Dagblaðið Vísir - DV - 05.12.1986, Síða 7
FÖSTUDAGUR 5. DESEMBER 1986.
7
Atvinnumál
Útgerðarfélag Akureyringa:
Sjómenn safna undirskriftum
Jón G. Hankssan, DV, Akureyii;
Sjómenn Útgerðarfélags Akur-
eyringa skora nú á fyrirtækið að
athuga með útflutning á fiski í gám-
um til að fá hærra verð fyrir grálúðu.
Áhafnir skipanna hafa tekið sig
saman og safiiað undirskriftum und-
ir texta þessa eftiis. Undirskriftar-
listamir hafa gengið um borð í
skipunum undanfarið.
„Skipsáhafiiimar vilja fá um það
svör hvort fiskútflutningur í gámum
sé fyrirhugaður hjá ÚA. Skipverj-
amir telja að þeim sé stórlega
misboðið þar sem mjög mikill munur
sé á aflaverðmæti og j>ar af leiðandi
séu laun þeirra hjá ÚA lakari en á
þeim skipum, sem selja allan afla
sinn, eða hluta hans, erlendis," sagði
Guðmundur Steingrímsson hjá Skip-
stjórafélagi Norðlendinga við DV í
morgun. Guðmundur sagði að sjó-
mennimir bentu jafiiframt á að mörg
innlend fiskvinnslufyrirtæki greiddu
mun hærra verð fyrir ferska grálúðu,
en verðlagsráð ákveður. Vilja sjó-
menn vita hvort ÚA ætli að fara að
dæmi þeirra.
„Ég veit að þó nokkrir sjómenn
hjá ÚA em famir að líta í kringum
sig og fyrirtækið er ömgglega að
missa nokkra góða sjómenn. Það
vofir yfir að þeir fari yfir á önnur
skip,“ sagði Guðmundur.
Fleiri fiskar
undir steini
- og hlunnindamatið sjofaldað
Lax- og silungsveiðibændur fá
óvænta jólagjöf frá Fasteignamatinu
að þessu sinni. Búið er að endurmeta
hlunnindi af dýrustu veiðiánum. Nið-
urstaðan er gríðarleg hækkun á
matinu og allt að því sjöföldun í Mið-
firði nyrðra.
Mesta hækkunin verður í Fremri-
Torfustaðahreppi, 694%. í Ytri-Torfu-
staðahreppi verður hún þó ekki nema
532%. í Þorkelshólshreppi hækkar
matið um 504%, í Torfustaðahreppi
um 265% en næstum ekkert í Þverár-
hreppi, eða ekki nema 188%. Allt em
þetta hreppar í Vestur-Húnavatns-
sýslu.
Þingeyingar fá einnig skammtinn
sinn. Hlunnindamatið í Skútustaða-
hreppi hækkar um 328% og í Aðal-
dælahreppi um 427%. I Svalbarðs-
hreppi er hækkunin einungis 175%.
Þetta em dæmi um eignasprenging-
una hjá lax- og silungsveiðibændum
núna í jólamánuðinum. En meðaltal
hækkananna á Norðurlandi er 353%
og speglar vísast sendingar Fasteigna-
matsins til veiðiréttareigenda. HERB
?TAllir hafa
skrifað undir“
- segir framkvæmdastjórí ÚA
Jón G. Hauksson, DV, Akuxeyit
„Við erum búnir að fá undirskrift
arlistana. Við fengum þá í gær. Mér
sýnast allir sjómenn ÚA hafa skrifað
undir,“ sagði Vilhelm Þorsteinsson,
framkvæmdastjóri Útgerðarfélags
Akureyringa, er DV ræddi við hann
um undirskriftir sem sjómenn hjá
ÚA hafa safhað, til að hvetja til
gámaútflutnings á grálúðu.
Vilhjálmur vildi ekki tjá sig um
það hvað gert yrði en sagði einungis
að ÚA hefði unnið allan sinn afla í
eigin frystihúsi „enda höfum við
byggt fyrirtækið upp með það í huga
að vinna okkar afla sjálfir".
Vilhjálmur bætti við að sjómenn
væra að tala um þróun. Hann sagði
að spumingin væri hvort ekki væri
vcrið að tala mn öfugþróun með út-
flutningi sem þessum. Það yrði
einnig að hugsa um starfsfólk frysti-
húsanna og fólkið í landi sem hefði
atvinnu af fiskvinnslu
l v
OIL
sæ
ERLM
VŒ)
MENN
SKUGGSJÁ - BÓKABÚÐ OLIVERS STEINS SF.
Pétur Eggeiz
Ævisaga Davíös
Dctvíð vinnur á skriístofu snjalls fjár-
málamanns í Washington. Hann.er í'
sííelldri spennu og í kringum hann er
sííelld spenna. Vinur hans segir við
hann; „Davíð þú veist oí mikið. Þú
verður að fara frá Ameríku eins fljótt
og auðið er. Þú ert orðinn eins og
peningaskápur íullur aí upplýsing-
um. Þeir vita að þú segir ekki írá. En
þeir óttast að einhverjum slóttugum
bragðaref takist að leika á þig, opna
peningaskápinn og hagnýta sér
upplýsingarnar."
Pétur Zophoníasson
Víkingslœkjarœtt III
Þetta er þriðja bindi nýrrar útgáfu aí
Víkingslœkjarœtt, niðjatali Guðríðar
Eyjólfsdóttur og Bjarna Halldórssonar
hreppstjóra á Víkingslœk. í þessu
bindi eru niðjar Jóns yngra Bjarna-
sonar. Alls verða bindin íimm í
þessari útgáíu aí hinu mikla cett-
írœðiriti Péturs Zophoníassonar.
Myndir aí þeim, sem í bókinni eru
nefndir, eru íjölmargar eins og í íyrri
bindum ritsins, og mun fleiri heldur
en vom í íyrstu útgáíunni.
Helga Halldórsdóttir
írá Dagverdará
Öll erum viö menn
Helga Halldórsdóttir segir hér frá fólki,
sem hún kynntist sjálf á Snœfellsnest
og einnig íólki, sem íoreldrar hennar
og aðrir sögðu henni írá. Þetta em írá
sagnir af sérstœðum og eítirminni-
legum persónum, svo sem Magnúsi
putta, Leimlœkjar-Fúsa, Þórði sterka
o.íl. Kaíli er einnig um Jóhannes
Sveinsson Kjarval listmálara og sagt
er írá skáldunum Bólu-Hjálmari,
Sigurði Breiðfjörð, Jónasi Hallgríms*
syni og Símoni Dalaskáldi. Mikið er aí
vísum í bókinni, sem margar hafa
hvergi birst áður.
Árni Óla
Reykjavik
f yrri tíma III
Hér em tvœr síðustu Reykjavíkur-
bœkur Árna Óla, Sagt írá Reykjavík
og Svipur Reykjavíkur, geínar
saman út í einu bindi. Þetta er þriðja
og síðasta bindið aí ritinu Reykjavík
íyrri tíma. í þgssum bókum er geysi-
mikill íróðleikur um persónur, sem
mótuðu Reykjavík og settu svip á
bœinn. Nútímamaðurinn öðlast
nýjan skilning á höíuðborg landsins
og forvemnum er hana byggðu. Frá-
sögn Áma er skemmtileg og liíandi,
og margar myndir prýða bcekurnar.