Dagblaðið Vísir - DV - 07.03.1987, Síða 3

Dagblaðið Vísir - DV - 07.03.1987, Síða 3
LAUGARDAGUR 7. MARS 1987. 45 f Á næsta vori ótal margar ferðir verða farnar. Þar fiskar hver og einn á sína pólitísku línu. Það er svo fjári gaman að kyssa kerlingarnar og klappa svo á vangann á at- kvæðinu sínu. Þessi kosningavísa var ort fyrir talsvert löngu, að minnsta kosti áður en menn fóru að óttast að fólk kæmist ekki ,á kjörstað vegna veðurs og ófærðar en þrátt fyrir átak í gerð vega með bundnu slit- lagi og innflutningi á vegheflum veldur ófærð stundum umferðar- truflunum í dreifbýli og á þetta við um alla daga vikunnar jafnt þótt búið sé að ákveða það á Alþingi að á Holtavörðuheiðina snjói ein- ungis á þriðjudögum og föstudög- um. Vegna mögulegrar ófærðar úti á landi þann tuttugasta og fimmta apríl hafa menn verið að rífast um það niðri við Austurvöll, á milli þess sem þeir hafa verið að setja umferðarlög og bjarga Útvegs- bankanum, hvort rétt sé að kjósa þennan dag. í umræðunum hafa menn bent á að það gæti reynst þingmönnum erfitt að komast um kjördæmi sitt til að boða mönnum fagnaðarer- indið einu sinni enn ef mikið væri um skafla á leiðinni en eins og all- ir vita þurfa stjórnmálamenn að tala við fólk fyrir kosningar og skoða ýsuflök og hraðfrystihús þar sem atkvæðin halda sig á daginn en þorskarnir allan sólarhringinn eftir dauðann svo framarlega sem þeim er ekki boðið í siglingu til útlanda. Ekki ætla ég að draga í efa að það sé hollt fyrir fólk í hinum dreifðu byggðum landsins að horfa á stjórnmálamennina sína á fjög- urra ára fresti og jafnvel hlusta á hvað þeir hafa fram að færa en hins vegar skil ég ekki áhyggjur þessara manna varðandi það að komast leiðar sinnar, það er nefni- lega langt síðan hingað var keypt björgunarþyrla sem hægt er að fljúga hvert á land sem er í hér um bil hvernig veðri sem er. Þyrluna gætu stjórnmálaflokk- arnir hæglega tekið á leigu þegar líða færi að kosningum og ef veður tækju að gerast válynd gætu fram- bjóðendur hoppað upp í hana og síðan mætti kasta þeim út úr þyrl- unni einhvers staðar, gjarnan í fallhlíf, og ef þeir væru ekki komn- ir fram eftir svona fjóra til fimm daga mætti vel hugsa sér að hringja i hjálparsveit viðkomandi sveitar- félags og spyrja sem svo hvort hún gæti ekki hugsað sér að spreyta sig á því vérkefni að leita að stjórn- málamanni. Siðan yrði gefin upp staðarák- vörðun og það látið fylgja að hana hefði frambjóðandinn samið sjálfur en þar sem andstæðingar hans í pólitík hefðu verið á móti henni og hún ekki verið samþykkt í rikis- stjórninni væri ekki alveg öruggt að menn gætu gengið að honum vísum. Að lokum er síðan tekið fram að frambjóðandinn sé ábyggilega ein- hvers staðar því að engin dæmi séu um það að maður sem hafi stokkið út í fallhlíf hafi ekki komið niður þótt hitt sé vissulega rétt að þeir sem hafa stokkið án fallhlífar hafi verið fljótari í förum. Vegamál Tilefni hugleiðingarinnar hér á undan er lög um umferðarmál sem meðal annars skvlda okkur sem notum axlabönd til að spenna belt- in að viðlögðum sektum og svo eigum við vist líka að kevra á níu- tíu kílómetra hraða þar sem Háaloft Benedikt Axelsson aðstæður leyfa og mér er sagt að Ámi Johnsen hafi endilega viljað komast leiðar sinnar á hundrað og tíu en sá hraði er ofvaxinn mínum skilningi og gæti valdið fjölskyl- dunni óþægindum ef lögleiddur yrði því að þegar ég ek til dæmis hringinn í kringum landið drepa strákarnir tímann með því að telja bílana sem fara fram úr mér. Þegar við erum komin upp í Kjós eru þeir venjulega í háarifrildi um það hvort þeir séu hundrað fimmtíu og þrír eða hundrað fimmtíu og fimm. Einu sinni fór ég hins vegar fram úr dráttarvél sem var með stóran heyvagn aftan í sér og þá hrópuðu strákarnir húrra og mínusuðu um einn og var þetta afrek lengi í minnum haft. Að sjálfsögðu hefur nýja umferð- arlagafrumvarpið kosti og galla fvrir utan þann að Árni Johnsen skuli ekki fá að flýta sér eins og honum sýnist. Til dæmis sagði kunningi minn einn mér um daginn að hann hefði skellt afturhurðinni á bílnum sínum á mömmu sína og skemmt hana. Mér finnst vanta i lögin klásúlu um að það sé bannað að skemma mömmu sína. Kveðja Ben.Ax. Finnurðu átta breytingar? 33 Þessar tvær myndir sýnast í fljótu bragði eins. En á neðri myndinni hafa fallið burt hlutar af myndinni eða þeir breyst, alls á átta stöðum. Það er misjafnlega erfitt að finna þessar breytingar en ef ij ölskyldan sameinast um að leysa þetta trúum við því að allt komi þetta að lokum. Merkið með hring eða krossi þar sem breytingarnar eru og sendið okkur neðri myndina. Skilafrestur er tíu dagar. Að þeim tíma liðnum drögum við úr réttum lausnum og veitum þrenn verðlaun: Fataúttekt í versluninni FACO, Laugavegi 37, að upphæð kr. 2500, fataúttekt að upphæð kr. 1800 og fataúttekt að upphæð kr. 1200. 1 í þriðja helgarblaði héðan í frá birtast nöfn hinna heppnu en ný þraut kemur í næsta helgarblaði. Góða skemmtun! Merkið umslagið: Átta breytingar- 33, c/o DV, pósthólf 5380,125 Reykjavík. Verðlaunahafar reyndust vera: Jón Halldórsson, Njáls- götu 86, 101 Reykjavík (fataúttekt kr. 2500), Sigurdís H. Erlendsdóttir, Skólagerði 57, 200 Kópavogi (fataúttekt kr. 1800), Ægir Þorleifsson, Kvíabólsstíg 3, 740 Neskaupsstað (fataúttekt kr. 1200). Vinningarnir verða sendir heim.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.