Dagblaðið Vísir - DV - 05.12.1986, Qupperneq 22

Dagblaðið Vísir - DV - 05.12.1986, Qupperneq 22
22 FÖSTUDAGUR 5. DESEMBER 1986. Iþróttir Við hornfánann Talað í tvo og hálfan tíma Fyrir skömmu var haldinn stjómarfimdur hjá Handknatt- leikssambandi íslands og á þeim fundi var meðal annars rætt um það hvort rétt væri að ffesta leik Fram og Stjömunnar vegna þess að Daninn Per Skárup, þjálfari og leikmaður Fram, var á forum til Noregs með danska landslið- inu. Miklar umræður urðu um hvort fresta ætti leiknum eða ekki. Að lokum var samþykkt með eins atkvæðis mun að firesta ekki leiknum. Þá kom í ljós að einn starfsmanna HSÍ hafði sent út skeyti til danska sambandsins þess efnis að Per Skámp væri laus allra mála því ákveðið hefði verið að fresta leik Fram og Stjömunnar. Fannst sumum að talað hefði verið um málið í óþarflega langan tíma á f'undin- um og starfsmaður HSÍ hefði legið einum of lengi á lausn málsins. Lesið upp úr Mogga Blakmönnum brá heldur en ekki í brún i gær þegar þeir fóm að lesa um leik Fram og Víkings í 1. deildinni. í Morgunblaðinu stóð að Víkingur hefði sigrað en þegar DV kom á götuna í gær var greint frá sigri Fram. I há- degisfréttum Ríkisútvarpsins í gær var tekið undir frásögn Morgunblaðsins og Víkingar sagðir sigurvegarar. Já, það get- ur verið vafasamt að lesa fréttir beint upp úr blöðunum í frétta- tímum. UMFN og ÍBK horfðu í 9 þúsund Enn hvílir skuggi yfir Suður- nesjunum eftir að bifreið körfú- boltadómarans var skemmd eftir leik UMFN og ÍBK fyrir viku. Ekki hafa ódæðismennirnir fúndist enn og allar líkur á að villimennimir finnist aldrei. Það kom mörgum á óvart þegar UMFN og ÍBK buðust til að greiða 70% af tjóni því sem unn- ið var á bifreiðinni en ekki 100%. Talið er að tjónið nemi um 30 þúsundum þannig að forráða- menn UMFN og ÍBK hafa boðist til að greiða um 21 þúsund og spara sér þar með um 9 þúsund. Margur hefði nú boðist til að greiða tjónið að fuilu. Góð laun fyrir þjálfun Þeir eru ekki á flæðiskeri staddir fyirhagslega, þjálfaramir hjá 1. deildar félögunum í hand- knattleik, samkvæmt heimildum mínum. Mér er sagt að meðal- laun þjálfaranna séu á bilinu 70-80 þúsund krónur. Einn þeirra er þó með eitthvað lægri laun en það er Geir Hallsteins- son, þjálfari Breiðabliks, sem náð hefur einna bestum árangri þjálfaranna í deildinni, allavega það sem af er keppnistímabilinu. -Muggur MUGGUR • Þeir segja að íþróttafrétta- menn Rikisútvarpsins séu áskrifendur að Morgunblaðinu. Bræðurnir „Víkingur með besta liðið - sagði Viggó Sigurðsson, þjálfari FH, eftir stórkarl alegt jafntefli Víkings og FH, 21-21 (14-7) „Strákamir vom alltof spenntir fyrir leikinn. Ég tók þá vel í gegn í hálfleik, tætti þá niður og ég held að það hafi los- að um spennuna hjá þeim. Lið mitt er mjög ungt og reynslulítið, meðalaldurinn rúm 19 ár og strákamir eiga framtíðina fyrir sér. Ég tel að Víkingar séu með besta liðið í dag en við eigum samt möguleika á að vinna íslandsmeistaratitilinn í ár,“ sagði Viggó Sigurðsson, þjálfari FH, eftir að lið hans hafði gert jafhtefli gegn Vík- ingi í Laugardalshöllinni í gærkvöldi, 21-21. Leikur liðanna í gærkvöldi var vægast sagt furðulegur. Víkingar með yfirburða- forystu lengst af en FH-liðið barðist til jafnteflis í síðari hálfleik eftir að leikmenn liðsins höfðu hlýtt á mikla ræðu hjé Viggó þjálfara sem heyrðist um hálfa Höllina. Víkingar vom sjö mörkum yfir í leikhléi, 14-7, en mestur var munurinn þegar stað- an var 16-8 i upphafi síðari hálfleiks. FH-ingar gengu síðan á lagið jafnt og þétt og átu smátt og smátt upp forskot Víkinga. Ami Indriðason fékk rauða spjaldið (3 brottvísanir) þegar staðan var 17-14 og hafði það sitt að segja. Ruðningur á markvörðinn Þegar tvær mínútur vom til leiksloka var staðan 20-20 og dæmd leiktöf á Vík- inga. Sókn FH-inga stóð ekki lengi yfir og Hilmar Sigurgíslason skoraði 21. mark Víkings þegar ein mínúta og fjömtíu sek- úndur vom .til leiksloka. Tæpri mínútu síðar skoraði Héðinn Gilsson 21. mark FH eða þegar 43 sekúndur vom eftir. Víkingar fóm í sókn sem endaði með því að Siggeir Magnússon skaut framhjá, FH-ingar gáfú langa sendingu fram á völhnn en Kristján Sigmundssson kom hfaupandi langt fram á völlinn og náði knettinum, lék með hann áffam að punktalínunni. En í stað þess að gefa knöttinn á óvaldaðan félaga sinn stökk hann upp og ætlaði að freista þess að skora sigurmarkið. Ekki tókst hins vegar betur til en svo að dæmdur var réttilega mðningur á Kristján og jafhteflið því staðreynd. Allt dómurunum að kenna? Víkingar létu ófriðlega að leik loknum. Bölvuðu þeir dómurunum í sand og ösku en gleymdu í látunum eigin klaufaskap og klúðri. Liðsandinn er greinilega á lágu plani í Víkingsliðinu og Víkingar verða að taka til hjá sjálfum sér áður en þeir fara að róta til hjá öðrum. Liðið lék vel í fyrri hálfleik en frammistaðan í þeim síðari var léleg. Lið, sem á að teljast það besta hér á landi í dag, getur tæpast ve- rið þekkt fyrir að tapa niður átta marka forskoti á um 25 minútna leikkafla. Kristján Sigmundsson var langbestur í liði Víkings og varði 17 skot í leiknum. Frábær síðari hálfleikur FH-liðið var hvorki hundur né hæna í fyrri hálfleik en eftir mikla „prófkjörsræðu" Viggós þjáifara í leikhléi var leikur liðsins stórgoður í síðari hálfleik og liðið verðskuldaði annað stigið og hefði með smáheppni i lokin getað náð þeim báðum. Þorgils Óttar var einna best- ur FH-inga og skoraði meðal annars mark með langskoti. Hann klikkar aldrei „gamli maðurinn" og kann greinilega best við sig í húsum sem byija á H. • Leikinn dæmdu þeir Guðmundur Kol- beinsson og Þorgeir Pálsson og dæmdu illa og gerðu mikið af mistökum. Víkingar voru einum leikmanni færri í 18 mínútur en FH- ingar í sex minútur. • Mörk Víkings: Siggeir 6/1, Hilmar 4, Ámi F. 4, Guðmundur 2, Karl 2/1, Bjarki 2 og Ein- ar 1. •Mörk FH: Þorgils Óttar 6, Héðinn 4, Gunn- ar 4, Óskar Á. 4/3, Guðjón 1, Pétur 1 og Óskar H. 1. -SK „Vömin hjá / Mil okkurvargoð - sagði Jón Pétur Jónsson, þjálfari Vals „Miðað við gengi liðsins að undan- fömu var ég ánægður með liðið í þessum leik og vömin var góð. Ég er bæði bjartsýnn og svartsýnn á ffarn- haldið hjá okkur, það eru miklar sveiflur í leik okkar og ég held að skýringar sé að finna í þessum löngu eyðum sem em á milli leikja, þær kunna ekki góðri lukku að stýra,“ sagði Jón Pétur Jónsson, þjálfari Vals- hðsins, í samtali við DV eftir að Vals- menn höfðu sigrað Ármenninga á íslandsmótinu í handknattleik í gær- kvöldi með 22 mörkum gegn 17, eftir að hafa haft sex marka forystu í hálf- leik, 12-6. Jafhræði var með liðunum fyrsta korterið í leiknum og þegar staðan var 5-5 datt allur botninn úr leik Ármenn- inga og Valsmenn skomðu sex mörk í röð og gerðu nánast út um leikinn. Ármenningar virtust ætla að koma ákveðnir til seinni hálfleiks og gerðu fyrstu þrjú mörkin en það var öðm nær því Valsmenn sögðu hingað og ekki lengra og breyttu stöðunni í 18 -13 og eftir það hélst þessi munur á liðunum enda Ármenningar óvenju daufir miðað við stöðu þeirra í deild- inni en þeir hafa enn ekki hlotið stig í deildinni til þessa. Valsmenn sýndu aftur á móti ágætis leik á köflum. Geir Sveinsson var einna bestur Valsmanna í leiknum og var eins og klettur í vöminni en annars var liðið frekar jafnt í leiknum. Einar Náby og Bragi Sigurðsson stóðu upp úr í slöppu Ármanns-liði og gerðu þeir bróðurpartinn af mörkum liðsins. Magnús Pálsson og Kristján Sveins- son dæmdu leikinn en þetta vað þeirra fyrsti leikur í 1. deild og skiluðu þeir hlutverki sínu með sóma. Mörk Vals: Valdimar 5, Júlíus 5/1, Geir 4, Stefán 4/1, Jakob 2, Þórður 1. Þorbjöm 1. Mörk Ármanns: Bragi 7, Einar 6, Óskar 3/1, Einar Ó 1. -JKS gáfu tóninn - þegar Keflvíkingar lögðu Hauka, 96-83 Magnús Gislascm, DV, Suðumesjum: Keflvíkingar unnu góðan sigur, 96-83, yfir Haukum í úrvalsdeildinni í körfuknattleik í gærkvöldi. Haukar veittu Keflvíkingum harða keppni í fyrri hálfleik - léku sterkan vamarleik og vom yfir, 43-39, í leikhléi. Það vom svo bræðumir Hreinn og Gylfi Þor- kelssynir sem gáfu Keflvíkingum tóninn í byrjun seinni hálfleiksins með því að skora sjö fyrstu stigin og koma Keflvíkingum yfir, 48-43. Eftir það tók Ólafur Gottskálksson við aðalhlutverkinu hjá Keflvikingum sem komust mest yfir 82-65. Eini leik- maðurinn hjá Haukum, sem lét að sér kveða í seinni hálfleik, var Pálmar Sigmarsson - hann skoraði t.d. 13 stig í röð. Ólafur var besti leikmaður Keflvík- inga en Pálmar bar af hjá Haukum. Þeir sem skomðu stigin í leiknum vom: •Keflavík. Ólafur 19, Guðjón S. 18, Jón Kr. 15, Sigurður I. 15, Hreinn 13, Gylfi 12, Matti 2 og Ingólfur 2. • Haukar. Pálmar 36, Henning 13, ívar 10, Eyþór, 10, Ólafur R. 7, Ingim- ar 5 og Sigurgeir 2. Góðir dómarar leiksins vom þeir Jón Otti og Bergur Steingrímsson. _gQS •Hilmar Sigurgislason Vikingur sækir hér stíft að Óskari Helgasyni FH-ingi í leik Víki marka forskoti á 25 mínútum í síðari hálfleik. •Geir Sveinsson sést hér skora eitt af fjómm mörkum sínum fyrir Val. DV-mynd Brynjar Gauti Sigurður með sveinamet KR-ingar hafa eignast ungan og kraftmikinn fijálsíþróttamann. Sigurður Þorleifsson, 16 ára, setti í gærkvöldi nýtt sveinamet í lang- stökki innanhúss, stökk 6,65 m á innanfélagsmóti hjá KR. Gamla metið átti Ármenningur- inn Sigurður Sigurðsson, 6,59. Sigurður, sem hefur yfir miklum sprengjukrafti að ráða, á ömgg- lega efir að stökkva fljótlega yfir sjö metrana. -SOS

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.