Dagblaðið Vísir - DV - 05.12.1986, Page 32

Dagblaðið Vísir - DV - 05.12.1986, Page 32
44 FÖSTUDAGUR 5. DESEMBER 1986. Björg hleypur að heiman Margit Ravn Bókaútgáfan Hildur hefir á undan- fömum ámm endurútgefið hinar kunnu unglingasögur norsku skáldkonunnar Margit Ravn sem nutu mjög mikilla vin- sælda fyrir 30-40 árum og eiga enn marga aðdáendur, eldri og yngri. Nú kemur 22. bókin af endurútgáfunni. Þessi saga gerist að nokkru leyti á Is- landi því að aðalpersóna sögunnar fer með hálfíslenskri fjölskyldu til íslands í frí. Þar lendir hún í ástarævintýri en staðfestist þó ekki hér. Raunir Barböru lb Henrik Caviing Enn kemur ein af hinum vinsælu sög- um danska rithöfundarins I.H. Cavling á vegum Bókaútgáfunnar Hildar. Sagan fjallar um unga og saklausa stúlku sem kynnist glæsilegum og auð- ugum ungum manni og giftist honum. Þau fara í brúðkaupsferð til Spánar en hénni finnst undarlegt að hann forð- ast landa sína og því fer hana að gruna að eitthvað sé öðruvísi en vera á. Maður hennar deyr af slysförum og þá lendir hún í miklum hörmungum en með dyggri aðstoð vina sinna bjargast hún að lokum frá því öllu. 186 bls. HESTAR 0G REIÐMENN Á ÍSLANDI Hestar og reiðmenn á ís- landi George H. F. Schrader Meðal bóka þeirra sem Bókaútgáfan Hildur gefur út í ár er gagnmerk bók sem lengi hefur verið ófáanleg. Það er bók sem segja má að hafi verið biblía hesta- mannsins um langan tíma. Hún fjallar um allt sem lýtur að hirðingu og meðferð hesta og var sérlega þörf áminning þegar hún kom út árið 1915 og ennþá má segja að hún sé um margt í fullu gildi. 1 henni er einnig margt merkilegra og bráð- skemmtilegra mynda. Bók sem allir hestamenn þurfa að eiga. Horfnir heimar Nýju Ijósi varpað á leyndardóma sög- unnar Ólafur Halldórsson Út er komin hjá Erni og Örlygi bók um forvitnilegt efni. Nefnist hún Horfn- ir heimar og er eftir Ólaf Halldórsson kennara. í bók þessari leitast Ólafur við að varpa nýju ljósi á ýmsa leyndardóma sögunnar. Framan á bókinni er mynd af líkneski sem indíánar í Mið-Ameríku gerðu af guði sínum Quetzalcoatl sem var hvítskeggjaður. Undir myndinni er varpað fram þeirri spumingu hvort hér hafí verið um að ræða Bjöm Breiðvík- ingakappa. Það má með sanni segja að í þessari nýstárlegu bók kannar höfundurinn ýmsa þætti heimssögunnar sem og sogu íslands, - þætti sem höfundar hefðbund- inna vísindarita og þá sérstaklega sagnfræðirita hafa veigrað sér við að fjalla um eða taka afstöðu til. Víða er leitað fanga og áleitnum spurn- ingum svarað. A íjölbreytileg siðmenning jarðarbúa rætur að rekja til einnar móðurmenning- ar? Er kominn tími til að hrista rækilega upp í viðteknum hugmyndum um upp- mna íslendinga? Við lestur þessarar bókar fer lesandinn um ýmsa baksali sögunnar, allt frá spurningunni um það hverjir námu ís- land fyrstir til bollalegginga um það hvaðan frumstæðum ættflokki í Vestur- Afríku barst víðtæk þekking í stjörnu- fræði, svo sem fylgistjörnu Síríusar og umferðartíma hennar. Bókin Horfnir heimar er sett og prent- uð hjá Steinholti hf. en bundin í Arnar- felli. Kápugerð annaðist Hrafnhildur Sigurðardóttir. Villti baróninn Victoria Holt Þetta er 19. bók þessa vinsæla höfund- ar sem Bókaútgáfan Hildur gefur út. Sagan segir frá ungri, enskri stúlku sem er síðasta afsprengi frægrar ættar listmálara sem aðallega hafa málað ör- myndir - miniatures. Sagan gerist á tímum frönsku stjórnarbyltingarinnar og á þeim tíma var ekki til siðs að konur Ttcnar^ ^rir DESEMBEB S'Símvmnaridi U, - , aníömð1 ' - i. 22 * \ xr vKxabbaxuem^ versvegnavcr w ^ei gr-**** Rofc,_ t bjmraxmveruieg^^ ^ ^Sauöveldiega 1 77 ★ í leit aö , ^förvag^ugíar-, agdraum- ordum88 * arbS^VolurSa*ús96 LESEFNl mira H/EF' Nýtt hefti Ablaðsölu stóðuffi ma al\t land 27022 Askriftar- síminn er Nýjar bækur stunduðu slík störf. Faðir hennar er kvaddur til Frakk- lands til að mála örmyndir fyrir voldugan barón. Hann er farinn að missa sjónina svo að Kata fer með honum og það verð- ur hún sem málar myndirnar. Baróninn styður hana og hjálpar henni til að koma undir sig fótunum á listasviðinu. En jafnframt mætir hún örlögum sín- um í Frakklandi. 217 bls. Hrafn á Hallormsstað og lífið kringum hann skráð af Ármanni Halldórssyni Örn og Örlygur hafa gefið út bókina Hrafn á Hallormsstað og lífið kringum hann. Ármann Halldórsson skráði. Hrafn Sveinsson á Hallormsstað er nú á áttræðisaldri. Hann byrjaði Iífsferil sinn á Hólmum í Reyðarfirði og átti heima í bernsku í Búðareyrarþorpinu en ólst upp á Sómastöðum eftir að hann missti móður sína átta ára að aldri og þangað til hann réðst kyndari að Hús- mæðraskólanum á Hallormsstað haustið 1932. Eins og áður segir hefur Ármann Halldórsson fært sögu Hrafns í letur eft- ir frásögn hans og fleiri heimildum. Fjallað er um þá þróun sem átt hefur sér stað niðri á Fjörðum og á Héraði um ævidaga Hrafns og raunar áður en hann kemur til sögunnar. Fjöldi manna á Austurlandi kemur við sögu Hrafns þótt Reyðfirðingar og Héraðsmenn séu þar í fararbroddi. Lýsingar á aldarfari og lífs- háttum á Austfjörðum eru þess eðlis að bókin mun verða talin merk heimild um það efni er stundir líða. Bókin um Hrafn á Hallormsstað er sett og prentuð í prentstofu G. Bene- diktssonar en bundin hjá Arnarfelli hf. Kápugerð annaðist Sigurþór Jakobsson. Goð og hetjur í heiðnum sið Undirstöðuverk um fornan íslenskan menningararf eftir Anders Bæksted í þýðingu Ey- steins Þorvaldssonar lektors Bókaútgáfan Örn og Örlygur hf. hefur gefið út bókina Goð og hetjur í heiðn- um sið en eins og segir í undirtitli bókarinnar er hér um að ræða fornan íslenskan menningararf. Höfundur bók- arinnar er Anders Bæksted en þýðandi Eysteinn Þorvaldsson lektor. Bókin Goð og hetjur í heiðnum sið er stærsta og vandaðasta rit um goðsögur og hetjusögur sem komið hefur út á ís- lensku. Hér er brugðið upp skýrum myndum af heiðnum átrúnaði og stór- brotinni veröld goðsagnanna. Jafnframt er sýnt fram á hvernig hin heiðnu lífsvið- horf birtast ljóslifandi í hetjum fornsagn- anna, einkalífi þeirra, framgöngu og örlögum. Raktar eru helstu goðsögur norrænna manna og sagt frá hlutverki þeirra í daglegu lífi forfeðra okkar. Einn- ig eru hér endursagðar norrænar hetju- sögur miðalda sem byggja á ævagömlum sagnaarfi þar sem hin fornu goð eru jafn- an í námunda við róstursamt mannlíf. Bókin er ríkulega myndskreytt og í rauninni listaverkahandbók á sínu sviði. Þar á meðal er fjöldi litmynda úr íslensk- um handritum. Bókin Goð og hetjur í heiðnum sið er sett og prentuð x prentstofu G. Bene- diktssonar og bundin í Amarfelli hf. Kápu hannaði Sigurþór Jakobsson.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.