Dagblaðið Vísir - DV - 05.12.1986, Blaðsíða 3
FÖSTUDAGUR 5. DESEMBER 1986.
3
GUÐRÚN HELGADÓTTIR
• SAMAN í HRING
Lóa-Lóa horfir forvitin á heiminn — með einu bláu auga og
ööru brúnu! Það er líka oft erfitt að skilja þetta fullorðna
fólk. Sagan segir frá henni og öllum hinum krökkunum á
heimilinu, uppátækjum og áhyggjum, gleöi og sorg.
Reynslu þeirra og upplifun af umhverfi og furöuheimi
mannlífsins er hér lýst á næman og gamansaman hátt.
Sigrún Eldjárn gerði myndirnar.
ULF STARK
• EIN AF STRÁKUNUM
Þegar Simone skiptir um skóla kemst hún að þvi að einhver
hefur gert smámistök, sem hún treystir sér ekki til að leið-
rétta. Þess vegna breytist hún alveg óvart i töffarann
Símon! Þetta er bók um vináttu og fjandskap, gleði og
sorg, um það hvernig hlutverkaskipti geta oröiö til þess aö
maöur skilji lífið ögn betur. Bókin hlaut barnabókaverðlaun
Bonniers árið 1984. Njöróur P. Njarðvík þýddi.
HELGA ÁGÚSTSDÓTTIR
• EF ÞÚ BARA VISSIR
Það er ekki sérstaklega gaman að eiga foreldra sem eru
timaskekkja og lltið fjör þegar vinirnir eru byrjaðir með ein-
hverjum og hafa engan tíma lengur. — Æfli það auöveldi
ekki tilveruna að fara I vinnu til Mallorca? — Lendir maður
þá I tómri vitleysu eða er kannski betra að búa hjá Spán-
verjunum? — Söguhetjan stígur aftur fótum á gamla föður-
landið eftir viöburöarikt sumar við Miðjarðarhaf, sumar
sem fór öðruvlsi en nokkurn óraði fyrir.
BO GREEN JENSEN
• SUMARDANSINN
SUMARDANSINN er saga af tveimur 16 ára strákum, sem
eru nánir vinir, þótt þeir séu mjög ólikir. Kvöld eitt I sumar-
byrjun verða þáttaskil i llfi þeirra, þegar þeir hitta Lfsu,
sæta og spennandi stelpu. Þau þrjú ákveða að eyöa
saman sumarfrlinu og fara f útilegu. Ekki llður á löngu þar
til samband þeirra þriggja tekur óvæntum breytingum, og
sumardansinn dunar, en honum lýkur skyndilega þegar
örlagarikir atburðir taka að gerast. Hildur Finnsdóttir
þýddi.
AUÐUR HARALDS
• ELÍAS, MAGGA OG RÆNINGJARNIR
Ellas er galvaskur. Fjölskyldan freistar gæfunnar általlu, en
eitt og annað vefst nú fyrir þeim. Er það nokkur furða með
eitt stykki Möggu móðursystur í farteskinu. Og ekki gerir
karlinn hann Misja hlutina einfaldari. — En foreldrum Eliasar
hundleiðist. Þau taka upp á að gera ógurlega vitleysu, sem
Ellas heldur að hann neyðist til að leysa úr fyrir þau. Og það
getur tekið hann tuttugu ár. „ELÍAS Á FULLRI FERГ —
Elias lætur aidrei deigan siga. Endurútgáfa.
TÓMSTUNDABÆKUR IÐUNNAR:
• LEIKIR OG GRÍN, ÞRAUTIR OG GALDRAR
Tvær bækur sem gott er að draga fram I góðum félags-
skap. I LEIKI OG GRÍN hefur verið safnað saman fjölda
leikja við alira hæfi. En ÞRAUTIR OG GALDRAR innihalda
ýmsar brellur og brögð og skyggnst er inn í leyndardóma
hins fullkomna töframanns. Sigurður Bjarnason jjýddi.