Dagblaðið Vísir - DV - 02.02.1987, Page 20
20
MÁNUDAGUR 2. FEBRÚAR 1987.
Fréttaritarar
Ferðamannaionaður
efldur í Ólafsvík
Skakróður með breiðfirskum trillukarii
Sigisjín Egitaaan. DV, Ólafevflc
Á komandi sumri verður ýmislegt gert
til að auka komu ferðamanna til Ólaf-
svíkur. En Ólafsvík á 300 ára afmæli
sem löggiltur verslunarstaður á þessu
ári. I sumar verður tekinn í notkun
nýr vegur upp á Jökulháls. Með þeim
vegi verður þægilegra en nokkru sinni
að komast á Snæfellsjökul.
Björgunarsveitin í Ólafsvík mun síð-
an sjá um ferðir á topp Jökulsins.
Ferðamönnum, sem leggja leið sína til
Ólafsvíkur, verður einnig boðið upp á
margt fleira, s.s. skakróður með breið-
firskum trillukarli en það er mjög stutt
sigling frá ólafsvík á fengsæl fiskimið.
í sumar verður starfiækt upplýsinga-
miðlun fyrir ferðamenn í elsta húsi
Ólafsvíkur. Þetta hús er 140 ára gam-
alt, þrílyft timburhús, var það byggt
sem pakkhús. Húsið hefur verið friðað
af húsfriðunamefhd og er nú unnið
að endurbyggingu þess.
í ólafsvík er ágæt aðstaða til að
taka á móti ferðamönnum. Ágætt hót-
el er á Ólafsvík með 38 tveggja manna
herbergjum. Á sl. ári var gert mikið
átak við tjaldstæði bæjarins, þar er
nú öll aðstaða til mikillar fyrirmynd-
ar. í ólafsvík er góður m'u holu
golfvöllur. Þá eru laxveiðiár sín hvor-
um megin við bæinn. Auk þess sem
þegar hefur verið getið verður boðið
upp á margt fleira fyrir ferðamenn á
þessu afinælisári Ólafsvíkur því af-
mælisins verður minnst meira og
minna allt árið.
Fundur hjá Óðni á Seffossi:
í hvað fara skattauramir?
Regína Hvorarenæn, DV, Srifrwsi:
Sjálfstæðisfélagið óðinn á Selfossi
hélt almennan fúnd á Hótel Selfossi
fyrir stuttu. Yfirskrift fundarins var „I
hvað fara skattpeningamir?"
Brynleifur H. Steingrímsson, for-
maður bæjarsjóðs, og Guðmundur Kr.
Jónsson, snjall framsóknarmaður og
bæjarfuiltrúi, vom frummælendur.
Brynleifúr gerði grein fyrir tekjum og
útgjöldum og lagði fram hugmyndir
um framkvæmdir á árinu. En fjár-
hagsáætlun er enn ekki frágengin að
fullu.
Það kom fram að tekjur væm áætl-
aðar 179 milljónir og er það 30%
hækkun frá fyrra ári. Til eignabreyt-
inga er áætlað að fari 45 milljónir og
stærsta framkvæmd ársins mun verða
bygging skóladagheimilis. Skulda-
staða bæjarsjóðs er frekar erfið eftir
miklar lántökur á síðasta ári vegna
byggingar félagsheimilis sem kallað
er Hótel Selfoss. En það er líka tölu-
vert fyrir það gefandi að fólk geti
mætt þama og skemmt sér í stað þess
að þurfa að þeytast í allt aðra hreppa
og sýslur til að koma saman.
Vaxtagreiðslur em um 11 milljónir
en afborganir um 30 milljónir. Bryn-
leifur lagði áherslu á að breyta þyrfti
skammtímalánunum í langtímalán til
þess að hægt væri að halda uppi fram-
kvæmdum á vegum bæjarfélagsins.
Fyrirspumir vom allmargar að
loknu máli frummælenda. Fengust góð
og greinileg svör við þeim nema að
ekki fékkst gefið upp hvað hinn ungi
bæjarstjóri hefur í mánaðartekjur.
Hann var þama á fúndinum og heitir
Karl Bjömsson. Em bæjarfúlltrúamir
mjög ánægðir með hinn vinnusama
bæjarstjóra en launin hans vom
leyndarmál eins og áður sagði.
Fundarstjóri var Bjöm Gíslason og
stjómaði hann af röggsemi og réttsýni.
Blómlegt námskeiðahald á Höfh
Júlia Imslard, DV, Hö6r
Homfirðingum mun á næstumii gefast
kostur á að fara á námskeið af ýmsu
tagi. Er það félagsmálanefiid sem hef-
ur veg og vanda af þessum námskeið-
um.
Ámi Hannesson kennari verður með
myndlistamámskeið, Margor Gamm
handavinnukennari kennir silkimálun
og leðurvinnu. Þá er fyrirhugað tölv-
unámskeið og ensku- og þýskunám-
skeið ef kennarar fást.
Nýja framhaldsdeildin í Nesjaskóla
hefúr verið vel sótt í vetur. Nemendur
em 45 og munu forráðamenn skóla-
mála hafa fúllan hug á að efla skóla-
starfið enn frekar í héraðinu.
Sólarkaffi á Fáskmðsfirði
Ægir Knstmasan, DV, Fáskniösfirði:
Fáskrúðsfirðingar drukku sitt sólar-
kaffi sl. miðvikudag. Að sjálfsögðu
vom ijómapönnukökur með kaffinu.
Sólin náði að skína smástund í bænum
þann dag en hún sést ekki í á þriðja
mánuð samfellt.
Tíðarfar hefúr verið einstaklega gott
að undanfomu, vegir eins og að sum-
arlagi og ekki hefur verið hægt að
nota skíðalyftuna í vetur vegna snjó-
leysis, skíðafólki til leiðinda.
Norðurflandamót skólanema í skák:
Tíu keppendur fra íslandi verða með
Einstaklingskeppni norrænna
skólanema í skák fer fram í Noregi
dagana 5. til 8. febrúar næstkomandi
og munu tíu íslenskir skákmenn taka
þátt í mótinu. Mótið miðast við að
keppendur séu 20 ára og yngri og er
því skipt í 5 aldursflokka og munu
tveir keppendur frá íslandi keppa í
hveijum þeirra.
I A-flokki, keppendur fæddir
1966-1969, keppa Þröstur Þórhallsson
úr Fjölbrautaskólanum í Ármúla og
Davíð Ólafsson úr Verslunarskólan-
um.
I B-flokki, keppendur faeddir
1970-1971, keppa Magnús P. Ómólfs-
son úr Bolungarvík og Amaldur
Loftsson úr MH.
í C-flokki, keppendur fæddir
1972-1973, keppa Hannes Hlífar Stef-
ánsson úr Hagaskóla og Þröstur
Ámason úr Seljaskóla.
í D-flokki, keppendur fáeddir
1974-1975, keppa Héðinn Steingríms-
son úr Hvassaleitisskóla og Magnús
Ármann úr Breiðholtsskóla.
í E-flokki, keppendur fæddir 1976 og
síðar, keppa Helgi Áss Grétarsson úr
Breiðholtsskóla og Hlíðar Þór Hreins- ur H. Ólafsson og Ríkharður Sveins-
son úr Kársnesskóla. son.
Liðsstjórar og fararstjórar eru Ólaf- -S.dór
Islensku skákmennlmir sem keppa á NoröuriandamóU skólanema sem hefsi
I Noregi 5. febrúar. DV-mynd Ragnar
Formaður Björgunarfélags Vestmannaeyja veitir hér kikinum góða viðtöku.
Gjóf til Bjórgunarfélags
Vestmannaeyja
Kíkir til leitar
í myrkri
Ómar Garðaissan, DV, Vestmannaeyjum:
Fyrir stuttu veitti Björgunarfélag
Vestmannaeyja móttöku næturkfld til
notkunar við leit í myrkri og slæmu
skyggni.
Útgerðir og félög stóðu að þessari
gjöf sem kostaði um 250.000 kr.
Kfkirinn magnar minnsta ljós 2.500
sinnum þannig að með honum er að
sjá eins og um bjartan dag þótt niða-
myrkur sé.
Heimir formaður reynir hér kíkinn.
DV-myndir Omar.
Siglfirðing-
ar sólarmegin
Gu&nundur Davffieaon, DV, SirfufiiÖL skein sólin glatt þá stuttu stund sem
_________________ 1 til hennar sast.
Þann 28. janúar síðastliðinn gægðist
sólin í fyrsta skipti á nýju ári yfir Sjálfsbjörg seldi þennan dag sól-
íjallstoppana. Frábært veður var og arpönnukökur og seldi grimmt.
Siglufjórður:
Leki kom að trillu
Guðtnurtdur Davíðœan, DV, Sighifirði:
Það óhapp varð um síðustu helgi, þeg-
ar trillan Jökull, sem er sex tonn að
stærð, var að fara í róður að leki kom
að henni. Björgunarsveitin og trillur
fóru til aðstoðar. Ekki kom þó til þess
að veita þyrfti bátnum aðstoð en
björgunarsveitin og trillumar fylgdu
honum til hafnar. Þangað komst hann
af eigin rammleik.
Akureyn:
Fimm gefa
Ján G. HauksBOn, DV, Akureyii
Fimm einstaklingar og félög hafa
fengið leyfi til að gefa út símaskrá
fyrir Akureyri og nágrenni á árinu.
Það eru KA, Náttúrulækningafélagið,
Bemharð Steingrímsson, Gunnar
Berg og að sjálfsögðu Póstur og sími.
út símaskrá
Gunnar Berg gaf út símaskrá í fyrra
ásamt Pósti og síma. Þeir vom einu
útgefendumir. Nú hefur þeim fjölgað
um þijá.
Útgáfan er algjörlega kostuð af aug-
lýsingum. Því má búast við hörðum
slag á simaskrármarkaðinum á Akur-
eyri við öflun auglýsinga næstu vikur.