Dagblaðið Vísir - DV - 27.02.1987, Blaðsíða 6
28
FÖSTUDAGUR 27. FEBRÚAR 1987.
Leikhús - Leikhús - Leikhús - Leikhús
Leikfélag MR:
Rómeó og Júlía
á Herranótt
Leikfélag Menntaskólans í
Reykjavík frumsýnir, á Herranótt,
hið sígilda leikverk Rómeó og Júlía
eftir William Shakespeare, um
elskendurna sem neitað var að eig-
ast, í þýðingu Helga Hálfdanarson-
ar. Leikstjóri er Þórunn Sigurðar-
dóttir. 35 menntaskólanemar taka
þátt í sýningunni en Rómeó og
Júlíu leika þau Thor Aspelund og
Jóhanna Halldórsdóttir, en í hlut-
verki fóstrunnar er Ragnhildur
Clausen. Sviðsmyndina hannaði
Karl Aspelund og ljósameistari er
Egill Örn Arnarson. Höfundur
dansa er Nanna Ólafsdóttir.
Þetta mun vera fimmta sýningin
sem Herranótt setur upp eftir Sha-
kespeare og má geta þess að leikri-
tið sem sýnt var í fýrra, Húsið á
hæðinni, eftir Sigurð Pálsson, í
leikstjórn Þórhildar Þorleifsdótt-
ur, var tekið upp af sjónvarpinu
og verður sýnt þar um páskana.
Fyrstu sýningar á verkinu verða
á laugardaginn kl. 16.00 og aftur
klukkan 20.00. Næstu sýningar
verða svo á sunnudag, þriðjudag
og föstudag, allar klukkan 20.00.
I Rómeó og Júlíu taka þátt 35 nemendur úr Menntaskólanum í Reykjavík.
Kvikmyndahús - Kvikmyndahús
Bíóhöllin
Kirk Douglas og Burt Lancaster
eiga að baki langan og árangurs-
ríkan feril í kvikmyndum. Þeir
hafa sjö sinnum leikið saman í
kvikmynd og er Góðir gæjar
(Tough Guys) sú síðasta í röðinni.
í Góðum gæjum leika þeir lestar-
ræningja sem hafa setið inni
mestanpart lífs síns. Þegar þeim er
sleppt er öðrum þeirra komið fyrir
á elliheimili enda kominn yfir aldur
vinnandi manns. Hinn á fáein ár
eftir sem vinnandi maður en kemst
fljótt að því að það eru fá tækifæri
fyrir gamlan fanga á vinnumarkað-
inum. Þeir komast í sameiningu að
því að best sé fyrir þá að ljúka því
verki sem þeir hófu áður en þeim
var stungið inn, sem sagt að ræna
lest...
Regnboginn
Skytturnar eru ný, íslensk kvik-
mynd. Leikstjóri er Friðrik Þór
Friðriksson. Skytturnar fjalla um
tvo sjómenn sem eru að koma af
vertíð. Myndin hefst um borð í
hvalveiðibát en leið þeirra liggur
til Reykjavíkur þar sem þeir lenda
í mörgum ævintýrum sem enda á
örlagaríkan hátt fyrir þá. Þessa tvo
sjómenn leika áhugaleikararnir
Þórarinn Óskar Þórarinsson og
Eggert Guðmundsson og hafa þeir
fengið almennt lof fyrir túlkun
sína.
Stjörnubíó
Eyðimerkurblóm (Desert Bloom)
er athygliverð kvikmynd með Jon
Voight og Jo Beth Williams í aðal-
hlutverkum. Gerist hún á þeim
tíma þegar Bandaríkjamenn
sprengdu sína fyrstu kjarnorku-
sprengju og fiallar um stúlku sem
strýkur að heiman nóttina sem hún
var sprengd. Þá frumsýndi
Stjörnubíó í vikunni nýja kvik-
mynd, Blóðsugur (Vamp), sem eins
og nafnið bendir til er hryllings-
mynd. Aðalhlutverkið leikur Grace
Jones. Þá má geta hinnar ágætu
myndar, Öfgar (Extremities), þar
sem Farah Fawcett leikur stúlku
sem reynt er að nauðga. Hún gerir
það sem sjaldgæft er, snýst gegn
nauðgaranum á þann eina hátt sem
hann skilur.
Tónabíó
Vítisbúðir (Hell Camp) er um
hermenn í æfingabúðum og ævin-
týri þeirra. Aðalhlutverkin leika
Tom Skeritt og Lisa Eichorn. Þetta
er mynd fyrir þá sem láta sér nægja
hasar án þess að efnisþráður skipti
miklu.
Austurbæjarbíó
Myndir Andreis Konchalovsky
eru svo sannarlega snemma á ferð-
inni hérlendis. Brostinn strengur
(Duyet For One) er alveg glæný,
samt komin hingað. Fjallar myndin
ifinii iSSíii.iii
Bíóhúsiö
Sj óræningj arnir
Þá er hún komin hingað, hin
umdeilda mynd Romans Polanski,
Sjóræningjarnir (Pirates). Tvenn-
um sögum fer af gæðum hennar.
Hefur henni sums staðar verið
ágætlega tekið en annars staðar
verið rökkuð niður og verið illa
sótt, meðal annars i Bandaríkjun-
um.
Mynd þessi er gamaldags sjóræn-
ingjamynd með Walter Matthau í
aðalhlutverki. Leikur hann gamlan
sjóræningjaforingja sem lætur sér
ekki allt fyrir brjósti brenna. Sjó-
ræningjar voru óhemju dýr
kvikmynd og til að mynda lét Rom-
an Polanski byggja sjóræningja-
skip í fullri stærð og var enginn
smákostnaður við það ævintýri.
Og nú er bara að sjá hvort íslend-
ingum líkar við sjóræningjamynd
Polanskis.
Kvikmyndahús
um fiðluleikara sem kemmst að því
að lömun muni brátt hindra hana
í að leika á hljófæri sitt. Þetta er
dramatísk mynd með Julie
Andrews, Max von Sydow og Alan
Bates í aðalhlutverkum.
Laugarásbíó
Fyrir nokkrum árum var gerð
hryllingsmyndin A Nightmare in
Elm Street. Þótti takast vel við
þessa ódýru mynd þar sem aðal-
hryllingurinn var fólginn í óskýrri
persónu sem sótti á skólafólk og
drap á hryllilegan hátt. Laugarás-
bíó sýnir framhald myndarinnar og
nefnist hún Martröð á Elmstræti
II, hefnd Freddys. Þá hóf Laugarás-
bíó sýningar á Einvíginu, Rage of
Horror, með Sho Kosugi í aðal-
hlutverki og er myndin eins og
vænta má uppfull af atriðum um
japanska sjálfsvarnarlist.
Háskólabíó
Heppinn hrakfallabálkur (For-
eign Body) er ný gamanmynd um
Indverja sem kemur til Englands á
fölsuðum skilríkjum. Ekki gengur
honum vel að fá starf. Af slysni
verður hann þó læknir og taka nú
hlutirnir að gerast hratt hjá Ind-
verjanum. Aðalhlutverkið leikur
Victor Beneerjee sem vakti fyrst
athygli í hinni ágætu mynd Davids
Lean, Ferðinni til Indlands.
-HK
Leikhús- Leikhús- Leikhús- Leikhús- Leikhús- Leikhús- Leikhús- Leikhús- Leikhús- Leikhús- Leikhús- Leikhús
Sýningar
Árbæjarsafn
Opið samkvæmt samkomulagi.
Gallerí Svart á hvítu
við Óðinstorg
Kristinn Harðarson sýnir olíumálverk í
Gallerí Svart á hvítu . Sýningin stendur
til 6. mars og er opin alla daga nema mánu-
daga kl. 14-18. Einnig er í Gallerí Svart á
hvítu mikið úrval verka eftir ýmsa lista-
menn í umboðssölu gallerísins.
Gallerí Langbrók, Textíl,
Bóklilöðustig 2
Eina textílgalleríið á landinu. Vefnaður,
tauþrykk, myndverk, fatnaður og ýmiss
konar listmunir. Opið þriðjudaga til föstu-
daga kl. 14-18 og laugardaga kl. 11-14.
Kjarvalsstaöir
viö Miklatún
Allnýstárleg myndlistarsýning ungs fólks
verður opnuð að Kjarvalsstöðum á morg-
un. Þar er um að ræða samsýningu
rúmlega 70 myndlistarmanna, 35 ára og
yngri, sem haldin er á vegum IBM á ís-
landi í tilefni 20 ára afmælis fyrirtækisins
hér á landi. Þarna géfur að líta á þrjú
hundruð listaverk og eru öll til sölu. Sýn-
ingin verður opin alla daga kl. 14-22 til
og með 8. mars, í báðum sýningarsölum
Kjarvalsstaða
Norræna húsið,
Hringbraut
í anddyri: Andy Warhol - andlitsmyndir af
Ingrid Bergman. Sýningunni átti að ljúka
um síðustu helgi en var framlengd um viku.
Henni lýkur sunnudaginn 28. febrúar kl. 19.
Listasafn ASÍ,
Grensásvegi 16
Ásgerður Búadóttir opnar sýningu á nýj-
um myndvefnaði í Listasafni ASÍ á morgun
kl. 14. Siðast hélt hún einkasýningu á
Kjarvalsstöðum 1984 en hefur hin síðari
ár tekið þátt í ýmsum sýningum erlendis.
Sýning Ásgerðar stendur til 15. mars og
er opin daglega kl. 14-18 nema á sunnu-
dögum kl. 14-22.
Listasafn Einars Jónssonar
við Njarðargötu
er opið alla daga nema mánudaga frá kl.
13.30-16. Höggmyndagarðurinn er opinn
daglega frá kl. 10-17.
Listasafn Háskóla íslands
í Odda, nýja hugvísindahúsinu, er opið
daglega kl. 13.30-17. Þar eru til sýnis 90
verk í eigu safnsins, aðallega eftir yngri
listamenn þjóðarinnar. Aðgangur að safn-
inu er ókeypis.
Listasafn íslands
Þar stendur yfir yfirlitssýning á verkum
Valtýs Péturssonar. Sýningin spannar all-
an listferill Valtýs allt frá því að hann var
við nám í Bandaríkjunum 1944 46 til verka
frá þessu ári. Eru þar alls 127 verk, olíu-
myndir, mósaík og gvassmyndir. 1 tilefni
sýningarinnar hefur verið gefin út vönduð
sýningarskrá og litprentað plakat. Sýn-
ingin er opin virka daga frá kl. 13.30-18
en kl. 13.30-22 um helgar.
Myntsafn Seðlabanka og
Þjóðminjasafns,
Einholti 4.
Opið á sunnudögum kl. 14-16.
Nýlistasafnið,
Vatnsstíg 3b
I kvöld kl. 20 verður opnuð sýning á verk-
um Helga Valgeirssonar, Guðrúnar Láru
Halldórsdóttur og Kristins Guðbrands
Harðarsonar. Helgi sýnir rýmisverk (in-
stallation), unnið á þessu ári. Guðrún
sýnir 6-7 olíumálverk og Kristinn sýnir
43 dúkristur. Sýningin verður opin til 8.
mars og er opin daglega kl. 16-20 en um
helgar kl. 14-20.
Stofnun Árna Magnússonar
Handritasýning opin á þriðjudögum,
fimmtudögum og laugardögum frá kl. 14-
16.
Þjóðminjasafnið
I Bogasal Þjóðminjasafnsins stendur yfir
sýning á 32 vaxmyndum af þekktum mönn-
um, íslenskum og erlendum. Vaxmynda-
safnið var fyrst opnað í húsakynnum
Þjóðminjasafns 14. júlí 1951 og var þar til
sýnis í 20 ár en síðan hafa myndimar ver-
ið í geymslu. Vegna mikillar eftirspumar
hefur nú verið ákveðið að sýna vaxmynda-
safnið um tíma. Vaxmyndirnar eru til
sýnis á venjulegum opnunartíma Þjóð-
minjasafnsins, þ.e. þriðjudaga, fimmtu-
daga, laugardaga og sunnudaga kl.
13.30-16. Aðgangseyrir er kr. 50, en ókeyp-
is fyrir börn og ellilífeyrisþega.
Sjóminjasafn íslands,
Vesturgötu 8, Hafnarfirði
Opið þriðjudaga til sunnudaga kl. 14-18.
Sædýrasafnið
Opið alla daga kl. 10-17.
Póst- og símaminjasafnið,
Austurgötu 11
Opið á sunnudögum og þriðjudögum kl
15-18. Aðgangur ókeypis.