Dagblaðið Vísir - DV - 05.12.1986, Page 19

Dagblaðið Vísir - DV - 05.12.1986, Page 19
FÖSTUDAGUR 5. DESEMBER 1986. 19 Hólmgöngumaður í úlfakreppu Ekki þarf að kynna dr. Hannes Hólmstein Gissurarson fyrir lesend- um DV. Árum saman hefir hann verið skeleggasti málsvari fijáls- hyggjumanna er svo nefna sig. Andstæðingar frjálshyggjunnar - felagshyggjufólkið - hafa jafnan beint spjótum sínum að honum. Hver vinstri-skríbentinn á fætur öðrum hefir geystst fram á ritvöllinn - en komið með klofinn skjöld hildi frá. Þeir hafa ekki staðið Hannesi (HH) snúning í þrætubókarlist, enda hafa mennimir veifað skörðóttu sverði marxismans en HH hins vegar búinn spánnýjum hertygjum fijáls- hyggjunnar. Nú er risinn upp einhver Snjólfur. Það verður að játast að fijáls- hyggjumennimir hafa nokkur gild rök fyrir skoðunum sínum. Svo mik- ið er ljóst að félagshyggjufólkið kann ekki á þeim lagið. Ég hefi fylgzt með um alllangt skeið og íhugað rök þeirra; séð á þeim bæði kost og löst. En á það ber að líta að engin keðja er sterkari en veikasti hlekkurinn. Þrátt fyrir góða spretti hefi ég með ámnum orðið æ meira efinn um að frjálshyggjan flytji nokkum „stóra- sannleik" - a.m.k. ekki í sinni harðsoðnustu mynd. Það sem hann varast vann varð samt að koma yfir hann. Þráhyggja og stífni Hannes Hólmsteinn er óvenju rök- vís maður. Gegnum tíðina hefi ég margoft haft hina mestu skemmtun af hárfínum rökum hans. - En, og það er stórt EN. HH þjáist af vax- andi þráhyggju og stífhi. Sá er þenur bogann til hins ýtrasta kippir fótun- um undan sjálfum sér. Öfgar em ekki til fagnaðar. Frjálshyggjunni - a.m.k. i útgáfu Hannesar Hólmsteins - svipar æ meir til sjálfs höfuðand- stæðingsins - hvers nema sjálf KjaUaiinn Skúli Magnússon jógakennari marxismans. Nú er sá hólmgönguglaði Hannes orðinn doktor. Og mér er fyrirmunað að skilja hinn nýbakaða doktor. IDV þann 24ða nóv. sl. ritar Hann- es enn grein: „Islendingar ekki óskynsamari en aðrir - Snjólfi Ólafs- syni svarað“. Vígreifur hefir HH nú tvo i höggi, þá jábræðuma Þorgeir sagnfræðing og Snjólf stærðfræðing (ég hefi hvor- ugan lesið). Síðasta ritsmíð Hannesar Gaman væri að grandskoða ýmsa veika hlekki fijálshyggjunnar en ég gríp nú tækifærið að ígrunda nokk- uð þessa síðustu ritsmíð Hannesar. Hannes segir: „Eftir vandlegan lestur greinar hans (Snjólfs; SM) fann ég eina og aðeins eina raunvemlega röksemd. Hún var ekki að verðmyndun á fijálsum markaði væri óæskileg, heldur að hún væri af einhverjum ástæðum óframkvæmanleg. Skortur væri til dæmis á fóstrum, án þess að laun þeirra hefðu hækkað, og of- framboð á flugmönnum, án þess laun þeirra hefðu lækkað... Dæmi þau, sem Snjólfúr tekur, em ekki um verðmyndun á fijálsum markaði, þegar að er gáð, heldur heftum. Fóstmr selja ekki þjónustu sína á fijálsum ma.rkaði, heldur neyðast (sic; SM) þær til að treysta á hið opinbera, sem er eini vinnu- veitandi þeirra og viðsemjandi. . . . Flugmenn starfa ekki heldur á fijálsum markaði þar sem þeir hafa gert með sér öflugt verkalýðsfélag, sem heldur uppi verðinu á þjónustu þeirra. Þeir ílugmenn, sem fá ekki vinnu á þessu einokunarverði, geta ekki boðið það niður með samkeppni við þá sem fyrir em heldur em þeir hraktir (sic; SM) til útlanda eða í aðrar atvinnugreinar." Fóstrur í dæmi Hannesar Dameme först. Hugum þá að fóstr- um: 1) Vestrænar þjóðir - svo er Guði fyrir að þakka - búa í samfélögum sem í megindráttum em „fijáls" en ekki „heft“. Ungar stúlkur - vitandi að fóstrustarfið býður uppá svo lág laun - geta valið sér eitthvert annað nám en fóstmnám og kosið sér ann- að lífsstarf. Þær „neyðast" því ekki til neins einsog HH fullyrðir. Við það myndi aðstreymi í þetta starf enn fara minnkandi og ríksvaldið „neyðast" til að hækka launin. 2) Ýmsar stéttir - t.a.m. kennarar - leita í ríkum mæli í önnur störf en þeir hafa lært til. Það gætu fóstr- ur einnig gert. Þær gætu m.a. s. „hrökklast" til útlanda í atvinnuleit - ekki síður og fremur en flugmenn. A þennan máta ætti - að mínum skilningi - að myndast markaður samkvæmt lögmáli framboðs og eft- irspumar, að vísu ekki al-fijáls en heldur ekki alfarið „heftur". „Hannes Hólmsteinn er óvenju rök- vis maður. Gegnum tíðina hefi ég margoft haft hina mestu skemmtun af hárfinum rökum hans. - En, og það er stórt EN. HH þjáist af vax- andi þráhyggju og stifni.“ 3) „Ef raunverulegur skortur væri á fóstrum," segir dr. Hannes. En það er nótabene ekkert EF. Skorturinn ER raunverulegur. Hólmgöngu- manni sæmir illa að hlaupa fyrir hom. Þar eð skorturinn er raun- vemlegur ættu fóstrur, samkvæmt lögmáli hins fijálsa markaðar, að geta beitt viðsemjendur sína þrýst- ingi, enda þótt hann sé aðeins einn að röngu mati HH; jafnvel þótt stétt- arfélag þeirra sé ekki jafn-sterkt samtökum flugmanna (sem er engum nema þeim sjálfum um að kenna). Leggi fóstrur niður störf komast mæður bamanna ekki til vinnu sinnar. Fjölmargar stofnanir yrðu lamaðar, til dæmis myndi vanta stúlkur á skiptiborðin (ekki væri það þægilegt). Þær hafa því ■ yfirburða- stöðu til að þrýsta á hið opinbera, þótt verkfall þeirra væri ekki litið jafnalvarlegum augum og ef flugið myndi stöðvast. 4) Hannes fúllyrti að viðsemjandi fóstra væri aðeins einn - „hið opin- bera“. En hið opinbera er í þessu tilliti hin ýmsu bæjarfélög sem er stjómað af hinum ýmsu stjómmála- flokkum. Enda þótt Davíð „konung- ur“ kjósi fremur að skjóta peningum skattgreiðenda út í loftið - og þó einkum að fleygja þeim fyrir glym- skratta, heldur en að bjóða stárfs- fólki sínu mannsæmandi laun, þá em þó blessunarlega aðrir og betri menn við stjómvölinn t.a.m. í Kópa- vogi og Hafnarfirði. Kratamir í Hf. gætu - og hafa - boðið sínum fóstrum skárri kjör. Öll röksemdafærsla HH er gatslitið fat sem heldur engri bót. 5) Dr. Hannes mun hafa heyrt get- ið svokallaðra „dagmæðra11. Fóstmr gætu - eins og kennarar - boðið upp á sín eigin dagheimili og haldið uppi hærri „prísum“, t.a. m. þegar eínaðri foreldrar eiga í hlut í skjóli hins mikla vistunarskorts. Það myndi enn auka þrýstinginn á „hið opin- bera“. Blessunarlega búum við ekki í Póllandi. En jaínvel í hinu þræl-„ hefta“ samfélagi PóIIands og Rússíá hefir myndast „svört“ atvinnustarf- semi þar sem lögmál hins frjálsa markaðar blómstrar mætavel. Ég mun næst huga að flugmönnum í grein sem birtist í DV innan skamms. Skúli Magnússon ,. Frj álshy ggj unni - a.m.k. í útgáfu Hannes- ar Hólmsteins - svipar æ meir til sjálfs höfuðandstæðingsins - hvers nema sjálfs marxismans.“ Óheilindi Sigríðar Dúnu Oft er sagt að þvi meira sem menn læra því vitlausari verði þeir. Ekki vissi ég að þú, Sigríður Dúna, mynd- ir sanna þetta. Kannski hefurðu bara aldrei lært að lesa, sem er vel skiljanlegt því skólakerfið er ekki upp á það besta. Hefðirðu lesið betur greinina mína, sem birtist 14. nóv- ember, þá hefðir þú séð að ég fagna því að þú lagðir fram frumvarpið um lágmarkslaun. I greininni tala ég ekki um að fólk með hærri laun en lágmarkslaun megi ekki taka þátt í kjarabaráttunni heldur er ég að benda á hræsnina sem þú og þínir líkar sýna. Ef þú, Sigríður Dúna, værir heilsteypt í kjarabaráttunni þá hefðir þú ekki tekið við meiri prósentuhækkun en umbjóðendur þínir fá á sín laun. Kannski ertu ein þeirra kvennalistakvenna sem búa í felagsheimili uppí Árbæ og ert svo vel sett að þú tekur ekki eftir því hvort þú færð 2,5% eða 11% launa- hækkun, því þú ert ekkert upp á þær komin. Samkvæmt mínum útreikn- ingi er þó heilmikill munur á 2,5% og 11%. Alveg eins og karlarnir Sigríður mín, fólk er búið að missa tiltrú á ykkur alþingismennina. Ég er ekki eingöngu að tala fyrir mig heldur þorra landsmanna. Margir héldu að þið í Kvennalistanum yrð- uð öðruvisi þegar þið færuð inn á þing. En því miður fóruð þið fljótt að hljóma eins og hinir. Þið, eins og karlamir, „viljið sérstaklega taka fram“, „leggið áherslu á“, „undir- strikið" og „bætið við að lokum“. Þegar þið tókuð svo við launahækk- uninni án þess að malda í móinn þá hvarílar það að manni að þið hafið meiri áhuga á að verma þingsætin en að beijast fyrir umbjóðendur ykk- ar og launþegana í landinu. KjaUaiinn Áshildur Jónsdóttir í Landsráði Flokks mannsins Hvar eru undirskriftirnar? Þú skalt ekki halda að þetta sé eingöngu mín persónulega skoðun eða flokks míns. Þið alþingismenn ættuð nú að hafa fengið tugi undir- skriftarlista frá hundruðum lands- manna þar sem þeir taka undir orð mín og skamma ykkur fyrir að taka við svo miklum launahækkunum á meðan vinnuveitendur ykkar, skatt- borgarar, fá miklu minni prósentu- hækkun. Þú hefúr ekkert sagt um þessar undirskriftir. Kannski vegna þess að forseti sameinaðs Alþingis hefúr stungið þeim undir stól eða vegna þess að þær hafa komið illa við kaunin. Skora á þig og aðra alþingis- menn Við í Flokki mannsins stungum upp á 30 þúsund kr. lágmarkslaunum áður en Bolungarvíkursamningam- ir voru gerðir. Málgagni okkar með tillögu flokksins í launamálum var dreift þar í bænum viku áður en samningamir voru samþykktir. Við fögnum því að Kvennalistinn skuli taka undir þessa kröfu okkar um lágmarkslaun en ég bið þig og aðrar kynsystur mínar að vera ekki að skemma málstaðinn með því að vera að segja eitt og gera annað. Ég skora á þig og aðra alþingismenn að taka ekki við meiri launahækkun en aðrir fá og mótmæla þannig kröft- uglega að toppamir í þjóðfélaginu skuli skammta sér hærri laun en almenningi er ætlað. Mannréttindasáttmáli S.Þ. brotinn Ég vil líka mælast til þess að þið í Kvennalistanum hættið að bijóta mannréttindasáttmála Sameinuðu þjóðanna. Oft hafið þið setið þing þeirra í New York - varla hafið þið eingöngu verið í innkaupaferð á kostnað skattborgaranna eins og karlamir - og því hljótið þið að vita að það má ekki vera með pólitíska flokka sem mismuna eftir trúar- brögðum, kynþætti eða kyni. Það er ekki hægt að mismuna á þennan hátt ef menn vilja kallast boðberar jafnréttis. „Fasistar“ Ef þið haldið áfram þessari að- skilnaðarstefrm þá fara sumir að kalla ykkur fasista og það líkar mér ekki. Þið verðið ekkert betri en Svörtu pardusdýrin í Bandaríkjun- um. Þeir bentu réttilega á að negrar væm beittir misrétti en töldu hvíta menn á lægra stigi og vildu ekkert með þá hafa. Þeir hurfu og áorkuðu litlu. Hins vegar var hreyfing Martin Luthers King mjög öflug og hefur sterk áhrif enn þann dag í dag, ekki bara meðal svertingja heldur líka hvítra manna. I hans röðum störfúðu ekki eingöngu svartir menn heldur líka hvítir. Hættið aðskilnaðarstefnunni Þess vegna skora ég á ykkur í Kvennalistanum að hætta aðskiln- aðarstefiumni og leyfa körlum að taka fullan þátt í starfi ykkar, þar með talið að fara í framboð fyrir list- ann. Ef þig gerið það ekki munuð þið ekki bara verða kallaðar fasistar heldur verður það hvatning fyrir aðra til aðskilnaðarstefiiu. Þá meg- um við eiga von á flokkum smávax- ins kvenfólks, feitlaginna og jafhvel rauðhæðra því reynsluheimur þeirra hlýtur að vera öðruvísi. Einkaréttur karlanna í lokin vil ég biðja þig, Sigríður Dúna, að læra að greina á milli aukaatriða og aðalatriða og vera ekki að kasta ryki í augu lesenda og umbjóðenda þinna með því vísvit- andi að forðast að ræða málin í hreinskilni, eins og kom fram í svari þínu við grein minni 25. nóvember. Eigum við ekki að leyfa karlaflokk- unum á þingi að eiga einkarétt á slíkri vitleysu? Áshildur Jónsdóttir „Ef þú, Sigríður Dúna, værir heilsteypt í kjarabaráttunni þá hefðir þú ekki tekið við meiri prósentuhækkun en umbjóðend- ur þínir fá á sín laun.“ „Þess vegna skora ég á ykkur í Kvennalistanum að hætta aðskilnaðarstefn- unni og leyfa körlum að taka fullan þátt i starfi ykkar, þar með talið að fara i framboð fyrir listann."

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.