Dagblaðið Vísir - DV - 27.02.1987, Page 1
Dansstaðir - Matsölustaðir - Leikhús - Sýningar - Kvikmyndahús - Myndbönd o. fl.
Veitingáhúsið Evrópa
og Glaumberg, Keflavík
Um 170 pör munu keppa í samkvæmisdönsum i Laugardalshöllinni á
sunnudag. Yngstu keppendurnir eru undir 7 ára aldri en þeir elstu 70 ára.
Laugardalshöll:
íslandsmeistara-
keppni í sam-
kvæmisdönsum
Ef þú vilt dansa
Ártún,
Vagnhöfða 11, simi 685090.
Lokað á föstudagskvöld vegna einkasam-
kvæmis. Á laugardagskvöld er opið frá kl.
21-3 og leikur hljómsveitin Dansporið fyr-
ir dansi ásamt söngkonunni Kristbjörgu
Löve.
Broadway,
Álfabakka 8, Reykjavík, sími 77500
Glimrandi skemmtidagskrá í tónum, tali
og tjútti föstudags- og laugardagskvöld.
Evrópa
v/Borgartún
Hljómsveitin MAO leikur á efstu hæð
hússins en á jarðhæðinni mun breski
söngvarinn Phil Fearon og Galazy koma
fram föstudags- og laugardagskvöld.
Glæsibær
við/Álfheima, Reykjavík, sími 685660
Hljómsveitin Kýprus leikur fyrir dansi í
kvöld og annað kvöld. Ölver opið alla
daga vikunnar.
Hollywood,
Ármúla 5, Reykjavik,
Diskótek föstudags- og laugardagskvöld.
Hótel Borg,
Pósthússtræti 10, Reykjavík, sími 11440
Diskótek föstudags- og laugardagskvöld.
Hljómsveit Jóns Sigurðssonar leikur fyrir
gömlu dönsunum á sunnudagskvöld.
Hótel Esja, Skálafell,
Suðurlandsbraut 2, Reykjavík, sími
82200
Dansleikir á föstudags-, laugardags- og
sunnudagskvöld. Tískusýning öll fimmtu-
dagskvöld.
Hótel Saga
v/Hagatorg, Reykjavik, sími 20221
Laddi og fjélagar, skemmtidagskrá á föstu-
dags- og laugardagskvöld. Hljómsveit
Magnúsar Kjartanssonar leikur fyrir dansi
bæði kvöldin. Dúett André Bachmann og
Guðmundar Þ. Guðmundssonar leikur á
Mímisbar
Lennon
við/Austurvöll, Reykjavík, sími 11630
Opið föstudags-, laugardags- og sunnu-
dagskvöld.
Leikhúskjallarinn
v/Hverfisgötu, Reykjavík, sími 19636
Dansleikur á föstdags- og laugardags-
kvöld.
Sigtún
v/Suðurlandsbráut, Reykjavík, sími
685733
Diskótek föstudags- og laugardagskvöld.
Casablanca
við Skúlagötu
Diskótek föstudagskvöld og laugardags-
kvöld.
Upp og niður
Laugavegi 116, Reykjavík, sími 10312
Opið alla daga vikunnar, lifandi tónlist.
Þórskaffi,
Brautarholti 2, Reykjavík, simi 23333
Þórskabarett föstudags- og laugardags-
kvöld
AKUREYRI
H-100
Diskótek á öllum hæðum hússins föstu-
dags-, langardags- og sunnudagskvöld.
Breski söngvarinn Phil Fearon,
ásamt hljómsveitinni Galaxy, mun
skemmta gestum í veitingahúsinu
Evrópu og í Glaumbergi, Keflavík.
Phil Fearon og Galaxy hafa á
undanförnum árum átt miklum
vinsældum að fagna í heimalandi
sínu sem og víða annars staðar, þar
á meðal á Islandi. Hann var aðalsp-
rautan og reyndar eini fasti með-
limurinn í Galaxy sem kom þremur
lögum á topp tíu í Bretlandi á árun-
um ’83 til 84. Það voru lögin
Dancing Tight, What do I do og
Everybody is laughing. Lögin náðu
Þýski blokkflautukvartettinn
UT RE MI leikur tónlist frá ýmsum
tímabilum tónlistarsögunnar eftir
Isaac, Taverner, Byrd, Marcello og
fleiri í Norræna húsinu á morgun,
laugardag, kl. 15.00. Hluta tónlei-
kanna leikur UT RE MI á nýjar
Undanfarin 8 ár hefur aðalfjár-
öflunin verið byggð á svokölluðum
sjávarréttadegi sem er nokkurs
öll umtalsverðum vinsældum á ís-
lenskum dansstöðum og fengu þó
nokkra spilun í útvarpi. Auk hljóð-
færaleiks og söngs er Phil Fearon
liðtækur upptökustjóri og til gam-
ans má geta að hann stjómaði
upptökum á plötu Pepsi og Harley
sem nú er í öðm sæti breska vin-
sældalistans.
Phil Fearon og Galaxy skemmta
hér á landi í kvöld í Evrópu og í
Glaumbergi og Evrópu á laugar-
dagskvöldið. Að því búnu halda
þau til síns heimalands.
blokkflautur, smíðaðar hér á landi
sérstaklega fyrir kvartettinn af
Adrian Brown blokkflautusmið.
Kvartettinn er skipaður fjórum
konum, þeim Ulrike Volkhardt,
Siri Rovatkay-Sohns, Evu Praetor-
ius og Birgitte Braun.
konar uppskeruhátíð klúbbsins á
miðri vertíð en markmiðið auk
fjáröflunar í styrktarsjóð klúbbsins
Næstkomandi sunnudag verð-
ur í Laugardalshöll Islandsmeist-
arakeppni í samkvæmisdönsum.
Keppendur eru frá öllum dansskól-
um landsins og á öllum aldri. Eru
þeir yngstu undir 7 ára aldri og
þeir eldri eru farnir að nálgast sjö-
tugt.
Setningarathöfnin hefst með því
að allir keppendurnir, um 170 pör,
munu ganga í salinn og forseti
Dansráðs íslands, Hermann Ragn-
ar Stefánsson, flytur ávarp og setur
mótið. Að því búnu munu dans-
meistararnir Hans og Anne
Laxholm frá Danmörku, sem urðu
númer tvö í heimsmeistarakeppri-
inni í Japan síðastliðið ár, sýna
hina fimm sígildu samkvæmis-
dansa. Auk þess verða sýningar frá
var að auglýsa og sýna fram á hvað
hægt er að gera með gott hráefni
sjávarfangs. Einnig verða
ballett- og djassballettskólum inn-
an sambandsins.
Að setningarathöfninni lokinni
hefst keppnin í barnaflokkum og
stendur hún langt fram á kvöld.
Yfirdómari í keppninni er breski
dansarinn Denis Tavern en með-
dómendur eru Laxholm-hjónin.
Aðgöngumiðasala er í dansskól-
unum og síðan í Laugardalshöll frá
kl. 13.00 á keppnisdaginn. Veit-
ingasala verður allan daginn í
Höllinni og þar sem bolludagur er
á næsta leiti verður meðal annars
bollukaffi.
Þetta er stærsti dansviðburður
ársins og ættu dansarar og dansá-
hugafólk að fjölmenna í Höllina á
sunnudag og sjá dans á heimsmæli-
kvarða og skemmtilega keppni.
meiru
skemmtiatriði og listaverkaupp-
boð. Verður þetta á sunnudaginn
kl. 12 í Glæsibæ.
Phil Fearon og Galaxy náðu þremur lögum inn á topp tíu í Bretlandi á
einu ári.
Þýski blokkflautukvartettinn er skipaður konum sem leika á nýjar blokk-
flautur, smíðaðar hér á landi.
Norræna húsið:
Þýskur blokkflautukvartett
Kiwarvisklúbburinn Eldborg:
Sjávarréttahlaðborð með