Dagblaðið Vísir - DV - 05.12.1986, Síða 40
52
FÖSTUDAGUR 5. DESEMBER 1986.
Sviðsljós
Ölyginn
sagði. . .
Roger Moore
getur að nýju klæðst gamla
smókingnum. Fyrverandi 007
var orðinn í þybbnari kantinum
eftir að hafa slappað of mikið
af og setti hann því sjálfan sig
í strangan megrunarkúr sem
samanstóð af hrísgrjónum,
greipaldin og hráum fiski. Nú
getur gamla kempan andað létt-
ar eftir góðan árangur.
Dean Martin
er enn í fullu fjöri. Hin 69 ára
söngvari hefur heitbundist aftur
konu númer tvö, Jeanne Þau
voru gift frá 1949 til 1969 en
nú finnst Dean kominn timi til
að byrja aftur þar sem frá var
horfið. Trúlofunargjöfin var
hvítagullshálsmen upp á litla
háffa milljón.
★
Rod Stewart
fékk aukafaðmlag frá sonum
sínum tveimur, Sean og Kim-
berly, síðastliðinn þriðjudag.
Höfðinginn kom við í leikfanga-
búð á heimleiðinni og keypti tvo
eins Ferrari-bíla handa peyjun-
um á 560.000 kr. stykkið. Þetta
var smáglaðningur fyrir jólin til
að létta þeim aðeins þiðina.
Það verður ekkert brúðkaup hjá
Stephanie prinsessu og kvikmynda-
leikaranum Rob Lowe. Samband
þeirra skötuhjúa hefúr flosnað upp og
finnst öllum sem til þekkja það mjög
sorglegt.
Þegar Stephanie hitti Rob í fyrsta
skipti var það ást við fyrstu sýn, hún
féll fyrir drengslegu útliti hans og
dádýraaugunum og þau fóru að vera
saman upp úr því. Fyrst í París, síðan
í Dallas og á endanum í Los Angeles.
Það var þar sem sambandið brotnaði
í tvennt eftir sex vikna rómantískt
ævintýri sem gaf til kynna að þau
ættu eftir að sigla í örugga höfn,
hjónaband.
Því miður voru þau allt of ólík til
að þetta gæti gengið upp, Rob er alvar-
legur ungur maður sem er farinn að
huga að framtíðinni en Sephanie
hugsar fyrir einn dag í einu og vill
lifa villtu og ævintýraríku lífi á nætur-
klúbbum borganna.
Þetta var lífsstíll sem passaði Rob
Lowe ekki. Stephanie var flutt heim
til Robs í Los Angeles og þar hófst
darraðardansinn. Eftir nokkra daga
fóru þau að fara mjög mikið í taug-
Það var ást við fyrstu sýn þegar þau hittust í París en nú er ástin kulnuð og
Rob situr einn eftir og sleikir sárin á meðan Stephanie skemmtir sér með
nýja elskhuganum.
amar hvort á öðru. Rob varð þreyttur
á að flakka frá einum næturklúbbnum
til annars en prinsessan gat ekki ha-
mið sig heima eitt einasta kvöld, hún
þurfti alltaf að vera á ferðinni.
Þetta var allt mjög erfitt fyrir mig,
segir Rob, þegar ég sagði Stephanie
að ég vildi taka lífinu með ró kallaði
hún mig leiðindapúka og sagði að ég
væri orðinn gamall fyrir aldur fram.
Ég get ekki lifað lífinu á trampólíni,
eilíft hopp á engan veginn við mig. .
Endanlegt hrun kom þegar Step-
hanie og Rob ætluðu á tónleika með
Lizu Minnelli í Hollywood. Daginn
áður hafði Stephanie sagt við Rob að
hana langaði að fara á þessa tónleika
en þegar halda átti af stað skipti hún
skyndilega um skoðun og sagðist ekki
ætla að fara. Ur þessu varð óskaplegt
rifrildi sem endaði með því að Step-
hanie yfirgaf Rob.
I byijun var Rob mjög skemmtilegur
en síðan varð hann leiðinlegri með
degi hverjum, sagði Stephanie og nú
nokkrum dögum eftir skilnaðinn hefur
hún fúndið sér annan elskhuga, Mario
Oliver, sem er næturklúbbseigandi og
hafa þau verið óaðskiljanleg síðan.
Andrew er genginn út
Hann Andrew Ridgeley, annar
meðlimur hljómsveitarinnar Wham,
opinberaði nýverið trúlofun sína með
sýningarstúlkunni vinsælu Donya
Fiorentino. Haldið var upp á at-
burðinn á tuttugu ára afmæli Donyu
með mikilli viðhöfn á næturklúbbn-
um Stringfellow í London. Andrew
bauð gestum sínum upp á kampavín
fyrir 660.000 þúsund krónur og gaf
sinni heittelskuðu gull- og demanta-
hálsmen á áðeim, 360.000 krónur.
Daginn eftir sáust þau í einni af flott-
ari búðum borgarinnar, Harrods, þar
sem Donya var að máta brúðarkjól
upp á litlar 190.000 krónur. Þannig
að nú er bara að bíða og sjá hvenær
brúðkaup þeirra fer fram og þá má
vænta heljarinnar mikillar veislu.
Donya var áður stúlkan hans Don
Johnsons, kvennagullsins úr Miami
Vice, en yfirgaf hann vegna
Andrews.
Brotlegir festir á filmu
Lögreglan í Reykjavík hefur nú brugðið á það ráð að festa þær bifreiðir á filmu sem lagt er ólöglega og fjarlægðar á þeirra vegum til sönnunar
um staösetningu bifreiðanna. Steinþór Nygaard hjá umferöardeildinni sagði að þaö kæmi oft fyrir að menn neituðu fyrst i stað en þegar myndirn-
ar væru lagðar fram gæfust menn upp. Ef þú leggur bilnum þfnum ólöglega geturðu átt von á þvi að hann verði fjarlægður af lögreglunni og þér gert
að greiða 800 króna flutningsgjald auk sektar sem er nú 350 krónur. SJ/DV-mynd S