Dagblaðið Vísir - DV - 05.12.1986, Side 21
FÖSTUDAGUR 5. DESEMBER 1986.
21
Minningar frá Leirhöfn
Þórarinn Elís Jónsson
Höfundur þessarar bókar réðst sem
smali að stórbýlinu Leirhöfn á Sléttu
árið 1915, til Helgu Sæmundsdóttur hús-
freyju sem þar bjó ásamt sonum sínum.
Hann ólst þar upp á þroskaárum sínum
og tók miklu ástfóstri við heimilisfólkið
enda er bókin tileinkuð Helgu Sæmunds-
dóttur og sonum hennar.
Höfundur rekur hér minningar sínar
frá þessum árum enda hefur honum orð-
ið þetta tímabil ævi sinnar ógleymanlegt.
Þar varð hann fyrir lífsreynslu sem gjör-
breytti lífsferli hans. Fjöldi fólks kemur
við sögu og írásögnin er gædd nærfærni
og hlýju.
Bókin er 159 bls. að stærð, prentuð og
bundin í Prentverki Odds Bjömssonar á
Akureyri. Verð með söluskatti kr. 975,00.
JÓNAS THORDARSON
Vestur-íslenskar
æviskrár, V. bindi
Jónas Thordarson
1 þessu nýja bindi eru æviskrárþættir
100 Vestur-íslendinga með 330 ljósmynd-
um, saga þeirra sögð í stuttu máli, greint
frá uppruna og ævistarfi, ættingjum og
afkomendum. í bókarlok er ítarleg
mannanafnaskrá.
Vestur-íslenskar æviskrár eru
ómetanlegur lykill að persónufróðleik
og ættfræði, auk þess sem þær gefa auk-
in tækifæri til styrktar vináttubanda og
frændsemi milli íslendinga austan hafs
og vestan.
Bókin er 307 blaðsíður að stærð, prent-
uð og bundin í Prentverki Odds Björns-
sonar á Akureyri. Verð með söluskatti
kr. 2.250,00.
saga mikils mannkynsböls
eftir Susanne Everett
Dagur Þorleifsson þýddi
Bókaútgáfan Örn og Örlygur hefur
gefið út bókina Þrælahald eftir Susanne
Everett í þýðingu Dags Þorleifssonar.
Hér er á ferðinni skýr, rikulega mynd-
skreytt og ljóslifandi frásögn af ánauð
og þrælkun, mikill fengur fyrir hvern
þann sem áhuga hefur á sögu og þróun
mannkynsins og samábyrgð allra manna.
I bókinni er saga þrælahalds rakin frá
upphafi. Lýst er þrælaflutningunum
vestur yfir Atlantshaf en þeir fólu í sér
að á þrjú hundruð ára tímabili voru ell-
efu milljónir manna fluttar frá Afríku til
Ameriku. Fjallað er um líf þrælanna og
þá kúgun og arðrán manns á manni sem
í þrælahaldinu fólst. I bókinni eru yfir
þrjú hundruð myndir, þar af fjörutíu í
litum, fengnar úr skjalasöfnum um allan
heim, og varpa þær skýru ljósi á efnið.
Bókin er filmusett hjá Prentþjón-
ustunni en prentuð í Hong Kong.
Bók um létt vín
eftir Pamelu Vandyek Price
í þýðingu dr. Arnar Ólafssonar
Formála skrifa ritstjórar Gestgjafans
í fyrsta skipti á íslandi: Bók sem
greinir frá öllu sem máli skiptir um fram-
leiðslu, innkaup, geymslu og meðferð
léttra vína.
Bókaútgáfan Öm og Örlygur hefur
gefið út Bókina um létt vín í þýðingu
dr. Arnar Ólafssonar. Þetta er fyrsta bók
sinnar tegundar sem kemur út hér á
landi. Ritstjórar Gestgjafans, þau Elín
Káradóttir og Hilmar B. Jónsson, rita
formála bókarinnar og segja þar: „Það
er okkur bæði ljúft og skylt að fylgja
þessari bók úr hlaði með nokkrum orð-
um. Ljúft, þar sem fyrir löngu var orðið
tímabært að út kæmi á íslensku bók með
almennri fræðslu um vín, vínvið og vín-
ræktun.
Góðri matarmenningu, sem svo sann-
arlega er nú fyrir hendi hér á landi, þarf
að fylgja góð vínmenning og vfnmenning
okkar hér hefur lengst af einkennst af
fordómum og því að setja allan vökvann
sem inniheldur vínanda undir sama hatt
og kalla hann vín.
Við gerum hins vegar mikinn mun á
víni, það er léttu víni sem lagað er úr
vínberjum, og áfengi, það er sterku víni
eða eimuðu.
Þessi bók fjallar um létt vín.
Að okkar mati og margra annarra
bragðast góður matur betur ef honum
fylgir gott vín. En best er honum fylgi
rétt vín. Vín sem laðar fram það besta í
réttinum sem verið er að snæða.
Bókin um létt vín er sett og umbrotin
hjá Ljóshnit. Kassagerðin annaðist
filmuvinnu og prentun en Arnarfell sá
um bókbandið.
Þóamn Vöidimarsdóttir
AF HALAMIDUM
Á HAGATORC
Ævisaga Einars (í&fesonar
1 Lækiarttvammi
Af Halamiðum á Hagatorg
Ævisaga Einars Ólafssonar í Lækjar-
hvammi
Þórunn Valdimarsdóttir skráði
Út er komin hjá Erni og Örlygi bókin
Af Halamiðum á Hagatorg sem er
ævisaga Einars Ólafssonar í Lækjar-
hvammi, skráð af Þórunni Valdimars-
dóttur sagnfræðingi sem skráði einnig
bókina Sveitin við Sundin sem kom út á
liðnu sumri.
Ævisaga Einars í Lækjarhvammi er
fyrir margar sakir hin sérstæðasta. Hann
er af aldamótakynslóðinni, sonur leigu-
liða eins og flest aldamótabörn, alinn upp
í torfbæ undir norðurhlíð Esjunnar við
frumstæða atvinnuhætti. Einar vann á
unglingsárum í eyrarvinnu í Reykjavík
og var á togara í áratug. En togarasjó-
maðurinn Einar taldi sig til bændastéttar
og ætlaði sér að verða bóndi. Hann gift-
ist heimasætunni í Lækjarhvammi í
Reykjavík 1925 og tók þar við búi
skömmu síðar.
Bókin er gefin út í tilefni af níræðisaf-
mæli Einars 1. maí sl.
Bókin er sett og prentuð í pren'tstofu
G. Benediktssonar en bundin hjá Arnar-
felli hf. Kápu hannaði Sigurþór Jakobs-
son.
Nýjar bækur
Dagatöl 1987
Út eru komin litprentuð dagatöl fyrir
árið 1987. Dagatölin eru með völdum
ritningargreinum, jákvæðum boðskap til
hugleiðingar í dagsins önn. Um þrjár
gerðir er að ræða:
Sköpunin, veggdagatal með myndum
úr ríki náttúrunnar. Hverjum degi ársins
fylgir ritningargrein og reitur fyrir
minnisatriði. Dagatalið kostar 295 krón-
ur.
Börn og vinir. Hér er um að ræða hin
vinsælu póstkortadagatöl með barna-
myndum. Þessum gerðum er ýmist ætlað
að standa á borði eða hanga á vegg.
Þessi dagatöl kosta 255 krónur og 215
krónur.
Fíladelfíu forlag gefur út.
Spakmælabókin
Fræg og fleyg orð i gamni og alvöru
Torfi Jónsson safnaði, setti saman
og þýddi
Bókaútgáfan Örn og Örlygur hefur
gefið út Spakmælabókina fræg og
fleyg orð í gamni og alvöru. Torfi Jóns-
son safnaði efninu, setti saman og þýddi.
Á bókarkápu segir m.a.: „Góð bók er
eins og aldingarður sem maður er með í
vasanum," segja Arabar. Þessi bók er
ómissandi öllum þeim sem þurfa að nota
fleyg orð með stuttum fyrirvara í ræðu
og riti.
Spakmælabókin er sett, umbrotin og
filmuð hjá Filmur og prent en prentuð í
Prentstofu G. Benediktssonar. Hún er
bundin hjá Arnarfeili hf. Kápu hannaði
Hrafnhildur Sigurðardottir.
Minningar Huldu Á. Stef-
ánsdóttur
2. bindi, Æska
Bókaútgáfan Örn og Örlygur hefur
gefið út annað bindi endurminninga
Huldu Á. Stefánsdóttur sem ber undirtit-
ilinn Æska.
1 bókinni eru rúmlega 80 gamlar ljós-
myndir sem varpa lífi og lit á horfinn
tíma og umhverfi þeirrar ævi- og menn-
ingarsögu sem þar er sögð.
Minningar Huldu Á. Stefánsdóttur eru
settar og prentaðar í Prentstofu G. Ben-
ediktssonar og bundnar hjá Amarfelli
hf. Kápu hannaði Sigurþór Jakobsson
en kápumyndin er af málverki af Huldu
frá Hafnarárunum sem Kristín Jóns-
dóttir málaði.
Friður,
Matteusarguðspjall
Trú,
Bréf Páls til Rómverja
Þessar fallegu bækur eru inhbundnar
í harða kápu og skreyttar litmyndum á
hverri síðu. Textinn er úr „Lifandi orði“,
endursögn Nýja testamentisins á is-
lensku. Bækurnar em einkar aðgengi-
legar fyrir þá sem ekki eru vanir að lesa
Nýja testamentið og kjömar fyrir þá sem
vilja kynnast sígildum boðskap þess.
Bækurnar kosta aðeins 400 krónur hvor
um sig.
Fíladelfíu forlag gefur út.
PRENTSMIÐJAN HÓLAR HF.
ÞROTABÚ
Eignir þrotabúsins eru til sölu. Leitað er tilboða í þær
í einu lagi eða einstakar eignir, fasteign, vélar, tæki
eða áhöld.
Um er að ræða þessar eignir:
Fasteign þrotabúsins að Bygggarði, Seltjarnarnesi.
Vélar og tæki í bókbandi, setningu, pressusal og skeyt-
ingu.
Skrifstofuáhöld og fleira.
Eignirnar verða til sýnis föstudaginn 5. desember kl.
13-17 og laugardaginn 6. desember kl. 10-15.
Tilboðsfrestur er til og með 12. desember. Eignalisti
liggur frammi hjá undirrituðum.
Lögmenn,
Reykjavíkurvegi 72, sími 50611.
Pósthólf 434, 220 Hafnarfjörður.
Hlöðver Kjartansson hdl. bústjóri.
Nauðungaruppboð
á fasteigninni Sogavegi 136,1 ,t.v„ þingl. eigandi Björgvin Eiríksson, fer fram
á eigninni sjálfri mánud. 8. des.'86 kl. 16.30 Uppboðsbeiðendur eru Gjald-
heimtan í Reykjavík og Guðjón Ármann Jónsson hdl.
Borgarfógetaembaettið í Reykjavík.
í þessu bindi minninga tekur Hulda
upp þráðinn þar sem frá var horfið í
fyrsta bindi og segir frá æskuámm sínum
á fyrsta fjórðungi aldarinnar - frá því
að hún fluttist frá Möðruvöllum til Ak-
ureyrar og þangað til hún kvaddi
liyjafjörð tuttugu og sex ára gömul.
Opið til k í kvölt 1. 20 1
Nýtt, glæsileg og miklt stærra kjötborð Nýtt, t glæsilegt og miklu stærra fiskborð. Ný, glæsileg leik- fangadeild á 2. hæð.
Opið frá kl. 9-16 laugarda Matvörumarkaður 1. hæð - Rafdeild 2. hæð - 1 Húsgagnadeild 2. og 3. hæð - Gjafa- og búsáhaldadeild 2. hæð - Ritfangadeild 2. hæð - Munið JL-grUlið g Sérverslanir í JL-portinu
Munið barnagæsluna 2. hæð -
opið föstudaga
og laugardaga
Jón Loftsson hf.
.
JH
KOáT
IUM[Í(IUUUUlil llklK
Hringbraut 121 Sími 10600