Dagblaðið Vísir - DV - 30.01.1987, Blaðsíða 4

Dagblaðið Vísir - DV - 30.01.1987, Blaðsíða 4
22 FÖSTUDAGUR 30. JANÚAR 1987. FÖSTUDAGUR 30. JANÚAR 1987. 27, Messur Guðsþjónustur i Reykjavíkur- prófastsdæmi sunnudaginn 1. febr. 1987. Hádegisverðarfundur presta verður mánudaginn 2. febrúar í safnaðar- heimili Bústaðakirkju. Árbæjarprestakall Barnasamkoma í Foldaskóla í Graf- arvogshverfi laugardag kl. 11 árdeg- is. Barnasamkoma í safnaðarheimili Árbæjarsóknar sunnudag kl. 10.30 árdegis. Guðsþjónusta í safnaðar- heimilinu kl. 14.00. Organisti Jón Mýrdal. Sr. Guðmundur Þorsteins- son. Áskirkja Bamaguðsþjónusta kl. 11.00. Guðs- þjónusta kl. 14.00. Sr. Árni Bergur Sigurbjömsson. Breiðholtsprestakall Barnaguðsþjónusta í Breiðholts- skóla kl. 11.00. Guðsþjónusta kl. 14.00. Organisti Daníel Jónasson. Sr. Gisli Jónasson. Bústaðakirkja Barnasamkoma kl. 11.00. Elín Anna Antonsdóttir og Guðrún Ebba Ólafs- dóttir. Messa kl. 14.00. Organisti Guðni Þ. Guðmundsson. Æskulýðs- félagsfundur þriðjudagskvöld. Félagsstarf aldraðra miðvikudag- seftirmiðdag. Sr. Ólafur Skúlason. Digranesprestakall Barnasamkoma í safnaðarheimilinu við Bjarnhólastíg kl. 11.00. Guðs- þiónusta í Kópavogskirkju kl. 11.00. Sr. Þorbergur Kristjánsson. Dómkirkjan Laugardag: Barnasamkoma í kirkj- unni kl. 10.30. Egill og Ólafía. Sunnudag: Messa kl. 11.00. Sr. Jón Bjarman sjúkrahússprestur messar. Sr. Þórir Stephensen. Messa kl. 14.00. Sr. Hjalti Guðmundsson. Dóm- kórinn syngur við báðar messurnar. Organisti Marteinn H. Friðriksson. Hann leikur á orgelið í 20 mín. á undan messunni kl. 11.00. Elliheimilið Grund Guðsþjónusta kl. 10.00. Sr. Ólafur Jóhannsson. Fella- og Hólakirkja Laugardag: Barnasamkoma í Hóla- brekkuskóla kl. 14.00. Sunnudag: Barnaguðsþjónusta - kirkjuskóli kl. 11.00. Ragnheiður Sverrisdóttir. Guðsþjónusta og altarisganga kl. 14.00. Organisti Guðný Margrét Magnúsdóttir. Fundur í æskulýðs- félaginu mánudagskvöld kl. 20.30. Sr. Hreinn Hjartarson. Fríkirkjan í Reykjavik Messa og altarisganga kl. 11.00. (Ath. breyttan messutíma vegna útvarps). Ræðuefni: „Herra bjarga þú. vér för- unist.“ Ágústa Ágústsdóttir syngur stólvers, Lofsöng eftir Beethoven. Fríkirkjukórinn syngur. Orgelleikur og kórstjórn Pavel Smid. Sr. Gunnar Björnsson. Grensáskirkja Barnasamkoma kl. 11.00. Messa kl. 14.00 Pastor Sverre Jölstad frá Nor- egi prédikar, Friðrik Schram túlkar. Organisti Árni Arinbjarnar. Almenn samkoma UFMH fimmtudag kl. 20.30. Sr. Halldór S. Gröndai. Hallgrí m skir kj a Laugardag 31. ian.: Samvera ferm- ingarbarna kl. 10.00. Sunnudag: Barnasamkoma og messa kl. 11.00, altarisganga. Sr. Ragnar Fjalar Lár- usson. Þriðjudag: Fyrirbænaguðs- þjónusta kl. 10.30. Beðið fyrir sjúkum. Fimmtudag: Fundur kvenfé- lagsins kl. 20.30. Landspítalinn Messa kl. 10.00. Sr. Jón Bjarman. Háteigskirkja Messa kl. 10.00. Bamaguðsþjónusta kl. 11.00. Sr. Arngrímur Jónsson. Messa kl. 14.00. Sr. Tómas Sveinsson. Borgarspítali Guðsþjónusta á Borgarspítala kl. 10.30. Sr. Sigfinnur Þorleifsson. Kársnesprestakall Barnasamkoma í safnaðarheimilinu Borgum kl. 11.00 árdegis. Guðsþjón- usta í Kópavogskirkju ki. 14.00. Sr. Ámi Pálsson. Langholtskirkja Kirkja Guðbrands biskups. Óska- stund barnanna kl. 11.00. Söngur- sögur-myndir. Þórhallur Heimisson og Jón Stefánsson sjá um stundina. Guðsþjónusta kl. 14.00. Prestur sr. Sigurður Haukur Guðjónsson. Org- anisti Jóp Stefánsson. Fermingar- böm og foreldrar þeirra eru hvött til þess að mæta. Sóknarnefndin. Laugarneskirkja Laugardag: Guðsþjónusta Hátúni 10B, 9.hæð, kl. 11.00. Sunnudag: Fjöl- Ránka sýnir í Nýlistasafninu myndverk og skúlptúra. Ránka sýnir í Nýlistasafninu í dag, föstudag kl. 20.00, opnar Ránka - Ragnheiður Hrafnkels- dóttir - einkasýningu á myndverk- um og skúlptúrum, sem unnin eru að mestu á síðastliðnu ári, í Ný- listasafninu, Vatnsstíg 3b. Ránka stundaði nám við Kunst- og Hándverskolen í Kaupmanna- höfn á árunum 1978-82 og við Gerrit Rietveld Academie í Amst- erdam 1982-1984. Eftir að hún lauk námi hefur hún verið búsett í Reykjavík og Amsterdam. Ránka hefur áður sýnt í Nýlistasafninu ásamt Píu Rakel Sverrisdóttur. Hún hefur einnig tekið þátt í nokkrum samsýningum. Sýningin er opin milli kl. 14.00 og 20.00 um helgar en frá 16.00 til 20.00 virka daga. Dönsku viUingamir í Norræna húsinu Um helgina hefst í Norræna húsinu sýning á listaverkum yngstu kynslóðar danskra lista- manna, þeirra sem kenndir eru við nýja villta málverkið. Á sýning- unni eru 58 verk eftir 13 listamenn, bæði málverk og skúlptúrar. Verk- in eru unnin á árunum 1982 til 1986 og hefur danski listfræðingurinn Lars Dybdahl valið þau með það fyrir augum að sýningin gefi sem best sýnishorn af því sem hefur verið að gerast í hópi „de danske vilde“ að undanförnu. Lars Dybdahl kom hingað til lands til þess að setja upp sýning- una ásamt Helle Behrndt og munu þau kynna og útskýra verkin fyrir gestum við opnunina. Þau hafa einnig ritstýrt veglegri sýningar- skrá sem prentuð er í Danmörku á íslensku, færeysku og dönsku. Kersti Marcus, Chargé d’affaires a.i., í danska sendiráðinu opnar sýninguna á morgun kl. 15.00. Sýn- ingin stendur yfir í sýningarsölum Norræna hússins til 23. febrúar en verður send til Færeyja og verður sett upp í Norðurlandahúsinu í Þórshöfn. „Ský og landslag“ Nýverið opnaði Brian Pilkington sýningu sína, Ský og landslag, í Gallerí Borg við Austurvöll og stendur hún til 10. febrúar. Eins og nafnið bendir til er myndefni Brians skýjafar og landslag á Is- landi. Verkin eru 50 talsins, unnin í olíupastel á síðastliðnum tveimur árum. Brian fæddist í Liverpool á Eng- landi árið 1950. Hann stundaði nám við Liverpool College of Art í þrjú ár. En að því loknu hélt hann til íslands og hefur búið hér allar göt- ur síðan. Þessi sýning er sjötta einkasýn- ing hans en einnig hefur hann tekið þátt í fjölda samsýninga, bæði hér á landi og erlendis. Sýningin er opin virka daga frá kl. 10.00 til 18.00 nema mánudaga frá kl. 12.00 til 18.00 og frá kl. 14.00 til 18.00 laugardaga og sunnudaga. Brian Pilkington sýnir í Gallerí Borg myndir af skýjafari og landslagi á íslandi. Að lokinni fjöruskoðuninni verður kveikt fjörubál undir gítarleik. Frædslu- og skemmtiferd: Maöurinn og fjaran Farin verður fræðslu- og skemmtiferð fyrir alla fjölskyld- una frá Norræna húsinu kl. 11.30 á morgun, laugardag, frá Náttúrugripasafninu, Hverfisgötu 116 (gegnt lögreglustöð- inni) kl. 11.40, frá Árbæjarsafninu kl. 11.50 og frá Varmár- skóla kl. 12.00. Þetta er einstök ferð fyrir alla fjölskylduna til að fræðast um fjörulífverur. „Sýningarskrá" verður afhent og er hún með ýmsum fróðleiksmolum, nafnalista yfir þær plöntur og dýr sem þátttakendur kunna að rekast á á leiðinni, nýtingu fjörunnar fyrr og nú, fjörukrossgátu og fleira skemmtilegu fyrir börnin. „Safnverðir" til leiðsagnar verða: Erlingur Hauksson sjáv- arlíffræðingur, Ólafur Nielsen fuglafræðingur, Stefán Bergmann líffræðingur, yilhjálmur Þorsteinsson fiskifræð- ingur og Þorvaldur Örn Árnason líffræðingur. Á áfangastað, Hjallasandi vestan Brautarholts á Kjalar- nesi, verður komið kl. 12.30 eftir örstutta göngu frá bílunum. Þar mun náttúran sjálf útbúa gríðarstóran „sýningarbás" fyrir þátttakendur á mestu stórstraumsfjöru ársins. Fræðst verður um lífríki fjörunnar og skoðuð verða fjörudýr og þör- ungar sem aðeins finnast við þessar aðstæður, ýmsar fuglateg- undir og jafnvel selir. Að lokum verður brugðið á leik og fjörubál kveikt undir gítarleik. Ferð þessi er sem fyrr segir öllum opin og kostar 300 krón- ur en frítt er fyrir börn í fylgd með fullorðnum. Vaxmynda- sýning af þekktum mönnum I Bogasal Þjóðminjasafnsins verður oðnuð á morgun, laugardag, sýning á 32 vaxmyndum af þekkt- um mönnum, íslenskum og erlend- um. Vaxmyndasafn þetta gáfu Óskar Halldórsson útgerðarmaður og börn hans íslenska ríkinu til minn- ingar um ungan son og bróður, Óskar Theódór, sem fórst með línu- veiðaranum Jarlinum árið 1941. Vaxmyndasafnið var fyrst opnað í húsakynnum Þjóðminjasafns 14. júlí 1951 og var það þar til 1969, við góða aðsókn, en vegna pláss- leysis sáu forráðamenn sér ekki fært að halda uppi sýningunni öllu lengur. Siðan hafá myndirnar verið í geymslu. Vegna mikillar eftir- spurnar hefur nú verið ákveðið að sýna vaxmyndasafnið um tíma. Vaxmyndimar verða til sýnis á venjulegum opnunartíma Þjóð- minjasafnsins, þriðjudaga, fimmtu- daga, laugardaga og sunnudaga frá kl. 13.30 til 16.00. Aðgangseyrir er kr. 50 en ókeypis er fyrir börn og ellilífeyrisþega. Þekktir kappar sjást á sýningunni. Standandi eru Olafur Thors, Asgeir Ásgeirsson og Hermann Jónasson og sitjandi er Jónas Jónsson frá Hriflu. skylduguðsþjónusta kl. 11.00. Barnakór kirkjunnar syngur. Ferm- ingarbörn aðstoða. Mánudag: Æskulýðsstarf kl. 18.00. Fundur í Kvenfélagi Laugarnessóknar kl. 20.00. Þriðjudag: Bænaguðsþjónusta kl. 18.00, altarisganga. Sóknarprest- ur. Neskirkja Laugardag: Samverustund aldraða kl. 15.00. Þorragleði. Sýnd verður íslensk kvikmynd. Sr. Hannes Guð- mundsson í Fellsmúla fer með gamanmál. Dóra Reyndal syngur einsöng. Harmóníkuleikur Reynir Jónasson. Þorramatur. Þátttaka til- kynnist kirkjuverði í dag, laugardag, kl. 11.00-12.00. Sími 16783. Sr. Frank M. Halldórsson. Sunnudag: Barna- samkoma kl. 11.00. Munið kirkjubíl- inn. Guðsþjónusta kl. 14.00. Orgel og kórstjórn Reynir Jónasson. Sr. Guðmundur Óskar Ólafsson. Mánu- dag: Æskulýðsstarf kl. 20.00. Þriðju- dag og fimmtudag: Opið hús fyrir aldraða kl. 13.00-17.00. Miðvikudag: Fyrirbænamessa kl. 18.20. Sr. Guð- mundur Óskar Ólafsson. Fimmtudag: Biblíulestur kl. 18.30. Sr. Guðmundur Óskar Ólafsson. Seljasókn Barnaguðsþjónusta í Seljaskóla kl. 10.30. Barnaguðsþjónusta í Öldusels- skóla kl. 10.30. Guðsþjónusta í Ölduselsskóla kl. 14.00. Þriðjudag: Æskulýðsfélagsfundur í Tindaseli 3 kl. 20.00. Sóknarprestur. Seltjarnarneskirkja Barnaguðsþjónusta kl. 11.00. Eirný og Solveig Lára tala við börnin og stjórna söng. Guðsþjónusta kl. 14.00. Organisti Sighvatur Jónasson. Opið hús fyrir unglingana mánudagskvöld kl. 20.30. Sr. Solveig Lára Guð- mundsdóttir. Kirkja óháða safnaðarins Guðsþjónusta kl. 14.00. Fermingar- börn lesa ritningarlestra. Ræðuefni dagsins er Mt. 8:23-27 - Jesús kyrrir vind og sjó. Kirkjukór safnaðarins syngur undir stjórn Heiðmars Jóns- sonar organista. Kirkjuskólinn verður í Kirkjubæ. Þórsteinn Ragn- arsson safnaðarprestur. Fríkirkjan í Hafnarfirði Barnasamkoma kl. 11.00. Guðsþjón- usta kl. 14.00. Sr. Einar Eyjólfsson. Keflavíkurkirkja Sunnudagaskóli kl. 11.00. Munið skólabílinn. Fjölskylduguðsþjónusta kl. 14.00. Vænst er þátttöku ferming- arbarna og foreldra þeirra. Kaffiveit- ingar í Kirkjulundi eftir messu. Sóknarprestur. Tilkymiingar Þjóðleikhúsið Hallæristenór, gamanleikurinn eftir Ken Ludwig í þýðingu Flosa Ólafssonar og leikstjóm Benedikts Árnasonar, er sýndur á stóra sviði Þjóðleikhússins í kvöld (föstudag) og sunnudagskvöld kl. 20. Aurasálin eftir Moliére í leikstjórn Sveins Einarssonar verður sýndur á laugardags- kvöldið. í smásjá, nýtt leikrit Þórunnar Sigurðar- dóttur verður sýnt á Litla sviðinu að Lindargötu 7 í kvöld, laugardagskvöld og miðvikudagskvöld kl. 20.30. Þetta áleitna og sterka verk fjallar um tvenn hjón, þrjá lækna og skólaritara á örlagastundu í lífi þeirra allra. Leikfélag Reykjavíkur Land mins föður verður sýnt á laugar- dagskvöld kl. 20.30. Dagur vonar eftir Birgi Sigurðsson verð- ur sýnt á sunnudagskvöld kl. 20. Þar sem Djöflaeyjan rís. Frumsýning í leikskemmu L.R., Meistaravöllum á sunnudagskvöld kl. 20. íslenska óperan Aida. Sýningar á föstudags- og sunnu- dagskvöld kl. 20. í aðalhlutverkum eru: Ólöf Kolbrún Harðardóttir, Sigríður Ella Magnúsdóttir, Garðar Cortes, Kristinn Sigmundsson og Viðar Gunnarsson. Alþýðuleikhúsið „Hin sterkari og sú veikari“. Allra síð- asta sýning verður á sunnudag kl. 16. Sýningin er í kjallara Hlaðvarpans. Sædýrasafnið Opið alla daga kl. 10-17. Slunkaríki, ísafirði Guðrún Kristjánsdóttir sýnir samsett verk, collage. Verkin vinnur Guðrún úr pappír sem hún sjálf býr til. Þetta er önn- ur einkasýning Guðrúnar en hún hefur tekið þátt í nokkrum samsýningum. Sýn- ingin er opin alla daga frá kl. 16-18 og lýkur henni 3. febrúar. Nýlistasafnið v/V atnsstíg í kvöld kl. 20 opnar Ránka - Ragnheiður Hrafnkelsdóttir einkasýningu á mynd- verkum og skúlptúmm í Nýlistasafninu. Flestöll verkin á sýningunni eru unnin á síðastliðnu ári. Sýningin er opin kl. 14-20 um helgar en kl. 16-20 virka daga. Myntsafn Seðlabanka og Þjóðminjasafns, Einholti 4, er opið á sunnudögum kl. 14-16. Stofnun Árna Magnússonar Handritasýning opin á þriðjudögum, fimmtudögum og laugardögum frá kl. 14- Félag harmóníkuunnenda Skemmtifundur verður sunnudaginn 1. febrúar í Templarahöllinni við Skóla- vörðuholt milli kl. 15 og 18. Fjöldi harmóníkuleikara kemur fram, góðar veit- ingar og dansað í lokin. Allir ávallt velkomnir. Safnaðarfélag Ásprestakalls Farið verður í óperuna 13. febrúar nk. Þátttaka tilkynnist í síma 37788, Guðrún, fyrir 1. febrúar. Félag Eskfirðinga og Reyð- firðinga Árshátíð félagsins verður haldin laugar- daginn 31. janúar nk. í Fóstbræðraheimil- inu við Langholtsveg. Samkoman hefst með borðhaldi kl. 20. Þorramatur verður á boðstólum. Dans á eftir. Kaffisala Fóstbræðrakvenna Sunnudagana 1. febrúar og 1. mars nk. mun Kvenfélag Fóstbræðra halda kaffi- sölu í félagsheimili Fóstbræðra að Langholtsvegi 109 111 til stvrktar utan- landsferð kórsins. Eins og mörgum er kunnugt áttu Fóstbræður 70 ára afmæli á sl. ári og var haldið upp á þessi tímamót með ýmsu móti. Kórinn hafði einnig hug á að kynna starfsemi sína erlendis á þessu afmælisári en úr því varð ekki sökum anna en í framhaldi af athugunum þeirra var þeim boðin þátttaka í alþjóðlegu kóra- móti í Þýskalandi, nánar tiltekið í Linder- holzhaugen við Limburg, sem haldið verður dagana 26. max til 2. júní. Var ákveðið að taka þessu boði og halda síðan áfram í söngferð til Austurríkis og Ung- verjalands og halda nokkra afmælistón- leika erlendis næsta vor þó kórinn yrði þá kominn hátt á 71. aldursár. Þar sem svona ferðir eru dýrar í framkvæmd á- kváðu Fóstbræðrakonur að efna til kaffi- sölu þeim til styrktar og vonast til að sem fiestir velunnarar komi og fái sér kaffi- sopa. Á boðstólum verða heimabakaðar kökur og brauðtertur. Fóstbræður munu koma og taka lagið með ýmsu móti og ef til vill eitthvað fleira. Verð fyrir kaffi og meðlæti er kr. 300 en fyrir börn kr. 150. Húsið verður opnað kl. 15 og verður opið til kl. 17.30 eða lengur ef aðsókn er mikil. Laugardagskaffi Kvennalist- ans Opið hús í Hlaðvarpanum laugardaginn 31. janúar kl. 14. Helga Sigurjónsdóttir opnar umræðu um klánx á Hótel Vík. Allrr velkomnir. Aðalfundur Kvartmíluklúbbs- ins verður haldinn sunnudaginn 1. febrúar á hótel Loftleiðum. Fundurinn hefst kl. 10 f.h. og stendur til kl. 20. Allir sem áhuga hafa á málefninu eru velkomnir á fundinn. Málfreyjudeildin Björkin Reykjavík Ráðsfundur verður hjá 111. ráði landssam- taka málfreyja á íslandi laugardaginn 31. janúar að Gerðubergi. Skráning hefst kl. 10 f.h. Fundur settur kl. 11 f.h. Allir vel- komnir. Þorragleði í safnaðarheimili Neskirkju Næstkomandi laugardag, 31. janúar, verð- ur efnt til þorragleði í „Félagsstarfi aldraðra". Boðið verður upp á hlaðborð með hefðbundnum þorramat og rjúkandi slátri og saltkjöti. Hefst samveran kl. 15 eins og venjulega með vandaðri skemmti- dagskrá. Sýnd verður kvikmynd sem Skaftfellingafélagið lét gera og sýnir fólk að starfi í gamalli baðstofu. Sr. Hannes Guðmundsson í Fellsmúla fer með gaman- mál. Dóra Reyndal svngur einsöng. Þá verður mikill fjöldasöngur og farið í hring- leiki við harmóníkuundirleik Revnis Jónassonar. Þátttakendur skrái sig hjá kirkjuverði kl. 17-18 sem veitir allar upp- lýsingar. Ráðgjafahópur um nauðgun- armál hefur starfað á vegum samtaka um Kvennaathvarf síðan í nóvember 1984. 1 hópnum eru um 10 konur. Við veiturn konum. sem hefur verið nauðgað. ráðgjöf og aðstoð. Einnig viljunx við fræða al- menning um afbrotið nauðgun og þolend- ur þess. Fræðsla er þáttur í fyrirbvggjandi aðgerðum og þess vegna höfum við gefið út bæklinginn „Það kemur ekkert fvrir mig". Bæklingurinn hefur þegar verið sendur víða um land. Við höfum t.d. sent hann til sveitar- og bæjarstjórna. heilsu- gæslustöðva. lögreglustöðva svo og til skóla. Höfum við farið þess á leit að bækl- ingurinn verði látinn liggja frammi á þessum stöðum. Tilgangurinn með því að senda bæklinginn í skóla er nx.a. sá að fá þá kennara. er annast t.d. kennslu í félags- fræði, til að koma af stað fræðslu og umræðu um nauðgun og annars konar ofbeldi. Óski fólk eftirfrekari upplýsingum eða að fá bæklinginn sendan er því bent á að snúa sér til skrifstofu Samtaka um kvennaathvarf. Vesturgötu 3, Reykjavík, í síma 91 23720. Skrifstofan er opin alla virka daga kl. 10-12. í kvennaathvarfinu er sólarhringsvakt í síma 91-21205. Ráð- gjafahópur um nauðgunarmál. Fundur starfsfólks Fræðsluskrifstofu Norðurlandsumdæmis vestra, þ. 16. janúar 1987, samkykkti eftirfarandi ályktun: Starfsfólk Fræðsluskrifstofu Norðurlandsumdæmis vestra harmar fyr- irvaralausa brottvísun Sturlu Kristjáns- sonar úr embætti fræðslustjóra á. Norðurlandi eystra. Brottrekstur embætt- ismanns úr starfi er mjög alvarlegt mál og alvarlegar ástæður hljóta að liggja að baki því að slíkri aðgerð er beitt en þau rök sem hafa verið framfærð af hálfu menntamálaráðherra x þessu máli hafa verið bæði léttvæg og ósanxxfærandi. Að okkar áliti hefur Sverrir Hermannsson menntamálaráðherra. með aðgerðum sín- unx og málflutningi öllum, sýnt fádæma virðingarleysi bæði við réttindi opinberra starfsmanna og við hagsmunamál lands- byggðarinnar. Töluvert vantar enn á að nemendur á landsbvggðinni hafi sömu aðstæður til náms og nemendur á höfuð- borgarsvæðinu þrátt fyrir að grunnskóla- lögin geri ráð fyrir að allir nemendur haft jafnan rétt til skólagöngu. óháð bxisetu. Við berum fvllstu virðingu fvrir störfum Stu'rlu Kristjánssonar í þá átt að fram- fvlgja grunnskólalögunum og vekja athvgli á þörfum landsbyggðarinnar í skólamálum. Þær aðferðir sem beitt hefur verið í þessu máli eru síst til þess fallnar að levsa ágreining um skólapólitísk mál- efni á farsælan hátt. Aðalfundix Aðalfundur Suðurnesjadeild- ar HFÍ, haldinn í Keflavík þann 15. janúar 1987, lýsir áhyggjum sínum vegna stefnu Heil- brigðisráðuneytisins sem leiðir til þess að þjónusta við Sjúkrahús Keflavxkurlæknis- héraðs dregst verulega saman. Ljóst er að bráðaþjónusta verður ekki veitt frá kl. 8 á laugardögum fram til kl. 8 á mánudags- morgun. Þar af leiðir að bráðasjúklingar og fæðandi konur er þurfa á slíkri þjón- ustu að halda verða fluttir til Reykjavíkur. Hjúkrunarfræðingar benda á að andleg og félagsleg heilsa einstaklinga er ekki síður mikilvæg en líkamleg heilsa. Sýnt hefur verið fram á að fólki heilsast betur í sínu umhverfi með sína nánustu sér við hlið. Þá harmar fundurinn þá stefnubreyt- ingu sem hefxxr orðið varðandi uppbygg- ingu sjúkrahússins þar sem horfið hefur verið frá þeirri stefrxu sem mörkuð var árið 1973 og var á þá leið að Suðurnesja- menn ættu að vera sjálfum sér nógir á sem flestum sviðum heilbrigðisþjónustunnar. Stefiia ráðuneytisins miðar aftur á móti í gangstæða átt þar sem miðað er við að > sjúkrahúsið verði rekið sem dagspitali án bráðaþjónustu. Fundurinn bendir á að Suðurnesjabúar voru um siðustu áramót 14.315. Samkvæmt stöðlum um sjúkrarým- isþörf þyrfti því Sjúkrahús Keflavíkur- læknishéraðs að vera 80-100 : rúma sjúkrahús en er nú aðeins með rými fyrir 32 sjúklinga. Því skorar fundurinn á stjóm SK og HSS, sveitarstjórnarmenn á Suður- nesjum og þingmenn kjördæmisirxs að gera allt sem í þeirra valdi stendur til að stefnu- mörkuninni frá 1973 verði framfylgt. Aðalfundur Kvenfélags Ár- bæjarsóknar verður haldinn þriðjudaginn 3. febrúar í safnaðarheimilinu og hefst hann kl. 20.40. Kvenfélag Háteigssóknar heldur aðalfund sinn þriðjudagmn 3. fe- brúar kl. 20.30 í Sjómannaskólanum. Venjuleg aðalfxmdarstörf. Gestur fundar- ins verður Haxma Þórarinsdóttir. Kvenfélag Laugarnessóknar heldur aðalfund sinn í safnaðarheimiHnu mánudaginn 2. febrúar kl. 20. Venjuleg aðalfundarstörf. Rætt verður um leikhús- ferðir. Mætið vel og skoðið nýju hús- gögnin. Tapað-fundið Kvenúrfannst við Stjömubíó. Eigandi hringi í síma 20146. Spilakvöld breiðfirðingafélagið í Reykja- vík Spiluð verður félagsvist í Sóknarsalnum. Skipholti 50a. sunnudaginn 1. febrúar nk. kl. 14.30. Góð verðiaun og kaffiveitingar. Allir velkomnir. Kársnessókn, Kópavogi Spilakvöld verður í félagsheimiiinu Bor um mánudaginn 2. febrúar kl. 20.30. Borgfirðingafélagið í Reykja- vík Spiluð verður félagsvist að Ármúla 17a laugardaginn 31. janúar og hefst hún kl. 20.30. Ferðalög ÚTIVIST Útivistarferðir Dagsferðir sunnudag 1. feb. Kl. 10.30: Gullfoss að vetri. Einnig farið að Geysi. fossinum Faxa, Bergþórsleiði. Haukadalskirkju. Brúarhlöðum og víðar, Verð 900 kr. Kl. 13: Þjóðleið mánaðarins: Gengin gömul verleið: Stóm-Vogar. Hólmabúðir. Vogastapi. Stapakot sem fjölfarin var á vetrarvertíð daginn fyrir kyndilmessu. Rústir af gamalli verstöð og tveimur gras- býlum skoðaðar í leiðinni. í lok ferðar verður komið við í byggðasafninu í Kefla- vík. Verð 600 kr. Brottför frá BSI. bensín- sölu. Frítt f. börn m. fullordnum. Helgarferðir 13.-15. febr. í Þórsmörk og Tindafjöll. Sjáumst. Útivist. Ferðafélag íslands Dagsferðir sunnudaginn 1. feb. 1. Kl. 13: Stóra Kóngsfell. Ekið um Blá- fjallaveg eystri framhjá Rauðuhnúk- um og fljótlega eftir það er farið úr bílntim og gangan hefst. Verð kr. 450. 2. Kl. 13: Bláfjöll-Þrihnúkar/skiða- ganga. Þetta er fyrsta skíðagangan á árinu. Nægur snjór. Létt ganga frá Blá- fjallasvæðinu að Þrxhnúkum og til baka. Verð kr. 450. Brottför frá Umferðarmið- stöðinni, austanmegin. Farmiðar við bíl. Frítt fyrir börn í fylgd fullorðinna. Laugardagsganga Hana nú Vikuleg laugardagsganga Frístundahóps- ins Hana nú í Kópavogi verður á morgun, laugardaginn 31. janúar. Lagt af stað frá Digranesvegi 12 kl. 10. Markmið göngunn- ar er: samvera, súrefni, hreyfing. Allir velkomnir. Nýlagað molakaffi og skemmtilegur félagsskapur.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.