Dagblaðið Vísir - DV - 05.12.1986, Side 4

Dagblaðið Vísir - DV - 05.12.1986, Side 4
4 FÖSTUDAGUR 5. DESEMBER 1986. Sljómmál ísegg að kaupa eggja- deild Holtabúsins kvóti settur á eggjaframleiðsluna - þetta var fullyrt á Alþingi í gær „ísegg hefur uppfyllt þau skilyrði sem framleiðnisjóður setti fyrir því að ábyrgjast lán upp á 60-70 milljón- ir króna í því augnamiði að kaupa eggjadeild Holtabúsins. Stjóm fram- leiðnisjóðs hefur í dag sent land- búnaðarráðherra tillögur sínar í þessu efni en ég vil ekki skýra frá hvers eðlis þær eru. Það verður ráð- herra að gera sjálfur," sagði Jóhann- es Torfason, formaður stjómar framleiðnisjóðs landbúnaðarins, í gær. 1 utandagskrárumræðu, sem Karl Steinar Guðnason hóf í gær um þetta mál, fullyrti hann og hafði eftir Há- koni Sigurgrímssyni, hjá Stéttar- sambandi bænda, á fundi með sauðfjárbændum, að búið væri að afgreiða þetta mál. Sagði Karl að jafnframt hefði verið ákveðið að setja kvótakerfi á eggjaframleiðsl- una sem myndi færa íseggi einokun á markaðnum og fyrir lægi að verð á eggjum myndi stórhækka þegar smáframleiðendur gefast upp og hætta. Varaði Karl Steinar land- búnaðarráðherra við og sagði kvóta í eggjaframleiðslu myndi hleypa illu blóði í samningaviðrasður ASÍ, VSf og VMS Jón Helgason landbúnaðarráð- herra svaraði og sagði að hann væri hlynntur því að koma á stjómun við eggjaframleiðsluna. Það myndi gera hana hagkvæmari að öllu leyti. Benti hann á hvað útgerðarkostnað- ur hefði minnkað við kvótakerfið í fiskveiðunum. Hann sagðist myndi skoða umsóknir sem sér bærust þessu varðandi. Sagðist Jón sem landbúnaðarráðherra hafa heimild til að ákveða það einn hvort kvóti yrði settur á. Hann sagðist þó myndi ræða það mál við sjálfstæðismenn í ríkisstjóminni. Jón Helgason vék sér undan því að svara tíðindamanni D V hvort ósk um kvóta í eggjaframleiðslunni hefði borist ráðuneytinu. Sagðist hann ekki vita það og hann myndi nú fara og athuga þessi mál. -S.dór Gömlu refirnir aö vestan, sjálfstæðismennirnir Þorvaidur Garðar Kristjánsson og Matthías Bjarnason, gegna báðir áhrifamiklum embæitum í tslenskum stjórnmálum, Þorvaldur Garðar sem forseti sameinaðs Alþingis og Matthias sem ráðherra. DV-mynd GVA. Kjúklingaframleiðslan: Ekki kvóti á naestunni - Bjami Æ Jónsson að hætta við kaupin á kjúklingadeild Holtabúsins „Það em engar líkur á að settur Hann sagðist hafa skoðað það mál verði kvóti á kjúkhngaframleiðsl- vel en allar líkur væm á þvi að una á næstunni. Þetta er mjög hann hætti við kaupin. Sagði viðkvæmt mál pólitískt og ég hef Bjami að verðið væri mjög hátt ekki trú á að það verði reynt fyrir og fleira kæmi til sem ylli því að kosningar. Málið er mjög umdeilt hann væri að hætta við. meðal kjúklingaframleiðenda og Kjúklingadeild Holtabúsins er okkur í stjóm Félags kjúklinga- stór og sagði Bjarni að það væri framleiðenda var falið að fjalla um ekki fyrir hvem sem er að kaupa kvótamálið. Við höfum gert það hana og sagðist hann ekki vita en engin ákvörðun hefur verið tek- hvert framhaldið yrði. in,“ sagði Bjami Ásgeir Jónsson, Varðandi kjúklingaframleiðsl- einn af stærstu kjúklingaframleið- una í landinu sagði Bjami að endumlandsins,ísamtali viðDV. framleiðslugetan væri um 2.300 Bjami Ásgeir hefur verið í við- tonn, framleiðslan um 2.000 tonn ræðum við eigendur Holtabúsins og salan um 1800 tonn á ári. um að kaupa kjúklingadeild þess. -S.dór Pétur Bjamason helsti keppinautur Ólafs Þ. - í skoðanakónnun Framsóknaiflokks á Vestfiörðum Pétur Bjamason, fræðslustjóri Vestfjarðaumdæmis, er talinn sá frambjóðandi sem helst ógnar Ólafi Þ. Þórðarsyni alþingismanni í keppni um fyrsta sæti framboðslista Framsóknarílokksins á Vestfjörð- um. Skoðanakönnun um skipan fjög- urra efstu sæta listans fer fram um helgina. Ellefu manns gefa kost á sér. Framsóknarflokkurinn á nú tvo þingmenn í kjördæminu, Steingrím Hermannsson forsætisráðherra og Ólaf Þ. Þórðarson. Steingrímur er að flyfja sig yfir í Reykjaneskjör- dæmi, eins og alkunna er, og hefur, eftir því sem best er vitað, ekki haft nein afskipti af baráttunni fyrir vest- an. Fjórir í baráttunni um efsta sæti Með nýjum kosningalögum þykir ólíklegt að Framsóknarflokkurinn haldi báðum þingsætum sínum í kjördæminu. Fyrsta sætið er því brennipunkturinn. Auk Ólafs og Péturs þykja þeir Gunnlaugur Finnsson, kaupfélags- stjóri á Flateyri, og fyrrverandi alþingismaður, og Jón Gústi Jóns- son, bóndi í Steindal á Ströndum, Ólafur Þ. Þórðarson berst fyrir end- urkjöri. líklegir til að fá mörg atkvæði í fyrsta sæti. Ólafur, sem komst á þing eftir að Fréttaljós Kristján Már Unnarsson hafa fellt Gunnlaug árið 1979, er umdeildur og hefur þótt rekast illa í flokki. Hann hefur fengið á sig orð fyrir að vera eiiin harðasti talsmaður svokallaðrar byggðastefriu, meðal annars með því að flytja stjómar- skrárfrumvarp Samtaka um jafiirétti milli landshluta. Þá hefur hann ekki leynt andstöðu sinni við fiskveiði- stefiiu Halldórs Ásgrímssonar. Verður ekki sagt að staða hans sé veik á Vestfjörðum. Pétur Bjamason þykir hafa rifið upp fræðsluskrifstofuna á ísafirði. Er hann vel látinn meðal Vestfirð- inga. Ef einhver fellir ólaf Þ. Þórðarson er almennt talið að það verði Pétur. Gunnlaugur Finnsson frá Hvilft nýtur afgerandi stuðnings ffarn- sóknarmanna í Önundarfirði. Stemmning fyrir honum í öðrum byggðum fjórðungsins virðist ekki vera eins mikil og tæpast nægileg til að koma honum í efsta sæti. Gunnlaugur Finnsson reynir að komast inn i stjómmálin á ný. Jón Gústi Jónsson hefur verið frammámaður Strandamanna í fé- lagsmálum. Nýtur hann mikils fylgis í Strandasýslu og Austur-Barða- strandarsýslu en er minna þekktur í Isaijarðarsýslum. Engin slagsmál Tvær konur eru í ffamboði, Magðalena Sigurðardóttir vara- þingmaður, ísafirði, og Þórunn Guðmundsdóttir, frá Melgraseyri við ísafiarðardjúp, starfemaður Sam- bands ungra ffamsóknarmanna. Magðalena hefur nokkrum sinnum komið inn á þing og vakið þar at- hygli. Sigurður Viggósson, fram- kvæmdastjóri og hreppsnefndar- maður á Patreksfirði, stefnir ekki á efeta sæti en gæti orðið ofarlega. Sveinn Bemódusson hefur verið framarlega í bæjarpólitíkinni í Bol- ungarvík. Þar rekur hann vélsmiðju. Annar bóndinn í ffamboði er Guð- mundur Hagalínsson á Ingjaldssandi við önundarfjörð. Or Súðavík koma tveir ffambjóð- endur, Egill Heiðar Gíslason æsku- lýðsfulltrúi og Heiðar Guðbrands- son, verkstjóri í frystihúsinu. Heiðar hefur vakið athygli fyrir baráttu gegn byggingu ratsjárstöðvar við Bolimgarvík. Ekki hefur orðið vart neinnar hörku í þessari keppni, ólíkt mörgum öðrum hjá Framsóknarflokknum að undanfömu. Virðist hún fara mjög drengilega fram. -KMU

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.