Dagblaðið Vísir - DV - 05.12.1986, Page 35
FÖSTUDAGUR 5. DESEMBER 1986.
47
Svanurinn
blæstil
aðventu
Menning
Aðventutónleikar Lúðrasveitarinnar Svans
i Langholtskirkju 30. nóvember.
Stjórnandi: Kjartan Óskarsson.
Einleikarar: Þorsteinn Sigurðsson, Guð-
mundur Haraldsson og Vigdis Klara
Aradóttir.
Efnisskrá: Wolfgang Amadeus Mozart: All-
egro úr Divertimento nr. 14 KV 270;
Adriano Banchieri: Echo Fantasia; Franz
Krommer: Adagio; Gustav Holst: Svita nr.
1 i Es-dúr op. 28 nr. 1; Johann Sebastian
Bach: Kóralforspil, Vakna Síons verðir
kalla; Benedetto Marcello; Konsert i c-
moll f. sópransaxófón; Tomasso Alblnoni:
Adagio; Leroy Anderson: Jólahátið -
syrpa.
Ég hef ekki fyrr heyrt íslenska
lúðrasveit kunna svo vel að fara með
Mozart sem Svaninn í byrjun þessara
tónleika. Síðan sýndi lúðradeildin
ein sér að hún kann vel til verka í
Echo Fantasíu, svonefndri, eftir Adr-
iano Banchieri. En tréð lagði til
einleikara á þessum tónleikum.
Fyrstir léku klarinettuleikarar tveir
sem iðka leikinn sér fyrst og fremst
til hugarhægðar. Þorsteinn Sigurðs-
son og Guðmundur Haraldsson léku
einleikshlutverk sín eins og aðeins
góðir áhugamenn gera.
Sama fyrir hvorn herinn var
samið
Básúnuleikarinn Gustav Holst
þekkti lúðrasveitina út í æsar. Ekki
man ég alveg hvort hann samdi svít-
urnar opus 28 heldur fyrir blásarana
í verkfræðingasveitum hers hans
hátignar eða Hjálpræðisherinn en
báðum herjunum lagði hann til
ágæta músík eftir pöntun. íslenskar
lúðrasveitir þyrftu að leggja meiri
rækt við verk af þessu tagi, sem sam-
in eru upprunalega fyrir lúðrasveit,
þótt umskriftir annarra verka geti
verið ágætar í sjálfu sér.
Af umskriftum og jólalagaút-
setningum fréttaagentsins
Gott dæmi um fallega umskrift var
kóralforspilið Vakna Síons verðir
kalla, sem einnig var prýðilega blás-
ið, en ég var minna hrifinn af
umskriftinni á óbókonsert Benedett-
os Marcellos, samtímamanns Vivald-
is í Feneyjum, fyrir sópransaxófón,
Tónlist
Eyjólfur Melsted
sem Vigdís Klara Aradóttir lét ein-
leikinn í.
Á eftir hinu þekkta Adagio Albin-
onis, sem hljómar eins vel fallega
blásið á lúðra og í sinni upprunalegu
mynd fyrir orgel og strengi, kom
syrpa af jólalögum í samantekt Lero-
ys Andersons. Það er alltaf gaman
að þessum gamla fréttaagent sem í
stríðinu bjó í bragga i Skólavörðu-
kampi, rítskoðaði fréttir og fylgdist
með því að þýddar væru samkvæmt
tilskipunum herstjórnarinnar. Litla
hemaðarhyggj u er að fínna í músík
hans og þessari jólalagaútsetningu,
en henni gerði Svanurinn bestu skil
eins og flestu öðru á þessum ágætu
tónleikum.
EM.
Björn Steinar Sólbergsson orgelleikari.
færi, sem svarar á sinn mjög svo
sérstæða hátt, en gefur um leið ein-
hverja þá alfallegustu tóna sem úr
nokkru orgeli koma hérlendis. Auk
þess er hljómur þess í svo innilegu
samræmi við heyrð kirkjunnar að
einsdæmi er. Á þau atriði kunni Bjöm
Steinar vel að leika og þegar hann og
mekaník orgelsins vom orðin sátt
naut hans góði leikur sín til fulls.
Um helmingur tónleikanna byggðist
á gallískum orgelverkum. César gamla
Franck þekkja menn sæmilega og
jafhvel Duruflé, en það sem hvað mest
vakti athygli mína var gegnum organ-
ískur og vel uppbyggður Madrigal
eftir Leguay. Á voldugum allegrokafla
úr orgelsymfóníu eftir Widor enduðu
svo þessir glæsilegu orgeltónleikar.
Ég vona bara að Akureyringar hafi
gert sér betur grein fyrir því en Reyk-
víkingar hversu frábæra orgeltónleika
nýi organistinn þeirra bauð upp á.
EM.
EKKI BRÆÐA ÞETTA
MEÐ ÞÉR LENGUR
ÞAÐ BÝÐUR ENGINN BETUR
OPIÐ LAUGARDAGA.
M 260. Tvískiptur, alsjálfvirkur. 260 lítra,
með þriggja stjörnu frysti, kr. 16.650,-
stgr.___________________________________________
120 FM. 120 lítra frystiskápur, kr. 12.990,-
stgr.
Umboðsmenn um land allt.
DL 150. Hálfsjálfvirkur. 150 lítra, með
tveggja stjörnu frysti, kr. 9.985,- stgr.
GELLIR
Skipholti 7, símar 20080 og 26800.
KEA, Akureyri
Valberg, Ólafsfirði
Kaupf. Skagf., Sauðárkróki
Oddur Sigurðss., Hvammsf.
Póllinn hf., ísafirði
Kaupf. Stykkish., Stykkish.
Versl. Blómsturv., Helliss.
Húsprýði, Borgarnesi
Skagaradió, Akranesi
JL-húsið, Hringbraut, Rvk.
seV&*^
Kælitæki, Njarðvik
Árvirkinn, Selfossi
Mosfeli, Hellu
Kaupf. Vestmannaeyinga,
Vestmannaeyjum
Hátíðni, Höfn, Hornafirði
Rafvirkinn, Eskifirði
Myndbandaleigan, Reyðarf.
Kaupf. Héraðsbúa, Egilsst.
Kaupf. Þingeyinga, Húsavík
280 DL. Hálfsjálfvirkur. 280 lítra, með
tveggja stjörnu frysti, kr. 14.495,- stgr.