Dagblaðið Vísir - DV - 05.12.1986, Page 34
46
FÖSTUDAGUR 5. DESEMBER 1986.
Nauðungaruppboð
I Dagblaöinu Visi þann 3. des. síðastliðinn birtist auglýsing um uppboð á
eigninni Þingaseli 2, þingl. eigandi Guðbrandur Bogason. Auglýsing þessi
þirtist fyrir mistök Borgarsjóðs, þar sem uppboðskrafa var greidd.
Borgarsjóður Reykjavíkur.
Nauðungaruppboð
á fasteigninni Sigtúni 35, risi, þingl. eigandi Bragi Björnsson, fer fram á eign-
inni sjálfri mánud. 8. des '86 kl. 11.30. Uppboðsbeiðandi er Skúli J. Pálmason
hrl.
________Borgarfógetaembættið i Reykjavik.
Nauðungaruppboð
annað og síðasta á fasteigninni Sólheimum 23, 1. hæð C, talinn eigandi
Valgarður Magnússon, fer fram á eigninni sjálfri mánud. 8. des.'86 kl. 14.00.
Uppboðsbeiðendur eru Gjaldheimtan í Reykjavik, Hákon H. Kristjánsson
hdl., Björn Ólafur Hallgrimsson hdl„ Eggert B. Ólafsson hdl. og Ólafur Gúst-
afsson hrl.
Borgarfógetaembættið í Reykjavík.
Nauðungaruppboð
á fasteigininni Vindási 3, fb. 0204, talinn eigandi Þórir Oddsson, fer fram á
eigninni sjálfri mánud. 8. des.'86 kl. 13.30. Uppboðsbeiðendur eru Veðdeild
Landsbanka islands og Málflutningsstofa Guðmundar Péturssonar og Axels
Einarssonar
Borgarfógetaembættið í Reykjavík.
Nauðungaruppboð
annað og síðasta á fasteigninni Rauðalæk 22, vesturenda, þingl. eigandi
Haraldur Ágústsson, fer fram á eigninni sjálfri mánud. 8. des.'86 kl. 11.45.
Uppbqðsbeiðendur eru Jón Arason, dánarbú, Úh/egsbanki islands, Lands-
banki íslands, Baldur Guðlaugsson hrl. og Jón Ólafsson hrl.
Borgarfógetaembættið i Reykjavik.
Nauðungaruppboð
annað og síðasta á fasteigninni Rauðási 14, íbúð merkt 00-01, talinn eig-
andi Jón Magnússon, fer fram á eigninni sjálfri mánud. 8. des.'86 kl. 16.00.
Uppboðsbeiðendur eru Sigfús Gauti Þórðarson hdl., Sigurður G. Guðjóns-
son hdl., Brandur Brynjólfsson hrl„ Ólafur Thoroddsen hdl„ Sigríður Thorlac-
ius hdl„ Sigríður Jósefsdóttir hdl„ Eggert B. Ólafsson hdl. og sýslumaður
Mýra- og Borgarfjarðarsýslu
Borgarfógetaembættið í Reykjavík.
Nauðungaruppboð
annað og síðasta á fasteigninni Starmýri 2, bakaríi, þingl. eigandi Jón Magn-
ús Sigurðsson, fer fram á eigninni sjálfri mánud. 8. des.’86 kl. 10.30.
Uppboðsbeiðendur eru Ásgeir Thoroddsen hdl„ Ólafur Axelsson hrl„ Bjami
Ásgeirsson hdl„ Skúli J. Pálmason hrl, Ólafur Gústafsson hri„ Búnaðarbanki
islands, Gjaldheimtan í Reykjavík, Landsbanki íslands, Sigriður Jósefsdóttir
hdl„ Gunnar Guðmundsson hdl„ Sveinn Skúlason hdi„ Tómas Þorvaldsson
hdl. og Jón Ingólfsson hdl.
Borgarfógetaembættið i Reykjavik,
Nauðungaruppboð
annað og siðasta á fasteigninni Reykási 20, talinn eigandi Karl Óskarsson,
fer fram á eigninni sjálfri mánud. 8. des.'86 kl. 13.45. Uppboðsbeiðandi er
Klemens Eggerts hdl.
Borgarfógetaembættið i Reykjavik.
Nauðungaruppboð
annað og síðasta á fasteigninni Kleppsvegi 152, þingl. eigandi Holtavegur
43 hf„ fer fram á eigninni sjálfri mánud. 8. des.'86 kl. 15.15. Uppboðs-
beiðendur eru Steingrimur Þormóðsson hdl„ Ari ísberg hdl„ Sigurður G.
Guðjónsson hdl. og Gjaldheimtan í Reykjavík.
Borgarfógetaembættið í Reykjavík.
Nauðungaruppboð
annað og síðasta á fasteigninni Rauðalæk 73,1. hæð, talinn eigandi Ingþór
Björnsson, fer fram á eigninni sjálfri mánud. 8. des.'86 kl. 15.00. Uppboðs-
beiðendur eru Baldur Guðlaugsson hrl„ Ólafur Axelsson hrl„ Othar Örn
Petersen hrl„ Árni Stefánsson hrl. og Gjaldheimtan í Reykjavík.
Borgarfógetaembáettið í Reykjavík.
Nauðungaruppboð
á fasteigninni Suðurlandsbraut 20, þingl. eigandi Kristinn Guðnason hf„ fer
fram á eigninni sjálfri mánud. 8. des.'86 kl. 10.45. Uppboðsbeiðandi er Gjald-
heimtan í Reykjavík.
Borgarfógetaembættið í Reykjavík.
Nauðungaruppboð
á fasteigninni Tangarhöfða 3, neðri hæð, þingl. eigandi Vélsmiðjan Kvarði
sf„ fer fram á eigninni sjálfri mánud. 8. des.'86 kl. 11.00. Uppboðsbeiðandi
er Gjaldheimtan í Reykjavík.
Borgarfógetaembættið í Reykjavik.
Nauðungaruppboð
á fasteigninni Vagnhöfða 3, þingl. eigandi Kraftur hf„ fer fram á eigninni
sjálfri mánud. 8. des.'86 kl. 11.15. Uppboðsbeiðandi er Gjaldheimtan í
Reykjavík.
Borgarfógetaembættið i Reykjavík,
Nauðungaruppboð
annað og siðasta á fasteigninni Logalandi 7, þingl. eigandi Árni Kristjáns-
son, fer fram á eigninni sjálfri mánud. 8. des.'86 kl. 16.45. Uppboðsbeiðendur
eru Páll Amór Pálsson, Gjaldheimtan í Reykjavík, Ásgeir Thoroddsen hdl„
Tollsljórinn i Reykjavík og Tómas Þorvaldsson hdl.
Borgarfógetaembættið í Reykjavík.
Menning
Kór Langholtskirkju
Suðræn sveifla
í messusöng
Tónleikar Kórs Langholtskirkju 29. nóv-
ember.
Stjórnandi: Jón Stefánsson.
Einsöngvarar: Harpa Haröardóttir, Ragn-
heiöur Fjeldsted, Sigurbjörg Hjörleifsdóttir,
Friörík S. Kristinsson, Sverrír Guöjónsson,
Rúnar Matthiasson, Pétur Guðlaugsson,
Þóroddur F. Þóroddsson.
Efnisskrá: Negrasálmar: Ride on, King
Jesus, Elijah Rock, It I Got My Ticket, Can
I Ride, auk fimm sálma í búningi Micha-
els Tippet Aríel Ramires: Misa Criolla.
Kór Langholtskirkju fyllti kirkj-
una sína stóru á öðrum tónleikum
sínum á vetrinum. Kannski ekki að
furða, því þegar hann flutti Misa
Criolla eftir Ariel Ramires hér um
árið fékk hann margan til að hlusta
á guðsorð sem annars hafði haft rö-
rið opið á milli eyrna þegar það var
annars vegar. Á þessum tónleikum
var einungis trúarleg músík á efhis-
skránni því auk Misa Criolla voru
negrasálmar sungnir.
Margur haft slakara hljóðfæri
sértil stuðnings
Nú hefði einhver haldið að negra-
sálmamir væru þama til uppfylling-
ar einnar, en því var öðm nær. Þeir
vom sungnir í margslungnum og
upphöfnum útsetningum sem þó
varðveittu hinn svarta neista þegar
gleggra var skoðað. Allra ánægju-
legast var þó að í þeim sýndi kórinn
sinn makalausa styrk, að geta kallað
ffam hvorki meira né minna en sjö
einsöngvara úr sínum röðum. Þeir
vom að vísu misgóðir sem von var.
Sumir nærri tilbúnir til að takast á
við enn stærri verkefhi, aðrir ekki.
Öll komu þau þó vel viðunandi ffá
sínum verkeíhum. Að baki þeim söng
kórinn og hefur margur einsöngvar-
Tónlist
Eyjólfur Melsted
inn mátt hafa slakara hljóðfæri sér
til stuðnings.
Með tónleikana heim í vasan-
um
En það var samt Misa Criolla sem
tekin var sem aðalverkefhi þessara
tónleika. Meðleikurinn, sem Elín
Guðmundsdóttir, Jón Sigurðsson,
Matthías M.D. Hemstock, Pétur
Grétarsson og Vilhjálmur Guðjóns-
son önnuðust, var vel styðjandi og
ýtandi undir létta sveiflu með suð-
rænum blæ. Einsöngvaramir, Rúnar
Matthíasson og Sverrir Guðjónsson,
vom báðir kjömir í sín hlutverk.
En mest fannst mér til kórsins koma.
Hans fbamlag sá um að lyfta flutn-
ingnum í hæðir. Hann hefur suð-
ræna hlýju og mjúka sveiflu jafat á
valdi sínu sem gamla Bach. Svo var
boðið upp á þá nýlundu að tónleika-
gestir gætu farið með tónleikana i
vasanum heim því að i hinu ágæta
hljóðveri kirkjunnar má taka tón-
leika staifænt upp og fjölfalda á
réttum hraða, með góðum árangri í
tuttugu eintökum. Þetta hefur til
dæmis verið gert við jólamessuna frá
í fyrra. Verður áreiðanlega veitt
sama þjónusta laugardaginn sjötta
desember þegar kórinn endurtekur
tónleikana. Og það er sannarlega
þess virði að taka tónleika af þessu
tagi með sér heim.
EM.
Glæsileikinn
kemur nú
líka að norðan
Tónleikar Bjöms Steinars Sólbergssonar
organleikara í Frikirkjunni 28. nóvember.
Efnisskrá: Johann Sebastian Bach: Prelúdia
og fúga i G-dúr BWV 541 og Trió i G-dúr
BWV 1027; Franz Listz: Lokaþáttur fantasiu
og fúgu um sáiminn Ad nos salutarem; Cés-
ar Franck: Piéce heróique; M. Duruflé:
Scherzo op. 2; J.P. Leguay: Madrlgal VII;
C.M. Widor: Allegro úr VI symfóníu.
Bjöm Steinar Sólbergsson er nafh
sem ekki þarf lengur að kynna sér-
staklega þeim sem á annað borð hafa
áhuga á organleik. Þótt hann hafi
nýlokið námi hefur hann fyrir all-
nokkru skipað sér í sveit fremstu
organleikara okkar. Námsferill hans
hefur verið nokkuð sérstæður. Hefur
Tórdist
Eyjólfur Melsted
leið hans legið um borgina eilífu og
ama kaþólskrar kirkjutónmenningar
og síðan um París þar sem ferskir
vindar hafa blásið um orgelheiminn á
undanfomum árum. Það er dálítið
skemmtilegt til þess að hugsa hversu
ólíkir þeir em, ungu, dugmiklu organ-
istamir okkar, og ég held að styrkur
þeirra sem heildar felist meðal annars
í því að þeir hafa ólíkan og þar með
fírna breiðan bakgrunn.
Að ná sáttum við andsvörun
En vindum okkur að leik Bjöms
Steinars í Fríkirkjunni. Hann hafði
leikið sömu efhisskrá nokkrum kvöld-
um áður í Akureyrarkirkju þar sem
hann er nýtekinn við organistastarfi.
Það tók hann nokkum tíma að verða
dús við andsvörun orgelsins. Skemmdi
það heldur fyrir meðferð hans á Bach
og Lisztverkunum sem hann lék. Hann
hefði greinilega þurft á rneiri tíma að
halda til undirbúnings við þetta hljóð-