Dagblaðið Vísir - DV - 05.12.1986, Side 3

Dagblaðið Vísir - DV - 05.12.1986, Side 3
FÖSTUDAGUR 5. DESEMBER 1986. 3 GUÐRÚN HELGADÓTTIR • SAMAN í HRING Lóa-Lóa horfir forvitin á heiminn — með einu bláu auga og ööru brúnu! Það er líka oft erfitt að skilja þetta fullorðna fólk. Sagan segir frá henni og öllum hinum krökkunum á heimilinu, uppátækjum og áhyggjum, gleöi og sorg. Reynslu þeirra og upplifun af umhverfi og furöuheimi mannlífsins er hér lýst á næman og gamansaman hátt. Sigrún Eldjárn gerði myndirnar. ULF STARK • EIN AF STRÁKUNUM Þegar Simone skiptir um skóla kemst hún að þvi að einhver hefur gert smámistök, sem hún treystir sér ekki til að leið- rétta. Þess vegna breytist hún alveg óvart i töffarann Símon! Þetta er bók um vináttu og fjandskap, gleði og sorg, um það hvernig hlutverkaskipti geta oröiö til þess aö maöur skilji lífið ögn betur. Bókin hlaut barnabókaverðlaun Bonniers árið 1984. Njöróur P. Njarðvík þýddi. HELGA ÁGÚSTSDÓTTIR • EF ÞÚ BARA VISSIR Það er ekki sérstaklega gaman að eiga foreldra sem eru timaskekkja og lltið fjör þegar vinirnir eru byrjaðir með ein- hverjum og hafa engan tíma lengur. — Æfli það auöveldi ekki tilveruna að fara I vinnu til Mallorca? — Lendir maður þá I tómri vitleysu eða er kannski betra að búa hjá Spán- verjunum? — Söguhetjan stígur aftur fótum á gamla föður- landið eftir viöburöarikt sumar við Miðjarðarhaf, sumar sem fór öðruvlsi en nokkurn óraði fyrir. BO GREEN JENSEN • SUMARDANSINN SUMARDANSINN er saga af tveimur 16 ára strákum, sem eru nánir vinir, þótt þeir séu mjög ólikir. Kvöld eitt I sumar- byrjun verða þáttaskil i llfi þeirra, þegar þeir hitta Lfsu, sæta og spennandi stelpu. Þau þrjú ákveða að eyöa saman sumarfrlinu og fara f útilegu. Ekki llður á löngu þar til samband þeirra þriggja tekur óvæntum breytingum, og sumardansinn dunar, en honum lýkur skyndilega þegar örlagarikir atburðir taka að gerast. Hildur Finnsdóttir þýddi. AUÐUR HARALDS • ELÍAS, MAGGA OG RÆNINGJARNIR Ellas er galvaskur. Fjölskyldan freistar gæfunnar általlu, en eitt og annað vefst nú fyrir þeim. Er það nokkur furða með eitt stykki Möggu móðursystur í farteskinu. Og ekki gerir karlinn hann Misja hlutina einfaldari. — En foreldrum Eliasar hundleiðist. Þau taka upp á að gera ógurlega vitleysu, sem Ellas heldur að hann neyðist til að leysa úr fyrir þau. Og það getur tekið hann tuttugu ár. „ELÍAS Á FULLRI FERГ — Elias lætur aidrei deigan siga. Endurútgáfa. TÓMSTUNDABÆKUR IÐUNNAR: • LEIKIR OG GRÍN, ÞRAUTIR OG GALDRAR Tvær bækur sem gott er að draga fram I góðum félags- skap. I LEIKI OG GRÍN hefur verið safnað saman fjölda leikja við alira hæfi. En ÞRAUTIR OG GALDRAR innihalda ýmsar brellur og brögð og skyggnst er inn í leyndardóma hins fullkomna töframanns. Sigurður Bjarnason jjýddi.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.