Dagblaðið Vísir - DV - 05.12.1986, Qupperneq 8
8
FÖSTUDAGUR 5. DESEMBER 1986.
Utlönd
Stúdentaóeirðir í París:
Táragasi og sprengjum
beitt en þrjátíu slasaðir
um til þess að dreifa marmfjöldanum.
Eftir átök kvöldsins og næturinnar
var mistur yfir Latínuhverfinu eða
táragasský.
Þúsundir stúdenta hópuðust sam-
an við háskóla suður af höfuðborg-
inni til þess að ræða framhaldsað-
gerðir á meðan félagar þeirra glímdu
við kylfusveitir lögreglunnar á
Signubökkum. Einhverjir stúdentar
gripu til þess að varpa sér af brúm
Signu ofan i ískalt vatnið til þess
að vekja athygli á málstaðnum.
Tveir stúdentar klifruðu upp í Eiffel-
tuminn og komu þar fyrir stórum
borða með áletruðum slagorðum
mótmælenda.
Talsmenn stúdenta segja að yfir-
völd hafi ögrað mótmælendum og
æst þá til óeirðanna með því að siga
á þá lögreglunni að tilefhislausu.
Hægri menn saka sósíalista og
kommúnista um að kynda undir
óánægju hjá stúdentum og andstæð-
ingum fræðslulagabreytinganna.
Óánægjan með breytingamir bein-
ist aðallega að ákvæðum um heim-
ildir til að hækka skólagjöldin og
herða inntökuskilyrði í háskólana.
Róstur á bókkum Signu allt fram í moigunsárið
Lögreglan beitti vatnskanónum, táragasi og doða-sprengjum til þess að dreifa þúsundum stúdenta sem eftir fjölda-
gönguna stefndu að byggingu utanríkisráðuneytisins.
Þrjátíu stúdentar að minnsta
kosti hlutu meiðsli í róstum sem
brutust út í París í gær í kjölfar fjöl-
dagöngunnar og mótmælanna gegn
fræðslulagabreytingunum. Lögregl-
an beitti vatnskanónum, táragasi og
doða-sprengjum til þess að dreifa
þúsundum stúdenta sem eftir fjölda-
gönguna stefhdu að byggingu
utanríkisráðuneytisins.
Rósturseggir köstuðu grjóti, bjór-
dósum og logandi spýtum að lög-
reglumönnum og einn sást skjóta
fuglahöglum á lögregluna. Var lög-
reglan að elta óeirðaseggi í alla nótt
um götur Parísar og allt fram í morg-
unsárið. Aðallega á vinstri bakka
Signu.
Öeirðimar bmtust út eftir kröfu-
gönguna og mótmælaræður, sem
höfðu staðið í fjórar stundir án þess
að til nokkurra sérstakra tíðinda
hefði dregið. Þá bárust fréttir um
að viðræður andstæðinga lagabreyt-
inganna við stjómvöld hefðu engan
árangur borið. Eftir það varð allt
vitlaust. - Um fimmtíu lögreglu-
menn meiddust í átökunum.
Það er áætlað að um 200 þúsund
hafi tekið þátt í fjöldagöngunni en
göngumenn segja sjálfir að þátttak-
endur hafi verið nær einni milljón,
sem drifið hafi að alls staðar af
landinu.
Göngumenn reyndu að þoka sér
að þinghúsinu og að húsi utanríkis-
ráðunejdisins en lögreglusveitir
vömuðu þeim Ieiðina og beittu kylf-
Þingið rannsakar
íran-málið til botns
Bandaríkjaþing ætlar að fara í
saumana á íran-málinu með skipan
sérstakra rannsóknamefnda beggja
þingdeilda, öldunga- og fulltrúa-
deildar.
I öldungadeildinni urðu formenn
beggja þingflokka ásáttir í gær um
að setja á laggimar nefhd skipaða
sex demókrötum og fimm repúblík-
önum til þess að grafast fyrir um
vopnasöluhneykslið, ákvarðanatök-
ur og framkvæmd. í fulltrúadeildinni
urðu þingflokksformenn einnig sam-
mála um skipan sérstakrar rann-
sóknamefrtdar en í henni munu
verða níu demókratar og sex repú-
blíkanar.
Tillögumar um nefhdarskipanim-
ar verður að leggja fyrir þingfundi
til afgreiðslu og úr þessu verður það
ekki gert fyrir jólahlé og ekki fyrr
en 6. janúar í fyrsta lagi.
Þetta gerir að engu vonir Reagan-
stjómarinnar um að rannsókninni
verði hespað hið fyrsta af svo að það
verði að baki og hverfi úr fjölmiðlun-
um. f Watergatemálinu var fundum
og yfirheyrslum Watergatenefndar
þingsins jafnan sjónvarpað beirit og
annað komst naumast að í fréttum.
Fjórar inflúensutegundir
leggja Dani í rúmið
Ifeukux L. Haukssan, DV, KaupmannahcÉr
Nú er inflúensutíminn að komast
í hámark. Rannsakendur frá Serum-
stofnuninni í Kaupmannahöfh hafa
athugað inflúensuvírusa og segja að
fjórar tegundir inflúensu muni í vet-
ur leggja nokkur hundruð þúsund
Dani í rúmið.
Þrír vírusanna fundust í febrúar á
þessu ári, fjórða tegundin, sem
kannski er sú skæðasta, fannst ný-
verið. Veldur hún svokallaðri
Singapore-inflúensu. Singapore-vír-
usinn er ólíkur hinum og því ráðgert
aö bólusetja meira en vanalega þar
sem vamarkerfi líkamans og bölu-
setningarefnin gegn hinum vírusun-
um geta ekki varíst honum.
Einkenni Singapore-infiúensunnar
em ekki mjög alvarleg en líkjast að
einhverju leyti spönsku veikinni auk
þess sem venjuleg inflúensueinkenni
koma fram. Er reiknað með að
Singapore-inflúensan nái hámarki
sínu í janúar og febrúar. Vegná dag-
legra samgangna milli Danmerkur
og íslands og jólaleyfis námsmanna
er ekki ólíklegt að hún láti kræla á
sér á Fróni.
Engisprettur
piága í
Engisprettuplága herjar nú í Súd-
an, Eþíópíu og Yemen að því er
yfirmaður landbúnaðar- og mat-
vælastofhunar Sameinuðu þjóðanna
skýrði frá í gær.
Kvað hann brýna þörf á að ráða
niðurlögum engisprettuplágunnar í
Mauritaníu en svo virðist sem hún
stefni á Rauða hafið. Ef herferðin
ber ekki árangur má búast við mikl-
Afríku
um skemmdum. í Vestur-Afríku er
búist við faraldri þar sem engispret-
turnar hafa þegar verpt,
í júlí var átta milijón dollurum
varið í neyðaraðgerðir til þess að
hefta útbreiðslu engisprettunnar
fyrir sunnan Sahara en gert er ráð
fyrir að meira fjár sé þörf ef plágan
heijar fyrir utan hinar venjulegu
uppeldisstöðvar engisprettunnar.
Grenada:
Banamenn Bishops
dæmdir til dauða
Maurice Bishop, fyrrum forsætisráð-
herra Grenada, sem tekinn var af lífi
í október 1983.
Á Grenada hafa fjórtán fyrrverandi
hermenn og stjómarleiðtogar verið
dæmdir til dauða og þrír til fangelsis-
vistar fyrir morðið á Maurice Bishop
forsætisráðherra og tíu aðstoðar-
mönnum hans.
Meðal þeirra fjórtán, sem dæmdir
vom, er fyrrverandi aðstoðarforsætis-
ráðherra, Bemard Coard, eiginkona
hans og fyrrverandi yfirmaður hers-
ins, Hudson Austin. Þrír hermenn
vom dæmdir i samtals hundrað og
tuttugu ára fangelsisvist fyrir mann-
dráp.
Þegar dómamir vom lesnir upp fór
kliður um réttarsalinn og bera þurfti
móður eins hinna ákærðu út úr saln-
um. Margir óbreyttir borgarar vom
ánægðir með dómsúrskurðinn en ótt-
uðust þó hefnd ef einhveijir hinna
dæmdu yrðu látnir lausir.
Ýmsir róttækari félagar Bishops
höfðu sakað hann um að fylgja ekki
kenningum Marx nógu rækilega og
kyrrsettu hann á heimili hans. Stuðn-
ingsmenn Bishops létu hann lausan
og gengu síðan að bækistöðvum hers-
ins sem skaut á göngumenn. Hundrað
óbreyttir borgarar biðu bana og Bis-
hop og hinir tíu aðstoðarmenn hans
voru teknir af lífi.
f kjölfar morðsins á Bishop gerðu
nokkur bandalagsríki í Karabfska
hafinu og Bandaríkin innrás á
Grenada.
í kjölfar morðsins á Bishop, fyrmm forsætisráðherra Grenada, gerðu nokkur bandalagsríki í Karabíska hafinu og Banda-
ríkin innrás á Grenada.