Dagblaðið Vísir - DV - 05.12.1986, Page 16

Dagblaðið Vísir - DV - 05.12.1986, Page 16
16 FÖSTUDAGUR 5. DESEMBER 1986. Spumingin Lesendur Ætlarðu á hljómleikana með Bonny Tyler í kvöld? Sandra Björgvinsdóttir nemi: Hver veit það gæti vel farið svo. Bæði frnnst mér Bonny góð söngkona og miðaverðið mjög sanngjarnt svo það er í rauninni ekkert sem hindrar að ég fari. Svo finnst mér að það mætti vera meira um svona hljómleika héma. Selma Gisladóttir nemi: Það má vel vera. Ég hef gaman af þessari söng- konu og finnst mér flestöll lögin hennar skemmtileg. Það ætti að bjóða upp ó fleiri svona hljómleika. Unnur Sigurðardóttir nemi: Ég kemst því miður ekki en annars gæti ég vel hugsað mér að mæta á hljóm- leikana. Þetta er alveg prýðissöngv- ari og með ógætis lög. Jón Jónsson: Nei, ég hef ekki efni á því þótt það sé svo sem ekkert afger- andi dýrt inn þá er það samt of dýrt fyrir mig. Mér finnst hún samt ágæt sem söngkona og það er allt í lagi með lögin. Mér finnst það mætti vera meira um svona hljómleikahöld. Bjarki Páll Einarsson nemi: Ég er nú ekki alveg viss. Mér finnst þetta samt alveg sæmilegur söngvari og hef ekk- ert út á lögin hennar að setja. Það mætti bara gefa fólki kost á að fara á svona hljómleika oftar. Eyþór Hafbergsson nemi: Nei, ég býst fastlega við því að sleppa þeim. Ég fíla engan veginn þá músik er hún flytur og jafnframt finnst mér hún ekkert sérlega góður söngvari. Ég er hlynntur því að hafa oftar svona hljómleika og finnst mér þá alveg vanta þungarokkshljómsveitir hing- að. Það væri alveg meiriháttar ef það kæmist í framkvæmd. Samkeppnin leiðir til eftiröpunar „Ég sé ástæðu til að vara fólk við sölumönnum sem fara um landið og stunda vægast sagt vafasama viðskiptahætti." Svindl og söluskrum B.S. skrifar: I hörkusamkeppni milli útvarps- stöðva hefði maður haldið að rós 1 myndi verða algjörlega útundan hjá unga fólkinu er einblíndi á rás 2 og Bylgjuna en það er fyrst núna, eftir samkeppnina, sem maður er farinn að kunna að meta rós 1. Upphaflega hefði maður ætlað að með fleiri stöðvum myndi fjölbreytnin aukast en því mið- ur er það síður en svo. Þegar Bylgjan tók til starfa felldi rás 2 niður þá þætti sem höfðu einhveija sérstöðu, t.d. þætti Finnboga Marinós- sonar og Ásmundar Jónssonar, til að geta nú boðið upp á það nákvæmlega sama og keppinauturinn. Ef öll sam- keppnin er fólgin í því að hver api eftir öðrum þá virðist ég eitthvað hafa misskilið það hugtak. Það sem gengur á Bylgjunni og rás 2 frá morgni til kvölds eru efstu lögin á vinsældalistanum og það er hreint ótrúlegt hvað sum-lögin eru þaulsetin. Þegar svo vinsældir þeirra dvína falla þau í gleymsku og dó og heyrast ekki eftir það nema þegar verið er að rifja upp 5, 10 eða 20 óra vinsældalista eða hver má vita hvað. Bylgjan ætlaði heldur en ekki að skjóta rás 2 ref fyr- ir rass á sínum tíma með því að hamra ekki bara á 30 vinsælustu lögunum heldur 40. Áður en fyrirkomulagi um val á vin- sældalista rásar 2 var breytt hafði það komið í ljós að meðalaldur þeirra sem völdu listann var 13 ár. Þessi aldurs- hópur hefur að sjálfsögðu fúllan rétt til að hlusta á sína uppáhaldstónlist rétt eins og aðrir. Það er hins vegar ekki forsvaranlegt að láta einn aldurs- hóp stjóma svona tónlistarhlustun þjóðarinnar. Frasar eins og „nú höfum við heyrt eitt lag með Led Zeppelin og eitt með AC/DC og þá hafa þungarokksunn- endur fengið sinn skerf í dag“ eru gjörsamlega óþolandi. Þungarokks- unnendur em enginn sérstakur þjóð- flokkur með innbyggt ónæmi fyrir allri annarri tónlist og una sælir við sinn tveggja laga skammt á dag eins og sumir virðast halda. Tilgangur sér- staks þungarokksþáttar væri ekki bara að spila öll gömlu góðu lögin sem allir hafa heyrt ótal sinnum heldur frekar að kynna nýja strauma og nýja flytjendur svo og nýútkomið efni. Við reynum að gera okkur ánægð með lít- ið svo fremi sem það er meira en ekki neitt. Alda Jónsdóttir skrifar: Ég sé ástæðu til að vara fólk við sölumönnum sem fara um landið og stunda vægast sagt vafasama við- skiptahætti. Ég var svo óheppin að trúa þessum mönnum sem buðu mér bækur með afborgunum og var skýrt tekið fram að þetta yrði vaxtálaust. En síðan kom i ljós að bæði voru vext- ir og vísitala í samningnum. Þegar ég síðan strax daginn eftir hafði samband við sölumennina út af þessu voru þeir svo ósvífnir að segja að þeir hefðu aldrei sagt að þetta yrði vaxtalaust, vitandi að það voru vitni að ósannindum þeirra. Þeir tjáðu mér jafiiframt að fyrst ég væri búin að skrifa undir þessa skilmála yrði við það að sitja, hvort sem mér líkaði bet- ur eða verr. Bentu þeir mér þó á að ég gæti talað við yfirmann þeirra. Það var samt ekki fyrr en ég hafði talað við höfúðpaurinn hjá Bóksölu Á.J., herra Áma Jensen, sem ég fékk að kynnast því að dónaskapur og per- sónulegar svívirðingar eru greinilega sjálfsagður hlutur í þessu fyrirtæki, allavega þegar verið er að tala við viðskiptavinina. Þegar ég sagði honum að ég væri óánægð með þessi viðskipti og óskaði þess að þau gengju til baka fékk ég svör ó borð við það að ég hlyti að vera lyfjasjúklingur og annað í þeim dúr. Þegar ég lét þess getið að mér fyndist óstæða til að koma þessu í blöðin til að vara fólk við þá hafði þessi heiðursmaður í hótunum og sagði að það yrði ekki fallegt sem hann myndi skrifa í staðinn. Ég hef síðan frétt það hjá kunningj- um mínum að margir þeirra hafa lent í því sama og eru ekki beint ánægðir með viðskiptin. En það sýnir að þetta er einfaldlega praxís þessara manna eins og þeir stunda hann. Því skyldi fólk hafa vara á áður en það hleypir þessu inn fyrir dyr hjá sér. Með kveðju frá neytanda sem er nóg boðið. Er verið að bíða eftir dauðsfalli? Kópavogsbúi hringdi: Ég vil benda bæjaryfirvöldum í Kópavogi á mikla slysahættu á gatna- mótum Urðarbrautar og Borgarholts- brautar í vesturhluta Kópavogs. Ég ó nú samt sem áður bágt með að trúa því að þessi slysagildra hafi farið fram hjá bæjaryfirvöldum hér í bæ og er mér því algjörlega óskiljanlegt af hverju ekkert heftir verið gert til að koma í veg fyrir stórslys. Það mætti halda að það væri verið að bíða eftir dauðsfalli áður en nokkuð er gert til að koma í veg fyrir slíkt. Ég get full- yrt það að þama hafa ótt sér stað hörkuárekstrar og þeir skipta tugum. Bömin ganga þarna yfir á morgnana er þau fara í skólann og maður er ein taugahrúga yfir hvort þau komist nú örugglega heilu og höldnu heim því þama er mjög illa merkt gangbraut og lýsingin er fyrir neðan allar hellur, smátýrur er gera nánast ekkert gagn. Skora ég ó bæjaryfirvöld í Kópavogi að lagfæra þetta svo forðast megi frek- ari slys. Sigurður Björnsson bæjarverkfræð- ingur svarar: Þetta er allt í vinnslu hjá okkur og er gert ráð fyrir þessu í fjárhagsáætlun næsta árs. Þetta hefur verið til um- ræðu hjá okkur nýlega og það em áætlEmir um að lagfæra gatnamótin og þrengja þau og það stendur ef til vill til að koma upp hraðahindrunum við þessi gatnamót. Núna ætti einmitt að vera mikil samkeppni við lottó og því veitir ekki af endurskoðun. Ég legg til að hækka iægstu vinningana sem eru nánast ekki neitt og glæða smá líf og fjör i leikinn. Hærri og fleiri vinninga Lesandi hringdi: Ég er mjög óónægður með vinn- ingakerfi happdrættis Hóskóla íslands og tel ég að það þurfi að endurskoða frá grunni. Það er löngum viðurkennd og gild regla að styrkja gott málefni en í þessu tilfelli spilar náttúrlega vinn- ingsvonin einnig inn í sem hvatning fyrir fólkið að spila í happdrættinu. Mér finnst forráðamenn happdrætt- isins vanmeta ályktunarhæfni viðskiptavinanna með því að halda því fram að einn mjög hár vinningur freisti fólks meira í staðinn fyrir að jafna þessum stærsta vinningi í fleiri stóra vinninga. Lægstu vinningamir í happdrættinu eru svo mikil hung- urlús að það tekur því ekki að vera spila upp á þá enda dregur það líka úr allri eftirvæntingu og spennu að spila fyrir þetta skiterí. Það væri til dæmis hægt að breyta núverandi skipulagningu með því að hafa hsesta vinninginn 500 þúsund krónur (er núna 1 milljón) og deila síðan hinum 500 þúsundunum á lægstu vinningana. Vinsældalista í sjónvarpið Christopher Lund skrifar: Ég er mikill tónlistarunnandi og mér finnst allt of lítið að hafa Poppkom bara einu sinni í viku. Ég veit líka að sjónvarpið getur vel gert vinsældalista með tuttugu til þrjátíu vinsælustu lög- unum og ég efa ekki að ef það kæmist i framkvæmd yrði það mjög vinsælt sjónvarpsefni. Það mætti líka alveg spila vinsæl- ustu lögin oftar en einu sinni. Með fyrirfram þökk fyrir birtingu vil ég þakka DV fyrir ómissandi lesendasíðu. Það er allt of lífið af tónlistarþáttum í sjónvarpinu. Hvemig væri að sjón- varpið tæki upp vinsældalista með vinsælustu lögunum?

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.