Dagblaðið Vísir - DV - 05.12.1986, Blaðsíða 15
FÖSTUDAGUR 5. DESEMBER 1986.
15
Nýjar bækur
Th. Bjömsson að því ítarlegan sögulegan
inngang og hann hefur einnig útbúið
skýringar sem verkinu fylgja. I bókinni
eru jafnframt hartnær Qörutíu myndir
frá samtíma höfundar sem fengnar eru
að láni úr dönskum söfnum. Harma-
minning Leonóru Kristínar er 340 bls.
að stærð, unnin í Prentsmiðjunni Odda
hf., Hilmar Þ. Helgason gerði kápu.
Hugarfarssaga
í Tímariti Máls og menningar
Fjórða hefti Tímarits Máls og menn-
ingar er nýkomið út og tekur að þessu
sinni fyrir tískufyrirbæri í sagnfræði:
hugarfarssögu sem á uppruna sinn í
Frakklandi. Einar Már Jónsson sagn-
fræðingur, sem starfar við háskólann í
París, skrifar aðalgrein heftisins og leið-
ir lesendur í allan sannleika um upphaf
og þróun þessarar hefðar. Loftur Gutt-
ormsson skrifar um Bernskuna í
hugarfarssögulegu ljósi og veltir fyrir
sér deilum fræðimanna um það hvort
fólki hafi þótt vænt um börnin sín fyrr
á tímum. Guðmundur Hálfdanarson vel-
ur sér alíslenskt efni: Takmörkun
giftinga eða einstaklingsfrelsi, og
varpar óvæntu ljósi á frelsisbaráttu ís-
lendinga á 19. öld.
Meðal annarra greina í heftinu má
nefna Drauma í íslendingasögum eftir
Matthías Jónasson, frásögn af tatara-
skáldinu Habdúllu Túkaj eftir Helga
Haraldsson og litla sögu af tveimur töku-
orðum í íslensku eftir Magnús Fjalldal.
Dagný Kristjánsdóttir skrifar ritdóm
um Söguna alla eftir Pétur Gunnarsson,
Árni Sigurjónsson skrifar um Beyg Haf-
liða Vilhelmssonar, Páll Valsson um Eld
og regn eftir Vigdísi Grímsdóttur og
Vésteinn ólason skrifar um nýjar forn-
ritaútgáfur. Gunnar Karlsson á ádrep-
una Samnorræn niðurlæging.
Varmi
Bílasprautun
KOBU GLTTRA HEFUR MEIRI
GUÁA EIM HEFÐBUIMDIN
IIMIMIA/IÁUMIIMG
'lPUsU«AUií15ra*- “Al “ °/
-"UÍING. VATHSPVKHAAILEG,
Nýja Kópal innimálningin, KÓPAL GLITRA, hefur
sérlega fallega og sterka áferð. KÓPAL GUTRA glansar
hæfilega mikið til að þú getir notið þess að sjá samspil
Ijóss og skugga glitra í umhverfinu.
KÓPAL GLITRA glansar mátulega og hentar því velá
öll herbergi hússins.
Þegar þú notar KÓPAL OUTRU þarf hvorki herði né
gijáefni. Kópal innimálningin fæst nú í 4 gljástigum;
KÓPAL DYROTON með gljástig 4. KÓPAL OLITRU með
gljástig 10. KÓPAL FLOS með gjástig 30 og KÓPAL GEISLA
með gljástig 85.
KÓPAL GUTRA innimálníngln gerlr
málningarvlnnuna elnfaldarl og skemmtllegrl.
má!ningh!f
HÚSA
SMIÐJAN
SÚOARVOGI 3-5,104 REYKJAVÍK - SÍMI 687700
ÓSA - Auglst. Ól. Stephensen/SlA