Dagblaðið Vísir - DV - 07.03.1987, Side 2

Dagblaðið Vísir - DV - 07.03.1987, Side 2
/ LAUGARDAGUR 7. MARS 1987. Breið síðan Greenham Common og hét konun- um, sem þar halda friðarbúðir, fjárhagslegum stuðningi. Yoko var á heimleið frá friðarfundi í Moskvu þar sem Ólafur Ragnar kynnti hana fyrir Gorbatsjov Sovétleiðtoga. Yoko sagðist hafa fyllst hryllingi þegar hún fylgdist með lest stríðs- vagna á leið til herstöðvarinnar. Hún lofaði stuðningi við baráttuna gegn geymslu kjamavopna í stöðinni en sagði ekki hve mikið fé hún gæti látið af hendi rakna. Jagger og Hall í hjónaband Rokkarinn Mick Jagger og Jerry Hall ætla senn hvað líður að ganga í heilagt hjónaband. „Hann hefur hvað eftir annað beðið mín,“ segir Jerry Hall. „Ég hef alltaf spurt á móti hvenær af brúðkaupinu gæti orðið og hann svarað: Þegar við höfun lokið við næstu plötu.“ En nú er þessum leikaraskap lokið og þau skötuhjú hafa ákveðið dag- inn. Hver sá dagur er verður þó enn um sinn talið til leyndarmála. Sam- band þeirra Jagger og Hall hefur lengi verið umtalað. Þau eiga tvö börn saman. Það eru Elisabet, sem er tveggja ára, og James eins árs. Mick Jagger og Jerry Hall. Jerry Hall var í síðasta mánuði handtekin á Barbados þegar í far- angri hennar fannst taska með 10 kílóum af marijuana. Hall gaf þá skýringu á málinu að um rugling á töskum væri að ræða því þessa tösku ætti hún ekki. Eftir nokkrar mála- lengingar féllust yfirvöld á Barbados á þessa skýringu og var Hall sleppt. Yoko Ono í friðarbaráttu Yoko Ono kom á dögunum við í Yoko Ono I friðarbúðunum. VIKAN Guðni Guðmundsson rektor Mennta- skólans í Reykjavik í Vikuviðtalinu I XH Uatín aó laggþe á borð Uttfnlatag: NýttUf Hann segir meðal annars: „Brottfallið í Háskóla ís- lands bendir eindregið til að þar komi inn mikill fjöldi fólks sem hvorki hefur getu né áhuga á að stunda háskólanám. í þessu sambandi má benda á nýútkomna skýrslu OECD um skólamál á íslandi. Ég segi nú ekki að þeir hafi fundið púðrið, þessir ágætu menn sem að henni stóðu. En þar er bent réttilega á þá staðreynd að brottfallið í Háskóla ís- lands sé fimmtíu prósent. Gallin er bara sá að þar er ekki minnst einu orði á ástæðurnar." Guðni rektor er hress að vanda og segir að ekki séu þeir steinrunnir í MR. Metsöluhöfundurinn Judith Krantz sem malar gull Nafn Vikunnar: Úlfar Eysteinsson Nýtt líf í nýjum Vellauðugur lista- verkaþjófur Skoski auðjöfurinn James Jack hef- ur verið dæmdur í átta ára fangelsi fyrir að skipuleggja víðtæk rán á listaverkum í heimalandi sínu. Jack hafði þjófagengi á sínum snærum til að annast þetta verk. Lögreglan í Edinborg segir að við húsleit hjá Jack hafi fundist mikill íjöldi listaverka, silfurmuna, gim- steina og fornmuna. Þýfið er metið á um 250 milljónir. Myndir af þessum munum voru sýndar í skoska sjónvarpinu. Fjöldi fólks þekkti þar verk sem það sakn- aði. Svó virðist sem Jack hafi stundað listaverkaþjófnað í fast að tvo áratugi því í safni hans voru munir sem hurfu fyrir árið 1970. Jack viðurkenndi fyrir rétti að hafa látið stela verkunum. Hins veg- ar hefur engin skýring fundist á hvers vegna hann fór svo að ráði sínu. Maðurinn er vellauðugur en um leið óvenjunískur - jafnvel af Skota að vera. Hortugur stórsöngvari Placido Domingo hetur tekið að sér að syngja hlutverk Radamesar í upp- færslu á óperunni Aidu í Luxor hofinu. Giuseppi Verdi, höfundur óperunnar. hafði þetta hof í huga þegar hann samdi verkið fyrir rúmri öld. Hofið er 3500 ára gamalt. Þátttaka stórsöngvarans í upp- færslunni ætlar þó ekki að ganga andskotalaust og þykir það ekkert nýtt þegar hann á í hlut. Fyrir síð- ustu jól hætti hann á síðustu stundu við á syngja á Wembley leikvangin- um og móðgaði með því margan Bretann. Domingo bar því við að miðarnir á tónleikana væru allt of dýrir. Þar áttu dýrustu miðamir að kosta um 3000 krónur. í sýninguna í Luxorhofinu eiga dýrustu miðarnir að kosta 20 þúsund krónur. Þá hefur það spurst að Dom- ingo syngi aðeins á fyrstu sýning- unni í hofinu. I auglýsingum er þessa þó hvergi getið og eru þeir sem keypt hafa miða á síðari sýningarnar, í þeirri von að fá að heyra Domingo í sögulegri uppfærslu, að vonum reið- Placido Domingo. Höfundur laga sinna Dómstóll í Xundúnum hefur sýknað gríska tónskáldið Vangelis af ásök- unum um að hafa stolið stefi frá landa sínum til að nota í titillag myndarinnar Chariots of Fire. Mynd þessi hefur mjög verið rómuð og þar á meðal tónlistin í henni. Réttarhöld í málinu stóðu í 12 daga og var að þeim loknum úrskurðað að Vangelis væri réttur höfundur lagsins. Hann hefði ekki svo mikið sem tekið stef að láni.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.