar í Lundúnum. DV-mynd Brynjar Fasteignamatið hækkaði 1. desember: Kassamir hækkuðu mest á Austuriandi 1 fasteignamati, sem tók gildi um síðustu mánaðamót, varð mismikil meðalhækkun á fasteignum milli landshluta. Þannig varð hækkunin mest á Austurlandi, 30,9%, en minnst á Suðurlandi, 22,7%. í Reykjavík varð meðalhækkunin 26,1%, á Reykjanesi 29,7%, á Vesturl- andi 30,5% og á Norðurlandi 24,1%. Meðaltalshækkun á öllu landinu varð 26,8%. Alls eru fasteignir á landinu metnar á 309.947 milljónir króna. End- urstofiiverð þeirra er metið miklu hærra, 416.086 milljónir. í þessu nýja fasteignamati eru 195.584 eignir, þar af 85.897 íbúðir. Samanlagt rúmmál mannvirkja er 72.418 rúmmetrar. Þá er getið heildar- stærðar ræktunar sem er 138.573 hektarar. HERB Lufthansa komið með íslandsflug á áætlun sína Þýska flugfélagið Lufthansa lýsti fyrr á þessu ári yfir áhuga á að hefja áætlunarflug milli Þýskalands og Is- lands. Að því er Magnús Oddsson, markaðsstjóri Amarflugs, tjáði DV er áætlunarflug til íslands komið inn á bráðabirgðaflugáætlun Lufthansa og er fyrsta ferðin fyrirhuguð síðustu vik- una í maí í vor. Samtímis þessu er mikill áhugi f Þýskalandi fyrir ferðum hingað til lands. Þýsk ferðaskrifstofa hefúr leitað til Amarflugs hf. um tilboð í leiguflug milli Þýskalands og Islands. Þá hafa fleiri þýskar ferðaskrifstofúr verið að kanna íslandsferðir og em þær með f huga leiguflug á vegum þýskra flugfé- laga eða í áætlunarflugi Lufthansa. -S.dór Sendibflar hf. á Vitatorg: Stofna nýtt bílstjórafélag „Það er búið að stofna Félag frjálsra atvinnubílstjóra," sagði Sigurður Siguijónsson, stjómar- formaður Sendibíla hf., í morgun. „Öllum atvinnubílstjórum er fijálst að ganga í það en núna em í því eingöngu bílstjórar hjá okk- ur. Ýmsir em óánægðir með gang mála hjá Trausta, félagi sendibíl- stjóra, en nýja félaginu er ekki stefht gegn Trausta og sumir okkar em félagar þar áfram, þar á meðal ég.“ Sigurður staðfesti einnig að Sendibílar hf. hefðu nú keypt bens- ínsöluna á Vitatorgi. „Við höfum beðið eftir lóð í Ártúnsbrekkunni síðan í apríl og það hefúr verið óvíst hvort við getum verið áfram á Steindórsplaninu. Við urðum þess vegna að tryggja okkur sama- stað frá áramótum þangað til við komumst í Ártúnsbrekkuna. Þar vantar alla aðstöðu og tekur sinn tíma að koma henni upp.“ Upphaflega vora Sendibflar hf. reknir með Bifreiðastöð Steindórs, eftir að starfsemi þeirrar stöðvar lenti úti í kuldanum. Sigurður var seinasti leigubflstjóri stöðvarinn- ar. Hann var sviptur atvinnuleyfi og stendur nú í málaferlum um að endurheimta það. Á meðan ekur hann sendibíl. HERB Iðnþróunarsjóðun Iðnlána- voxtum hnikað til Hjá Iðnþróunarsjóði hafa menn hnikað til vöxtum á lánum í er- lendum myntum. Það er gert í samræmi við vaxtabreytingar á erlendum fyármagnsmörkuðum, að sögn. Þannig lækka vextir á doll- aralánum og lánum í vestur-þýsk- um mörkum en hækka á lánum í sterlingspundum. Vextir á dollaralánum lækkuðu úr 9% í 8,25% og á lánum í mörk- um úr 7% í 6,5%- Vextir á lánum í pundum hækka hins vegar úr 12% í 12,5%. Til samanburðar er að hjá bönkunum em hæstu vextir á afurðalánum í dollurum 7,75%, í mörkum 6,5% og í pundum 13%. í tilkynningu frá Iðnþróunar- sjóði er vakin athygli á því að í kjölfar breyttra laga hafi verið ákveðið að rýmka verksvið og útl- ánareglur sjóðsins. Honum er nú heimilt að táka meiri áhættu í lán- veitingum en áður gegn álagi á almenna vexti. HERB

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.